Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 62
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR30
„Við erum þessa dagana að semja
fullt af lögum og fólk mun heyra
frá okkur í sumar,“ segir Guð-
mundur Steingrímsson, hljómborðs-
leikari hljómsveitarinnar Ske.
Mannabreytingar hafa orðið hjá
sveitinni því nýverið gekk söngv-
arinn Höskuldur Ólafsson til liðs
við hana. Höskuldur gerði garðinn
frægan með rappsveitinni Quarashi
fyrir nokkrum árum en hefur lítið
haft sig í frammi á tónlistarsviðinu
síðustu ár.
„Hann kemur með ferska
strauma inn í bandið, Höskuldur
er bæði góður melódíusmiður og
afbragðs söngvari,“ segir Guð-
mundur, sem þvertekur fyrir að
nýi maðurinn hafi reynt að pranga
rappáhrifum upp á sveitina: „Nei,
enda er rappið búið. Höskuldur er
bara brillíant söngvari.“
Guðmundur segir þá félaga
hafa æft stíft að undanförnu en
ekki enn bókað sig á tónleika í
sumar. Hann býst við því að hljóm-
sveitin reyni að taka upp nýtt efni
með haustinu. „Það er nýr tónn í
þessum lögum en við höldum samt
okkar helstu höfundareinkennum.
Það er aðeins öðruvísi handbragð
á þessu núna.“
Tvær þekktar söngkonur hafa
sungið með Ske, fyrst Ragnheiður
Gröndal en nú síðast Ágústa Eva
Erlendsdóttir. Hún hefur aftur á
móti verið upptekin í hlutverki
Silvíu Nætur undanfarið og Guð-
mundur segist lítið vita um afdrif
hennar. „Ágústa er horfin af yfir-
borði jarðar, hún hefur breyst í
aðra manneskju. Ég veit ekki
hversu langt það ferðalag verður
þannig að eins og staðan er í dag
leggjum við bara upp með Hössa
sem söngvara.“
Ske hefur líka fengið nýjan
trommara. Sá er frá Liverpool og
heitir Paul Maguire. Hann hefur
helst unnið sér það til frægðar að
vera trommari hljómsveitarinnar
The La‘s sem átti smellinn There
She Goes á níunda áratugnum auk
þess sem hann lék um tíma með
Echo and the Bunnymen. „Hann
er mágur Björns Jörundar og er
fastur í þeirri glötuðu vinnu að
byggja Hringbrautina en fær
útrás á trommunum með okkur.
Hann er flottur stílisti á tromm-
urnar og kemur með afbragðs
Liverpool-hreim inn í bandið.“
Leysir Ágústu Evu af hólmi
HÖSKULDUR ÓLAFSSON Fyrrverandi rappari
úr Quarashi hefur tekið við söngvarastöð-
unni í hljómsveitinni Ske.
Nýtt safnbox með Björk Guð-
mundsdóttur kemur út 27. júni.
Nefnist það Surrounded og
hefur að geyma allar þær sjö
sólóplötur sem Björk hefur
gefið út í Bretlandi. Allar plöt-
urnar eru í endurhljóðbland-
aðri útgáfu.
Á hinni hlið hverrar plötu er
síðan DVD-mynddiskur með
myndböndum við lögin.
Björk gefur út safn
BJÖRK Söngkonan Björk Guðmundsdóttir gefur
út safnbox hinn 27. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Silvía Nótt undirstrikaði að
hún er ekki barnastjarna
þegar hún mætti á súlu-
prýdda næturklúbbinn
Salon Oriental í helsta
skemmtanahverfi Aþenu-
borgar í fyrrakvöld. Silvía
var í stuttum kjól, sokka-
böndum og á háum hælum.
Hún baðaði sig í kastljósi
fjölmiðla þar sem hún lá
með sígarettu í munnvikinu
uppi í rúmi sem beið hennar
á næturklúbbnum.
„Förum að dansa,” hrópaði hún til
Rómaríós við komuna á staðinn.
Örfáum mínútum fyrr kom hún
akandi í Ferrari-sportreið, hund-
elt af ljósmyndurum og kvik-
myndatökumönnum. Hún lét það
ekki á sig fá og fór rakleitt niður
stigann í klúbbinn með vininum
Peppe auk Rómaríós. Hún sagði
við Fréttablaðið á leiðinni niður
stigann að Eurovision væri
hörkupúl enda kom í ljós að koman
á skemmtistaðinn var í þeim til-
gangi að leyfa grísku sjónvarps-
stöðunni Antenna 1 að mynda
hana.
„Undirbúningurinn hefur verið
erfiður, mjög erfiður, skilurðru.
En ég er Silvía, þú veist, og ég vil
vera með fólkinu mínu og vera
góð við það,” sagði stjarnan. Sker-
andi hávaðinn mætti henni, en sig-
urlag Helenu Paparizu úr Eurovi-
son í fyrra, My Number One, var á
fóninum. Silvía fór rakleitt að
rúmi í enda skemmtistaðarins. Þar
lá hún með Rómaríó og Peppe um
stund, hoppaði um og skemmti sér.
Hún stóð síðan upp, gekk að plötu-
snúðinum og heimtaði að fá lagið
sitt leikið. Það gekk ekki eftir.
Peppe sagði á skemmtistaðnum
að hann ætti alltaf auka orku í
djammið. „Ég veit ekkert af hverju
ég er í þessu partíi, kannski af því
að ég elska lífið og mig langar að
vera þar sem fólkið er.“ Hann
sagðist þó vonast til að hitta stelp-
ur. „Það er ekki erfitt að krækja í
mig.”
Atriðið var sýnt síðdegis í gær
á grísku sjónvarpsstöðinni
Antenna 1. Þáttastjórnandinn vildi
kynna Silvíu fyrir grísku þjóðinni,
en hún hefur vakið athygli hér í
Eurovision, aðallega eftir að
móðga Grikki á fyrstu æfinunni í
O.A.K.A. höllinni. Grikkirnir töldu
að hún hefði sagt þeim að fara til
fjandans, þegar hún sagði það við
einn sviðsmanninn. „En hún baðst
afsökunar og það er gott,” sagði
Athanasios Klonopoulos, sem sá
um Silvíu á skemmtistaðnum.
Silvía Nótt fær mestu umfjöllun
grískra fjölmiðla fyrir utan Önnu
Vissi, gríska keppandann, og var í
fjölda útvarpsviðtala í borginni í
gær. Hún kom einnig fram í sjón-
varpsviðtölum, þar á meðal á
bresku stöðinni Channel Four en
þar söng hún lagið sitt án undir-
leiks.
gag@frettabladid.is
Skak fyrir grískt sjónvarp
SILVÍA Í MIKLU STUÐI Silvía skekur sig fyrir
vinsælasta sjónvarpsþáttinn á grísku einka-
reknu stöðinni Antenna 1. Hann er sýndur
að degi til og hefur ríflega fjörutíu prósenta
áhorf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SILVÍA SLÆR Í GEGN Fáir keppendur hafa fengið jafn mikla athygli og Silvía Nótt en ljós-
myndarar fylgja henni hvert fótmál. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UMKRINGD AÐDÁENDUM Silvía lætur sér fátt fyrir brjósti brenna en hefur heillað marga Grikkina upp úr skónum. Á Salon Oriental fékk
hún mikla athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI