Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 8
8 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR
LANDBÚNAÐUR Grasspretta hefur
tekið vel við sér á Mýrum eftir
stóru sinueldana á svæðinu fyrr á
árinu. „Þetta er allt farið að spretta
aftur,“ segir Unnsteinn Jóhanns-
son, bóndi í Laxárholti. „Þetta
verða fallegustu mýrar á landinu,
held ég.“
„Ég held að þetta hafi engin
áhrif á búfénað. Kindurnar mínar
fara bara á túnin að éta,“ segir
Unnsteinn og er bjartsýnn á sprett-
una. Mikil vætutíð undanfarið
hefur þó truflað heyskapinn.
Jörð sviðnaði í eldunum og trjá-
gróður eyddist nær allur. „Ég er
að byrja í skógrækt og það var
mjög þægilegt að gróðursetja trén,
þar sem allur gróður hafði eyðst,“
bætir Unnsteinn við. -sgj
Áhrif sinuelda á Mýrum:
Allt orðið fínt
og grænt á ný
EFTIR BRUNANN Á MÝRUM Að sögn ábú-
enda er sprettan orðin góð og grasið grænt
og fallegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
www.flugfelag.is | Sími 570 3075
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
F
LU
3
33
59
0
7/
20
06
Komdu með á Ólafsvöku dagana 26. til 29. júlí.
Skemmtu þér með bestu frændum okkar. Upplifðu alvöru norræna stemmningu
eins og hún gerist best, hringdans, tónleikar, fjöldasöngur, kappróður o.m.fl.
um alla Tórshavn samfleytt í þrjá daga.
Komdu með og upplifðu Færeyjar í sinni réttu mynd.
Frábær skemmtun sem enginn ætti að láta fram hjá sér
fara, jafnt ungir sem aldnir.
Hafðu samband við Hópadeild
Flugfélags Íslands
í síma 570 3038
Viltu eignast vini í Færeyjum?
DÓMSMÁL FL Group var í gær
sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur
af öllum þeim kröfum sem Sigurð-
ur Helgason, fyrrverandi forstjóri
félagsins, gerði á hendur félag-
inu.
Sigurður vildi að viðurkennt
yrði með dómi að verðmæti kaup-
réttarsamninga þeirra átta hæst
launuðu starfsmanna fyrirtækis-
ins sem eftirlaun hans miðast við
yrði tekið með í útreikning launa
þeirra. Sigurður lét af störfum hjá
félaginu, þá Flugleiðum, árið 1990
eftir 13 ára starf og hljóðaði eftir-
launasamningur hans þannig að
hann fengi framvegis um 77 pró-
sent af meðaltali launa átta hæst
launuðu starfsmanna fyrirtækis-
ins, sem er sama hlutfall og hann
hafði í laun árið 1990.
Nýlega hafa starfsmenn félags-
ins fengið kaupréttarsamninga á
hlutabréfum félagsins til viðbótar
við launagreiðslur sínar og snerist
deilan um það hvort ágóði af þeim
bréfum sem starfsmennirnir nýttu
rétt sinn til að kaupa teldist til
launa starfsmannanna og ætti því
að vera reiknaður inn í eftirlauna-
greiðslur Sigurðar.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur komist að því að svo sé ekki,
ágóðinn af kaupréttarsamningun-
um teldist vissulega til tekna en
ekki til eiginlegra launa þar sem
þeir hefðu val um að nýta kaup-
réttinn, og sýknaði því félagið af
öllum kröfum Sigurðar. Máls-
kostnaður féll á ríkissjóð. - sh
FL Group hefur verið sýknað af kröfum Sigurðar Helgasonar, fyrrverandi forstjóra:
Ágóði af kauprétti ekki laun
GAZASTRÖND, AP Avi Dichter, örygg-
ismálaráðherra Ísraels, sagði í gær
að ísraelsk stjórnvöld myndu láta
palestínska fanga lausa fljótlega
eftir að Palestínumenn sleppi ísra-
elska hermanninum, sem þeir hafa
haft í haldi sínu í tvær vikur.
„Ísraelar kunna að gera þetta.
Ísraelar hafa gert það oftar en einu
sinni,“ sagði hann í gær, en þó var
ekki ljóst hvort hann talaði þar
fyrir munn annarra ráðherra.
Hamas-samtökin sendu einnig
frá sér í gær skilaboð um að þau
væru reiðubúin til að semja um að
láta ísraelska hermanninn lausan.
Ummæli Dichters þóttu merki
um að Ísraelar væru reiðubúnir til
að fallast á tillögu frá Egyptalandi
um að Palestínumenn létu fanga
sinn lausan í skiptum fyrir loforð
frá Ísrael um að hernaði á Gaza-
strönd verði hætt og palestínskir
fangar fái síðan fljótlega frelsi.
Ísraelski herinn hóf viðamiklar
hernaðaraðgerðir á Gazaströnd
fyrir tæpum tveimur vikum í þeim
tilgangi að frelsa ísraelska her-
manninn.
Á fimmtudaginn varð ísraelski
herinn á þriðja tug Palestínumanna
að bana í mannskæðustu árásum
sínum á Palestínumenn frá því
átökin hófust. - gb
PALESTÍNUMENN LEITA SÉR SKJÓLS Hópur Palestínumanna fylgdist á fimmtudaginn með
aðförum ísraelskra hermanna í Beit Lahiya norðan til á Gazasvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Útiloka ekki lengur samninga við Palestínumenn:
Skoða fangaskipti
VEISTU SVARIÐ?
1 Í hvaða á veiddi George Bush eldri lax síðustu daga?
