Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 12
12 29. júní 2006 FIMMTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að leyfilegur heildarafli
þorsks á næsta fiskveiðiári verði
193 þúsund tonn en hann er 198
þúsund tonn á yfirstandandi fisk-
veiðiári sem lýkur 31. ágúst næst-
komandi.
Við ákvörðun á heildarafla
þorsks á næsta fiskveiðiári er
byggt á breyttri aflareglu. Nú
ákvarðast aflamark sem meðaltal
af aflamarki síðasta fiskveiðiárs
og hlutfalli af viðmiðunarstofni í
upphafi úttektarárs. Þetta er í
samræmi við tillögur Aflareglu-
nefndar frá árinu 2004 en áfram er
miðað við óbreytt veiðihlutfall, 25
prósent. Þetta hefur í för með sér
að veidd verða fimm þúsund tonn-
um meira af þorski á komandi fisk-
veiðiári en annars hefði verið gefið
leyfi fyrir og er umfram ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Aðspurður um hvort ákvörðun
fiskveiðiheimilda í þorski umfram
ráðgjöf gæti haft slæm áhrif á
afrakstursgetu þorsks í framtíð-
inni svaraði sjávarútvegsráðherra
að hann liti svo á að úthlutunin
væri mjög ábyrg og annars hefði
hann aldrei lagt hana til. „Ég vek
athygli á því að um litlar breyting-
ar er að ræða frá þeirri aflareglu
sem var í gildi. Ég vil undirstrika
að þorskstofninn okkar er ekki
undir sérstakri vá.“ Einar segir
stóra málið vera hvernig staðið
verði að uppbyggingu þorskstofns-
ins og til þess vanti heildarmynd.
„Þess vegna bað ég Hagfræði-
stofnun Íslands að gera úttekt á
þjóðhagslegum áhrifum af
breyttri aflareglu og skoða áhrif
af mismunandi veiðihlutfalli á
þorski.“ Hér vísar ráðherra til
úttektar sem Tryggvi Þór Her-
bertsson, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar, mun leiða og tekur
til áhrifa breyttrar aflareglu og
veiðihlutfalls til lengri og skemmri
tíma fyrir efnahagslífið í heild,
sjávarútveginn, einstök fyrirtæki,
útgerðarstaði og landsvæði.
Við ákvörðun á heildarafla
annarra fisktegunda er stuðst í
meginatriðum við tillögur Haf-
rannsóknastofnunarinnar. Undan-
tekning er að leyfilegt verður að
veiða sama heildarmagn af ýsu og
á yfirstandandi fiskveiðiári, eða
105 þúsund tonn. Tillaga Hafrann-
sóknastofnunarinnar kvað á um
95 þúsund tonn. Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir fátt koma á óvart.
„Það eru reyndar breytingar á
aflareglunni í þorski og ég held að
það sé skynsamleg breyting. Þessi
aðferðafræði gengur til dæmis
ekki eins nærri ungfiski þegar
hann er að koma inn í veiðina.“
svavar@frettabladid.is
193.000 tonn
af þorski
Fimm þúsund tonnum minna verður veitt af þorski
á næsta fiskveiðiári en á því sem er yfirstandandi.
Óveruleg breyting verður á aflaverðmæti milli ára.
GULA GULLIÐ Nokkru minna verður veitt af þorski á næsta fiskveiðiári. Óveruleg breyting
verður þó á aflaverðmæti á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
EINAR K.
GUÐFINNSSON
■ LEYFILEGUR HEILDARAFLI FISK-
VEIÐIÁRIÐ 2006-2007 Í TONNUM
Tegund Kvóti 06/07 Ráðgjöf Hafró
■ Þorskur 193.000 187.000
■ Karfi 57.000 57.000
■ Ýsa 105.000 95.000
■ Ufsi 80.000 80.000
■ Grálúða 15.000 15.000
■ Steinbítur 13.000 12.000
■ Skarkoli 6.000 5.000
■ Sandkoli 2.000 1.000
■ Skötuselur 3.000 2.200
■ Ísl. síld 130.000 130.000
■ Humar 1.800 1.700
SAMKEPPNISMÁL Og Vodafone hefur
kært Símann til Samkeppniseftir-
litsins vegna gruns um að fyrirtæk-
ið misnoti ráðandi stöðu sína á
ADSL-markaðnum og mismuni
þannig símnotendum í landinu.
Síminn ræður yfir svokölluðu
grunnneti sem þýðir að setja þarf
upp ADSL-tengingu á símalínu
notanda áður en önnur fjarskipta-
fyrirtæki geta boðið viðskipta-
vinum sínum upp á aðgang að
netinu. Hefur borið á að við-
skiptavinir annarra en Símans
verði að bíða nokkra daga eftir
slíkri tengingu meðan viðskipta-
vinir Símans séu afgreiddir sam-
dægurs. Og Vodafone telur
ástæðu til að samkeppniseftirlit-
ið beiti sér fyrir því að skilja
heildsölu Símans frá öðrum þátt-
um í rekstrinum.
