Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 60

Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 60
 16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR Í Gerðubergi stendur yfir sýning þriggja alþýðulistamanna en einn þeirra, listamaðurinn og skrúð- garðyrkjumeistarinn Guðjón Stef- án Kristinsson, sýnir þar forláta vegghleðslu sem hann gerði sér- staklega fyrir sýninguna. Guðjón Stefán er landskunnur fyrir vegg- hleðslur sínar, sem yfirleitt eru úr grjóti og torfi, en hleðslan sem prýðir lóð Gerðubergs er hlaðin úr grjóti og gleri. „Ég er að gera tilraunir með þetta og sýna þannig samspil skugga og birtunnar í glerinu. Glerið framkallar alveg magnaða birtu, eins og ef við myndum hlaða vegg og hluti hans væri glerstykki yrði það eins og að horfa ofan í hafið, birtan sem myndast er eins og þegar sólin brýtur hafflötinn og grjótið sem snertir jaðra glers- ins býr líka yfir dálitlu dulmagni.“ Guðjón kveðst vera með hugmynd um miklu stærri og magnaðri skúlptúr í huganum sem kannski komist á teikniborðið. Inni í safn- inu sýnir hann voldugar andlits- myndir höggnar í rekavið. „Ég hegg líka í stein, grágrýti og gabb- ró, ef tíminn leyfir hegg ég í fleira og geri meira en þetta er nú bara svona í hjáverkum eftir vinnuna á kvöldin,“ segir listamaðurinn. Í Bogasal Gerðubergs sýnir Ketill Larsen málverk og kallar sýningu sína „Andblæ frá öðrum heimi“ en málarinn Jón Ólafsson sýnir portrettmyndir í salarkynn- um safnsins undir yfirskriftinni „Kvunndagsfólk.“ Sýningarnar standa til 10. september. - khh Alþýðulist í ýmsum myndum GUÐJÓN STEFÁN KRISTINSSON Hleður birtu og skuggum í skúlptúrvegg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.