Fréttablaðið - 07.06.2006, Síða 52
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Óli Kristinn Ármannsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og aug-
lysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift
ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að
birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
eggert@markadurinn.is l haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l
jonab@markadurinn.is l olikr@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
7. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR16
U M V Í Ð A V E R Ö L D
S K O Ð U N
Nú á tímum er enginn skortur
á tækninýjungum sem hver á
fætur annarri hefur á örskömm-
um tíma haft veruleg áhrif á
athafnalífið og daglegt líf fólks
um allan heim. Slík bylting hefur
nú staðið í tvo áratugi og fátt
bendir til þess að hún sé að renna
sitt skeið. Bylting á sviði sam-
skiptatækni sem hefur breytt
heimsmyndinni og mun áfram
leiða af sér miklar breytingar
á allri útgáfustarfsemi. Hún er
einnig að gjörbylta fjölmiðla-
tækninni, útbreiðslu fréttamiðla
og áhrifamætti þeirra.
Markaðs- og þjónustufyr-
irtæki sem ekki fylgjast með
breytingum og aðferðafræðinni
við dreifingu upplýsinga verða
útundan og deyja. Blöð, tímarit
og ljósvakamiðlar eiga í vök að
verjast. Áskriftir og lestur prent-
miðla er á bullandi undanhaldi.
Áhorf á sjónvarp dregst saman
og hlustun á útvarp hefur færst
yfir í tækniundur eins og iPod.
Gildi auglýsinga í prent- og
ljósvakamiðlum minnkar stöðugt
og leiðir af sér mikinn samdrátt
í auglýsingasölu. Auglýsendur
eru þreyttir á að eyða miklu
fjármagni í birtingu í miðlum
sem ekki ná athygli fólks. Þetta
sést vel í bókinni The Fall of
Advertising & Rise of PR, sem
hefur farið eins og eldur í sinu
um heiminn undanfarin ár. Margt
bendir til að hefðbundnar aug-
lýsingar séu að víkja fyrir nýj-
ustu samskiptatækninni eins og
blogginu og umræðusíðum, með
sama hætti og málverkið laut í
lægra haldi fyrir ljósmyndinni.
Alþjóðleg auglýsingafyrir-
tæki eru ráðþrota en eyða miklu
afli í að finna nýjar auglýsinga-
leiðir. Almannatengslafyrirtæki
blómstra í heiminum enda hefur
þeim tekist þolanlega að nýta sér
nýjustu tæknitólin í upplýsinga-
miðlun þó svo að þau hafi orðið
að hafa sig öll við til að halda í við
breytingarnar.
Fyrsta byltingin í upplýsinga-
tækni varð á miðri 15. öld þegar
þýski gullsmiðurinn Gutenberg
fann upp laus stafamót sem
varð upphaf þess að bókaprent-
un sprakk út og almenningur
gat eignast prentaðar biblíur og
bækur. Menntunarstig almenn-
ings hækkaði og sjóndeildar-
hringurinn víkkaði. Dagblöð urðu
til. Löngu seinna kom útvarp og
sjónvarp. Þessir þrír miðlar réðu
upplýsingastreyminu og mótuðu
skoðanir fjöldans. Þá kom tölv-
an og þar næst netið. Allt gerð-
ist þetta á methraða. Ný bylting
hófst.
Rétt eftir aldamótin voru
hjón í Bandaríkjunum sem misst
höfðu vinnu sína þegar „dot-
com“ blaðran sprakk. Þau lögðu
grunninn að eigin tölvu-frétta-
miðli þar sem þau rifjuðu upp
gamlar minningar fyrir vini og
vandamenn. Þau fundu upp það
sem nú nefnist „daily log“ eða
„weblog“ eða tölvudagbók. Orðið
var stytt í blogg og upphófst
bylting sem átti eftir að breyta
upplýsingastreymi heimsins rétt
eins og prentlausn Gutenbergs.
Bloggið hefur gjörbreytt allri
útgáfustarfssemi og því hvernig
fólk sækir upplýsingar eða kemur
hugmyndum á framfæri. Áskrift
að dagblöðum hefur hrunið.
Áhorf á sjónvarp dregst stöðugt
saman. Útvarp er helst notað í
bílnum. Auglýsendur vita ekki
lengur hvar fólkið er sem þeir
þurfa að ná til. Hérlendis nægði
fyrirtæki einu sinni að auglýsa í
Mogganum, hádegisútvarpinu og
fyrir kvöldfréttir Sjónvarps til
að ná 90% þjóaðrinnar.
Fólk yngra en 35 ára gerist
ekki áskrifendur að dagblöðum.
Það sækir upplýsingar sínar
á netið og bloggsíður. Það les
bloggsíður og tekur virkan þátt í
umræðum. Kannanir sýna að það
til eru hátt í 30 milljónir blogg-
síðna í heiminum.
Fólk kvartar undan daufum
pólitískum umræðum í fjöl-
miðlum. Það er ekki nema von.
Umræðan fer fram með bloggi
og á spjallsíðum. Kannanir sýna
að tæp 60% unglinga setur les- og
myndefni á netið. Margir búa til
sín eign fréttablöð með fréttum,
umræðum, myndum og gröfum
máli sínu til stuðnings. Þar er líf
í tuskunum.
Auglýsingafyrirtæki í Evrópu
og Bandaríkjunum eyða nú mikl-
um tíma í að finna leiðir til að
geta birt auglýsingar á bloggsíð-
um, en það er enn grýtt leið.
Það er ekki bara bloggið sem
er að breyta fjölmiðlalandslag-
inu. Nú er komið ný aðferð sem
heitir Podcasting; orð samsett úr
iPod og broadcasting. Á íslensku
mætti kalla það Podvarp. Alls
konar aðilar senda tónlist,
útvarpsefni, fréttir, viðtöl,
umræður sem hljóð- eða mynd-
skrá á tölvuþjóna, sem notendur
nálgast á netinu og hlaða inn á
iPodinn sinn til hlusta á þegar
þeir hafa tíma. Stjórnmálamenn
og flokkar eru farnir að nota
þenna nýja miðil til að senda
út „pólitísk“ áróðursviðtöl með
góðum árangri. Ekki er langt um
liðið frá því að byrjað var að
senda heimatilbúið sjónvarps-
efni eins og viðtöl sem hægt er
að horfa á í iPod þessa sömu leið.
Auglýsendur eru að reyna finna
leiðir til auglýsa í Podvarpinu en
það er þrautin þyngri.
Að lokum verð ég að nefna enn
eina nýjungina sem veldur fjöl-
miðlum miklum áhyggjum. Það
er „wiki-miðlunin“ sem fer eins
og eldur í sinu um allan heim.
Wiki-miðlun er byltingarkennd
fjölmiðlun sem er að breyta dreif-
ingum upplýsinga og opna nýjan
fróðleiksheim fyrir alla þá sem
hafa aðgang að netinu. Þar er að
finna ómetanlegt magn fróðleiks
á um 200 tungumálum. Frægust
er hin svonefnda Wikipedia eða
Wiki-alfræðiorðabókin, sem inni-
heldur tólf sinnum meira efni á
ensku en hin fræga Encyclopedia
Britannica og er ókeypis. Hvað
þýðir þessi þróun fyrir fjölmiðla
og auglýsendur? Allt eykur þetta
rekstrarvanda gömlu miðlanna.
Samskiptatæknin reynist
okkur sem störfum við almanna-
tengsl og fjölmiðlun erfið enda
þurfum við að eyða mikilli orku
í það eitt að fylgjast með henni.
Ég öfunda ekki auglýsendur og
stjórnendur gömlu hefðbundnu
miðlanna sem eiga í vök að verj-
ast tækninnar vegna.
Bylting í samskiptatækni heimsins
gerir gömlum fjölmiðlum erfitt fyrir
Jón Hákon
Magnússon
Famkvæmdastjóri
KOM Almanna-
tengsla ehf.
O R Ð Í B E L G
Fólk yngra en 35 ára gerist ekki áskrifendur að dagblöðum. Það sækir upp-
lýsingar sínar á netið og bloggsíður. Það les bloggsíður og tekur virkan þátt í
umræðum. Kannanir sýna að til eru hátt í 30 milljón bloggsíður í heiminum.
Skilnaðartúrismi
Time Magazine | Time Magazine veltir því fyrir
sér hvort nýuppkveðnir dómar í skilnaðarmálum
verði til þess að tíðni skilnaða í Englandi og Wales
aukist. Tíðni skilnaða
í Bretlandi er nú sú
sjötta hæsta í Evrópu
en nýleg þróun í dóm-
salnum gefur The Times tilefni til að velta því upp
hvort þar kunni að vera breyting á. Í Bretlandi er
engin helmingaskiptaregla líkt og á Íslandi og því
dómurum gefnar öllu frjálsari hendur. Nýlega voru
konu dæmdar tæpar sjö hundruð milljónir króna af
eignum fyrrverandi maka síns eftir skammvinnan
hjúskap. Þá hafi manni með um hundrað milljónir í
árslaun verið gert að greiða fyrrverandi konu sinni
helming launa sinna allt til æviloka. Í forsendum
dómanna kom fram að konurnar hefðu báðar lagt
eigin frama á hilluna í þágu maka sinna og ættu því
skilinn ríflegan skerf af ávöxtunum. Blaðið virðist
hafa talsverðar áhyggjur af þessari þróun og spyr
hvort „skilnaðartúrismi“ sé það sem koma skal;
einungis þurfi að dvelja í Bretlandi í eitt ár til að
öðlast rétthæfi.
Rétti maðurinn í starfið
Financial Times | Financial Times segir Hank Paulson,
hinn nýja fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vera
rétta manninn í starfið. Paulson hafi víðtæka
reynslu sem forstjóri Goldman
Sachs, eins virtasta fyrirtækis
á Wall Street. Financial Times
gengur meira að segja svo
langt að setja Paulson verk-
efnalista. Hann skuli í fyrsta lagi láti dalinn í friði,
en ekki freista þess að tala gengið upp líkt og
forverar hans hafa reynt. Þá skuli Paulson treysta
samband Bandaríkjanna við Kínverja, en til þess
sé enginn betur fallinn. Paulson hafi sem forstjóri
Goldman Sachs heimsótt Kína meira en sjötíu sinn-
um og myndað þar góð tengsl við valdamikla menn.
Financial Times leggur enn fremur til að Paulson
freisti þess að leggja Afríku lið í efnahagsmálum.
Fjórða og kannski mikilvægasta verkefni Paulsons
sé að predika aðhald í ríkisfjármálum. Bush forseti
hafi ekki einu sinni beitt neitunarvaldi sínu gagn-
vart þinginu í stjórnartíð sinni. Nú sé kominn tími
til að breyting verði á og Paulson sé eini maðurinn
sem hafi slíka vigt að á sé hlustað.
Breytingar á framtíðarhorfum á lánshæfismati ríkisins
úr stöðugum í neikvæðar frá matsfyrirtækinu Standard
& Poors eru bakslag í umræðu um íslenskt efnahagslíf á
erlendum vettvangi. Með skýrslu Frederics Mishkin og
Tryggva Þórs Herbertssonar um
stöðu efnahagskerfisins tókst að
slá á neikvæða umræðu sem ein
og sér hefði skapað hér mikinn
vanda. Mat S&P hjálpar ekki til
við að halda umræðu um íslenskt
fjármálakerfi á sæmilega skyn-
samlegu plani.
Vandinn er nefnilega sá að fjár-
málakerfið losnar trauðla undan
því að vera dregið inn í umræðu
um stjórn efnhagsmála hér á
landi. Þá gildir einu að S&P gerir
þar skýran greinarmun á. Þannig
eru horfur fyrir Glitni óbreyttar
að mati fyrirtækisins, þrátt fyrir
óstöðugri horfur íslenska ríkisins.
Óróinn í kjörum bankanna á
fyrst og fremst rætur í efasemd-
um um stjórn innlendra efnahags-
mála. Bankarnir gjalda einfald-
lega fyrir gjaldmiðilinn og íslenskt
efnahagslíf.
Þrástagast hefur verið á nauð-
syn þess að ríkið sýni fastari tök
á efnahagsmálum og sendi út skýr
skilaboð um að hættan á harðri
lendingu sé tekin alvarlega. Þessi
söngur hefur nú hljómað í nokkur
misseri, án þess að mikil merki
sjáist um það að á hann sé hlustað.
Þannig hefur ekki verið tekið á
stöðu Íbúðalánasjóðs, þrátt fyrir
athugasemdir Seðlabankans og
alþjóðastofnana þar að lútandi.
Stjórnvöld hafa látið eins og að
mjúk lending hagkerfisins sé
náttúrulögmál. Það er hún ekki
og eftir því sem alþjóðaviðskipti
verða stærri hluti efnahagskerf-
isins, því meiri hagsmunir eru af
því að efnahagsmálum þjóðarinn-
ar sé almennilega stjórnað.
Ný tíðindi um afsögn forsætis-
ráðherra eru ekki til þess að létta þeirri óvissu sem ríkir
um efnahagslífið. Verkefnið er skýrt. Markaðurinn þarf
að fá skýr skilaboð um starfhæfa ríkisstjórn sem tekur af
öll tvímæli um að hún sé raunveruleikatengd; að send séu
út skýr skilaboð um ráðstafanir sem miða að því að kæla
hagkerfið. Til þess að mark sé svo á því tekið þurfa menn
að hafa tilfinningu fyrir því að þingstyrkur sé til að fylgja
slíkum skilaboðum eftir.
Breytingar á horfum um lánshæfi ríkisins auka á vandann.
Mikilvægi skýrrar
efnahagsstefnu
Hafliði Helgason
Þrástagast hefur
verið á nauðsyn
þess að ríkið sýni
fastari tök á efna-
hagsmálum og
sendi út skýr skila-
boð um að hættan
á harðri lendingu
sé tekin alvarlega.
Þessi söngur hefur
nú hljómað í nokk-
ur misseri, án þess
að mikil merki
sjáist um það að
á hann sé hlustað.
Þannig hefur ekki
verið tekið á stöðu
Íbúðalánasjóðs,
þrátt fyrir
athugasemdir
Seðlabankans og
alþjóðastofnana
þar að lútandi.
Stjórnvöld hafa
látið eins og að
mjúk lending hag-
kerfisins sé nátt-
úrulögmál.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Þau hafa
lengt sinn
sólarhring!
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.”
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná
inntökuprófinu í læknadeild í vor.”
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum
því stúdent.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmti-
legt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður
kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
... næsta 3. vikna hraðnámskeið 13. júní
... Akureyri 3. vikna hraðnámskeið 26. júní
Skráning á sumarnámskeið er hafin
á www.h.is og í síma 586-9400