Fréttablaðið - 16.05.2006, Síða 53
ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 2006 21
Töluverðu hlutfalli af samveru-
stundum fjölskyldunnar er varið í
bíl í viku hverri. Þó svo að í flestum
tilfellum sé hægt að verja tímanum
betur en með þeim hætti gerist það
stundum að samveran í bílnum
býður upp á óvænt tækifæri. Það
gerðist einmitt í bílferð nokkurri
allt of seint á mánudagskvöldi á
heimleið eftir annasaman dag.
Ég var niðursokkin í hugsanir
mínar og lagði mig ekki eftir því
að fylgjast með samtali sona
minna í aftursætinu. En heyri
útundan mér að sá yngri segir:
„Hvernig varð heimurinn svona?“
Ég tók spurninguna ekki til mín í
fyrstu, þá heyrist aftur: „Mamma,
hvernig varð heimurinn svona?“
Ég hvái við og segi: „Hvað mein-
arðu með svona?“ Þá segir sá eldri:
„Hann meinar þannig að karlar fái
hærri laun en konur.“ Þessu er
augljóslega ekki auðsvarað en ég
ákvað af virðingu fyrir forvitni og
fróðleiksþorsta sona minna að
gera tilraun til að svara og byrjaði
því sem næst á byrjuninni.
Ég setti fram afar einfaldaða
mynd af vinnumarkaði hellisbúa
og tók að útskýra verkaskipting-
una þannig að konur hefðu verið
heima við að sinna börnum og
sjúkum auk annarra starfa sem
krefðust ekki fjarveru frá þeim,
en að karlar hefðu farið til veiða
til að fæða fjölskylduna. Svo
spurði ég: „Hvort er mikilvægara
að passa börnin eða að veiða í mat-
inn fyrir fjölskylduna?“ „Auðvit-
að að passa börnin,“ er þá sagt í
einum kór án þess að hika. Eftir
að hafa rætt nánar, með umtals-
verðum einföldunum, um það
hvernig fjarveran og gjaldmiðill-
inn sem fólst í veiðunum færði
körlunum völd til ákvarðanatöku
uppskar ég mikla samúð með mál-
stað kvenna úr aftursætinu. En
auk þess var þeim augljóslega
brugðið að heyra að það gæti verið
eitthvað mikilvægara en að gæta
barna.
Ég er viss um að hvert einasta
barn á þeirra aldri, 6-7 ára, myndi
svara með svipuðum hætti og þeir
gerðu. Því spyr ég sjálfa mig: Á
hvaða tímapunkti, eða öllu heldur
við hvaða aldur, breytist forgangs-
röðunin? Hvenær verður umsýsla
með peninga og eignir mikilvæg-
ari en umönnun barna og sjúkra?
Þetta samtal var mér mjög mikil-
væg áminning um það að ríkjandi
gildismat í samfélaginu er ekki
náttúrulögmál, það er afsprengi
þeirrar forgangsröðunar sem við-
gengist hefur í samfélaginu allt of
lengi. Forgangsröðunar sem hægt
er að breyta.
Sýn barna á heiminn er oft bæði
ögrandi og afhjúpandi. Sýn barna
verður að vera með í mótun sam-
félags. Þannig pólitík viljum við
vinstrigræn. Pólitík sem fæst við
grundvallarspurningar samfé-
lagsins í þeim tilgangi að gera
samfélagið betra. Pólitík sem spyr
spurninga eins og „Hvernig varð
heimurinn svona?“
Höfundur skipar 7. sæti V-lista,
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, í borgarstjórnarkosn-
ingunum í vor.
Hvernig varð heimurinn svona?
UMRÆÐAN
LAUNAMUNUR
HELGA BJÖRG RAGNARSDÓTTIR
Klink
fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030
Nú getur fjölskyldan flogið saman fyrir ódýrara
fargjald á manninn en nokkru sinni fyrr.
Tilvalið til að bregða sér af bæ, heimsækja afa og
ömmu eða gera eitthvað annað skemmtilegt.
1 kr. aðra leiðina
+ 739 kr.
(flugvallarskattur og tryggingargjald)
Þetta einstaka tilboðsfargjald
• gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
• er fyrir börn 11 ára og yngri í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
• gildir 15. - 30. maí
• býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
3
26
48
05
/2
00
5
Það er stutt í að allar varnir bresti
gegn verðbólgunni. Er byrjað að
bresta. Stýrivextir Seðlabanka
Íslands fela verðbólguna í bili með
því að falsa gengið. Þetta er byrj-
að að láta undan. Bandaríkjadoll-
arinn hækkar áfram og hækkar.
Mun hækka meira. Húseigendur
geta átt von á því alveg á næstunni
að lánskjaravísitalan fjúki upp og
íbúðareigendur eiga þá ekkert
lengur í íbúðum sínum vegna
hækkunar vísitölulánanna.
Margir telja að lausnin sé að
taka upp evruna og meirihluti
þjóðarinnar vill það, ef lánskjara-
vísitalan fer um leið. Þetta er sagt
ómögulegt og allt er blýfast. Engin
leið fær sem er einföld og fljót-
leg.
Hér er bent á leið, þær eru
fleiri. Ef Frakkar, sem í dag vilja
verja okkur, leyfa okkur bráða-
birgðaaðild að seðlabanka sínum
þar sem allt er í evrum, erum við
komin hálfa leið. Svo þarf ríkis-
sjóður okkar að fá evrulán í Kína,
sem ríkissjóður okkar tæki og
notað væri til að tryggja greiðslur
okkar af erlendum lánum, ef
einkavæddir bankar okkar bregð-
ast.
Með þessu fáum við aðgang að
evrunni bakdyramegin. Á evrunni
er ekki vísitala. Sá draugur væri
kveðinn niður með öllu.
Þetta er sett fram hér í einföldu
formi og er vel hægt án allrar
þeirra umræðu og flækju sem
enginn skilur í dag.
Varnirnar
bresta
UMRÆÐAN
VERÐBÓLGAN
LÚÐVÍK GIZURARSON
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA