Fréttablaðið - 07.06.2006, Side 56
MARKAÐURINN
ÓLAFUR SIGURÐSSON hefur hafið störf
hjá TM Software sem kerfisfræðingur.
Hann hefur mikla
reynslu sem
kerfisfræðingur
og kerfisstjóri,
en hann vann
sem kerfis-
stjóri hjá Urði
Verðandi Skuld
árið 2000-2006
og þar áður sem
kerfisfræðingur
hjá Landsvirkjun 2000-2001. Ólafur, sem
er fæddur árið 1957, lauk námi í kerfis-
fræði frá EBD skolen í Vejle í Danmörku
árið 1999. Ólafur var kennari í fjölda
ára, meðal annars við Grunnskólann
í Stykkishólmi og Fjölbrautaskóla
Vesturlands.
KRISTÍN HALLA Hannesdóttir hefur hafið
störf sem gagnagrunnssérfræðingur hjá
TM Software.
Kristín Halla,
sem er fædd
1972, hefur mikla
reynslu sem
kerfisfræðingur.
Hún vann sem
kerfisfræðingur
hjá Fiskistofu
1996-1998 og
sem gagnagrunnssérfræðingur hjá
Teymi frá 1999 þar til hún hóf störf
hjá TM Software. Hún kenndi mikið á
Oracle hjá Teymi og hefur kennt á einu
slíku námskeiði hjá TM Software og
mun væntanlega kenna á fleiri nám-
skeiðum. Kristín Halla, sem fæddist árið
1972, nam kerfisfræði við Háskólann
í Reykjavík (þá Tölvuháskóli VÍ) og
lauk prófi árið 1996. Hún hefur lokið
fjölda námskeiða, meðal annars hjá
Endurmenntun HÍ.
F Ó L K Á F E R L I
7. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
JÓN GRÉTAR Jónsson rekstrarfræðingur
hefur tekið við sem framkvæmdastjóri
fasteignasölunnar Húsakaupa í kjölfar
kaupa Hanza-
hópsins ehf.
á hluta í fyrir-
tækinu. Guðrún
Árnadóttir,
aðaleigandi og
löggiltur fast-
eignasali, sem
gegnt hefur starfi
framkvæmda-
stjóra Húsakaupa
farsællega í 17 ár, starfar áfram hjá
fyrirtækinu og sinnir sérverkefnum.
Jón Grétar Jónsson stendur á fertugu.
Hann er rekstrarfræðingur með BS í
vörustjórnun frá Tækniskóla Íslands
árið 1997 og gat sér einnig gott orð í
knattspyrnunni með Val á árum áður.
Jón Grétar starfaði sem sölumaður hjá
Húsakaupum í þrjú ár áður en hann tók
við framkvæmdastjórastarfinu. Kona
Jóns er Anna Katrín Einarsdóttir og eiga
þau þrjú börn.
BJARGMUNDUR JÓNSSON hóf nýlega
störf hjá TM Software sem verkfræð-
ingur og hópstjóri
reksturs netkerfa
og fjarskipta.
Bjargmundur
hefur öðlast mikla
reynslu í sínum
fyrri störfum sem
verkfræðingur
og sérfræðingur,
en hann starfaði sem kerfisfræðingur
hjá Landsvirkjun sumrin 1996 og 1997
og sem sérfræðingur og hópstjóri
hjá Landssíma Íslands 1998-2006.
Bjargmundur, sem fæddur er 1974, lauk
námi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá
Háskóla Íslands 1998. Þá hefur hann
sótt fjölda námskeiða í tengslum við
störf sín.
AGNAR ÖRN Arason hefur hafið störf
sem sérfræðingur á upplýsingaör-
yggissviði TM
Software. Agnar
Örn er fæddur
1967 og er með
BS-gráðu í tölv-
unarfræðum frá
Háskóla Íslands.
Þá hefur hann
lokið fjölda nám-
skeiða í tengslum við fag sitt. Áður en
Agnar Örn hóf störf hjá TM Software
var hann meðal annars kerfisstjóri hjá
Medcare 2000-2006 og hjá Seðlabanka
Íslands 1992-2000.
SIGURÐUR FJALAR Sigurðarson hefur
hafið störf sem kerfisfræðingur hjá
TM Software.
Sigurður Fjalar
hefur unnið í
tölvugeiranum
í mörg ár og
aflað sér mikillar
þekkingar við
hugbúnaðargerð.
Sigurður Fjalar,
sem fæddist árið
1979, lauk BSc-gráðu í rafmagns- og
tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands 2006
og er nú í meistaranámi í iðnaðarverk-
fræði við sama skóla. Áður en Sigurður
Fjalar hóf störf hjá TM Software vann
hann við veirugreiningar hjá Friðriki
Skúlasyni, FRISK Software, bæði í fullu
starfi og hlutastarfi með skóla og undir
það síðasta sem aðstoðarmaður fram-
kvæmdastjóra tæknisviðs.
MARGRÉT MATTHÍASDÓTTIR hefur hafið
störf við almenna notendaaðstoð á
þjónustuborði
TM Software.
Margrét, sem
fæddist árið 1976,
er margmiðlun-
arfræðingur frá
Margmiðlunar-
skólanum. Hún
vann meðal ann-
ars í upplýsinga-
tæknideild Eimskips 1997-2004.
Í kjölfar truflana sem plagað hafa gagnasendingar
til útlanda um ljósleiðara Farice hefur Og Vodafone
gripið til þess ráðs að forgangsraða gögnum um
netið. Með þessu segir fyrirtækið verulega dregið
úr líkum á því að viðskiptavinir verði fyrir trufl-
unum.
Um er að ræða þjónustu sem meðal annars
forgangsraðar vefsíðum, póstþjónustu og gögnum
vegna fjarvinnutenginga. „Um sjötíu prósent allrar
netumferðar er til og frá útlöndum. Við höfum aukið
bandvídd okkar reglulega en álagið hefur engu
síður verið nokkuð. Nú hefur okkur hins vegar tek-
ist að draga verulega úr álagi og tryggja enn betri
umferð um netið með því að forgangsraða gögn-
um. Við getum til dæmis tryggt forgang á ýmiss
konar þjónustu sem er sérstaklega viðkvæm fyrir
truflunum, svo sem VoIP. Þá er VefTV í sérstökum
forgangi hjá okkur,“ segir Gísli Þorsteinsson upp-
lýsingafulltrúi Og Vodafone og bætir við að bilanir
á Farice sæstrengnum hafi lítil sem engin áhrif
haft síðan tekið var að forgangsraða gögnum. OGVODAFONE GÍSLI ÞORSTEINSSON
Bilanir Farice kalla á
forgangsröðun
Notendur eiga síður að verða fyrir raski komi til truflana á
netsambandi við útlönd.
������� ���
�����������������
��������������
���������������������������������������������������������������������������������
�����
�������������
�����������
�����
�������� ����
�������
�����
�������������
�������
Stjórnendur BAA, sem meðal
annars rekur Heathrow, aðra
stærstu flugvelli Bretlands og
alþjóðaflugvöllinn í Búdapest,
hafa sent frá sér tilkynningu þar
sem staðfest er að yfirtökutilboð
spænsku verktakasamsteypunn-
ar Ferrovial, sem hljóðar upp
á 950,25 pens á hlut, hafi verið
samþykkt. Miðað við það gengi
er markaðsvirði félagsins um
10,3 milljarðar punda, eða
rúmir 1.400 milljarðar íslenskra
króna.
Vertakasamsteypan gerði
óvænt tilboð í BAA í febrúar
sem var hafnað af stjórn félags-
ins. Annað tilboð var lagt fram
síðustu viku, sem hljóðaði upp
á 900 pens á hlut, sem jafn-
framt var hafnað en ljóst þótti
að margir hluthafar girntust til-
boð spænska félagsins.
Bréf í BAA hafa hækkað
um rúm 42 prósent frá því að
Ferrovial sýndi félaginu fyrst
áhuga í febrúar. Þau hækkuðu
um rúm tvö prósent í gær í kjöl-
farið á fréttum af yfirtökunni.
- hhs
FRÁ HEATHROW-FLUGVELLI Spænska verktakasamsteypan Ferrovial er nýr eig-
andi BAA sem meðal annars rekur Heathrow-flugvöll.
Baráttunni um
flugvellina lokið
Indverska hagkerfið mun vaxa
um 9,3 prósent á þessu ári ef
tekið er mið af fyrstu þremur
mánuðum ársins. Er það talsvert
umfram væntingar en hagvöxtur
nam 8,4 prósentum í fyrra.
Fregnirnar koma í kjölfar
lækkana á indverskum hluta-
bréfamörkuðum, og veikingu
indversku rúpíunnar gagnvart
bandaríkjadal. Þá hafa Indverjar
áhyggjur af því að eftirspurn
eftir indverskum vörum í
Bandaríkjunum kunni að minnka
á næstu misserum.
Sensex-vísitala Kauphallar-
innar í Delí lækkaði í kjölfar
fréttanna, en fjárfestar virðast
telja stýrivaxtahækkun á næsta
leyti „Þegar svartsýni ríkir á
mörkuðum verða jafnvel góðar
fréttir að slæmum,“ sagði Ajit
Surana, forstjóri Dimensional
ráðgjafafyrirtækisins. -jsk
Hraður
vöxtur á
Indlandi
Hlutabréf á Indlandi
lækka þrátt fyrir meiri
hagvöxt en gert var
ráð fyrir.
INDLAND Götumynd frá Nýju-Delí á
Indlandi.
Síminn og R. Sigmundsson
hafa ákveðið að hefja sam-
starf á sviði fjarskipta. Munu
þeir koma fram undir nafninu
Radíómiðun. Nýja fyrirtækið
mun sérhæfa sig í fjarskipta-
lausnum fyrir sjávarútveg-
inn og verður staðsett í húsa-
kynnum R. Sigmundssonar.
Fyrirtækið R. Sigmundsson er
sérhæft í sölu siglinga- og fiski-
leitartækja og þjónustu fyrir
sjávarútveginn en Síminn í fjar-
skipta- og hugbúnaðarlausn-
um, jafnt á landi sem á sjó.
Fyrirtækin hafa í gegnum árin
unnið mikið saman en eru að
styrkja það samstarf enn frekar
með stofnun Radíómiðunar.
Í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækjunum kemur fram að
markaður gervihnattaþjónustu
sé svo dæmi séu tekin sam-
keppnismarkaður án landa-
mæra og deilist hér á landi milli
innlendra endursölufyrirtækja
og erlendra fyrirtækja sem
starfa í umboði gervihnatta-
fyrirtækjanna. Möguleikar til
útrásar aukist með stofnun
Radíómiðunar og hagkvæmara
verði að þróa núverandi lausnir
og aðlaga þær að nýjum mörk-
uðum. Samkeppnisstaða gagn-
vart erlendum aðilum sem eru
að selja sömu þjónustu muni
batna og að öllum líkindum
verði hægt að tryggja sam-
keppnishæfara verð.
Stofnun fyrirtækisins er gerð
með fyrirvara um samþykki
samkeppnisyfirvalda.
Stofna saman fjar-
skiptafyrirtæki
FRÁ UNDIRRITUN SAMNINGSINS
Haraldur Úlfarsson, framkvæmdastjóri R.
Sigmundssonar, Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Símans og Einar Óskarsson, stjórnar-
formaður R. Sigmundssonar.