Fréttablaðið - 29.06.2006, Side 16
16 29. júní 2006 FIMMTUDAGUR
SAMGÖNGUR Ríkisstjórnin sam-
þykkti í gær tillögu samgönguráð-
herra þess efnis að ferjusiglingar
frá höfn í Bakkafjöru hæfust árið
2010. Rannsóknum á hafnarsvæð-
inu er ekki lokið ennþá. Tillagan,
sem byggð er á rannsóknarvinnu
starfshóps um samgöngubætur
milli lands og Eyja, gerir ráð fyrir
að ferjulægi í Bakkafjöru verði
framtíðartenging milli lands og
Eyja, en heildarkostnaður við upp-
byggingu hafnarinnar og bygging-
ar nýrrar ferju er talinn nema 3,8
til 4,5 milljörðum króna.
Eftir þessa breytingu styttist
ferðatíminn til og frá Vestmanna-
eyjum niður í hálftíma en siglingin
með Herjólfi tekur í tvær klukku-
stundir og 45 mínútur, miðað við
eðlilegar aðstæður. Gert er ráð
fyrir að siglingar með nýrri ferju
hefjist árið 2010.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestamanneyjum, segir þessar
breytingar skipta sköpum fyrir
Vestmannaeyjar og Suðurland í
heild sinni. „Ég er ánægður með
þessa viðurkenningu ríkisstjórnar-
innar og samgönguráðherra, á þeim
vaxtarmöguleika sem skiptir sköp-
um fyrir Vestmannaeyjar,“ sagði
Elliði.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir áætlaðan smíðatíma
nýrrar ferju vera 15 til 18 mánuði.
Ljóst er nú að ekki verður ráðist í
gerð jarðgangna en rannsóknir á
þeim möguleika gáfu ekki tilefni til
þess að þær væru raunhæfur kost-
ur í stöðunni. „Að teknu tilliti til
þeirrar niðurstöðu starfshópsins að
ekki sé réttlætanlegt að leggja til
að farið verði í frekari rannsóknir
varðandi gerð jarðgangna milli
lands og Vestmannaeyja og þess
hversu fýsilegur kostur ferjulægi í
Bakkafjöru er miðað við þær rann-
sóknir sem unnar hafa verið, var
ekkert því til fyrirstöðu að taka
ákvörðun í málinu,“ sagði Sturla
eftir að ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar lá fyrir.
Samkvæmt áætlunum er reikn-
að með því að framkvæmdir hefjist
á næsta ári en fram að þeim tíma
sem tekur að koma siglingunum frá
Bakkafjöru í gagnið verður leitast
við að hámarka nýtingu á núver-
andi samgönguleiðum. - mh
Ráðgert er að hefja ferjusiglingar frá Bakka árið 2010:
Hálftímasigling til
Vestmannaeyja
STURLA VIÐ LÍKAN AF HÖFNINNI Rannsókn á staðarháttum í Bakkafjöru er ekki lokið
ennþá en ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu samgönguráðherra um að stórbæta sam-
göngur til Vestmannaeyja með uppbyggingu hafnar í Bakkafjöru. Reiknað er með því að
siglingarnar frá höfninni hefjist árið 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÁTTÚRUVERND Sigurður Sveins-
son, lögmaður á Selfossi, segir
stofnun hollvinasamtaka Ingólfs-
fjalls vera í bígerð. „Það er ljóst
hvað markmiðið er og þetta verð-
ur ærin barátta,“ segir Sigurður
og segir marga vilja stöðva malar-
nám í fjallinu. „Það verður ekki
aftur tekið sem þegar hefur verið
gert, en ef það á að taka áttatíu
metra af fjallsbrúninni verður það
verra en nokkurn tímann.“
Landvernd og Náttúruverndar-
samtök Suðurlands kærðu ákvörð-
un bæjarstjórnar Ölfuss frá 11.
maí, þess efnis að framkvæmda-
leyfi yrði veitt til efnistöku úr
fjallinu. Framkvæmdir sem þýða
lækkun eða breytingu á fjallsbrún
í sunnanverðu fjallinu voru því
tímabundið stöðvaðar meðan
málið er til meðferðar hjá
úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingamála.
Sigurður segir marga vera
ósátta vegna umhverfisspjallanna
og breytinga á útliti fjallsins.
„Auðvitað er eyðileggingin á fjall-
inu það sem bæjarbúum blöskrar
helst.“ Sigurður segir einnig
marga hafa bent á aðra staði á
svæðinu þar sem hægt væri að
sækja möl.
Samtökin eru ennþá á frum-
stigi, en Sigurður segist finna mik-
inn meðbyr meðal Sunnlendinga
og að samtökin verði án efa öflug-
ur málsvari friðlýsingar á Ingólfs-
fjalli. - sgj
Stofna hollvinasamtök Ingólfsfjalls til að berjast gegn malarnámi í fjallinu:
Vilja láta friðlýsa Ingólfsfjall
MALARNÁM Í INGÓLFSFJALLI Sigurður segir
Ingólfsfjall vera mörgum hjartfólgið.
LÍKAMSÁRÁS Maður er ákærður
fyrir að hafa ráðist á leigubílstjóra
í apríl á síðasta ári.
Árásin var gerð á gatnamótum
Miklubrautar og Snorrabrautar og
er manninum gefið að sök að hafa
gripið í handlegg leigubílstjórans
og slegið hann hnefahögg í andlit-
ið og sparkað í hné hans. Leigubíl-
stjórinn hlaut mar, roða og eymsli
í andliti og á hné.
Ákæruvaldið krefst refsingar
og leigubílstjórinn fer fram á
skaðabætur. - æþe
Líkamsárás á Snorrabraut:
Lamdi leigubíl-
stjóra í andlitið
Fær aðild að Sameinuðu þjóð-
unum Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti einróma að Svart-
fjallaland fengi aðild að Sameinuðu
þjóðunum. Svartfjallaland verður þar
með 192. ríkið sem fær aðild.
SVARTFJALLALAND
LÍKAMSÁRÁS Maður var í gær
sýknaður í Héraðsdómi Reykja-
ness af líkamsárás á unga stúlku
í fyrra.
Manninum var gefið að sök að
hafa snúið upp á hönd stúlkunnar,
fyrir utan bifreið sem hann ók og
stúlkan var farþegi í, skellt henni
niður í malbik, tekið hana háls-
taki og kýlt í magann.
Maðurinn og stúlkan þekktust
þar sem maðurinn, sem vann sem
félagsráðgjafi, hafði haft afskipti
af stúlkunni í gegnum tíðina
starfs síns vegna.
Ákæruvaldinu tókst ekki að
sanna sekt mannsins fyrir rétti
og var hann því sýknaður. - æþe
Héraðsdómur Reykjaness:
Líkamsárás á
unga stúlku
BALLETTÆFING Þessir rúmensku ballett-
dansarar voru þaulsætnir við æfingarnar í
Dresden í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar er
nú verið að setja upp ballett við undirleik
tónlistar eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJÁRMÖGNUN
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
2
1
6
VIÐSKIPTAVINURINN
Í FYRSTA SÆTI
Glitnir Fjármögnun býður fjölbreytta
kosti við fjármögnun bíla og atvinnutækja.
Eigð’ann
Eignastu bílinn
með hjálp Glitnis
• Bílalán
• Bílasamningur
Leigð’ann
Greiddu aðeins
fyrir afnot af bílnum
• Einkaleiga
• Rekstrarleiga
Hafðu samband í síma 440 4400 eða
kynntu þér málið á www.glitnirfjarmognun.is