Í yfirlýsingu frá Símanum er lýst
yfir furðu á málflutningi Og Voda-
fone. Um 80 prósent allra viðskipta-
vina beggja fyrirtækja eru tengdir
innan fjögurra daga samkvæmt
könnun Póst og fjarskiptastofnunar,
en hluti verkbeiðna Og Vodafone
séu ófullnægjandi og það útskýri
tafir á afgreiðslu pantana. - aöe
Og Vodafone kærir Símann fyrir samkeppnisbrot:
Segja Símann misnota ráðandi stöðu
STJÓRNMÁL Jónmundur Guðmars-
son var ráðinn bæjarstjóri Sel-
tjarnarness á fyrsta fundi
nýkjörinnar bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness sem fór fram um miðj-
an mánuðinn. Sjálfstæðisflokkur-
inn fékk hreinan meirihluta í
bæjarstjórn í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum en Jón-
mundur var einnig bæjarstjóri á
síðasta kjörtímabili.
Forseti bæjarstjórnar er
Ásgerður Halldórsdóttir en hún
skipaði annað sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins og Sigrún Edda
Jónsdóttir, þriðji maður á lista
flokksins, er fyrsti varaforseti
bæjarstjórnar. - gþg
Seltjarnarnes:
Bæjarstjórinn
heldur áfram
UMFERÐ Jónína Bjartmarz,
umhverfisráðherra, mun í dag ýta
úr vör átaki gegn utanvegaakstri
sem Ferða-
klúbburinn 4x4
og Vélhjóla-
íþróttaklúbbur-
inn standa fyrir
í samvinnu við
Ferðafélag
Íslands,
Umhverfis-
stofnun, Land-
græðsluna og
Landvernd.
Náttúra Íslands þarf á öllum
samherjum að halda um þessar
mundir, segir í fréttatilkynningu
umhverfisráðuneytisins. Þar
kemur einnig fram að þetta fyrsta
opinbera verkefnið sem Jónína
innir af hendi eftir að hún tók við
ráðherraembætti. - shá
Átak gegn utanvegaakstri:
Náttúran þarf
samherja
EKKI VIÐ SAMA BORÐ Kæra Og Vodafone á hendur Símanum hefur borist Samkeppniseftirlitinu.
BAGDAD, AP Írösk stjórnvöld hafa
handtekið mann sem grunaður er
um aðild að sprengjuárásinni á
Gullnu moskuna í Samarra í febrú-
ar. Hinn handtekni, sem er sagður
vera frá Túnis, heitir Yousri
Fakher Mohammed Ali en gengur
einnig undir nafninu Abu Qudama.
Hann er þó ekki talinn vera for-
sprakki árásarinnar á moskuna.
Höfuðpaurinn er sagður heita
Haitham Sabah Shaker Moham-
med al-Badri, en hann hefur ekki
verið handsamaður.
Þeir Abu Qudama og al-Badri
voru í hópi með tveimur Írökum
og fjórum Sádi-Aröbum þegar þeir
gerðu árásina á Gullnu moskuna
þann 22. febrúar síðastliðinn. Þeir
komu fyrir sprengjum í moskunni,
sem er tólf hundruð ára gömul og
einn helgasti staður sjía-múslima.
Árásin vakti mikla reiði meðal
sjía-múslima og brutust út harka-
leg átök milli þeirra og súnní-
múslima, en sjíar kenndu súnnum
um árásina. Átökin stóðu vikum
saman og kostuðu hundruð manna
lífið. Meira en 20 þúsund fjölskyld-
ur hröktust að heiman og tugir
moskna voru eyðilagðar eða
skemmdar. - gb
EYÐILEGGINGIN Hið fagra gullna hvolfþak
moskunnar í Samarra eyðilagðist algerlega
í árásinni í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Írösk stjórnvöld upplýsa árásina á Samarra í febrúar:
Einn handtekinn
JÓNÍNA BJARTMARZ
��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
�����������������������
������������ �������������������
����������� �����������
�����������������
�������������������
SMEG gaseldavélar á tilboði
�����������������������
������������ �������������������
����������� �����������
�����������������
�������������������
AFSLÁTTUR
20%
������������������������������������������������������
����������� ����������������� ���
���������������������������������������������������������
���������� ������������� ��������������������������
DRYKKJARVATN Þessi indverski drengur
nær sér hér í drykkjarvatn úr polli handa
fjölskyldu sinni. Yfir 40 prósent Indverja lifa
á minna en 60 krónum á dag, og hafa ekki
aðgang að heilnæmu drykkjarvatni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP