Fréttablaðið - 07.06.2006, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
30
81
5
0
6/
20
06
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
*Ábyrgðarskilmála má nálgast hjá BNB Nýbýlavegi og umboðsmönnum Toyota
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstöðum
Sími: 470-5070
VIÐ SELJUM ÞÉR
EKKI NOTAÐAN BÍL
EF HANN STENST
EKKI KRÖFUR OKKAR!
BNB sölugreining
Flest treystum við á leiðsögn annarra þegar kemur að kaup-
um á notuðum bíl. Við hjá Betri notuðum bílum boðum því
nýja siði til að gera bílakaupin öruggari og einfaldari: BNB
sölugreiningu.
Fagmenn okkar framkvæma ítarlega greiningu á öllum bílum
sem koma til greina í sölu. Þeir þurfa að ganga í gegnum
strangt gæðamat sem tekur m.a. mið af aldri, akstri og viðhalds-
sögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort í
flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur
okkar bjóðum við þér hann ekki.
Úrvalsbíll
Er í verksmiðjuábyrgð. 12 mánaða viðbótarábyrgð*:
- Ef bíllinn bilar þá sjáum við um að láta gera við hann
- Við lánum þér annan bíl á meðan
- Við tökum umframábyrgð á bremsuhlutum (sliti)
- 14 daga skiptiréttur
- Neyðarsími
Gæðabíll
Er ekki í verksmiðjuábyrgð. 3 mánaða viðbótarábyrgð*:
- Vélbúnaðar - Hemlakerfis
- Rafbúnaðar - Fjöðrunarbúnaðar
- Drifbúnaðar - Stýrisbúnaðar
Veldu aðeins Úrvalsbíl eða Gæðabíl og við ábyrgjumst betri
notaðan bíl, hvorn kostinn sem þú velur.
Þú mátt treysta því.
������ �����
���� ������
����������
����������������������
Afi þinn er rugludallur,“ sagði Mikki refur við Hérastubb
bakarasvein. Mér leið alveg eins
og Hérastubb í síðustu heimsókn
minni til Sillu frænku. Ekki það að
hún var glöð yfir heimsókninni.
Við sátum þar á heklaða rúmtepp-
inu hennar, sötruðum kaffi og ég
sagði henni frá samúð minni með
prófessor N. sem hafði skrifað bók
um Halldór Laxness og ættingjar
skáldsins hefðu verið eitthvað
óhressir með bókina og farið í mál
við veslings prófessorinn og þessi
lærði maður hefði tapað málinu,
og væri nú farinn að selja eignir
sínar uppí sektir.
„HEFUR þú lesið bókina?“ spurði
Silla. Nei það hafði ég ekki, en það
þyrfti enginn að segja mér að
maður með slíka menntun gæti
ekki skrifað bók um hvern og hvað
sem væri. „Þú hefur nú alltaf
snobbað fyrir langskólagengnu
fólki,“ sagði Silla og deif mola í
kaffið sitt og saug svo af þeirri
kúnst sem henni einni er lagið.
ÉG sagði að hún væri ósanngjörn.
Það vildi bara svo til að hjarta
mitt brynni af samúð með fólki
sem hefði orðið fyrir órétti og
þess vegna hefði ég skellt í nokkra
kæfubelgi og fáeinar sultukrukk-
ur til að færa þessum hrjáða
prófessor... Lengra komst ég ekki
því nú gerðist Silla óþægileg: „En
maðurinn er rugludallur,“ sagði
hún og bruddi mola og dýfði
öðrum í.
OG hún bætti því við að hún hefði
verið að lesa blaðagreinar eftir
þessa mannvitsbrekku, á einum
stað er hann að ræða launamál
þjóðarinnar og segir: „Að lág-
launafólk sé best komið með því
að hætta að vera láglaunafólk. Það
er speki þetta!“ sagði Silla. „Þetta
er rétt eins og að segja: Það er
betra að vera ríkur og hraustur, en
lasinn og fátækur. Á öðrum stað
segir þessi prófessor þinn að innan
nokkurra ára getum við unað svo
glöð innan um undurfögur uppi-
stöðulón.“ Það lá við að Sillu
svelgdist á sykurmolanum, svo
áköf var hún í að tæta í sig þennan
lærða mann og öll hans skrifuðu
afrek. En þú skalt endilega gefa
honum kæfu,“ hvæsti hún í áttina
til mín.
SYND að Jóhannes úr Kötlum er
ekki meðal okkar í dag, Þá hefði
hann ort: „Lón míns föður Lónið
mitt, laugað bláum straumi...“ Ég
kvaddi og ákvað að éta mína kæfu
sjálf.
Uppistöðulón og
kæfubelgir
AUGL†SINGASÍMI
550 5000