Fréttablaðið - 08.07.2006, Side 16

Fréttablaðið - 08.07.2006, Side 16
 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 NFS Í BEINNI Á VISIR.IS 35.000 gestir vikulega sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver. Auglýsingasími 550 5000. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. Hálfs mánaðar ferðalagi mínu um lendur heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi er lokið. Á morgun lýkur líka keppninni. Keppni sem alþjóðasamfélagið hefur fylgst með, í stærri og meiri mæli en nokkru sinni fyrr. Það hefur í rauninni ekkert gerst í henni ver- öld sem mark er á takandi eða sem máli skiptir, síðan HM hófst. Hér heima er enn einn ganginn allt að fara í loft upp í spítalamálum, í Afganistan eru talibanarnir að færa sig heldur betur upp á skaft- ið og í sjálfu Þýskalandi sagði stórfyrirtæki þar í landi upp sjö þúsund starfsmönnum á einu bretti. Og enginn ygglir brún. Eng- inn tekur eftir neinu, nema því hver skoraði og hver sigraði. Það var auðvitað mikil upplifun að komast í snertingu við þá hita- sótt sem greip um sig meðal Þjóð- verja meðan þeir áttu von í heims- meistaratignina, vera á staðnum og finna fyrir því rafmagnaða andrúmslofti sem ríkir í mannhaf- inu. Á vellinum, í stúkunni, á torg- um, strætum, veitingastöðum og hvar sem komið er. Það var eins og þessi þjóð hefði látið niður- bælda þjóðerniskennd fá útrás eftir sextíu ára innibyrgða skömm og sektarkennd. Það hefur aftur verið gaman að vera Þjóðverji. Og við hin getum samglaðst með þeim og allir geta væntanlega tekið undir með mér, að mikið væri nú heimurinn betri og ánægjulegri, ef átök manna í milli væru alla- jafna ekki alvarlegri en þau, að takast á í boltaleik. En það er auðvitað meira og fleira en fótboltaleikir sem gleðja augað í þessu víðfeðma landi, Þýskalandi. Við ferðalangarnir ókum til að mynda Das Romantische Strasse, veg hinna rómantísku leyndardóma, enda fegurðin mikil og smjör drýpur þar af hverju strái. Það er auðvelt að sjá fyrir sér ástir og ævintýri í þessu gósenlandi skóga og engja og fljóts. Paradís hins eilífa lífs. Rómantíkin hlýtur að blómstra við slíkar aðstæður. Enda ekkert lát á aðförum og árásum framandi þjóða. Svíar reyndu til dæmis að leggja þessa náttúrufegurð undir sig, þar stóð þrjátíu ára stríðið og sjálfir reistu innfæddir bæði kirkj- ur og kastala á þrettándu og fjór- tándu öldinni, sem enn standa og eru minnismerki um þá staðreynd að þarna ríkti menning og reisn, löngu áður en við Íslendingar viss- um að til væri annað byggingar- efni en torf. Og það er orð á því gerandi að þarna í miðri fegurð- inni og auðlegðinni, ríkti slík veð- ursæld að ég þori varla að nefna það, staddur í rigningarsuddanum hér heima. Því hlutskipti deilum við mörlandarnir ennþá með kyn- slóðum frá örófi alda. En er það ekki skrítið að mitt í öllum þessum fótbolta og allri þessari sögu, er hreyfiaflið sams- konar manneskjur, samskonar fólk, með eyru og augu og nef, eins og við! Og þó enginn eins, ekki nokkur maður. Ég sest niður á kaffihúsi eða bjórstofu og virði fyrir mér mannmergðina sem líður framhjá. Ég tek auðvitað fyrst og fremst eftir konunum og er ennþá nógu ungur (eða á ég að segja þeirrar náttúru) að snúa mig úr hálsliðnum, þegar falleg kona gengur hjá. En þarna labba litlir og stórir, feitir og mjóir, sköllóttir