Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 2006 7
Léttar bómullarskyrtur gætu
verið að komast aftur í tísku.
Undanfarin misseri hafa skyrtur
verið feikilega vinsælar og má þar
til dæmis nefna skemmtilegar
kúrekaskyrtur sem hafa verið
afar áberandi. Nú eru hins vegar
blikur á lofti um að svokallaðar
Chambrey bómullarskyrtur séu
að komast aftur í tískur. Cham-
brey skyrtur eru gerðar úr léttu
og yrjóttu bómullarefni sem er
ofið saman. Skyrturnar voru
algengastar í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna þar sem þær voru mikið
notaðar sem vinnuskyrtur enda
slitsterkar en samt mjög léttar.
Þekktasti holdgervingur þess-
ara skyrta er án efa kvikmynda-
persónan ofursvala Cool Hand
Luke sem Paul Newman lék á
seinni hluta sjöunda áratug sein-
usta aldar. Meðal tískuframleið-
anda sem hafa verið að hanna
skyrtur í þessum stíl má nefna
bæði Calvin Klein og A.P.C.
Slitsterkar en léttar
Paul Newman í hlutverki sínu sem Cool
Hand Luke.
Jean Paul Gaultier hannar
búninga Madonnu fyrir kom-
andi tónleikaferðalag.
Madonna og tískuhönnuðurinn Jean
Paul Gaultier hafa verið vinir í átján
ár. Hann hannaði til að mynda odd-
hvassa brjóstahaldarann fyrir tón-
leikaferðalag hennar „Blonde
Ambition“ fyrir um sextán árum.
Það er því ekki að undra að Mad-
onna hafi snúið sér til vinar síns til
að hanna á sig búninga fyrir kom-
andi tónleikaferðalag sitt sem kall-
ast „Confession tour“.
„Hún getur verið í hverju sem
er,“ sagði Gaultier í nýlegu viðtali
og bætti við að dívan væri mjög
upptekin af gæði efnisins.
Starfsfólk Gaultiers hefur undan-
farið unnið hörðum höndum við að
sauma búningana fyrir fyrstu tón-
leikana sem verða í Los Angeles.
Hvernig svo sem búningarnir
verða er ljóst að blanda af stíl
Madonnu og Gaultiers klikkar ekki.
Gaultier hannar á vinkonu sína
Gaultier hefur áður hannað búninga á Madonnu.
Nýjasta vopnið í baráttunni
við appelsínuhúðina.
Slim-Shape Anti-Cellulite/
Anti-Fluid Advanced
Visible Contouring
Serum er nýtt gel með
tvöfalda virkni frá
Estée Lauder. Notkun
gelsins dregur veru-
lega úr appelsínu-
húð, mótar og grenn-
ir. Gelið er borið á
þau svæði sem eru
með appelsínuhúð
kvölds og morgna
með mjúkum
hringlaga hreyf-
ingum og fer það
hratt inn í húðina
svo árangur sést
fljótlega.
Fallegri húð
Cellulite-krem eru ómissandi hjálpar-
meðul fyrir konur (og karla) sem
ætla sér að stunda sund í sumar
eða skella sér á sólarströnd í fríinu.
Kremin eru einfaldlega borin á þá
líkamshluta þar sem appelsínhúðin
er til staðar, en algeng svæði eru
magi, rass og læri. Að svo búnu er
kremunum gefinn tími til að vinna á
húðinni, með því að síast inn í hana
og ráðast á fitufrumur. Útkoman er
sléttari og fallegri húð. Þess má geta
að innan skamms er von á nýjum
og enn öflugri cellulite-kremum á
snyrtivörumarkaðinn frá fyrirtækjun-
um Biotherme og Lancôme.
Hjálparmeðul fyrir
sólarstrandaferðir
Friis & Company hefur opnað
nýja verslun í Kringlunni.
Síðasta föstudag opnaði Friis &
Company nýja verslun í Kringl-
unni. Friis og Company hefur
verið með verslun á Laugavegin-
um í rúmt ár svo nú eru verslan-
irnar orðnar tvær. Í verslunum
Friis & Company er mikið úrval af
töskum, skóm og öðrum fylgihlut-
um. Verslunin á Laugaveginum
hefur notið mikilla vinsælda síðan
hún opnaði og má búast við því að
ekki verði minna að gera í nýju
versluninni.
Mikið úrval
fylgihluta
Friis & Company hefur notið mikilla vin-
sælda hér á landi.