Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 52
 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR32 Danska varðskipið Vædderen fær nýtt hlutverk þegar það sigl- ir úr höfn í Danmörku í næsta mánuði. Haldið verður í vísindaleiðang- ur umhverfis jörðina. Varðskipið Vædderen er mörgum Íslendingum í fersku minni. Það hefur oft lagst að bryggju í Reykjavíkurhöfn og einnig tekið þátt í björgunarað- gerðum þegar skip hafa lent í nauð- um hér við land. Skipið er smíðað árið 1993 og hefur gegnt lykilhlut- verki í danska varðskipaflotanum í rúm tíu ár, en árið 1971 fékk for- veri þess og nafni, hið eldra Vædd- eren, sögulegt hlutverk þegar það sigldi hingað til lands með íslensku handritin frá Danmörku. Nú hefur Vædderen fengið nýtt hlutverk, sem er ekki síður sögu- legt. Skipið hefur staðið í slipp í Danmörku mánuðum saman og gengist undir miklar breytingar til þess að laga það að hinu nýja hlutverki. Vistarverur skipsins þurfa nú að hýsa vísindamenn og fjölmiðlafólk auk skipsáhafnar og aðstaða þarf að vera fyrir vísinda- menn til þess að stunda rannsókn- ir sínar, sem eru af býsna fjöl- breyttu tagi. Þriðji Galatheuleiðangurinn Vísindaleiðangur Vædderens geng- ur undir nafninu Galathea 3, en Danir hafa tvisvar áður sent vís- indamenn í landkönnunarsiglingu umhverfis jörðina undir þessu nafni. Fyrsti Galatheuleiðangurinn hélt úr höfn í Danmörku í júní árið 1845 og kom ekki til baka fyrr en í ágústlok árið 1847 eftir að hafa farið mikla ævintýraferð umhverf- is jörðina. Rúmlega hundrað árum síðar, eða í október árið 1950, var síðan haldið í annan leiðangur undir merkjum Galatheu og var þá einnig siglt umhverfis jörðina, en þó farin önnur leið og víðar komið við. Sá leiðangur stóð einnig yfir í nærri tvö ár, því komið var heim í lok júní árið 1952. Galatheuleiðangrarnir eru nefndir í höfuðið á Galatheu, sem í grískri goðafræði var ein af dætr- um sjávarguðsins Nereifs. Fyrri leiðangrarnir tveir þóttu mikil afrek í vísindasögu Danmerkur, en Danir eiga langa hefð fyrir land- könnunarferðum af ýmsu tagi. Fyrsta ferðin af því tagi var farin árið 1619 þegar Kristján fjórði sendi Jens Munk með 63 menn og þrjú skip í ferð til að leita uppi siglingaleið norður fyrir Ameríku frá Atlantshafi yfir til Kyrrahafsins. Eins og nærri má geta tókst ekki að finna neina slíka leið. Aðeins eitt skipanna þriggja átti afturkvæmt til Danmerkur. Nicobareyjar og Galapagos Lagt verður úr höfn í Danmörku þann 11. ágúst næstkomandi. Vædderen kemur ekki við í Reykjavík að þessu sinni heldur verður stefnan fyrst tekin á Fær- eyjar og þaðan verður haldið til Grænlands. Frá Grænlandi liggur leiðin suður á bóginn. Siglt verður til Azoreyja í Atlantshafinu og þaðan suður fyrir Afríku þvert yfir Indlandshaf og áfram alla leið til Ástralíu. Þaðan verður síðan siglt yfir Kyrrahafið til Suður- Ameríku, siglt yfir Panamaskurð- inn og þaðan yfir Atlantshafið heim til Danmerkur Víða verður komið við á leið- inni, meðal annars á Galapagos- eyjum þar sem Charles Darwin fékk innblástur fyrir þróunar- kenningu sína, og á Nicobareyjum í Indlandshafi þar sem skaðinn varð hvað mestur af völdum flóð- bylgjunnar miklu sem reið yfir á annan í jólum árið 2004. Það verð- ur svo í apríl á næsta ári, eftir níu mánaða siglingu umhverfis jörð- ina, sem loks verður komið aftur í heimahöfn í Danmörku. Fimmtíu rannsóknaráætlanir Í þessari ferð hafa verið skipu- lagðar um fimmtíu rannsóknar- áætlanir á hinum ýmsu sviðum vísindanna, meðal annars á sviði líffræði og jarðfræði, sagnfræði og menningarfræði, og umhverf- is- og loftlagsfræði. Hlustað verð- ur eftir hljóðum í hafdjúpunum, áhrif loftlagsbreytinga verða könnuð með ýmsum hætti, áhrif alþjóðavæðingar á menningu víða um heim verða skoðuð og eitraðar sæslöngur verða veidd- ar. Er þá aðeins tæpt á örfáu af þeirri fjölbreyttu iðju sem vís- indamennirnir um borð ætla að taka sér fyrir hendur. Hugmynd- in um að senda þriðja heimsleið- angurinn af stað frá Danmörku undir nafninu Galathea 3 kvikn- aði árið 2000 og er upphaflega komin frá blaðamönnum Jót- landspóstsins. Þeir útfærðu hug- myndina og kynntu hana fyrir Anders Fogh Rasmussen forsæt- isráðherra árið 2004, sem varð svo hrifinn að hann kom því í kring að af þessu yrði. Verndari leiðangursins er Friðrik krón- prins í Danmörku og hægt verður að fylgjast jafnóðum með fram- gangi verkefnisins á vefnum á að minnsta kosti þremur vefsetrum, það er www.galathea.nu, www. galathea3.dk og á www.politiken. dk/galathea. gudsteinn@frettabladid.is EYÐILEGGINGIN Á NICOBAREYJU Meðal viðkomustaða leið- angursins verða Nicobareyjar í Indlandshafi. FASTAGESTUR Í REYKJAVÍKURHÖFN Myndin var tekin þegar varðskipið Vædderen lá við bryggju í Reykjavíkurhöfn. RISASKJALDBAKA Hinar fögru Galapagoseyjar verða heim- sóttar í leiðangri danska skipsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP ��������� ����� ������������� ���� �������� ���������� ������� ����������������� ������������ ���������� ���������� ����� ������ ������������ ������������������������������������ Vædderen í vísindaferð umhverfis jörðina VARÐSKIPIÐ VÆDDEREN Danska varðskipið siglir um öll heimsins höf á næstu misserum. FRÉTTABLADID/GALATHEA3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.