Fréttablaðið - 16.05.2006, Síða 40
12
Eitt af því sem margir útskriftar-
nemar hugsa til er útskriftarferðin,
það sem haldið er til útlanda ásamt
samnemendum sínum í útskrift-
arárganginum og haft gaman af
lífinu. Ferðirnar eru mjög mismun-
andi eftir því hvernig hópurinn er
samsettur, hvað nemendurnir vilja
helst og hversu stórir hóparnir
eru.
Langoftast er þó haldið á
suðlægar slóðir og er Costa del
Sol afar vinsæll viðkomustað-
ur. Bjarni Hrafn Ingólfsson hjá
Heimsferðum segir að sá staður
bjóði upp á allt sem útskriftar-
nemar sækjast eftir í slíkum ferð-
um, fallega náttúru, fjölbreytta
afþreyingu, skemmtilegt nætur-
líf, margs konar kynnisferðir og
margt fleira.
Annar staður sem hefur allt
þetta að bjóða og kemur sterkur inn
er Mallorca. Þar er Playa de Palma
vinsælasti staðurinn.
Króatía hefur einnig átt nokkrum
vinsældum að fagna og þá helst hjá
hópum þar sem djammið er ekki
sett í forgang. Þó er þar að finna
spennandi næturlíf og ýmiss konar
skemmtun.
Margir útskriftarhópar vilja
heldur fara í borgarferðir en sólar-
landaferðir og eru vinsælustu borg-
irnar Barcelona, Prag og Búdapest.
Þetta á þó helst við hópa sem eru að
útskrifast úr háskóla.
Þeir sem eru á höttunum eftir
góðri gistingu, ódýru verðlagi og
fjölbreyttu framboði á skemmt-
un og afþreyingu ættu að skoða
Búlgaríu sem valkost en sá staður á
vaxandi vinsældum að fagna meðal
útskriftarnema. Er það ferðaskrif-
stofan Terra Nova sem býður upp
á ferðir þangað. Einnig bjóða þeir
upp á ferðir til Salou á Spáni sem
hafa verið vinsælar fyrir nemend-
ur í útskriftarferðum enda er þar að
finna stærsta skemmtigarð Spánar,
Port Aventura, vatnsskemmtigarð-
inn Costa Caribe og fallega strönd.
Þaðan er einnig stutt að fara til
Barcelona.
Strendurnar lokka stúdenta
Útskriftarnemar fara oftar en ekki í fjörugar útskriftarferðir erlendis ásamt samnem-
endum sínum.
Sólarstrendur og skemmtilegt næturlíf lokka útskriftarnemana.
■■■■ { útskrift 2006 } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Það getur verið höfuðverkur að
finna rétta gjöf handa útskriftar-
nemanum. Hér eru nokkrar góðar
hugmyndir.
klassískar útskriftargjafir ...
Íslenska orðabókin ætti að vera til
á hverju heimili og er því tilvalin
gjöf handa nýstúdentum.
Stóra
orðabókin
um íslenska
málnoktun
er ný og
skemmtileg
orðabók sem
nýtist vel.
Það er gaman að
eiga góðan Atlas
til þess að
geta látið sig
dreyma um
fjarlæg
lönd.
Flugmiði út í lífið er
útskriftargjöf sem
klikkar ekki.
Málverk og aðrir listmunir falla vel í kramið
hjá útskriftarnemum. Munið bara að velja
það sem hentar þeim sem á að fá gjöfina
en ekki bara það sem ykkur þykir fallegast.
Íslandssagan er
einkar falleg og
skemmtileg bók
sem gaman er að
eiga.