Fréttablaðið - 07.06.2006, Qupperneq 48
MARKAÐURINN
Bernhard Ö. Pálsson er fæddur árið
1957 og uppalinn í Garðabænum.
Hann gekk í Menntaskólann í
Hamrahlíð og lagði síðar stund
á efnafræði við Háskóla Íslands.
Árið 1977 ákvað Bernhard að
flytja með allt sitt hafurtask til
Bandaríkjanna og hefja nám þar.
Bernhard lauk doktorsprófi í efna-
verkfræði við Wisconsin-háskóla
árið 1984.
Að námi loknu tók Bernhard
upp kennslu og var prófessor í
efnaverkfræði við háskólann
í Michigan til 1995. Á meðan á
dvölinni í Michigan stóð öðlaðist
Bernhard sína fyrstu reynslu af
fyrirtækjarekstri þegar hann kom
að stofnun líftæknifyrirtækisins
Astrom árið 1989.
Bernhard segir Astrom eitt af
fáum líftæknifyrirtækjum sem
hafi lifað af erfiða tíma við alda-
mótin síðustu. „Þetta fór frá því
að vera tilraun á rannsóknarstofunni hjá mér
árið 1989 í að vera skráð félag á NASDAQ
átta árum seinna. Ég hætti öllum afskiptum
af fyrirtækinu um svipað leyti og ég fór frá
Michigan. Þá var Astrom komið vel á leið, þar
unnu sjötíu starfsmenn og mínu hlutverki var
einfaldlega lokið.“
Bernhard segir aðkomuna að Astrom hafa
verið góða reynslu. „Þarna fékk maður að
smakka á þessum bransa. Hvernig ætti að
koma fyrirtækjum af stað og halda þeim
gangandi. Ég lærði náttúrulega alveg gígant-
ískt af þessu.“
MEÐHÖNDLA FRUMUR MEÐ LEYSIGEISLA
Árið 1995 flutti Bernhard til San Diego í
Kaliforníu. Þar gegnir Bernhard stöðu próf-
essors í lífverkfræði við Kaliforníuháskóla
í San Diego auk þess að sinna hlutastarfi við
læknadeildina.
Bernhard segir fyrsta vísi
að Cyntellect hafa orðið
til meðan hann var
staddur í nokkurra
mánaða Fulbright-
leyfi í Danmörku.
„Hugmyndin að
Cyntellect fædd-
ist í blíðskapar-
veðri á Strikinu í
K a u p m a n n a h ö f n
yfir góðu rauðvíns-
glasi árið 1996.“
Hann segir hug-
myndina hafa hljóm-
að fremur undarlega
fyrst um sinn. Að skjóta
frumur með leysigeisla væri eitthvað
sem frekar ætti heima í bíómyndum. „En ég
skrifaði þetta í minnisbókina mína og skoðaði
síðan tæknilegu hliðina þegar ég kom aftur
til Ameríku. Þá komst ég að því að þetta var
vel framkvæmanlegt.“
Næstu misseri fóru að mestu í undirbúning
að stofnun fyrirtækisins. Bernhard lagðist
yfir tæknileg smáatriði, talaði við fjárfesta
og gerði viðskiptaáætlanir. „Hjólin byrjuðu
síðan að snúast fyrir alvöru 1998 þegar fyr-
irtækið var frumfjármagnað. Starfsemin var
síðan sett formlega af stað í janúar 1999.“
Upphafleg hugmynd Bernhards var að
hreinsa krabbameinsfrumur úr beinmerg
sem flytja átti milli fólks með aðstoð leysi-
geisla. Prófanir leiddu síðar í ljós að ekki
var markaður fyrir hugmyndinni svo hafist
var handa við að breyta áherslum fyrirtæk-
isins. „Þá breyttum við frá því að meðhöndla
frumur sem síðan áttu að fara inn í fólk, í að
meðhöndla frumur í rannsóknarskyni.“
Síðan hefur Cyntellect einkum unnið að
þróun svokallaðs LEAP-tækis sem getur gert
margvíslegar tilraunir á frumum. „Við höfum
meðal annars komist að því að ef þú skýt-
ur leysigeisla með lágum styrk á frumur,
opnast þær í tuttugu til þrjátíu sekúndur
og þannig má koma efnasamböndum fyrir
inni í þeim. Þetta er náttúrulega gríðarlega
merkileg uppgötvun og þýðingarmikil fyrir
læknisfræðina.“
MILLJARÐAMARKAÐUR
Cyntellect býður nú upp á tvenns konar tæki;
áðurnefnt LEAP og minni gerð sem kallast
HOP. „Heildarmarkaður fyrir stærra tækið
eru svona þúsund í heiminum öllum, en fyrir
það smærra tíu þúsund. Stærra tækið kostar
hálfa milljón dala og það minna fjörutíu þús-
7. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR12
Ú T T E K T
Cyntellect fæddist yfir rauðvínsglasi á Strikinu
Bernhard Ö. Pálsson er stjórnarformaður bandarísk-íslenska líftæknifyrirtækisins Cyntellect auk þess að gegna stöðu prófessors við Kaliforníu-
háskóla í San Diego. Bernhard hefur búið í Bandaríkjunum frá árinu 1977 og komið að margvíslegum rekstri. Í samtali við Jón Skaftason sagði hann
skilyrði til skráningar á markað mun hagstæðari á Íslandi en í Bandaríkjunum.
