Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 56
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Um helgina varð Þjóðminjasafn
Íslands í hópi fjögurra safna sem hlutu
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
árangur frá Evrópuráði safna. Mar-
grét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
er að vonum í sjöunda himni með upp-
skeruna. „Við metum þessa viður-
kenningu mikils. Hún skiptir máli
fyrir Þjóðminjasafnið, safnalíf á
Íslandi og þá sem starfa við menning-
arstarf á Íslandi,“ segir Margrét.
Það er Evrópuráð safna sem veitir
viðurkenninguna og sóttust sextíu
evrópsk söfn af öllum stærðum og
gerðum eftir viðurkenningunni þetta
árið. „Evrópuráð safna er stofnun
sem metur árangur safna í Evrópu
árlega og þarf hvert safn að fara í
gegnum tveggja ára matsferli. Hver
þjóð tilnefnir safnið og var það Safna-
ráð Íslands sem tilnefndi Þjóðminja-
safnið í tilefni enduropnunar þess
árið 2004.“ Matsferlið er viðamikið og
kom meðal annars matsnefnd hingað
til lands og gerði úttekt á starfsemi
safnsins. „Allir þættir safnsins voru
metnir, allt frá gæðum sýninga, and-
rúmslofti í safninu og viðmóti til safn-
gesta til faglegs innrastarfs og rekst-
urs. Sérstaklega er þó horft til
nýmæla í safnstarfi sem geta verið
öðrum söfnum til eftirbreytni og
stuðlað að framförum í evrópsku
safnastarfi.“
Sérstæða Þjóðminjasafnsins var
að mati Evrópuráðsins hversu vel er
tekið á móti gestum safnsins. „Talað
var um að gott viðmót til gesta og
aðgengi fyrir alla væri almennt haft
að leiðarljósi við gerð sýninga og
skipulagningu safnsins. Við fengum
sérstakt hrós fyrir aðgengið og hvern-
ig tekið væri tillit til allra hópa í sýn-
ingunum, barna, fjölskyldna, erlenda
gesta og svo framvegis.“ Einnig voru
metnar sérstaklega tilraunir for-
svarsmanna Þjóðminjasafnsins til að
tvinna saman fortíðina og nútímann.
„Safn á ekki bara að vera spegill for-
tíðar og sögu heldur líka spegill sam-
tímans. Metnaður okkar er því að
hafa áhrif á safngestina okkar og ekki
bara segja þeim frá sögunni.“
Segja má að nú sé Þjóðminjasafnið
að uppskera ríkulega fyrir þau sex ár
sem endurbætur stóðu yfir og safnið
var lokað almenningi. „Fólk áttaði sig
kannski ekki á því að þegar safnið var
lokað stóð yfir mikið uppbyggingar-
tímabil. Verið var að endurskoða alla
þætti starfseminnar, sem fleiri hundr-
uð manns komu að. Ef við hefðum
ekki tekið okkur þennan tíma hefði
bara verið tjaldað til einnar nætur og
við ekki fengið þessa viðurkenningu.
Nú erum við að uppskera fyrir þolin-
mæðina og erum fyrir vikið að kom-
ast í fremstu röð.“
ANDY KAUFMAN (1949-1984)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég hef aldrei í lífi mínu
sagt brandara.“
Heitustu aðdáendur
gamanleikarans Andy Kaufman
trúa enn að lát hans hafi
einungis verið sviðsbrella og að
hann muni snúa aftur.
MERKISATBURÐIR
1836 Edgar Allan Poe giftist
þrettán ára gamalli frænku
sinni, Virginíu.
1901 Skip sekkur skammt austur
af Heimaey og tuttugu og
sjö manns farast.
1942 Fyrsta ríkisstjórn Ólafs Thors
tekur við völdum.
1966 Karnabær er opnaður í
Reykjavík. Verslunin hefur
mikil áhrif á tísku unga
fólksins.
