Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 58
Réttindabarátta sam- kynhneigðra stendur á tímamótum og nú er tími til að fagna. Krist- rún Heiða Hauksdóttir ræddi við vaktmann- inn, söngvarann og plötusnúðinn Pál Ósk- ar Hjálmtýsson sem þeytir skífum á Nasa í kvöld í nafni frelsis og jafnréttis. Í ljósi sögunnar er það svo mikið kraftaverk að hommar og lesbíur séu loksins komin með sjálfsvirðingu sem hefur skilað þeim á þennan stað. Þetta er búinn að vera langur vegur en nú upplifum við það að ungt fólk, unglingar, eru farnir að koma út úr skápnum og leita til Samtak- anna 78 og þau eru tilbúin. Það er eitt mesta kraftaverkið,“ segir Páll Óskar. Á baráttudegi sam- kynhneigðra, 27. júní, voru stigin stór skref í jafnréttisátt hér á landi en þá tóku gildi lög sem kveða á um að samkynhneigð jafnt sem gagnkynhneigð pör geti nú fengið sambúð skráða í þjóð- skrá, auk þess sem mörg önnur lög hafa nú verið leiðrétt þar sem réttindi sambúðarfólks koma við sögu. Þessum tímamótum verður fagnað með margvíslegum hætti og ekki síst á Hinsegin dögum sem verða haldnir í ágústmánuði en nú er komið að nettri upphit- un. Góður málstaður „Hinsegin dagar hafa stækkað og orðið annað og miklu meira en við áttum von á í upphafi. Þess vegna erum við að halda þetta styrktar- ball. Hinsegin dagar eru unnir í sjálfboðavinnu og það er ekki hægt að réttlæta að halda 40 þús- und manna hátíð öðruvísi en að allir þeir sem að henni koma vinni sjálfboðavinnu. Við treystum því á dansleikjahald til að ná inn fjár- magni eins og hægt er. Við erum líka með trausta bakhjarla eins og Reykjavíkurborg og síðan eru ákveðnir kostunaraðilar en betur má ef duga skal.“ Páll Óskar verður plötusnúður á dansleiknum en DJ Dagný ætlar að hita upp gestina. „Ef ég þekki mig rétt þá á ég líka eftir að grípa í míkrafóninn og syngja eithvað sjálfur,“ segir Páll Óskar sposk- ur. „Það sem mestu skiptir er samt að við höfum ríka ástæðu til þess að fagna. Þetta eru tímamót. Á Íslandi er best að búa í heiminum og við getum montað okkur af því. Það er aðdáunarvert hversu fljótt hefur tekist að ná þessum árangri hérna heima og þessar fréttir eru þegar byrjaðar að berast út fyrir landsteinana.“ Tilfinningalegt frelsi Páll Óskar segir að árangurinn beri ekki eingöngu að þakka sam- kynhneigðum og frumkvöðlum sem barist hafa fyrir réttindum þeirra um árabil heldur einnig þeim sem á eftir komu. „Við megum ekki gleyma fólkinu sem hefur tekið þetta stóra skref að koma út úr skápnum, hefur kosið að rífa líf sitt upp með rótum og byrja upp á nýtt – það hefur kosið að taka sjálft sig út úr jöfnunni og sjá hvaða möguleika lífið hefur upp á að bjóða með þessu tilfinningalega frelsi.“ Hann áréttar líka að þessi árangur hefði aldrei náðst ef ekki hefði verið fyrir velvilja gagnkyn- hneigðra. „Ef streit fólkið hefði ekki kveikt á perunni þá hefði ekkert gerst. Alveg eins og það hefði enginn árangur náðst í kvenréttindabaráttunni fyrr en karlmenn kveiktu á perunni.“ Hann segist líka feginn því að réttindabarátta samkynhneigðra hafi aldrei snúist um annað en jafnrétti. „Við höfum aldrei beðið um nein forréttindi heldur bara að fá að sitja við sama borð, fá sömu réttindi og skyldur gagnvart sam- félaginu og þar af leiðandi sömu ábyrgð.“ Orð og efndir „Það má samt ekki gleyma því að lög og reglur eru bara bókstafir á blaði,“ segir Páll Óskar. „Þau öðl- ast ekki gildi fyrr en samfélagið fer eftir þeim – fyrr en við förum að lifa eftir þeim. Kvenréttindi og kvenfrelsi er bundið í lög en stelp- urnar þurfa enn að vera á verði,“ segir Páll Óskar. „Það er táknrænt að gleðigang- an á Hinsegin dögum fer niður Laugaveginn því einmitt þar, á þeim gangstéttarhellum, hefur kannski mesta misréttið farið fram og gerir enn þann dag í dag.“ Hann segist enn verða fyrir aðkasti á Laugaveginum en þá er yfirleitt komið fram yfir miðnætti og fólk búið að fá sér í glas. „Ég þarf líka að taka það inn í mynd- ina að ég hef verið á fullu síðast- liðin tíu ár og beðið um ákveðna athygli. Nú þarf ég að taka ábyrgð á því sem ég heimtaði og það er ekkert mál. Ég er sterkbyggður og get tekið ýmsu. Hins vegar eru aðrir sem ekki eru jafnsterkir og hafa máske þurft að þola ákúrur, uppnefni og annað óþol,“ útskýrir hann. Baráttan fyrir kærleika Hann segist þakklátur fyrir að fá að vera sífellt á vakt. „Mér þætti lýjandi að þurfa að gera eitthvað sem ég hef ekki gaman af. Inn í þessa vakt fléttast áhugi minn á náunganum og á að skoða viðbrögð annarra,“ segir Páll Óskar og bætir því við að þetta hafi hvatt hann til sjálfsskoðunar. „Ég veit að ég bregst öðruvísi við áreiti núna heldur en í gamla daga. Ég gat tekið alls kyns hluti inn á mig en mér finnst ég landa því miklu betur núna. Ef ég fæ ákúrur út á götu þá er miklu auðveldara fyrir mig að segja: „Jæja, slæmur dagur hjá þér en ekki mér. Þetta er minn dagur og þinn slæmi dagur getur ekki haft áhrif á minn góða dag því ég leyfi það ekki.“ Ég leyfi þessu ekki að hafa áhrif á mig lengur.“ „Eftir að hafa skoðað málið betur þá er ég annar maður en ég var – þakka guði fyrir það,“ segir hann hlæjandi. „Þess vegna nenni ég að standa vaktina og hef gaman af því. Mín upplifun á þessari rétt- indabaráttu er kannski önnur en hjá einhverri manneskju út í bæ en rauði þráðurinn er baráttan fyrir kærleika – fyrir tilfinninga- legu frelsi. Þetta frelsi er ákaf- lega mikilvægt öllum manneskj- um, frelsi til þess að elska þann sem maður er skotinn í og að það sé ekki virt að vettugi eða gert grín að því eins og það sé einhver gerviást. Ég held að þessi hiti hafi kviknað í baráttufólki vegna þess að það var ástfangið. Við komumst bara að því að maður ræður ekki í hvora áttina hjarta manns slær – það bara slær. Nú er komið að upp- skerunni. Við höfum verið að vinna á fullu og eðli málsins sam- kvæmt heldur maður partí.“■ 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR38 PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON „Maður ræður ekki í hvora áttina hjartað slær, það bara slær.“ MYND/GUNNAR ÞÓR Rauði þráðurinn er kærleikurinn GLEÐIGANGAN Allir þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í gleðigöngunni á Hinsegin dögum og vera með fleka í skrúðgöngunni eru hvatt- ir til þess að sækja um á heima- síðunni www.gaypride.is hið fyrsta. Þar má ennfremur finna nánari upplýsingar um dag- skrárliði hátíðarinnar sem að þessu sinni stendur frá 9.-12. ágúst. Á GÓLFINU Í KVÖLD Ég verð náttúrulega að haga seglum eftir vindi með lagavalið. Ætli það mætti ekki segja að þetta verði blanda af diskó og eurovision, Mad- onnu, Cher og Kylie og síðan alls konar hallærispartítón- list í bland við það glænýja sem er að gerast núna. 1.05 6 kr. Rey ksky njar i 9v Eldvarnarfötur 8.573 kr. 30l ryðfrít t stál 2.737 kr. 15l blá/svö rt 6.957 kr. 50l grá/sv ört Eldvarnartæki – til öryggis Fyrir heimilið, sumarbústaðinn,vinnustaðinn og hótelið Dufttæki 6kg með mæli og veggfestingu 6.698 kr. Dufttæki 2kg með mæli og bílfestingu 4.950 kr. Eldvarnarteppi 100x100cm 3.459 kr. R V 62 08 C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.