Fréttablaðið - 07.06.2006, Side 45
MARKAÐURINN
S Ö G U H O R N I Ð
9MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Á þessum degi árið 1954 lést breski stærð- og rök-
fræðingurinn Alan Mathison Turing, sem gjarnan
hefur verið nefndur faðir tölvunnar. Foreldrar
Turings bjuggu á Indlandi þegar ljóst var að móðir
hans var barnshafandi og óskaði hún þess að barn
þeirra hjóna yrði alið upp í Bretlandi. Fluttist
fjölskyldan aftur til heimalandsins þar sem Turing
fæddist hinn 23. júní árið 1912.
Alan Turing var ungur að árum þegar kennar-
ar við barnaskólann sem hann gekk í tóku eftir
snilligáfu drengsins. Mun hann meðal annars hafa
kennt sjálfum sér að lesa á þremur vikum auk
þess sem hann sýndi mikinn skilning á tölum og
reikningi.
Þegar Turing var 14 ára gamall innritaðist hann
í nafntogaðan og dýran einkaskóla í Sherborne
í Bretlandi. Skólinn einbeitti sér að kennslu í
klassískum fræðum og því benti umsjónarkennari
hans foreldrum Turings á að betra væri fyrir
framtíð drengsins ef hann færi í skóla sem hefði
vísindi í hávegum. Mun Turing hafa kynnt sér æðri
stærðfræði á þessum árum og tveimur árum síðar
var hann orðinn ágætlega kunnugur kenningum
Alberts Einstein.
Alan Turing gerði sér grein fyrir kynhneigð
sinni í Sherborne þegar hann felldi hug til sam-
nemanda síns í skólanum. Ást hans var hins
vegar ekki endurgoldin. Drengurinn smitaðist af
berklum og lést af völdum sjúkdómsins á síðasta
skólaárinu í Sherborne og var Turing miður sín
vegna andláts hans.
Að loknu háskólanámi í King’s College
í Cambridge í Bretlandi fluttist Turing til
Bandaríkjanna og lauk hann doktorsgráðu í rök-
og stærðfræði árið 1938, 26 ára að aldri. Þegar
hann sneri aftur heim að lokinni útskrift hóf hann
að vinna í hlutastarfi við kennslu í dulmálskóðun
fyrir bresku ríkisstjórnina. Hinn 4. september
ári síðar, daginn eftir að Bretar lýstu yfir stríði
á hendur Þjóðverjum, gerðist hann síðan dul-
málssérfræðingur í fullu starfi í Bletchley Park í
Bretlandi.
Mikil leynd hvíldi yfir starfi hans sem dulmáls-
fræðingur í stríðinu. Dulmálsfræðingunum tókst
að lokum að ráða dulmál Þjóðverða sem kallaðist
Enigma. Árangurinn hafði mikil áhrif á gang
seinni heimsstyrjaldarinnar en ekki var gert opin-
bert fyrr en árið 1974 að það væri dulmálsfræð-
ingunum meðal annarra að þakka að Þjóðverjar
töpuðu stríðinu.
Að stríði loknu vann Turing að smíði tölva og
þróun forritunarmála og þróaði hann svokallaða
Turing-vél ásamt fleiru. Ekki er um eiginlega vél
að ræða heldur er um kenningu að ræða. Kenning
þessi hefur reynst mikilvæg fyrir framþróun tölva
og tölvunarfræði í nútímanum.
Árið 1952 var Alan Turing ákærður vegna
samkynhneigðar sinnar. Hann slapp við fangelsis-
dóm gegn því að gangast undir hormónameðferð
sem breyta átti kynhneigð hans. En meðferðin
afskræmdi líkama stærðfræðingsins sem leiddi
til þess að hann neytti eplis með blásýru á þessum
degi fyrir 52 árum og dró það hann til dauða.
ALAN TURING Svonefndur faðir tölvunnar var í hópi breskra sér-
fræðinga sem leysti dulmál Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni.
Faðir tölvunnar deyr
Ísraelskir vísindamenn greindu
frá því í síðustu viku að þeir
hefðu fundið dýr af krabbadýra-
og hryggleysingjaætt í neðan-
jarðarhelli í nágrenni Tel Avív í
Ísrael. Talið er að hellirinn hafi
verið lokaður frá umheiminum í
milljónir ára.
Ísraelska dagblaðið Jerusalem
Post hefur eftir Hanan
Dimantman, líffræðingi við
hebreska háskólann í Jerúsalem,
að hellirinn hafi líklega orðið til
fyrir fimm milljón árum og hafi
dýrin inni í honum þróast á eigin
hátt.
„Ekkert dýranna hafði augu
sem merkir að þau hafi tapað
sjóninni í þróunarferlinu,“ sagði
Dimantmani í samtali við blaðið.
DNA sýni úr nokkrum dýranna
hafa verið send til rannsóknar og
benda niðurstöðurnar til þess að
dýrin séu einstök. Ekki er með
fullu vitað hvernig þau nærðust
en vatn og næringarefni náðu
ekki að brjóta sér leið í gegnum
jarðveginn og niður í hellinn.
Búið er að loka hellinum svo
vísindamennirnir geti fram-
kvæmt frekari rannsóknir í
honum. - jab
ÁÐUR ÓÞEKKT DÝR Eins og sjá má svipar
einu dýranna til sporðdreka. MYND/AP
Ný dýr fundin
Þess er stutt að bíða að mynda-
vélar í farsímum verði með
sæmilega öflugar aðdráttarlins-
ur sem gera farsímaeigendum
kleift að standa í meiri fjarlægð
frá myndefni sínu en nú er unnt.
Þetta segja forsvarsmenn banda-
ríska fyrirtækisins New Scale
Technologies, sem hefur þróað
nýjan og agnarsmáan mótor sem
er á stærð við hrísgrjón.
Að sögn Davids Hendersons,
forstjóra fyrirtækisins, er fram-
leiðsla á mótornum þegar hafin
en búist er við að hægt verði að
selja allt að einn milljarð mótora
af þessari gerð á ári.
Að sögn Hendersons mun mót-
orinn gagnast fleirum en farsíma-
eigendum því hann verður meðal
annars notaður í nýjustu gerð-
ir af lyfjadælum, sem græddar
verða í fólk. - jab
FARSÍMAR Stúlka með örþunnan mynda-
vélarfarsíma frá NEC. Þess er stutt að bíða
að myndavélar símanna verði með aðdrátt-
arlinsum. MYND/AFP
Agnarsmáar aðdráttarlinsur
HEFUR ÞÚ STYRK Í
STÓRFRAMKVÆMDIR?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
2
1
6
FJÁRMÖGNUN
Glitnir Fjármögnun býður fjölbreytta kosti við fjármögnun
bíla, atvinnutækja, skrifstofubúnaðar og atvinnuhúsnæðis.
Hafðu samband í síma 440 4400 eða
kynntu þér málið á www.glitnirfjarmognun.is
• Fjármögnunarleiga
Leigðu tækið og gjaldfærðu
• Kaupleiga
Leigðu tækið og eignfærðu
• Rekstrarleiga
Greiddu aðeins fyrir afnot af tækinu
• Fjárfestingarlán
Fjármögnun með veði