Fréttablaðið - 16.05.2006, Side 55

Fréttablaðið - 16.05.2006, Side 55
ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 2006 23 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.636 +0,13% Fjöldi viðskipta: 302 Velta: 5.129 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,00 +1,54% ... Alfesca 3,75 +0,00%... Atorka 5,75 -0,86% ... Bakkavör 48,80 -1,41% ... Dagsbrún 5,10 -0,39% ... FL Group 18,20 -0,55% ... Flaga 3,99 +0,50% ... Glitnir 16,90 -0,59% ... KB banki 773,00 +0,78% ... Kögun 74,50 +0,00% ... Landsbankinn 22,00 -0,90% ... Marel 70,30 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,40 +0,00% ... Straumur-Burðarás 17,20 +0,00% ... Össur 105,00 +0,00% MESTA HÆKKUN Actavis +1,54% KB banki +0,78% Flaga +0,50% MESTA LÆKKUN Bakkavör -1,41% Landsbankinn -0,90% Atorka -0,86% Umsjón: nánar á visir.is Verkstæðið 10 ára. INNKAUPAKORT VISA Nýr dagur – ný tækifæri Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum. Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna boðar hér með til sjóðfélagafundar, sem haldinn verður þriðjudaginn 20. júní nk. kl. 17 á Grand Hóteli, Sigtúni 38, Reykjavík. Dagskrá fundarins: Gerð grein fyrir tillögu stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins. Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á fundinum. Tillaga stjórnar liggur frammi á skrifstofu sjóðsins auk þess sem hægt er að nálgast hana á heimasíðu sjóðsins www.live.is. Reykjavík 16. maí 2006 Stjórn Lífeyrissjó›s verzlunarmanna Sími: 580 4000 • Netfang: skrifstofa@live.is Sjóðfélagafundur Framtíð íslensks efna- hagslífs var til umræðu á ráðstefnu í gær. Til leiks voru kallaðir íslenskir sem erlendir framámenn í viðskiptalífi auk emb- ættismanna. Niðurstað- an er hófleg bjartsýni. „Teikn eru á lofti um að það versta sé að baki. Þegar storminn lægir mun íslenskt efnahagslíf áfram verða á meðal þeirra öflugustu og samkeppnishæfustu í heimi,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra. Hann flutti ávarp við upp- haf ráðstefnu viðskiptatímaritsins Economist um íslenskt efnhahags- líf á Hótel Nordica í gærmorgun. Ráðstefnuna sátu rúmlega 120 inn- lendir og erlendir gestir og hlýddu á erindi fulltrúa viðskiptalífs, stjórnsýslu og umhverfisverndar- samtaka. Í ræðu sinni áréttaði Halldór að alþjóðastofnanir á borð við Efna- hags- og framfarastofnunina (OECD) og Alþjóðagjaldeysissjóð- inn, auk alþjóðlegra matsfyrir- tækja líkt og Moody’s og Standard & Poor’s, gerðu sér grein fyrir góðum horfum hér og benti á að landið væri meðal fremstu þjóða þegar að samkeppnishæfi kæmi. Á ráðstefunni kom svo fram í máli hans að tímabært væri að endur- skoða lög sem bönnuðu fjárfest- ingu í sjávarútvegi. Ráðstefna Economist var hald- in fyrir fólk í stjórnunarstöðum fyrirtækja, stjórnmálamenn og sérfræðinga á sviði efnahagsmála. Tímaritið heldur slíkar ráðstefnur víða um heim, en þetta var í fyrsta sinn sem blaðið stendur fyrir slíkri ráðstefnu hér. Í umræðuhópi erlendra fjár- festa þar sem fjallað var um stöðu Íslands í alþjóðlegu viðskiptaum- hverfi var nokkur samhljómur. „Mál manna var að Íslendingum væri nauðsynlegt að auka fjöl- breytni til þess að jafna út vaxtar- sveiflur í efnahagslífinu,“ sagði Neil Prothero, ritstjóri gagnaöfl- unardeildar Economist, og taldi svigrúm til frekari vaxtar annarra greina en stóriðju, svo sem í lyfja- framleiðslu, banka- og ferðaþjón- ustu. „Fulltrúar atvinnulífsins eru ekki áhyggjufullir en eru á varð- bergi vegna núverandi stöðu íslensks efnahagslífs. Best er að lýsa afstöðu þeirra á þann veg að menn séu hóflega bjartsýnir. Það ríkir skilningur á því að hægja mun á hagvextinum en það verður engin brotlending,” sagði hann einnig. olikr@frettabladid.is FORSÆTISRÁÐHERRA Á RÁÐSTEFNU ECONOMIST Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hélt ræðu við upphaf ráðstefnu Economist. Hann segir íslenskt efnahagslíf áfram verða meðal þeirra öflugustu í heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hófleg bjartsýni á ráð- stefnu um efnahagslífið MARKAÐSPUNKTAR... Töluverðar hækkanir voru á ávöxtunar- kröfu bæði verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa í gær. Í Vegvísi Landsbankans segir að hækkanirnar megi að einhverju leyti rekja til vaxtahækkana á erlendum skuldabréfamörkuðum. Kínverski renminbi-gjaldmiðillinn styrktist í gær gagnvart Bandaríkjadollara og náði sínu hæsta gildi í meira en áratug. Kínverski seðlabankinn ákveður daglega gengi renminbis út frá skilgreindri gjaldeyriskörfu og má renminbi síðan sveiflast um 0,3 prósent frá því gildi innan dagsins. Greining Glitnis telur að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti sína um 0,75 prósentustig á fimmtudag en þá er vaxtaákvörðunardagur hjá bankanum. Gangi spáin eftir munu stýrivextir fara í 12,25 prósent.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.