Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 10
10 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR
DRAUMUR KAFARANS Sádiarabískur
prins hvetur nú ferðamenn til að koma
til landsins og njóta gæða þess. Þessir
höfrungar voru myndaðir í Rauðahafinu
við Sádi-Arabíu, og birti prinsinn myndina í
auglýsingum um land sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EFNAHAGSMÁL Stefán Úlfarsson, hag-
fræðingur hjá Alþýðusambandi
íslands, býst við að verðbólga nái
hámarki í haust og fari svo að hægja
á sér, sérstaklega eftir áramót.
Hann vill ekkert spá um það hversu
mikið hún mun hækka áður en hún
fer lækkandi aftur. Mikilvægt sé að
fólk missi ekki móðinn þó að verð-
bólga lækki ekki strax.
Verðbólga náði hámarki í júní
þegar hún mældist átta prósent.
„Það er líklegt að eitthvað af verð-
bólguskotinu eigi eftir að koma
fram,“ segir Stefán. „Við erum að
vonast til að lenda mjúklega í lok
næsta árs, verðbólgan verði þá 2,5
prósent og að við getum þá farið að
horfa aftur á kaupmáttaraukn-
ingu.“
Stefán segir
að samkomulagið
sem gert var milli
ASÍ, Samtaka
atvinnulífsins og
ríkisins hafi
almennt miðast
við að „koma
gæðum til þeirra
sem hingað til
hafa fengið
minnst út úr upp-
sveiflunni. Ef aðrir hópar, sem
þegar hafa notið uppsveiflunnar í
ríkum mæli, innheimta þetta líka og
öll launahlutföll breytast strax þá er
voðinn vís og hætta á að verðbólgan
magnist enn frekar. Það gæti gerst
en við vonum að til þess komi
ekki.“ - ghs
STEFÁN ÚLFARSSON
Fólk missi ekki móðinn þótt verðbólga hækki:
Mjúk lending verð-
ur í lok næsta ársALÞINGI Þingfundir voru alls 125 og stóðu samtals í 628 klukkustundir á 132. löggjafarþinginu sem lauk í
byrjun júní. Lengsti þingfundurinn
stóð í rúmlega 16 klukkustundir.
Alls voru 234 lagafrumvörp
lögð fram á þinginu. Stjórnarfrum-
vörp voru 138, þingmannafrum-
vörp 93 og nefndarfrumvörp þrjú.
Alls urðu 120 frumvörp að lögum,
þar af voru 115 stjórnarfrumvörp.
Fimm þingmannafrumvörp urðu
að lögum, tvö flutt af þingmönnum
og þrjú flutt af nefnd. - sdg
132. löggjafarþingið:
628 stundir af
þingfundum
KNATTSPYRNA Dauða fimmtíu
manns víðs vegar um heiminn má
rekja beint til heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu sem
fram fer í Þýskalandi um þessar
mundir. Þessu heldur heimasíðan
World Cup Death Watch fram.
Á heimasíðunni kemur fram að
níu manns hafi látist í Kína vegna
keppninnar, þó Kína hafi ekki átt
lið í keppninni. Hægt er að kenna
tímamismuninum um það, en leik-
irnir eru svo seint á kvöldin að
áhorfinu fylgir oft talsverð
drykkja. Nú síðast kastaði kín-
verskur maður sér út um hótel-
glugga þegar Holland tapaði fyrir
Portúgal, líklega vegna þess að
hann hafði veðjað á leikinn. Maður
var drepinn í Malasíu, líklega af
lánadrottnum, en hann gat ekki
endurgreitt þeim fé sem hann
fékk lánað til að veðja á fótbolta-
leikina.
Sextugur Japani hengdi sig
eftir að lið hans tapaði fyrir Þjóð-
verjum. Einn Taílendingur stakk
annan í rifrildi vegna vítaspyrnu-
dóms í leik Ítalíu og Ástralíu.
Nokkrir hafa líka farist vegna
hjartaáfalla út af yfirþyrmandi
geðshræringu tengdri kappleikj-
unum. Andleg spenna og örmögn-
un vegna stanslausra hvatninga-
hrópa hefur reynst banvæn blanda
fyrir marga dygga stuðnings-
menn.
Athygli vekur að ekkert dauðs-
fall hefur orðið vegna venjulegra
uppþota fótboltabullna. Í Nígeríu
var þó maður kyrktur af félögum
sínum þegar þeir voru að horfa á
opnunarleikinn. Kínversk kona dó
eftir fall af sautjándu hæð íbúðar-
húss, eftir að hafa rifist við kær-
asta sinn sem vildi horfa á boltann
snemma morguns. Kærastinn
segir hana hafa stokkið af sjálfs-
dáðum út um gluggann.
Sex létust í Haítí vegna slags-
mála um rafal til að knýja sjón-
varp svo hægt væri að horfa á fót-
boltaleik. Skoti var stunginn í
rifrildi um fótbolta og múslimi í
Sómalíu skaut tvo menn sem voru
að horfa á leik, en slíkt þykir guð-
last þar á bæ. Loks fyrirfór maður
frá Ekvador sér af ótta við eigin
spádómsgáfu, en hann hafði rétti-
lega spáð fyrir um úrslit leiks
Ekvadora og Pólverja.
steindor@frettabladid.is
Tugir látnir
vegna HM
Nokkuð hefur verið um uppþot og handtökur vegna
HM í Þýskalandi, en það sem færri vita er að dauðsföll
fimmtíu manns má rekja beint til mótsins. Enginn
þeirra lést í hefðbundnum knattspyrnuóeirðum.
STUÐNINGSMENN Á HM Í ÞÝSKALANDI Nú þegar heimsmeistaramótið nær hátindi á
sunnudaginn verða menn að passa sig á að láta kappið ekki hlaupa með sig í gönur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
FP
KÆNUGARÐUR, AP Ekkert verður af
því að Júlía Tímósjenkó verði for-
sætisráðherra í Úkraínu þar sem
slitnað hefur upp úr samstarfi
þriggja flokka meirihluta, sem
hafði valið hana í embættið, áður
en stjórnarmyndun var lokið.
Sósíalistaflokkurinn, sem hafði
myndað þingmeirihluta með flokki
Júlíu og flokknum Okkar Úkraína,
gekk til liðs við Héraðaflokkinn,
sem er flokkur Viktors Janúkó-
vitsj, fyrrverandi forseta lands-
ins.
Á fimmtudaginn var Oleksandr
Moroz, leiðtogi Sósíalistaflokks-
ins, kosinn þingforseti og í gær
sagðist nýi þingmeirihlutinn hafa
ákveðið að næsti forsætisráðherra
landsins yrði Janúkóvitsj, sem
hrökklaðist úr forsetaembættinu
eftir að Úkraínumenn gerðu „app-
elsínugulu byltinguna“ gegn
honum haustið 2004. Leiðtogi bylt-
ingarinnar var Viktor Júsjenkó,
sem nú er forseti landsins.
Þingkosningar voru haldnar í
Úkraínu í mars en eftir að „app-
elsínugulu“ flokkunum hafði loks
tekist að ná saman um að mynda
stjórn kom þáverandi stjórnar-
andstaða í veg fyrir að þingið gæti
gengið til atkvæða með því að
leggja hreinlega undir sig þingsal-
inn þangað til slitnaði upp úr
meirihlutasamstarfinu. - gb
JANÚKOVITSJ Á TALI VIÐ ÞINGMENN Viktor
Janúkovitsj, fyrrverandi forseti Úkraínu og
leiðtogi Héraðaflokksins, verður væntan-
lega forsætisráðherra eftir að nýr þingmeiri-
hluti myndaðist. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Meirihluti „appelsínuflokkanna“ í Úkraínu féll áður en stjórnarmyndun lauk:
Kúvending á Úkraínuþingi
Hvalur í ánni Mjaldur, tannhvalur
sem er flækingur við Íslandsstrendur,
fannst nýverið dauður er ísa leysti á fljóti
í Alaska, 1.600 kílómetrum frá kjörsvæði
sínu. Mjaldurinn hefur líklega synt upp-
eftir ánni er hann elti laxagöngur.
ALASKA
SAMGÖNGUMÁL Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra segir rangt að
halda því fram að ákvarðanir hafi
verið teknar um að fresta einstök-
um vegaframkvæmdum eða að um
misræmi sé að ræða í málflutningi
hans og annarra ráðherra ríkis-
stjórnarinnar. Þetta segir í tilkynn-
ingu samgönguráðuneytisins í gær.
Viðræður standa nú yfir milli
fjármálaráðherra og félagsmálaráð-
herra annars vegar og Sambands
íslenskra sveitafélaga hins vegar
um mögulegar aðhaldsaðgerðir hjá
sveitafélögum. Að þeim loknum
verður tekin ákvörðun um hvaða
einstöku verkefnum verður
frestað. - sþs
Samgönguráðherra:
Misskilningur í
umræðunni
BRETLAND Íslendingur á þrítugs-
aldri viðurkenndi í vikunni að
hafa vingast við 14 ára breska
stúlku á netinu með það í huga að
leita eftir kynferðislegu sam-
bandi, og að hafa misnotað hana.
Þetta kemur fram á fréttavef
BBC.
Guðni Snæbjörnsson ferðað-
ist tvisvar til Bretlands í fyrra
áður en hann var gripinn í febrú-
ar, þá nakinn ásamt stúlkunni
hálfklæddri í rúmi á hótelher-
bergi í Burnley. Hann var hand-
tekinn og hefur síðan setið í fang-
elsi.
Ljóst er að Guðni og telpan
höfðu átt í sambandi um nokkurt
skeið, þó verjandi hans bendi á að
engar sannanir séu fyrir nokkru
kynferðislegu fyrr en helgina
sem Guðni var handtekinn.
Dómur fellur í málinu í næsta
mánuði. - smk
Íslendingur ákærður í Burnley:
Viðurkennir misnotkun