HOP TÆKIÐ FRÁ CYNTELLECT Tækni
Cyntellect byggist á því að meðhöndla
frumur með leysigeisla. Með því að skjóta
á frumur með slíkum geislum má koma
fyrir efnasamböndum inni í þeim.
BERNHARD Ö. PÁLSSON, STJÓRNARFORMAÐUR CYNTELLECT Bernhard segir keppinauta ekki standast Cyntellect
snúning
„Það getur í
raun enginn gert
það sama og við
erum að gera,
en það eru aðrar
aðferðir til við
að koma efnum
inn í frumur. Að
mínu áliti, og
margra annarra,
standast þær
aðferðum okkar
þó hvergi snún-
ing. Þessi tækni
er algerlega
byltingarkennd.“
Fyrirmynd iSEC markað-
ar Kauphallar Íslands er
sótt til AIM-markaðarins í
Lundúnum sem hefur verið
starfræktur frá árinu 1995.
AIM er einkum ætlaður
smærri og millistórum fyr-
irtækjum í vexti. Um nítján
hundruð félög hafa verið
skráð á AIM frá upphafi
og viðskipti alls numið um
2000 milljörðum íslenskra
króna. Mörg félaga á mark-
aðnum hafa vaxið hratt og
um síðir verið skráð á aðal-
markað Kauphallarinnar í
Lundúnum.
ISEC markaðurinn bygg-
ir á sama grunnsjónarmiði.
Búinn er til vettvangur til
viðskipta með bréf í fyrir-
tækjum sem ekki uppfylla
skilyrði til skráningar á
aðallista Kauphallarinnar
eða hafa einfaldlega ekki til
þess burði.
Markmið iSEC er að leiða
saman fyrirtæki í vexti
og fjárfesta. Fyrirtæki á
markaðnum verða ekki
háð jafn ströngum skil-
yrðum og á aðalmarkaði
Kauphallarinnar. Sú krafa
er þó gerð að þau veiti með
skipulögðum hætti upp-
lýsingar um reksturinn;
afkomutölur skal gefa út á
hálfs árs fresti, auk annarra
upplýsinga sem geta haft
áhrif á verðmyndun.
Ekki eru sett takmörk á
stærð fyrirtækja sem skrá
sig á iSEC markaðinn, lengd
rekstrarsögu eða dreifingu
eignarhalds. Þá gilda ekki
reglur um yfirtökuskyldu.
Félög sem hyggja á
skráningu verða að birta
svokallað skráningarskjal
sem leggur grunn að upp-
lýsingaskyldu. Í skjalinu
þurfa stjórnendur viðkom-
andi félags að lýsa því yfir
að þeir telji fyrirtækið hafa
aðgang að nægu rekstrarfé
til tólf mánaða hið minnsta.
Auk þess eru hömlur á sölu
hlutabréfa helstu stjórn-
enda í eitt ár frá skráningar-
degi. - jsk
KAUPHÖLL ÍSLANDS Fyrirmynd
iSEC markaðar Kauphallar Íslands er
sótt til AIM-markaðarins í Lundúnum.
Mörg félaga á AIM hafa vaxið hratt
og um síðir verið skráð á aðalmarkað
Kauphallarinnar í Lundúnum.
Stefnumót sprota-
fyrirtækja og fjárfesta
ISEC markaður Kauphallar Íslands verður til hliðar við aðallista
Kauphallarinnar og er einkum ætlaður smærri fyrirtækjum í
vexti. Skráningarskilyrði eru ekki jafn ströng og á aðallistanum.