og hjólbeinóttir, glaðir eða afundnir, alls kyns fólk og enda- laust mannhaf, og enginn er eins. Ráfar um, eins og það eigi ekkert erindi við umheiminn, en skrafar saman og er sjálfsagt allt að hugsa um kvöldmatinn eða kærastann. Upptekið í hversdagsleikanum, með hugann við sig og sína eða bara dólar þarna í góða veðrinu og lætur sér fátt um finnast og veit ekki einu sinni af því, að á stéttinni situr Íslendingur, afkomandi vík- inganna, og glápir á þau og á ekk- ert sameiginlegt með þeim, nema það eitt að vera til í þessum heimi, nákvæmlega núna, eitt lítið peð í mannhafinu. Já, eitt lítið peð má sín kannske lítils gagnvart kóngum og drottn- ingum á skákborði tilverunnar. En samt er þetta fólk, öll þessi smá- peð og samborgarar í veröldinni, mikilvægustu einstaklingarnir, af því að það erum við, við öll, sem leggjum lóð á vogarskálarnar, gerum fótboltann að áhugamáli okkar, höfum skoðanir, eigum dag- drauma, reisum kirkjur og kastala og búum til og eigum þennan heim, meðan við tórum. Rétt eins og for- feður okkar, rétt eins og afkom- endur okkar. Eins ólík og við erum. Það er eitt af undrum jarðarinnar og mannkynsins. Þessi mann- skepna ein og sér. Í öllum sínum hverdagsleika og breytileika. Í miðju mannhafinu Guðmundur í ráðuneyti Guðmundur Hörður Guðmundsson fréttamaður verður nýr upplýsingafull- trúi umhverfisráðuneytisins. Guðmund- ur Hörður hefur unnið á fréttastofu Sjónvarpsins að undanförnu, líkt og hann gerði síðasta sumar. Áður vann hann á Fréttablaðinu og á fréttastofu Útvarpsins. Síðasta vetur nam Guð- mundur Hörður umhverfisfræði í Edinborg og á milli kúrsa skrifaði hann nokkrar aðsendar greinar í Frétta- blaðið um þann víðfeðma mála- flokk. Staða upplýsinga- fulltrúa umhverfisráðuneytisins er ekki ný af nálinni, upplýsingafulltrúi hefur starfað í ráðuneytinu í tólf ár en borið annan titil. Dagur ráðninga Annars var fjör á fjölmörgum vinnu- stöðum í gær enda þótti dagurinn heppilegur til mannaráðninga, einhverra hluta vegna. Nýr ritstjóri var ráðinn að Blaðinu, nýr framkvæmda- stjóri var ráðinn til Nýsköpunarsjóðs og skipað var í nýtt embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Þá var tilkynnt að forstjóri Eddu útgáfu væri að hætta en ekki hefur verið ákveðið hver tekur við starfinu. Ár ritstjóra Fleiri ritstjórar en tölu verður á komið hafa verið ráðnir á hin ýmsu blöð það sem af er ári. Síðast í gær var Sigurjón M. Egilsson ráðinn ritstjóri Blaðsins en fyrr á árinu var Ásgeir Sverrisson ráðinn til starfsins. Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson voru ráðnir ritstjórar DV á árinu en Björgvin hætti skömmu síðar. Þá varð Þorsteinn Páls- son ritstjóri Fréttablaðs- ins á árinu. Ónefnd eru þá mannaskipti í brúm fjölda tímarita en ritstjóraskipti urðu á Veggfóðri, Nýju lífi, Séð og heyrt, Hér og nú, Vik- unni og eflaust mætti áfram telja. bjorn@frettabladid.is Í DAG Á FERÐ UM ÞÝSKALAND ELLERT B. SCHRAM En er það ekki skrítið að mitt í öllum þessum fótbolta og allri þessari sögu, er hreyfiaflið samskonar manneskjur, sams- konar fólk, með eyru og augu og nef, eins og við! Og þó eng- inn eins, ekki nokkur maður. Mála sannast er að embætti forseta Íslands dregst sjaldan inn á vettvang stjórnmálaumræðna. Formaður þing-flokks VG, Ögmundur Jónasson, hefur nú gert smávægi- lega undantekningu