Fréttablaðið - 16.05.2006, Síða 70
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Kraftur
og hugmyndir
Tryggjum Karli og Bryndísi
sæti í bæjarstjórn
Hugmyndaríkur athafnamaður sem
lætur verkin tala.
„Þetta voru óskaleikarar leikstjór-
ans og með einhverjum ótrúlegum
hætti tókst að fá þá um borð,“
segir Skúli Fr. Malmquist hjá kvik-
myndafélaginu Zik Zak. Í gær var
tilkynnt að sjálfur Tom Waits
myndi leika í næstu mynd leik-
stjórans Dags Kára Péturssonar.
Hún mun heita The Good Heart og
verður tekin upp bæði hér á landi
og í Bandaríkjunum þar sem sagan
gerist. Auk Waits hefur ungstirnið
Ryan Gosling verið ráðinn í hitt
aðalkarlhlutverkið.
„Það er auðvitað frábært að fá
þessa tvo leikara og nú eigum við
bara eftir að ganga frá ráðningu í
aðalkvenhlutverkið. Við vonumst
til þess að geta klárað það fljót-
lega,“ segir Skúli en um evrópska
leikkonu verður að ræða. Ekki
náðist í Dag Kára í gær þar sem
hann var upptekinn við æfingar
með hljómsveit sinni, Slowblow.
Tom Waits þarf vart
að kynna fyrir Íslend-
ingum en hann er
einn af virtari tón-
listarmönnum ver-
aldar. Waits hefur
talsvert fengist við
kvikmyndaleik en
þekktustu myndir
sem hann hefur
leikið í eru Short
Cuts og Dracula.
Ryan Gosling
er þekktastur
fyrir hlutverk
sitt í hinni
ofurrómant-
ísku kvikmynd The Notebook en
hann þykir einn af athyglisverð-
ari ungu leikurunum í Hollywood.
Skúli Fr. Malmquist og Þórir
Snær Sigurjónsson framleiða
myndina fyrir Zik Zak auk þess
sem Sigurjón Sighvatsson kemur
að framleiðslunni. The Good Heart
fjalar um ungan heimilislausan
mann í San Francisco, Lucas, sem
gengur allt í mót. Eftir misheppn-
aða tilraun til að fremja sjálfs-
morð hittir hann Jacques, sem er
að jafna sig eftir sitt fimmta
hjartaáfall. Jacques tekur Lucas
að sér og hefur í hug að arfleiða
hann að bar sem hann á. Áform
þeirra breytast þó þegar April,
ung evrópsk flugfreyja, rambar
inn á barinn eitt kvöldið.
Að sögn Skúla er stefnt að því að
tökur á myndinni hefjist í nóvem-
ber. Innitökur verða hér á landi en
útitökur verða í San Francisco og
Oakland í Bandaríkjunum.
Fyrirtækið Katapult Film Sales sér
um sölu myndarinnar og verður hún
kynnt á kvikmyndahátíðinni í
Cannes nú í vikunni.
hoskuldur@frettabladid.is
DAGUR KÁRI PÉTURSSON: UNDIRBÝR NÆSTU KVIKMYND
Tom Waits leikur fyrir Dag
Kára í The Good Heart
TOM WAITS
Leikur í nýjustu
mynd íslenska leik-
stjórans Dags Kára
Péturssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
DAGUR KÁRI Prúðbúinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra. Þar verður ný mynd hans
kynnt síðar í vikunni.
HRÓSIÐ
...fær Agnar Jón Egilsson, sem
heldur leiklistarnámskeið í
sumar fyrir unga og jafnvel
upprennandi leikara.
LÁRÉTT:
2 hróss 6 holskrúfa 8 fúsk 9 kúgun
11 tveir eins 12 lafi 14 leikhúsfarði
16 bardagi 17 að 18 niður 20 slá
21 nabbi.
LÓÐRÉTT:
1 krass 3 klafi 4 nokkrir 5 gerast 7
galli 10 angan 13 farfa 15 flink 16
flýti 19 tveir eins.
LAUSN:
LÁRÉTT: 2 lofs, 6 ró, 8 kák, 9 oki, 11
ee, 12 tolli, 14 smink, 16 at, 17 til, 18
suð, 20 rá, 21 arða.
LÓÐRÉTT: 1 krot, 3 ok, 4 fáeinir, 5 ske,
7 ókostur, 10 ilm, 13 lit, 15 klár, 16 asa,
19 ðð.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Systrahljómsveitin CocoRosie er væntanleg til landsins í dag en
mikil eftirvænting ríkir meðal tónlist-
arfrömuða sem geta
vart beðið eftir því að
sjá systurnar á sviði
enda eru þær með því
ferskasta sem sést hefur
í langan tíma. Stúlk-
urnar verða í Kast-
ljósinu annað kvöld og
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
verða systurnar í stuttu viðtali en klykkja
út með skrautlegri uppákomu.
Kosningabaráttan í Reykjavík er í algleymingi þessa dagana eins og
víða um land. Fréttablaðið birti fyrir
skömmu frétt þess efnis að frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna
og Frjálslynda flokksins hefðu ljáð rödd
sína sem hringitón hjá Og Vodafone.
Herbragðið virðist augljóslega hafa
virkað að mati keppinautana
því samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins kom Björn
Ingi á harðaspretti inn á
skrifstofur símafyrirtækisins
og lét taka upp sína eigin
útgáfu af hringitón. „Halló,
þetta er Björn Ingi, ég get
lofað því að síminn er
að hringja,“ er hringitónn
Framsóknarflokksins um þessar mundir.
Samfylkingin fylgdi síðan í humátt á eftir
en flokkurinn notast þó ekki við raddir
frambjóðenda sinna heldur hljómar lag
kosningabaráttunnar.
Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Reykja-vík rokkar er óðum að taka á sig
endanlega mynd. David Gray er aðal-
númerið á laugardagskvöldinu en með
honum koma fram Ampop og Hjálmar.
Nú hefur verið staðfest að norska
söngkonan Kate Havnevik bætist í
þennan hóp en hún er sögð bjartasta
von Norðmanna á tónlistar-
sviðinu. Lög hennar hafa
verið notuð í sjón-
varpsþættinum Grey‘s
Anatomy og hafa stór
plötufyrirtæki slegist
um að fá Kate til liðs
við sig. Kate er búsett í
London en hún er
alls ekki ókunnug
Íslandi því kær-
asti hennar er
leikarinn Gott-
skálk Dagur
Sigurðarson.
Fyrsta æfing þjóðanna sem eiga
fast sæti á lokakvöldi Eurovision
var í gær. Flestir voru á því að
Norðmenn hefðu komið mest á
óvart og spá þó nokkrir þeim sigri
í keppninni. Aðrir töldu Bretana
standa sig vel, en höfðu áður talið
að stúlknakórinn gæti brugðist.
Norska stúlkan Christine Guld-
brandsen söng Álfadansinn sinn
og þegar hún var spurð hvers
vegna lagið væri svona miklu
betra núna en í undankeppninni í
Noregi, svaraði hún: „Ég æfði.”
Silvía hefði átt að taka hana til
fyrirmyndar.
Æfingarnar gengu allar greið-
lega fyrir sig í gær og var lítið um
hnökra. Flytjendurnir fjórtán æfa
aftur í dag og þá í búningunum.
Flestir komu vel til hafðir í höll-
ina, utan hinnar sautján ára
dönsku stúlku Sidsel Ben Semm-
ane, sem hefði rétt eins getað
mætt í sömu fötunum í skólann á
mánudegi.
Hin gríska Anna Vissi steig
síðust á sviðið í O.A.K.A í gær og
segja strákarnir á ESCtoday.com,
vinsælasta vef Eurovision-
aðdáenda, að atriðið hafi greini-
lega verið æft á laun. Myndavél-
arnar hafi gripið hvert einasta
rétta augnablik er Anna söng
lagið sitt af innlifun á sviðinu.
Sömu strákar voru sannfærðir
í gær um að Silvía Nótt væri í
raun Selma Björnsdóttir dulbúin
en söngkonan hefur tvívegis áður
verið fulltrúi okkar Íslendinga.
Þeir gengu svo langt að láta kanna
fyrir sig hvort þær bæru sama
vegabréf og fengu úr því skorið
að svo væri ekki. Þeir voru ekki
sannfærðir og sögðu þær rosa-
lega líkar. Strákarnir tóku viðtal
við Silvíu í fyrradag, sem sett var
á vefi þeirra í gær, og spurðu
hana meðal annars hvaða tyggjó
hún tyggði. „Ég get ekki sagt
ykkur það því ég er ekki með
styrktarsamning við framleið-
andann,” svaraði Silvía snilldar-
lega.
EUROVISION GUNNHILDUR GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ GRIKKLANDI
Norðmenn komu mest á óvart í gær
SIDSEL BEN SEMMANE Danska stúlkan
hafði ekki áhyggjur af klæðaburðinum í
gær. Hún söng á blaðamannafundinum
lagið Mercedes Benz sem Janis Joplin gerði
frægt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÓNLIST
Í augnablikinu er ég mikið að hlusta
á CocoRosie og Joönnu Newsom.
Þær eru með svo viðkvæmar og
fallegar raddir og tónlist CocoRosie
fær mig næstum til þess að dansa.
Hún er svo dreymandi og falleg. Svo
ætla ég á CocoRosie-tónleikana sem
eru á fimmtudaginn en veit ekki
með Joönnu.
BÓKIN
Uppáhaldsbókin mín er eiginlega
ekki lesbók. Hún heitir Sample og
fjallar um 100 mest spennandi tísku-
hönnuði samtímans og það eru tíu
manneskjur sem fjalla um hvern og
einn. Auk þess fannst mér Minningar
Geisju alveg æðisleg.
BORGIN
Reykjavík, af því þar eru flestir sem
mér þykir vænt um.
BÍÓMYNDIN
Það fyrsta sem mér dettur í hug eru
myndirnar Walk the Line, Napo-
leon Dynamite og Almost Famous,
mér finnst þær allar alveg ótrúlega
skemmtilegar.
BÚÐIN
Tvímælalaust Spúútnik og Kronkron.
Ég elska notuð föt, það er svo mikil
saga á bakvið þau. Kronkron er svo
bara alveg æðisleg og þau selja
flíkur frá mörgum hönnuðum sem
eru í uppáhaldi hjá mér, ég er sjúk í
allt þarna inni.
VERKEFNIÐ
Ég er kennari í Jazzballettskóla
Báru og þetta er fyrsta önnin mín.
Nemendur mínir eru að fara að sýna
á mánudaginn og það verður fyrsta
verkið mitt sem þeir sýna á sviði,
það er mjög spennandi. Svo er ég
bara að vonast til þess að það komi
framhald af þáttunum Á bak við
böndin en það væri þá varla fyrr en
í haust.
AÐ MÍNU SKAPI: ERNA BERGMANN BJÖRNSDÓTTIR DAGSKRÁRGERÐARKONA
CocoRosie, Kronkron og jazzballett
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA