Fréttablaðið - 07.06.2006, Page 84
7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR28
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
��������������� �������� ������������������
������������� �����������������
���������������������������������
�������������� �����������������
���������������������������������
�������������� �����������������
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Húsavík
föstud. 9. júní.
Miðasala í síma 464-1220
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
The Standard Life Assurance Company
30 Lothian Road
Edinburgh, EH1 2DH
Það tilkynnist hér með að þann 12. apríl 2006 var beiðni lögð fyrir skoska dómstóla (nánar
tiltekið “the Court of Session” – hér eftir “dómstóllinn”) af Standard Life vátryggingafélaginu,
sem stofnað var með lögum um Standard Life tryggingafélagið (e. “the Standard Life
Assurance Company Act”) árið 1991 og er með skráð lögheimili í Standard Life House, 30
Lothian Road, Edinburgh EH1 2DH (hér eftir “fyrirtækið”) þar sem meðal annars var sótt um
skipun frá dóminum í samræmi við VII hluta laga um fjármálaþjónustu og markaði frá árinu
2000 (e. Financial Services and Markets Act 2000) (hér eftir “lögin") þar sem fallist væri á
áætlun (hér eftir “áætlunin”) sem fæli í sér að viðskipti fyrirtækisins (að meðtöldum viðskipt-
um sem ætlað er að gildi yfir lengri tíma) skuli vera flutt til SLLC Limited (sem skráð er í
Skotlandi með númerinu SC2868333). Áætlað er að nafni þess félags verði breytt í Standard
Life Assurance Limited um það leyti sem flutingur viðskiptana á sér stað. Nýja fyrirtækið er
stofnað í samræmi við bresk hlutafélagalög (e. the Company’s Act) og hefur lögheimili sitt að
Standard Life House, 30 Lothian Road, Edinburgh EH1 2DH.
Ef leyfi til tilfærslu verður á einhvern hátt skilyrt af dóminum mun tilkynning um það vera birt.
Þessi tilkynning er gerð í samræmi við 2. mgr. 86. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr.
60/1994.
Tilkynning um millifærsluna hefur áður birst í lögbirtingablaðinu 2. mars 2006.
Sími 581 1281 • gitarskoli@gitarskoli.is
www.gitarskoli.is
Gítarnámskeið hefst 12. júní
4 vikur, 8 einkatímar
GUÐMUNDUR ODDUR
> SKRIFAR UM SJÓNMENNTIR
Ég hef ekki þorað að segja þessa sögu fyrr en
nýlega. Fyrir rúmlega þrjátíu árum var ég virkur í
Víetnam-hreyfingunni, sellu sex, norður á Akur-
eyri. Á þeim tíma var einn mest hataði stjórnmála-
maður heimsins Richard Milhouse Nixon, þáver-
andi forseti Bandaríkjanna. Hann var táknmynd
fjöldamorða í Víetnam og honum líkt við mestu
morðhunda sögunnar. Afskræmdar myndir af
honum í líki Hitlers voru algengar. Í raun og veru
var hann réttdræpur í huga ungs fólks og fór eng-
inn í felur með þær hugsanir. „Drepum Nixon“ var
algeng setning á spjöldum og pósterum. Það frétt-
ist norður í land að þessi óði morðhundur væri á
leiðinni til landsins til að funda með Pompidou
Frakklandsforseta á Kjarvalsstöðum, en Frakkar
báru líka þunga sök í Víetnamstríðinu. Á sellufundi
fyrir norðan var ákveðið að fara suður til að taka
þátt í aðgerðum. Ég var samferða félaga mínum og
skoðanabróður í Norðurleiðarrútunni suður. Á
Umferðarmiðstöðinni ákváðum við að ganga í
bæinn fullir af eldmóði og tilhlökkun fyrir mót-
mælunum sem fram áttu að fara. Þegar við komum
að Hringbrautinni við gatnamótin við Laufásveg
kemur heilmikil bílalest með fjöldann allan af
mótorhjólalöggum í fararbroddi. Þeir staðnæmast
augnablik áður en þeir beygja inn á Laufásveginn.
Akkúrat þar sem við stöndum við Hringbrautina
stöðvast svört forsetalímósína Bandaríkjaforseta.
Í tveggja til þriggja metra fjarlægð brosir þessi
óði morðhundur framan í okkur og veifar til okkar.
Við stóðum frosnir augliti til auglitis við einn mest
hataða mann mannkynssögunnar. Vitiði hvað við
gerðum félagarnir úr sellu sex? Við veifuðum á
móti eins og kurteisir fermingadrengir! Við horfð-
um svo hvor framan í annan þegar lestin hélt áfram
og bundumst fastmælum um að segja aldrei frá
þessu augnabliki, svo skammarlegt þótti okkur
þetta.
Týndir sauðir
Ég skil mætavel tilfinningar náttúruverndar-
unglinganna sem skrifa á spjöld sín „Drekkjum
Valgerði“. Á þá hefur aldrei verið hlustað. Mér
finnst það hins vegar ekki gáfulegt og málstaðnum
alls ekki til framdráttar. Ég er samt sannfærður
um það að framkvæmdaviljinn á bak við þessi slag-
orð sé álíka og hjá okkur sem ætluðum að „drepa
Nixon“ en þegar á hólminn var komið og tækifærið
nánast gafst - heilsuðum bara að íslenskum sveita-
sið. Svona slagorð eru tilfinningalegt líkingamál og
sem betur fer er til ungt fólk þar sem hjartað slær
hraðar en hjá okkur hinum eldri og reyndari. Þetta
unga fólk er vaknað og fleiri og fleiri eru að vakna
til meðvitundar um hvílíkir skammtímahagsmunir
ráða ferðinni í virkjunarmálum þjóðarinnar og hve
miklum framtíðarhagsmunum er verið að fórna
fyrir nærsýni ráðamanna sem ráða sér ekki sjálfir.
Eru leiksoppar erlendra skítafyrirtækja sem vilja
ekki horfa upp á drulluna í eigin garði. Fyrirgefum
Valgerði og elskum hana. Það er eina von okkar til
þess að ná henni og hennar líkum til okkar aftur.
Ættjarðarrómantíkin
Þegar Íslandsvinir söfnuðust saman við Hlemm á
kosningadag voru fremstir í flokki bestu og fræg-
ustu tónlistarmenn landsins. Það var gæsahúðar-
móment að heyra þá spila Öxar við ána og fleiri
ættjarðarlög við upphaf göngunnar. Ég er ekki
rómantískur þjóðernissinni en í fyrsta skipti fyrir
mig hljómaðu þessi lög ekki fölsk eða eins og yfir-
borðslegt, innihaldslaust ættjarðarvæl sem tengist
17. júní - degi sem fyrir löngu er búinn að missa
merkingu sína í hugum fólks yngra en sextugt.
Þessi lög í þessu samhengi dagsins í dag hljómuðu
sönn, djúp og innihaldsrík. Það er ævintýralegt að
ganga niður Laugaveginn á 17. júní og kíkja í búð-
arglugga og skoða hvernig allt samband við mynd-
mál þjóðarinnar er að týnast og blandast saman við
Disneyland. Hvernig ættjarðarlögin hljóma falskt
í kringum ráðamenn þjóðarinnar á Austurvelli.
Enginn virðist hafa hugmynd um til hvers þetta
allt saman er lengur. Nema yngsta kynslóðin sem
er að vakna og enduruppgötva fyrir hvað við höfum
þraukað í þúsund ár.
Elskum Valgerði!
Barna- og unglingaleikhús Austur-
bæjar hefur bætt við námskeiðum í
leiklist í sumar vegna mikillar
aðsóknar. Vikulöng leiklistarnám-
skeið verða haldin í menningarhús-
inu Austurbæ þar sem áhugasamir
krakkar geta kynnst eigin sköpun-
arkrafti.
Leikhúsið stendur fyrir viðamik-
illi leiksýningu í húsinu á Menning-
arnótt þar sem börn og unglingar
munu leika öll hlutverkin en ungir
leikarar verða valdir úr hópi þátttak-
enda á sumarnámskeiðinu. Barna- og
unglingaleikhús Austurbæjar verð-
ur svo starfrækt allt árið, bæði með
leiksýningum og námskeiðum.
Námskeiðin eru ætluð börnum á
aldrinum 9-15 ára. Kennarar eru
leikstjórinn Agnar Jón Egilsson og
leikararnir Dóra Jóhannsdóttir og
Ólafur Þorvaldz.
Áhugasamir geta aflað sér upp-
lýsinga og skráð sig á námskeið í
miðasölu Austurbæjar milli kl.
13 og 17. - khh
Námskeið fyrir unga leikara
UNGIR LEIKARAR SPREYTA SIG Í AUSTURBÆ
Hæfileikafólk mun setja svip á bæinn í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Út er komið fræðslu-
ritið Úr jurtaríkinu
eftir Bjarna E. Guð-
leifsson. Ritið er annað
bindi í ritröðinni Nátt-
úruskoðarinn en áður
hefur Bjarni ritað um
dýraríkið. Í bókunum
má finna kynningar og
auðlesnar vangaveltur
um fyrirbrigði í nátt-
úrunni. Í þessari bók
er meðal annars fjall-
að um plöntuheiti, arfa,
grös, kartöflur og epli.
Bjarni er náttúrufræð-
ingur að mennt og hefur
löngum fengist við rann-
sóknir, til að mynda á áhrif-
um mannlegra athafna á líf
smádýra. Hann er prófess-
or við Landbúnaðarháskóla
Íslands. - khh
FRÆÐSLURIT UM JURTIR Aðgengi-
legur fróðleikur og vangaveltur.
Gægst í grasrótina