þar frá á heimasíðu sinni. Tilefnið er koma George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, til landsins í boði forseta Íslands. Boð forseta Íslands er sérstaklega til þess að þakka Bush fyrir framlag hans til verndar laxastofnum í höfunum með einkaréttar- legum aðferðum til uppkaupa á veiðirétti. Það er áhrifarík og ábyrg aðferð við nýtingu auðlinda sjávar með því að veiðiréttur- inn er viðurkenndur sem andlag í viðskiptum. Þingflokksformaðurinn gagnrýnir forseta Íslands hins vegar fyrir heimboðið með skírskotun í forstjórastarf Bush hjá CIA og enn fremur til „blóðugrar ofbeldisfullrar heimsvaldastefnu“ sem hann telur forsetann fyrrverandi tákngerving fyrir. Þetta eru efnislega sömu andmælin og Ólafur Ragnar Gríms- son, þáverandi formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, beindi í útifundarræðu gegn komu Bush hingað í boði stjórnvalda árið 1983. Með engu móti er unnt að fallast á röksemdafærslu þingflokks- formannsins. Þvert á móti geta íslensk stjórnvöld haft gildar ástæður til að sýna Bandaríkjunum sóma með því að bjóða hingað fyrrverandi forseta hvort heldur það er vegna náinnar samvinnu í utanríkis- og varnarmálum eða frjálsra viðskipta með veiðirétt- indi á laxi. Hitt er kórrétt hjá þingflokksformanninum að heimboðið er að sjálfsögðu í nafni íslensku þjóðarinnar og „því eðlilegt að um málið sé fjallað í slíku samhengi“ eins og hann segir. En þá þarf að gæta að stjórnskipulegri stöðu forsetaembættisins. Samkvæmt réttum stjórnskipunarlögum ber utanríkisráðherra ábyrgð á öllum embættisathöfnum forseta Íslands sem fela í sér að bjóða hingað erlendum gestum í nafni þjóðarinnar. Þingflokks- formaðurinn á því að beina gagnrýni sinni um þessa tilteknu heimsókn að utanríkisráðherra en ekki forsetanum sjálfum. Eðlilega geta verið skiptar skoðanir um heimboð af þessu tagi. Það er ekki síst skiljanlegt í ljósi þess að stjórnvöld eru sérstak- lega með henni að þakka framlag til aðferða við veiðistjórnun sem hafa verið umdeildar hér á landi. Þingflokksformaður VG er því í fullum rétti þegar hann lætur skoðanir sínar í ljós á þessari heimsókn. Það sem meira er: Hann á sjálfsagðan rétt til að krefja utanríkisráðherra svara á Alþingi telji hann ástæðu til að kalla eftir skýringum á þessari táknrænu framkvæmd utanríkisstefnunnar. Afar mikilvægt er að virða stjórnskipunarreglurnar um ábyrgð ráðherra á embættisathöfnum forseta Íslands. Með því eina móti er unnt að halda embættinu utan og ofan við stjórnmálaátök. Sú staða forsetaembættisins má hins vegar ekki hindra stjórn- málamenn í pólitískri umræðu um táknræn pólitísk efni sem for- setaembættið óhjákvæmilega tengist. Fyrir þá sök eiga stjórn- málamenn, þegar þannig háttar til, að beina spjótum sínum að viðkomandi ráðherra. Í þessu máli á forseti Íslands þakkir skildar fyrir að láta ekki fyrri pólitíska afstöðu sína gagnvart Bush og aðferðir við fisk- veiðistjórnun trufla eðlilega embættisathöfn í nafni þjóðarinnar. Þetta er vert að virða því forsetinn hefur stjórnskipulega stöðu til að synja um aðild embættisins að slíkum athöfnum þó að jákvæð framkvæmd þeirra sé á ábyrgð ráðherra. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Stjórnskipuleg ábyrgð utanríkisráðherra: George Bush og forseti Íslands

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.