Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 66
8. júlí 2006 LAUGARDAGUR46
MÓÐUR VIKUNNAR
> ÁLFRÚN FER YFIR MÁLIN
Spáir þú mikið í tískuna? Jájá, alveg
eitthvað smá.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum? Ég kaupi mest notuð föt,
ég er mjög mikið í pilsum og dýrka
háhælaða skó. Oftast vel ég mér
stelpulegan klæðnað og það er svo-
lítill glamúr í mér.
Uppáhaldshönnuðir eða fata-
merki? Ég á mér engan uppáhalds-
fatahönnuð beint og eiginlega ekki
heldur uppáhaldsfatamerki þar sem
flest sem ég kaupi eru engin sérstök
merki. En ég hef verið rosalega hrifin
af fötunum sem stelpurnar í Rokk og
rósum eru að gera sjálfar.
Flottustu litirnir? Dökkgrænn, dökk-
blár, fjólublár, svartur og piparmintu-
grænn.
Hverju ertu veikust/veikastur fyrir?
Skóm og töskum, ég á mjög oft erfitt
með að neita mér um hvort tveggja.
Hef ekki tölu á því hvað ég á margar
töskur.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Kremhvíta Chanel-tösku.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna? Það er svo mikið í gangi í tísk-
unni í dag en það sem ég verð mest
vör við er hvað hún er gamaldags,
glæsileg og kvenleg.
Hvað ætlarðu að kaupa
þér fyrir sumarið? Það
er ekkert sérstakt sem
ég hef ætlað mér að
kaupa. Ég er búin að
fjárfesta í nokkrum
sundbolum og sól-
glerugum.
Uppáhaldsverslun?
Rokk og rósir.
Hvað eyðir þú
miklum peningum
í föt á mánuði? Það
fer eftir efnahag.
Hvaða flíkur gætir
þú ekki verið án? Skór úr neti og
slönguskinni sem mamma mín
gaf mér í jólagjöf. Ég hef aldrei
notað neina skó jafn mikið.
Uppáhaldsflík? Blá, gulllituð
og silfurlituð second hand
kápa sem ég keypti mér í
New York í vetur.
Hvert myndir þú fara í
verslunarferð? Berlínar
án efa.
Ljótasta flík sem þú hefur
keypt þér? Ætli það séu ekki
þessir hræðilegu Buffalo skór
sem voru mjög heitir einu sinni.
Akkúrat núna á fyrsta áratug þessarar aldar stendur tísk-an á þeim tímamótum að
allar tískubólur síðustu aldar
eru komnar aftur. Þetta
samansafn af leggins og
síðum bolum níunda ára-
tugarins, kvenleika og
mittisbeltum sjötta áratug-
arins og sniðleysi sjöunda
áratugarins getur ruglað
mann í ríminu en einnig glætt
sköpunargleðina og er um að
gera að blanda þessu öllu
saman.
Sjöundi áratugurinn
var skemmtilegur, mikil
litagleði ríkti í klæðnaði
og listamaðurinn Andy
Warhol var holdgervingur
þess tíma. Förðunin varð
meiri en áður og mikill tími
kvenna fór í að túbera hár
sitt. Bítlaæðið var í
algleymingi og strák-
arnir byrjuðu að vera með lakkrís-
bindi og í háhæluðum skóm.
Stuttar buxur, lakkskór og belti,
stuttir litríkir kjólar, pínupils og
stígvél sem ná yfir hné eru tísku-
bólur nútímans sem hægt er að
tengja við þennan áratug. Fyrir-
sætan Twiggy skaust hratt upp á
stjörnuhimininn með grannan og
strákslegan vöxt og risastór augu.
Með Twiggy sem fyrirmynd vildu
konur vera grannar og stráksleg-
ar í vextinum og voru því sniðin á
þessum árum frekar bein og sýndu
lítið kvenlegan vöxt. Klæðnað sem
sækir stílinn til þessa tíma er
hægt að finna í flestum tískuvöru-
verslunum landsins og lítur út
fyrir að þessi tíska verði áberandi
í haust. alfrun@frettabladid.is
Túberað hár og pínupils
Í NÚTÍMANUM Leikkonan
Mischa Barton klædd í
fallegan stuttan kjól sem
minnir óneitanlega
mikið á þetta tímabil.
> Við mælum með
...mittistöskum.
Mjög þægilegar
og skemmtileg-
ar töskur sem
virka eins og
fylgihlutir og
hægt er að nota
þær á fleiri
vegu en utan
um mittið.
