Fréttablaðið - 07.06.2006, Side 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Elísabet Björney Lárusdóttir lærir
rafmagnstæknifræði í Háskólanum
í Reykjavík. Hún er eina stelpan
sem skráð er í rafmagnstæknifræði í
skólanum.
Rafmagnstæknifræði er þriggja og hálfs
árs nám í Háskólanum í Reykjavík og Elísa-
bet er búin með þrjú ár. „Ég byrjaði haustið
2003 svo ég klára um næstu áramót,“ segir
hún.Áður en Elísabet fór í Háskólann í
Reykjavík lærði hún útflutningstæknifræði
í Danmörku í eitt og hálft ár. „Á meðan ég
var úti var farið að kenna rafmagnstækni-
fræði til BS-prófs hérna heima og ég ákvað
að fara í hana.“
Elísabet er byrjuð á lokaverkefninu sínu
og er að vinna það hjá Orkuveitunni. „Í
verkefninu skoða ég tvinnbíla og hversu
mikla orku þeir þurfa,“ segir hún.
Elísabet verður fyrsta stelpan sem klárar
nám í rafmagnstæknifræði á Íslandi. „Hing-
að til hafa þeir sem hafa lært rafmagns-
tæknifræði bara getað tekið fyrsta árið
hérna heima og síðan þurft að klára annars
staðar. Í fyrra útskrifaði HR fyrsta hópinn
sem kláraði rafmagnstæknifræði á Íslandi
en í þeim hópi var engin stelpa. Ég er eina
stelpan í hópnum sem útskrifast næst og
eina stelpan í deildinni því það er engin
skráð stelpa á eftir mér. Það sama á við um
vélatæknifræðina en aðeins eins stelpa er
skráð í þá deild. Okkur finnst þetta samt
bara fínt. Við tvær erum þvílíkt góðar vin-
konur og finnst gott að hafa strákana svona
út af fyrir okkur,“ segir hún og hlær.
Elísabet er mjög ánægð í Háskólanum í
Reykjavík. „Skólinn er frábær og námið er
gott og mjög krefjandi. Félagslífið er mikið
og fáir í hverjum bekk. Í mínum bekk erum
við ekki nema þrettán svo það er mjög heim-
ilislegt hjá okkur og kennararnir geta sinnt
okkur vel. Allt er mjög náið og persónulegt
og við erum svolítið eins og fjölskylda, sem
er frábært.“ emilia@frettabladid.is
Eina stelpan í
rafmagnstæknifræði
Elísabet Björney vinnur lokaverkefnið sitt hjá Orkuveitunni. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN HJÖRTUR
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í 17.
sinn næstkomandi laugardag.
Hlaupið verður víðsvegar um
landið og fá allir þátttakendur
bol og verðlaunapening.
Tjaldvagnarnir tínast nú á
göturnar hver á fætur öðrum.
Ökumenn ættu að gæta þess
að yfirfara vagnana vel og full-
vissa sig um að öll nauðsynleg
öryggistæki, s.s. framlenging á
speglum, séu til staðar.
Myndlistaskólinn í Reykavík
býður upp á skemmtileg sumar-
námskeið fyrir börn og unglinga
í sumar. Listsköpunin er tengd
við útiveru og leiki og krakkarnir
kynnast skemmtilegum leiðum
til listsköpunar.
Beint áætlunarflug Iceland
Express frá Akureyri til Kaup-
mannahafnar hófst hinn 30. maí
síðastliðinn. Í sumar og fram á
haustið verður flogið tvisvar í
viku milli Akureyrar og Kaup-
mannahafnar.
ALLT HITT
[HEILSA BÍLAR BÖRN FERÐIR]
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
7. júní, 158. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.09 13.27 23.46
Akureyri 2.11 13.11 24.15
GAMAN Í SUMAR-
BÚÐUM
Allir finna eitthvað við sitt
hæfi í sumarbúðum
KFUM og KFUK.
BÖRN 6
FJÖRLEGUR
FJÖLNOTABÍLL
Nissan Note er snaggaralegur
fjölnotabíll. BÍLAR 2
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Þau hafa
lengt sinn
sólarhring!
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.”
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná
inntökuprófinu í læknadeild í vor.”
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum
því stúdent.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmti-
legt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður
kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
... næsta 6. vikna hraðnámskeið 9. ágúst
... næsta 3. vikna hraðnámskeið 14. ágúst
... Akureyri 3. vikna hraðnámskeið 26. júní (nokkur sæti laus)
Skráning á sumarnámskeið er hafin
á www.h.is og í síma 586-9400