2 Hvað heitir núverandi forseti Mex-íkó sem var endurkjörinn í nánast
hnífjafnri kosningu á dögunum?
3 Hver hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta?
TÖLVUMÁL Lögreglan í Reykjavík
rannsakar mál þar sem verulegri
upphæð var stolið í gegnum net-
bankaaðgang einstaklings og hún
millifærð á reikning erlendis.
Lögregla hefur rökstuddan
grun um að við
verknaðinn hafi
verið notuð
tölvuveira sem
tengist þúsund-
um rusl SMS-
skilaboða sem
íslenskir far-
símanotendur
fengu send í
júnímánuði. Er
um einangrað
atvik að ræða að
sögn lögreglu. Friðrik Skúlason,
tölvunarfræðingur segir að síma-
fyrirtækin hefðu auðveldlega
getað komið í veg fyrir þetta.
Friðrik segir lítið mál fyrir
óprúttna aðila að senda SMS-skila-
boð nánast út um allan heim í
gegnum gáttir sem geta verið
heimasíður símafyrirtækja og
annað slíkt. Hann segir atvikið,
sem átti sér stað hérlendis um
miðjan júní, vera eitthvað sem
símafyrirtæki erlendis hafi þegar
brugðist við.
„Þegar allt í einu berast þús-
undir skilaboða til símafyrirtækj-
anna, sem öll innihalda sömu skila-
boðin og koma frá sömu gáttinni
eru þau stöðvuð og berast því
aldrei farsímanotendum. Það er á
ábyrgð símafyrirtækjanna að
mínu áliti að loka fyrir svona rusl-
skeyti,“ segir Friðrik. Hann segir
að tæknilega séð sé lítið mál fyrir
símafyrirtækin að stöðva sending-
ar af þessu tagi, hins vegar geti
verið að símafyrirtækin haldi að
sér höndum til að forðast að þurfa
að taka ábyrgð.
Talsmenn símafyrirtækjanna
segja að bæði hafi viðskiptavinum
þeirra verið send skilaboð sem
vöruðu við innihaldi skeytanna og
lokað hafi verið fyrir sendingarn-
ar. Friðrik segir það hafa gerst of
seint. „Þau lokuðu kerfinu eftir að
símnotendum bárust skilaboðin og
svo sendu þau varnaðarskilaboðin
einum til tveimur dögum of seint,
þá var skaðinn skeður,“ segir Frið-
rik. Hann vill brýna fyrir fólki að
láta ekki glepjast af skilaboðum af
þessu tagi.
Friðrik hefur komist að því að
skilaboðin sem um ræðir hafi bor-
ist hingað í gegnum gátt á Bret-
landseyjum, en höfuðpaurinn sé í
Bandaríkjunum. Hann hefur gert
lögreglu viðvart. aegir@frettabladid.is
Segir símafyrirtækin
hafa sofið á verðinum
Friðrik Skúlason segir símafyrirtækin auðveldlega hafa geta komið í veg fyrir
að þúsundir SMS-skilaboða bærust viðskiptavinum sínum. SMS-skeytin voru til
þess fallin að hafa farsímanotendur að féþúfu. Einn viðskiptavinur lét glepjast.
FRIÐRIK SKÚLASON
SÝKNAÐ Sigurður fékk stóran hluta tekna
sinna áfram eftir starfslokin.
SKAÐRÆÐISSÍMAR Friðrik Skúlason segir
lítið mál fyrir óprúttna aðila að senda
fjölda-SMS um gáttir símafyrirtækja.
SPÁNN, AP Fuglaflensuveiran af
mannskæða stofninum H5N1 hefur
fundist á Spáni í fyrsta sinn. Land-
búnaðarráðuneyti Spánar sendi frá
sér tilkynningu þar um í gær.
Veiran fannst í villtum fugli af
goðaætt sem fannst í mýri skammt
fyrir utan borgina Vitoria á Norður-
Spáni. Svæðið hefur verið sett í sótt-
kví, enda var afbrigði veirunnar
ákaflega skætt, að sögn talsmanna
ráðuneytisins. Jafnframt hefur úti-
ganga alifugla verið bönnuð í tíu
kílómetra radíus.
Minnst 131 maður hefur látist úr
flensunni síðan árið 2003, sam-
kvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar. - smk
H5N1 afbrigði fuglaflensu:
Fyrsta tilfellið
finnst á Spáni
FUGLAR Fuglaflensa hefur stungið sér niður
á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VÍSINDI Rannsóknir eru hafnar á
því hvort hægt sé að finna hentugt
bóluefni til að koma í veg fyrir
lifrarbólgusýkingar í hundum, en
þær geta valdið alvarlegum veik-
indum eða dauða. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Land-
búnaðarstofnun í gær.
Könnun stofnunarinnar bendir
til þess að tilfellum af smitandi
lifrarbólgu í hundum hafi farið
fjölgandi á síðustu árum og er nú
unnið að því að kanna hvernig
hægt sé að bregðast við vandan-
um. Niðurstöður munu liggja fyrir
á haustmánuðum og verður þá
hægt að ákveða hvort leyfa eigi
umrætt bóluefni. - sþs
Lifrarbólga í hundum:
Hefja leit að
nýju bóluefni
Ekki fullur Fyrrverandi þingmaður í
Póllandi, Grzegorz Gruszka, var handtek-
inn á dögunum grunaður um ölvunar-
akstur. Þegar hann kom fyrir dómara bar
hann því við að hann hefði ekki verið
drukkinn, heldur hefði hann skolað
munninn þann morguninn með alþýð-
legu munnskoli sem kallast „jogobelka“,
blöndu vodka og sinneps. Honum var
ekki refsað.
PÓLLAND