Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 50
20
GLÓÐ inn
Við sundlaug Vesturbæjar í 25 ár
Ekta hamborgari
Ekta steikarbragð
Hamborgara tilboð með öllu
og kók í gleri 666 kr.
Glóandi tilboð í sumar
Íbúafjöldi: Yfir tvær milljónir.
Staðsetning: Sunnanvert í dal í miðju
Gvatemala.
Trúarbrögð: Rómversk-kaþólskir, mót-
mælendur, Maya-trú.
Hæð: 1.520 metrar.
Fullt nafn borgarinnar á frummálinu er La
Nueva Guatemala de la Asunción og er af
innfæddum kölluð Guatemala eða Guate.
Gvatemala er ekki aðeins höfuðborg
Gvatemala heldur líka stærsta borg í
Mið-Ameríku. Innan marka Gvatemala,
eins og hún er nú á dögum, er hin forna
Maya-borg, Kaminaljuyu. Sú borg er
um tvö þúsund ára gömul og er ein af
merkilegustu fornleifastöðum í Ameríku
frá þeim tíma.
Jarðskjálfti eyðilagði borgina á árunum
1917-18 en borgin var byggð aftur á sama
stað. Annar jarðskjálfti olli miklu tjóni árið
1976 og varð rúmlega tuttugu þúsund
manns að bana.
BORGIN
GVATEMALA -
HÖFUÐBORG
GVATEMALA
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
...að meira en 1,1 milljarður
manna í heiminum talar kín-
versku?
...að lengsta stafróf í heimi er í
khmer tungumálinu sem talað er
í Kambódíu? Í stafrófinu eru 74
stafir.
...að vinsælasta hrollvekja í heimi
er The Exorcist?
...að Frank Hanaway, fyrrverandi
riddaraliðsforingi varð fyrsti
áhættuleikari sögunnar þegar
hann fékk hlutverk í kvikmyndinni
Lestarránið mikla árið 1903?
...að stærsta netverslun í heimi
þar sem hlaða má niður tónlist
á löglegan hátt er iTunes verslun
Apple sem opnuð var í maí 2003?
...að Micheal Jackson vann átta
Grammy-verðlaun árið 1984?
...að 24. febrúar árið 2004 lék
Jerry Hall í sex leiksýningum í jafn
mörgum leikhúsum á West End í
Lundúnum – allt á einu og sama
kvöldinu?
...að töframaðurinn David Copper-
field á stærsta einkasafn muna
sem tengjast göldrum?
...að Svisslendingar ferðast að
jafnaði 2.077 kílómetra með járn-
brautarlestum á ári hverju?
...að hæsta sjúkrahús í heimi er
Guy´s Tower sem er hluti af Guy´s
sjúkrahúsinu í London? Sjúkra-
húsið er 34 hæðir eða 142,6
metra hátt.
...að fjölsóttasti skemmtigarður
í heimi er Töfraríkið sem er hluti
af Walt Disney World í Flórída í
Bandaríkjunum?
...að Kareem Abdul-Jabbar lék
alls í 57.446 mínútur á NBA-ferli
sínum á árinum 1969 til 1989?
...að Belgíumaðurinn Firmin
Lambot var 36 ára og fjögurra
mánaða þegar hann sigraði í Tour
de France árið 1922?
...að Harry Vardon vann British
Open-golfmótið oftast af öllum
eða sex sinnum?
VISSIR ÞÚ...