1983 Vikublaðið Andrés Önd
kemur út á íslensku í fyrsta
sinn.
2003 33 látast og hundrað
særast í hryðjuverkaárás
í marokkósku borginni
Casablanca.
2005 Kúvæskar konur hljóta
kosningarétt.
JARÐARFARIR
11.00 Sigrún Eiríksdóttir, Eiríks-
götu 2, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu.
13.00 Gissur Elíasson hljóð-
færameistari, Laufásvegi
18, Reykjavík, verður
ANDLÁT
Aðalsteinn Guðjónsson lést
mánudaginn 1. maí. Útför hefur
farið fram.
Ágústa S. Jónsdóttir Rosario,
(Dúva), lést á heimili sínu, 8100
Mona Avenue, Norfolk WA 23518,
miðvikudaginn 10. maí. Útför fer
fram í Norfolk, Virginu, Bandaríkj-
unum.
Bjarnþór Karlsson, Einimel 19,
Reykjavík, lést laugardaginn 13.
maí.
Erla Cortes, Æsufelli 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum að morgni
fimmtudagsins 11. maí.
Guðrún Ólöf Þór, Kópavogsbraut
4, er látin.
Gunnar Sigurðsson, Kleppsvegi
94, Reykjavík, lést miðvikudaginn
10. maí.
Hrefna Bergmann Einarsdóttir,
Bústaðavegi 83, lést á Landspítala
Fossvogi föstudaginn 12. maí.
Íva Bjarnadóttir, Sóltúni 2,
Reykjavík, lést á gjörgæsludeild
LSH við Hringbraut sunnudaginn
14. maí.
Jóhann Sigurðsson, Kórsölum 5,
Kópavogi, lést á Landspítalanum
við Hringbraut mánudaginn 1.
maí. Útför fór fram í kyrrþey.
Kristján S. Júlíusson, Barðastöð-
um 7, Reykjavík, lést á Landspítal-
anum föstudaginn 12. maí.
Marilyn Hollander Solvason lést
á heimili sínu í Howell, New Jersey,
Bandaríkjunum, miðvikudaginn 3.
maí. Útför hefur farið fram.
Tómas Tómasson, Hjaltabakka
8, Reykjavík, lést á heimili sínu
fimmtudaginn 11. maí.
Þennan dag árið 1920 gerði
Benedikt páfi fimmtándi
Jóhönnu af Örk að dýrðlingi.
Jóhanna var bóndadóttir
og fékk fjórtán ára gömul
köllun til að fara fram og
krýna Karl krónprins Frakka
konung í Rúðuborg og
sameina Frakkland undir
hans stjórn.
Á þessum tíma stóð hundr-
að ára stríð Frakka og Breta
sem hæst og tók Jóhanna
virkan þátt í hernaðnum.
Hún leiddi franska heri til
sigurs við borgina Orléans
sem Englendingar sátu um.
Allan tímann hélt hún fram
að guðleg öfl leiddu hana
áfram og réðu ráðleggingum
hennar til yfirstjórnar Frakk-
lands. Henni tókst að láta
krýna Karl krónprins konung
yfir Frakklandi og tók hann
nafnið Karl sjöundi.
Skömmu eftir krýn-
inguna í Rúðuborg var
Jóhanna tekin höndum af
Englendingum og frönsk-
um samstarfsmönnum
þeirra. Réttað var yfir henni
í fjóra mánuði með þeirri
niðurstöðu að Jóhönna væri
sek um villutrú. Hún var við
brennd á báli aðeins nítján
ára gömul.
ÞETTA GERÐIST > 16. MAÍ 1920
Jóhanna af Örk tekin í tölu dýrðlinga
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: HLÝTUR EVRÓPSKA VIÐURKENNINGU
Uppskera þolinmæðinnar
MARGRÉT HALLGRÍMSDÓTTIR ÞJÓÐMINJAVÖRÐUR Á þeim sex árum sem safnið var lokað almenningi
var unnin mikilvæg undirbúningsvinna sem Margrét segir að nú sé verið að verðlauna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Íva Bjarnadóttir
Sóltúni 2, Reykjavík,
lést sunnudaginn 14. maí á gjörgæsludeild LSH við
Hringbraut. Jarðarförin auglýst síðar.
Dóra Kristín Halldórsdóttir
Kristján Þórðarson
Gyða Halldórsdóttir
Guðjón Reynir Jóhannesson
Viðar Halldórsson
Ragna Bogadóttir
Edda Magndís Halldórsdóttir
Kristinn Jóhann Sigurðsson
Björn Halldórsson
Kristín Bjarnadóttir
Sigrún Guðnadóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sædís Sigurbjörg Karlsdóttir
frá Bóndastöðum, Hjaltastaðaþinghá,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag
kl. 13.00.
Hörður Rögnvaldsson
Margrét Elísabet Harðardóttir Andrés Þórarinsson
Ingibjörg Harðardóttir Ólafur Tryggvi Mathiesen
Katrín Rögn Harðardóttir Jón Þór Daníelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, bróðir, stjúpfaðir
og afi,
Jóhannes Víðir Sveinsson
frá Siglufirði, Austurbergi 18,
varð bráðkvaddur miðvikudaginn 3. maí. Jarðarförin fer
fram miðvikudaginn 17. maí kl. 13.00 frá Fossvogskirkju.
Róbert Logi Jóhannesson Dagný Stefánsdóttir
Sæunn Jóhannesdóttir
Heiðar Feykir Anna Björk Hjörvar
Alexander Feykir Heiðarsson
Edda Guðbjörg Sveinsdóttir
Arnar Sveinsson
Þórhallur Sveinsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir
og amma,
Erla Cortes
Æsufelli 6, Reykjavík,
sem lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við
Hringbraut að morgni 11. maí, verður jarðsett frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. maí kl. 15.00.
Gunnar J. Árnason Soffía Karlsdóttir
Kristinn H. Árnason
Snorri Örn Árnason Ásdís Ásbjörnsdóttir
Kristín Björg Cortes
Guðrún Cortes
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi
Gissur Elíasson
hljóðfærasmíðameistari, Laufásvegi 18,
Reykjavík,
lést á LHS í Fossvogi, að morgni 7. maí síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni Reykjavík
þriðjudaginn 16. maí kl. 13.00.
Elías Ragnar Gissurarson Vera Snæhólm
Þórdís Gissurardóttir Sverrir Þórólfsson
Hákon Örn Gissurarson Valdís Kristinsdóttir
Hjördís Gissurardóttir Geir Gunnar Geirsson
Magnús Þórarinn Gissurarson Anna Ágústa Hauksdóttir
Ásdís Gissurardóttir Ragnar Th. Sigurðsson
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sif Áslaug Johnsen
Hrísmóum 1, (áður Holtagerði 65)
lést föstudaginn 12. maí á Landspítala - háskólasjúkra-
húsi Fossvogi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 24. maí kl. 13.00.
Lárus Johnsen Atlason Nanna Guðrún Zoëga
Guðmundur Halldór Atlason
Atli Helgi Atlason
Dóra Elín Atladóttir Birgir G. Bárðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
13.00 Kristín Bæringsdóttir
fyrrum húsfreyja á Tilrauna-
stöðinni að Keldum verður
jarðsungin frá Lágafells-
kirkju.
13.00 Ólafur Þórðar Friðriksson
Hjartar verður jarðsunginn
frá Seljakirkju.
13.00 Sædís Sigurbjörg Karls-
dóttir frá Bóndastöðum,
Hjaltastaðaþinghá, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarð-
arkirkju.
14.00 John Joseph Cramer,
Hæðargötu 10, Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju.
15.00 Bára Björnsdóttir, Hraun-
hvammi 4, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju.