Fréttablaðið - 07.06.2006, Side 38
MARKAÐURINN
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Vaxtaálag á skuldabréf stóru viðskiptabankanna
jókst á eftirmörkuðum í Evrópu í gærmorgun eftir
að Standard & Poor‘s breytti horfum í lánshæfis-
mati ríkisins. Bankarnir telja áhrifin þó meiri til
skemmri tíma þótt búast megi við einhverju bak-
slagi í umræðu um íslenskt efnahagslíf.
„Ég hef ekki af þessu stórar áhyggjur, en þetta
hjálpar ekki til,“ segir Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans um mat Standard & Poor‘s á
horfum í lánshæfi ríkisins. „Neikvæðar upplýsingar
eru náttúrulega ekki að hjálpa okkur en við eigum
ekki von á því að áhrifin verði neitt í líkingu við
þegar Fitch breytti horfum. Það má kannski lýsa
því sem svo að það séu ekki „nýjustu fréttir“ að
mönnum finnist íslenskt efnahagslíf óstöðugt um
þessar mundir“. Sigurjón segir hins vegar ljóst að
breyttar horfur séu í raun ákall til stjórnvalda um
að láta Seðlabankann ekki standa einan á vaktinni
í efnahagsstjórninni. „Ég hef haft mestar áhyggj-
ur af því að vegna þess ástands sem við höfum
núna og vegna kosninganna bæði sveitarstjórnar
og Alþingis að þetta séu ekki bestu aðstæður fyrir
stjórnvöld að taka á málum og hægja á í efnahags-
lífinu,“ segir Sigurjón og leggur áherslu á að svo
verði búið um hnútana að verðbólgan sem fylgir í
kjölfar veikingar krónunnar verði bara skot, en ekki
viðvarandi ástand. Hann segist lesa þau skilaboð úr
áliti Standard & Poor‘s að stjórnvöld hægi á fram-
kvæmdum og taki á málefnum Íbúðalánasjóðs.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, tekur í
sama streng og segir Standard & Poor‘s hafa uppi
viðvörunarorð sem bregðast þurfi við. „Það er ljóst
að við stefnum í aukið jafnvægi í efnahagsmálum
sem kemur fram í formi minnkandi eftirspurnar
vegna aðhaldsaðgerða Seðlabankans. En spurningin
er auðvitað hversu harkalegar aðstæðurnar verða
og hvort við lendum í samdráttarskeiði. Til að lend-
ingin verði sem mýkst og við náum þessu jafnvægi
án þess að það bitni harkalega á almenningi þarf rík-
isvaldið að leggjast á sömu sveif og Seðlabankinn.
Það hefur ekki verið að gerast að undanförnu.“
Bjarni segir ljóst að umræðan hafi einhver áhrif
á lánakjör bankanna á erlendum mörkuðum en
býst ekki við að þau vari lengi, svo fremi sem
brugðist verði við og ekki syrti frekar í álinn.
„Viðskiptamódel íslensku bankanna byggja að veru-
legu leyti á greiðum aðgangi að alþjóðlegum láns-
fjármörkuðum. Ég held að mjög mörgum erlendum
aðilum hafi komið á óvart góður gangur bankanna
á fyrsta ársfjórðungi og nýlegar umsagnir bera
þess merki að bankakerfið sé sterkt,“ segir hann
og bendir á að samhliða tilkynningu um versnandi
horfur ríkissjóðs hafi lánshæfismat Glitnis verið
staðfest og horfur sagðar stöðugar. „Áhrifin eru
fyrst og fremst óbein, álögur aukast á eftirmarkaði
samhliða svona óróleika og sveiflur á gengi krón-
unnar ýta alltaf einhverjum fjárfestum frá.“
G E N G I S Þ R Ó U N
7. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Söluaukning Osta- og
smjörsölunnar nam 4,3
prósentum á fyrstu
fimm mánuðum
þessa árs, að sögn
L a n d s s a m b a n d s
kúabænda. „Það lofar því góðu
um greiðslumarksaukningu
fyrir næsta verðlagsár,“ segir á
vef samtakanna og talið líklegt
að greiðslumarkið verði 115 til
116 milljónir lítra.
„Í ljósi birgðastöðu og sölu-
aukningar undanfarinna mán-
aða, eru miklar líkur á því að
greitt verði fyrir próteinhluta
þeirrar umframmjólkur sem
berst til samlaganna á næsta
v e r ð l a g s á r i . , “
segir landssam-
bandið jafn-
framt.
Á vef félags-
ins kemur fram
að söluhæstu mjólkurvörurnar
séu rjómi, smjör, nýmjólk,
smjörvi, gouda-ostur 26% og
léttmjólk.
Osta- og smjörsalan er sam-
eignarfélag Mjólkursamsöl-
unnar sem á 43,5 prósent,
Norðurmjólkur sem á 41 pró-
sent, Kaupfélags Skagfirðinga
sem á 15,3 prósent og svo
Mjólkursamlags Ísfirðinga sem
á 0,14 prósent. - óká
Aukin sala hjá
Osta- og smjörsölu
Metverð fékkst fyrir afla á
fiskmörkuðum í síðasta mán-
uði, samkvæmt upplýsingum
Íslandsmarkaðar. Verðmætið
nam 1,6 milljörðum króna og
hefur aldrei verið meira í maí-
mánuði frá stofnun markaðanna.
Þá seldust 12.438 tonn af fiski,
sem er þriðja mesta magnið frá
stofnun markaðanna. Meðalverð
var 129,36 kr/kg en var 105,94
kr/kg í fyrra.
Á fyrstu fimm mánuðum
ársins seldust 53.629 tonn fyrir
rúma 6,7 milljarða á fiskmörk-
uðum og var meðalverð aflans
126,06 kr/kg, sem er tæpum 17
krónum meira en fyrir ári. Til
samanburðar seldust 52.052 tonn
fyrir tæpa 5,7 milljarða króna í
fyrra.
Í síðustu viku seldust 1.645
tonn af fiski á uppboðsmörkuð-
um. Ýsa var söluhæsta tegundin
en næstmest seldist af þorski
og steinbít. Af öðrum tegundum
seldist mest af ufsa, djúpkarfa,
gullkarfa, skarkola, hlýra, skötu-
sel og löngu. Minna seldist af
öðrum tegundum. - jab
ÞORSKUR Metverð fékkst fyrir afla á fiskmörkuðum í síðasta mánuði.
Metverð fyrir afla á fiskmörkuðum
Vika Frá áramótum
Actavis 0% 32%
Alfesca 0% -3%
Atorka Group 8% -7%
Bakkavör 1% -3%
Dagsbrún 7% 3%
FL Group 4% 5%
Flaga 4% -10%
Glitnir 6% 6%
KB banki 5% 7%
Landsbankinn 1% -11%
Marel 1% 8%
Mosaic Fashions -1% -12%
Straumur 5% 14%
Össur 3% -1%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Lánshæfismat Glitnis helst
óbreytt hjá alþjóðlega lánshæf-
ismatsfyrirtækinu Standard &
Poor’s þrátt fyrir að fyrirtækið
hafi breytt horfum fyrir íslenska
ríkið í neikvæðar úr stöðugum.
Lánshæfismat bankans er því
eftir sem áður A-/Stable/A-2.
Lánshæfiseinkunn lýðveldisins
er AA-/A-1+ í erlendri mynt og í
íslenskum krónum AA+/A-1+.
Standard & Poor‘s segja að
þeir þættir sem haft hafi áhrif á
breytt mat á íslenska ríkinu hafi
þegar verið teknir með í láns-
hæfismati Glitnis. Matið á Glitni
er sagt endurspegla sterka stöðu
bankans á innanlandsmarkaði og
bætta dreifingu í eignasafni með
vaxandi starfsemi í Noregi og í
Svíþjóð frá því í maí.
Lánshæfismatið er sagt end-
urspegla væntingar Standard
& Poor‘s um að arðsemi Glitnis
verði áfram góð, þrátt fyrir að
efnahagsumhverfi á Íslandi
kunni að verða síður hagstætt
með hugsanlegu hærra útlána-
tapi og lægri gengishagnaði.
Um leið er tekið fram að ekki
sé útilokuð ákvörðun um lægra
lánshæfismat fari svo að versn-
andi efnahagsástand hér leiði til
töluverðar rýrnunar á eignasafni
bankans. - óká
KLAPPAÐ FYRIR BANKANUM Bjarni
Ármannsson, forstjóri Glitnis, klappar á
fundi í marsbyrjun þegar tekið var upp nýtt
nafn og merki bankans. MARKAÐURINN/BRINK
Lánshæfismat
Glitnis helst óbreytt
Gistinætur á hótelum í apríl voru
80.300 og fjölgaði um fjögur
prósent frá fyrra ári samkvæmt
tölum frá Hagstofu Íslands.
Gistinóttum fjölgaði hlutfalls-
lega mest á Austurlandi en þar
varð tuttugu og fimm prósenta
aukning.
Um fimm prósenta aukning
varð á höfuðborgarsvæðinu.
Suðurland var eina landssvæðið
þar sem samdráttur varð.
Hlutfallslega mest aukning
varð á Suðurnesjum, Vesturlandi
og Vestfjörðum þar sem 41 pró-
senta aukning varð milli ára.
Gistinóttum
fjölgar
BJARNI ÁRMANNSSON FORSTJÓRI GLITNIS
HALLDÓR KRISTJÁNSSON OG SIGURJÓN ÁRNASON BANKA-
STJÓRAR LANDSBANKANS
Viðbragða er þörf
Vaxtaálag á bréf bankanna jókst eftir að S&P‘s breytti horf-
um ríkisins. Bankarnir kalla eftir styrkari efnahagsstjórn.
Jón Víðirs Töframaður milli kl: 15-17 sunnudaginn 11. júní.