Fréttablaðið - 16.05.2006, Side 30
■■■■ { útskrift 2006 } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Nú þegar útskriftarveislurnar ganga
í garð þurfa fleiri en gestgjafarnir
að undirbúa veisluhöldin. Kokkarn-
ir þurfa einnig að vera vel undir-
búnir og vita nákvæmlega hvað er í
gangi í hráefni og uppsetningu, því
bæði skiptir þetta afar miklu máli
til að gera góða veislu enn betri.
„Við á Argentínu höfum verið mjög
framarlega á þessu sviði í smárétt-
um og pinnamat og höfum lagt
upp með að bjóða alltaf upp á 100
prósenta gæði í hráefni, og er fjöl-
breytnin gríðarleg hjá okkur. Allt
frá þessu hefðbundna og upp í hrá-
efni eins og hreindýr, kengúru,önd
og fleira,“ segir Stefán Magnússon,
yfirmatreiðslumaður Argentínu
steikhúss.
Hann segir þá útfæra veislur eftir
óskum hvers og eins því allt sé
hægt. Vinsælastar hjá Argentínu
eru tapas brauðsnitturnar sem eru
ristaðar og skreyttar með brak-
andi fersku salati ásamt einhverju
sjávarkyns eða kjötmeti. Einnig eru
spjótin alltaf vinsæl og er hægt að
útfæra þau á ýmsan hátt, en oft-
ast sækist fólk eftir grilluðum mat.
„Svona matur er svo fjölbreyttur
og myndast alltaf góð stemning í
veislunni, ég tala ekki um þegar vel
viðrar og hægt er að vera úti við
og láta sólina gæla við sig og Mið-
jarðarhafsstemning myndast,“ segir
Stefán. Hægt er að fá upplýsingar
um pinna og veislumat á heimasíð-
unni argentina.is og mælt er með
að fólk panti tímanlega.
Stefán lætur hér fylgja með eina
góða uppskrift að nauta carpacc-
io á tapas brauðsnittu. Best er að
undirbúa það kvöldið áður með því
að snyrta nautalund eða fille og
krydda með salti, pipar og gott er
að nota fennel krydd sem gefur gott
bragð í kjötið. Nautið er vafið inn
í plastfilmu og sett inn á frost yfir
nótt svo hægt sé að skera nautið í
þunnar sneiðar.
Daginn eftir er brauðið (snittu-
brauð) penslað með góðri olíu t.d.
truffluolíu eða basilolíu, bakað í
10 mín. við 180°C og svo skáskor-
ið í sirka 2 cm þykkar sneiðar. Þá
er brauðið penslað aftur og sett
inn í ofn aftur í u.þ.b. 2 mín. á
sama hita til að það verði stökkt.
Fallegt er að setja klettasalatið
ofan á snittuna og raða nauta-
sneiðunum ofan á og síðan er
stráð parmesanosti yfir og skreytt,
t.d. með kerfli.
300 gr. nautalundir
10 gr maldon salt
8 gr svartur malaður pipar
5 gr fennel malaður
1 stk. snittubrauð ( fást líka frosin )
1/3 búnt klettasalat
50 gr rifinn parmesan ostur
2.msk trufflu olía
Grillaður matur og Miðjarðarhafstemning
Smáréttir og snittur eru vinsæll matur í útskriftarveislurnar.
Stefán Magnússon yfirmatreiðslumaður Argentínu steikhúss. Maríneraður humar - margarita style í glasi. Túnfisk tatakí og hörpuskelsþynnur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Snittur með nauta carpaccio, kryddjurta-
hjúpuðum humri, reyktri andarbringu á
selrótarmauki og andalifur og anda-confit.
Nautaþynnur með soja-sesamsósu og kikkoman soja, og klettasalati og wasabi.
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is