Á litla Íslandi er auðveldlega hægt að lenda í mestu hremmingu tískup-
ælarans. Hér búa aðeins 300.000 manns og það er undantekning ef
manni tekst að labba Laugaveginn án þess að heilsa einum manni. Að
vera í alveg eins gallabuxum og þrjár stelpur á sama kaffihúsi er ekki
skemmtilegt og hvað þá ef maður þekkir viðkomandi. Hér koma tísku-
bólur svo stórar að stundum er eins og öll þjóðin sé klædd eftir sömu
uppskrift.
Mörgum finnst þetta örugglega skelfing smávægilegt miðað við
stríðsástand og hungursneyðir í heiminum og ég ætla ekkert að draga
úr því en hugsið ykkur, að hafa keypt sér rándýran klæðnað og lenda
svo í því þegar á að fara að frumsýna flíkina að það er einhver annar
mættur í sama dressi. Hrikalegt og getur jafnvel valdið togstreitu
milli vina.
Fyrir stelpur er þetta hræðileg tilhugsun, sérstaklega vegna þess
að oftast hæfa svona mikilvægum frumsýningum svakalega merkileg
tilefni þar sem búið er að skipuleggja allt frá toppi til táar. Allir vilja
auðvitað standa upp úr og að sjálfsögðu snýst þetta allt saman um það
eitt að vera flottust.
Munurinn á kynjunum í tískumálum hefur ávallt verið skýr, strákar
kippa sér ekki mikið upp við svona lagað. Kærastinn minn hristir bara
hausinn ef ég er að kvarta yfir svona smávægilegum tískuvandamálum
og ég gæti alveg eins verið að tala við hann á kínversku. En af hverju
verða stelpur kaldsveittar og setja upp frosið bros ef þær hitta eða bara
sjá manneskju í eins flík? Ég held að svarið við því sé að þegar stúlk-
urnar voru ungar, eða já gelgjur er kannski rétta orðið, keyptu þær allt-
af alveg eins föt og besta vinkonan, svo var farið í þann leik að þykjast
vera tvíburar eða systur. Þegar við verðum eldri og vitrari er þetta
algjört tabú því við forðumst gelgjustimpilinn eins og heitan eldinn.
Engin ein leið er til þess að forðast þessar skelfingar, besta leiðin
gæti samt einfaldlega verið að hætta að spá í það í hverju aðrir klæðast
og njóta þess að vera í vinsælum flíkum.
Skelfing tískupælarans
LITRÍK MUNSTUR Munstur sjöunda
áratugarins voru það sterk og litrík
að það lá við að þau gætu dáleitt
mann og annan.
TWIGGY Fyrirsætan grannvaxna
var fyrirmynd kvenna á þessu
tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
MARC JACOBS
Hönnuðurinn marg-
rómaði sótti áhrif til
sjöunda áratugarins
þegar hann hannaði
línuna fyrir vorið og
sumarið 2006. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTYIMAGES
SPARISKÓR
Flottir lakkskór
með skemmtilegu
munstri úr skóbúð-
inni Kron.
HÁ STÍGVÉL
Flott stígvél
úr lakki frá
versluninni
Rokk og
Rósum.
SÆTUR Fölbleikur
kjóll með blóma-
munstri frá Gyllta
kettinum.
TENNISKJÓLL Stuttur rauður kjóll frá
Gyllta kettinum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
DOPPÓTT
Doppóttar flíkur
voru vinsælar og
þessar sokkabux-
ur eru frá Gyllta
kettinum.
RÖNDÓTT
Flottur kjóll
frá Gyllta
kettinum.
LITASAMSETNING Í
LAGI Flottur kjóll frá
Eley Kishimoto úr
Kronkron. HNEPPT PEYSA Flott peysa
frá Kronkron.
PÍNUPILS Stutt
gallapils frá Gallerí
Sautján.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
SMEKKURINN HARPA KÁRADÓTTIR MENNTASKÓLANEMI
Skemmtilegast hvað tískan í dag er kvenleg og glæsileg
utlit@frettabladid.is
SKEMMTILEGUR
Litríkur kjóll úr
Rokki og rósum.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM “ANGER MANAGEMENT”
FRUMSÝND 28. JÚNÍ
Sendu SMS skeytið JA CKF á númerið 1900
og þú gætir unnið!
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka
þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr. skeytið
... og margt fleira!
hver
vinnur!9.
DVD MYNDIR
BÍÓMIÐA Á MYNDINA
FYRIR TVO
VARNING TENGDAN
MYNDINNI
TÖLVULEIKI