Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 8. júlí 2006 45
Á annarri tónleikahelgi Sumar-
tónleika í Skálholti verða verk
staðartónskáldsins Úlfars Inga
Haraldssonar í forgrunni. Dag-
skráin hefst kl. 14 með fyrirlestri
Úlfars Inga í Skálholtsskóla en
klukkustund síðar mun sönghóp-
urinn Hljómeyki flytja verk eftir
hann ásamt slagverksleikaranum
Frank Aarnink. Stjórnandi á tón-
leikunum er Marteinn H. Frið-
riksson.
Síðdegis verða blandaðir tón-
leikar þar sem leikin verður tón-
list frá endurreisnartíma, verk
eftir Þóru Marteinsdóttur og
Önnu S. Þorvaldsdóttur sem báðar
voru staðartónskáld síðasta
sumar, Úlfar Inga Haraldsson, og
Díönu Rotaru sem er dóttir stað-
artónskálds sumarsins Doinu Rot-
aru. Einnig hljómar verk eftir
Bandaríkjamanninn og Íslands-
vininn Stephen Lucky Mosko sem
lést á síðasta ári. Flytjendur á
tónleikunum er sænski málmblás-
arakvintettinn Renaissance
Brass, Berglind María Tómas-
dóttir flautuleikari, Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari og Guð-
rún Óskarsdóttir semballeikari.
Á sunnudaginn verða síðan
tónleikar þar sem flutt verða brot
úr efnisskrám laugardagsins en
kl. 17 tekur Hljómeyki þátt í guðs-
þjónustu í Skálholtskirkju.
Hljómeyki syngur í Skálholti
SÖNGHÓPURINN HLJÓMEYKI Flytur verk Úlfars Inga Haraldssonar í Skálholti.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚLÍ
5 6 7 8 9 10 11
Laugardagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Guðný Einarsdóttir
orgelleikari heldur tónleika í
Hallgrímskirkju. Yfirskrift tónleik-
anna er Myndir Mussorgskys en
hún leikur meðal annars verk sem
voru hluti af útskriftarverkefnum
hennar við Konunglega tónlistar-
háskólann í Kaupmannahöfn.
15.00 Sumartónleikar í Skálholti.
Tónlistarhópurinn Hljómeyki leikur
verk eftir Úlfar Inga Haraldsson. Aðrir
tónleikar með Renaissance Brass
kl. 17.
21.00 Herdís Anna Jónsdóttir,
víóluleikari og Sólveig Anna
Jónsdóttir leika ásamt slag-
verksleikaranum Steef van
Oosterhout á sumartónleikum við
Mývatn. Tónleikarnir fara fram í
Reykjahlíðarkirkju en þar verður
flutt fjölbreytt efnisskrá með bar-
okktónlist, útsetningum á íslenskum
þjóðlögum fyrir víólu og steinaspil
og tónlist rússnesku tónskáldanna
Katsjaturian og Schostakowitch sem
útsett er fyrir víólu, marimbu og
píanó, m.a. hinn þekkta Sverðdans.
Ókeypis er á tónleikana.
■ ■ OPNANIR
14.00 Eiríkur Árni Sigtryggsson
opnar myndlistarsýningu í Galleríi
Úlf. Sýningin er opin alla daga frá
14-18.
15.00 Myndlistarsýning listahóps-
ins Án titils Grúp verður opnuð
í Listasetrinu Kirkjuhvoli á
Akranesi. Á sýningunni eru sýnd
fjölbreytt myndlistarverk; málverk,
teikningar, ljósmyndir og innsetn-
ingar. Sýningarstjóri er Anna Leif
Elídóttir. Sýningunni lýkur 13. ágúst.
Listasetrið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 15-18.
■ ■ SKEMMTANIR
21.30 Partyzone partý í
Hressógarðinum. Aðalnúmer
kvöldsins er Kap10Kurt, tveggja
manna elektró rave hljómsveit en
auk þeirra leika Hermigervill og
fleiri góðir. Kúabjöllur og rave-flautur
æskilegar. Húsið opnar kl. 21.30
Hljómsveitin Karma leikur á
Kringlukránni.
■ ■ DANSLIST
22.30 Salsakvöld á Café Cultura.
Hinn eini sanni Carlos Sanchez
kennir grunnsporin frá kl. 22.30 til
23.30 dansunnendum að kostnaðar-
lausu. Dansað fram eftir nóttu.
■ ■ SÝNINGAR
17.00 Sigtryggur Berg
Sigmarsson sýnir í Galleríi Dverg
við Grundarstíg. Sýningin ber heitið
The Curse of Sigtryggur Berg
Sigmarsson og er opin frá 17-19.
■ ■ OPIÐ HÚS
Opnið hús hjá myndlistarmanninum
Snorra Ásmundssyni. Áhugasamir
eru hvattir til að gera sig gestkomna
hjá Snorra í Álafosshúsinu í
Mosfellsbæ, Álafossvegi 23, 2 h.
Opið frá kl. 14-18 um helgina eða
eftir samkomulagi. Nánari upplýsing-
ar veitir Snorri í síma 692 9526
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Birta er komin út!
Birgitta Haukdal
Syngur með sínu nefi
Nýr heimur á Hótel Borg
Bjargey Ingólfsdóttir
Tíska
Öflugasta sjónvarpsdagskráin
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
var stofnuð árið 2004, af Gunn-
steini Ólafssyni píanóleikara og
eldri tónlistarnemendum á Íslandi.
„Hugmyndin var að gefa ungum
tónlistarnemum tækifæri á að
spila í stórri hljómsveit og takast
á við helstu verk tónbók-
menntanna,“ segir Gunnsteinn, en
hann er jafnframt fastur stjórn-
andi hljómsveitarinnar.
Að jafnaði skipa um 40-50 nem-
endur af efstu stigum tónlistar-
náms hljómsveitina, en það fer
allt eftir því hver verkefnin eru.
Meðal fastra liða á dagskrá henn-
ar er þátttaka í Þjóðlagahátíð á
Siglufirði sem fyrst var haldin
fyrir sex árum og haldin hefur
verið haldin árlega síðan. Tiltekin
þema eru valin fyrir hátíðina í
hvert sinn og nú var tónlist eyþjóða
og stranda fyrir valinu. Gunn-
steinn er ennfremur einn þeirra
sem hefur yfirumsjón með Þjóð-
lagahátíðinni en hann stjórnar
ekki Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins á hátíðinni núna.
„Um það bil einu einni á ári fær
hljómsveitin til liðs við sig einn
gestastjórnanda. Í fyrra var það
Bandaríkjamaðurinn Robert
Gutter en þema hátíðarinnar það
árið var „nýi heimurinn“. Gesta-
stjórnandinn í ár er frá Brasilíu,
kona að nafni Ligia Amadio, en
hún er fyrsta konan í 30 ár til að
vinna fyrstu verðlaun í Tokyo
International Music Competition
for Conducting. Þá hefur hún verið
aðalstjórnandi Þjóðarsinfóníu-
hljómsveitar Brasilíu í Rio de Jan-
eiro síðan 1996.“ Að sögn Gunn-
steins er mikill fengur að fá til
landsins svona góða tónlistar-
menn.
Auk gestastjórnanda leggur
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
allt kapp á að fá til sín Íslendinga
sem stunda nám erlendis, til að
leika einleik. „Í þetta sinn er það
flautuleikarinn Emilía Rós Vigfús-
dóttir sem spreytir sig á einleiks-
hlutverkinu í flautukonsertinum
Columbine, eftir Þorkel Sigur-
björnsson,“ segir Gunnsteinn.
Emilía segir þetta fyrsta ein-
leik sinn á hátíðinni þó hún hafi
tekið þátt í henni í fyrra. „Ég er
mjög spennt að taka þátt enda er
verkið sem ég flyt afskaplega
ljúft, létt og fallegt.“ Emilía segir
margt á döfinni hjá sér en hún
heldur til Lundúna í tónleikaferð á
næstunni, þar sem hún mun kynna
íslenska flaututónlist. „Í fyrra var
mér boðið í tónleikaferð um aust-
urströnd Kanada og fljótlega mun
ég taka þátt í tónlistarhátíð sem
fram fer á Möltu, en þar mun ég
halda tónleika ásamt nýsjálensk-
um píanóleikara. Svo er ég á leið í
meistaranám í London í haust,
þannig að ég hef meira en nóg
fyrir stafni.“
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
unga fólksins verða í Siglufjarðar-
kirkju á morgun kl. 14 og í Nes-
kirkju á mánudaginn. - brb
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT UNGA FÓLKSINS Leikur á Siglufirði á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ungfónía á Þjóðlagahátíð