Fréttablaðið - 07.06.2006, Side 6
6 7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR
Allar nánari upplýsingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
Sími 585 5500 - www.hafnarfjordur.is
���������������� - Rativ - Tungur í leikhúsi - Míkróveröld og morgunstemningar
Ljóð í lauginni - Leikskólalist - Sumarlestur - Brynja og börnin
Aðgangur ókeypis á viðburði nema annað sé tekið fram
��
��
��
��
�
��
��
��
�
���
����� 1.-10. júní 20067. júní
Kl. 12:00 „Harðjaxlar og mjúkir menn“ Hádegistónleikar
í Hafnarborg. Sigurður Skagfjörð Steingrímsson bartónn
flytur aríur og ljóð úr ýmsum áttum við undirleik Antoníu Hevesi
píanóleikara.
Kl. 17:15 Feng Shui kynning í fjölnotasal Bókasafns Hafnarfjarðar
Jóhanna Kristín Tómasdóttir heldur erindi um Feng Shui. Komið
og fræðist um hvernig hægt er að gera heimilið vistlegra og
þægilegra.
Kl. 20:00 Rokktónleikar í Gamla bókasafninu
Fram koma hljómsveitirnar Shima, Lokbrá, Coral, Changer
og Kimono
Kl. 21:00 Kvartett Andrésar Þórs. Útgáfutónleikar í Hafnarborg
Fluttar verða tónsmíðar Andrésar Þórs af geisladisknum Nýr
dagur. Kvartettinn skipa Andrés Þór á gítar, Sigurður Flosason á
saxófón, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Þorvaldur
Þorvaldsson á trommur.
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar
� � �
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
KJÖRKASSINN
Treystirðu Geir H. Haarde sem
forsætisráðherra?
Já 49,8 %
Nei 50,2 %
SPURNING DAGSINS Í DAG
Finnst þér að boða eigi til þing-
kosninga vegna hræringa innan
ríkisstjórnarinnar?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÓMSMÁL Jónas Garðarsson, for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur, var í gær dæmdur í þriggja
ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir
manndráp af gáleysi í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Þetta er þyngsti dómur sem
fallið hefur á Íslandi vegna mann-
dráps af gáleysi. Jónas var að auki
dæmdur til þess að greiða aðstand-
endum Matthildar Harðardóttur
og Friðriks Ásgeirs Hermanns-
sonar um níu milljónir króna í
miskabætur, auk tæpra fjögurra
milljóna króna í sakarkostnað.
Jónas er í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur sagður hafa verið við
stýri skemmtibátsins Hörpu þegar
hann steytti á Skarfaskeri aðfara-
nótt laugardagsins 10. september í
fyrra, með þeim afleiðingum að
farþegar á bátnum, Matthildur
Harðardóttir og Friðrik Ásgeir
Hermannsson, létust.
Í dómi héraðsdóms segir að
rannsókn slyssins hafi leitt í ljós
að Jónas hafi verið við stýri báts-
ins þegar hann steytti á skerinu, á
allt að sautján mílna hraða. Frið-
rik Ásgeir lést næstum samstund-
is vegna áverka sem hann hlaut
við áreksturinn en samkvæmt
rannsókn málsins lést Matthildur
ekki fyrr en Jónas stýrði bátnum
af skerinu, með þeim afleiðingum
að hún drukknaði. Matthildur var
að mestu áverkalaus þegar hún
fannst.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson,
lögmaður og talsmaður aðstand-
enda Friðriks og Matthildar, segir
niðurstöðu héraðsdóms ekki hafa
komið óvart. „Niðurstaðan er í
samræmi við það sem ég átti von
á, þó ég hafi í raun vonast eftir
þyngri dómi. En dómendur eru
bundnir af fordæmum og því
tekur niðurstaða héraðsdóms mið
af þeim. En þetta mál er einstakt
að því leyti að Jónas er borinn
óvenju þungum sökum.“ Jóhannes
segir niðurstöðu dómara sýna að
málatilbúnaður Jónasar hafi ekki
átt við rök að styðjast. „Það er
alveg ljóst að ef Jónas hefði hagað
sér eins og maður og axlað ábyrgð
á sínum gjörðum, þá hefði hann
hlotið vægari dóm. Dómarar kom-
ast að þeirri niðurstöðu að málatil-
búnaður Jónasar hafi ekki átt við
nein rök að styðjast.“
Jónas hélt því fram við aðal-
meðferð málsins að Matthildur
hefði verið við stýrið þegar slysið
varð, en dómarar komust að þeirri
niðurstöðu að „útilokað væri að
Matthildur heitin hafi verið við
stjórnvölinn“, þegar slysið varð.
Í dómnum segir að það sé „sam-
hljóða álit rannsóknarlögreglu-
manns og réttarmeinafræðings að
útilokað sé að Matthildur hafi
getað stýrt bátnum miðað við
áverka á líkama hennar,“ en áverk-
ar sem Jónas hlaut, meðal annars
lærbrot og úlnliðsbrot, þóttu
benda til þess að hann hefði stýrt
bátnum þegar slysið varð.
Í dómi héraðsdóms segir að
Jónas hafi gerst sig sekan „um það
óskaplega tiltæki að bera af sér
sakir og reyna að koma ábyrgð
yfir á þá sem létust í sjóslysinu af
völdum hans“.
Ekki náðist í Jónas Garðarsson
eða Kristján Stefánsson, lögmann
Jónasar, þegar Fréttablaðið reyndi
að ná tali af þeim í gær. Ekki hefur
því fengist staðfest hvort dómn-
um verður áfrýjað.
magnush@frettabladid.is
Jónas dæmdur í
þriggja ára fangelsi
Jónas Garðarsson var í gær dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir
manndráp af gáleysi. Þetta er þyngsti dómur sem fallið hefur á Íslandi fyrir mann-
dráp af gáleysi. Jónas þarf að greiða aðstandendum níu milljónir króna í bætur.
KRISTJÁN STEFÁNSSON OG JÓNAS GARÐ-
ARSSON Samkvæmt dómi héraðsdóms
þykir öruggt að Jónas, sem sést til hægri á
myndinni, hafi verið við stýri bátsins þegar
hann steytti á Skarfaskeri í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGMENN LESA DÓMSNIÐURSTÖÐUR Á annan tug aðstandenda Matthildar og Friðriks voru í dómssal þegar dómur var kveðinn upp. Hér
sjást Jóhannes Rúnar Jóhannsson, lögmaður aðstandenda, og Sigríður Friðjónsdóttir, sem flutti málið fyrir dómi, skoða dóminn ásamt
aðstoðarfólki sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Tveggja ára tímabili
Íslands í formennsku Eystrasalts-
ráðsins lýkur 30. júní næstkom-
andi. Leiðtogafundur ráðsins, sem
hefst á morgun, markar lok for-
mennskunnar og mun Svíþjóð sinna
henni næstu tvö ár. Ísland hefur
meðal annars lagt áherslu á sam-
vinnu á sviði orku- og umhverfis-
mála og nánari samvinnu við önnur
svæðisbundin samtök.
Ellefu aðildarríki ráðsins taka
þátt í fundinum auk fulltrúa
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins sem einnig á aðild
að ráðinu. Alls munu níu forsætis-
ráðherrar sitja fundinn og tveir
utanríkisráðherrar.
Eystrasaltsráðið var stofnað
árið 1992 með aðild tíu ríkja og
gerðist Ísland aðili árið 1995.
Meginhlutverk ráðsins er að
stuðla að stjórnmálalegum og
efnahagslegum stöðugleika í
norðausturhluta Evrópu, meðal
annars með aðstoð við þróun og
uppbyggingu lýðræðis, verndun
mannréttinda og bættu viðskipta-
umhverfi til eflingar frjálsum
viðskiptum.
Í tengslum við fundinn mun
Halldór Ásgrímsson eiga tvíhliða
fundi með forsætisráðherrum
Rússlands og Póllands.
Á fundinum verður framtíð
samstarfsins á svæðinu rædd.
Einnig verður farið yfir mála-
flokka á borð við orkumál,
umhverfismál og viðskipti. - sdg
Níu forsætisráðherrar sækja leiðtogafund Eystrasaltsráðsins á Íslandi:
Ísland lætur af formennsku
LEIÐTOGAFUNDUR EYSTRASALTSRÁÐSINS
Hér eru fulltrúar aðildarríkja Eystrasalts-
ráðsins við þjóðfána sína á seinasta leið-
togafundi sem fór fram sumarið 2004.
Hlupu maraþon á Kínamúrnum
Hópur Íslendinga hljóp maraþon á
Kínamúrnum í lok maí. Íslendingarnir
voru samtals 25 talsins. Þar af hlaupu
tólf fullt maraþon, 42,2 kílómetra.
KÍNA
Eldur í göngum Göngin milli eyjanna
Sjálands og Fjóns voru opnuð að hluta
í gær eftir að eldur hafði kviknað í þeim
á mánudagskvöld. Allar lestasamgöngur
lágu niðri meðan slökkvistarf fór fram.
DANMÖRK
ÍRAK, AP Lögreglumenn fundu í
gær níu afhöggvin höfuð sem
höfðu verið sett í ávaxtakassa og
skilin eftir við þjóðveg norðaustur
af Bagdad. Þetta er í annað skipti
á stuttum tíma sem afhöggvin
höfuð finnast á þessum slóðum.
Málið er enn í rannsókn en talið
er að um hefndaraðgerð geti verið
að ræða. Höfuðin sem fundust síð-
astliðinn laugardag voru átta tals-
ins og munu hafa verið höggvin af
í hefndarskyni vegna dráps á fjór-
um læknum úr röðum sjíamús-
lima. Alls hafa því fundist sautján
afhöggvin höfuð. Ofbeldið í Írak
þykir fara stigvaxandi þessa dag-
ana. - kóþ
Ofbeldinu linnir ekki í Írak:
Afhöggvin höf-
uð á víðavangi
Góð helgi Allt var að mestu tíðinda-
laust hjá löggæslu landsins um helgina.
Nokkuð var um ferðamenn, en skemmt-
anahöld og útilegur fóru að sögn
lögreglu vel fram og ölvun var lítil.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Krabbaþjófnaður Áhöfn rússnesks
skips er sökuð um að hafa sökkt skipi
sínu á flótta undan landhelgisgæslu til
að hylma yfir ólöglegar krabbaveiðar,
sem eru algengar við Kyrrahafsströnd.
RÚSSLAND