Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.07.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 08.07.2006, Qupperneq 12
 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR12 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.342 -1,09% Fjöldi viðskipta: 221 Velta: 1.118 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 63,00 -1,72% ... Alfesca 3,99 +0,25% ... Atlantic Petroleum 561,00 +2,00% ... Atorka 6,15 -0,16% ... Avion 31,90 -0,62% ... Bakkavör 44,30 +0,00% ... Dagsbrún 5,57 -1,76% ... FL Group 16,90 -1,17% ... ... Glitnir 16,90 -1,74% ... KB banki 722,00 -1,10% ... Landsbankinn 20,00 -0,50% ... Marel 70,20 -0,57% ... Mosaic Fashions 15,40 -1,91% ... Straum- ur-Burðarás 16,80 -1,18% ... Össur 108,00 -0,92% MESTA HÆKKUN Atlantic Petroleum +2,00% Alfesca +0,25% MESTA LÆKKUN Mosaic -1,91% Dagsbrún -1,76% Glitnir -1,74% Barr Pharmaceuticals áréttar fyrirætlanir sínar um að taka PLIVA yfir. Króatíska ríkisstjórnin hugleiðir sölu á hlut sínum. Actavis telur boð sitt um margt stjórninni hugnanlegra. Króatíska ríkisstjórnin segist til- búin að ræða sölu á hlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA, svo fremi sem kaupandinn mæti ákveðnum kröfum en hefur ekki enn uppi fyrirætlanir um sölu. Þetta segir í tilkynningu sem bandaríska lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals sendi frá sér í gær. Fréttastofa Reuters sagði daginn áður að ríkið vildi selja. Meðal krafna ríkisstjórnarinn- ar, stærsta einstaka hluthafans í PLIVA með 17,3 prósenta hlut, er að höfuðstöðvar félagsins verði áfram í Zagreb og framleiðslan fari áfram fram þar. Vill ríkis- stjórnin að nýr eigandi tryggi störf núverandi starfsfólks fyrirtækis- ins og að PLIVA verði áfram leið- andi lyfjaframleiðandi í þessum heimshluta. Þessi skilyrði uppfylla bæði Barr og Actavis sem keppa um eignarhald á PLIVA, en þykir þar í nokkuð sterkri stöðu eftir að hafa Actavis tryggði sér yfirráð yfir 20,4 prósentum eignarhluta í fyr- irtækinu. Hvorugt fyrirtæki má bæta við sig eignarhlut fyrr en á síðari stigum formlegs yfirtöku- ferlis í samræmi við yfirtökulög í Króatíu. Króatískir greiningaraðilar fullyrða að ríkisstjórnin taki bandaríska lyfjarisann Barr fram yfir Actavis þegar kemur að yfir- töku Pliva. Telji hún að með því móti sé líklegra að fyrirtækið við- haldi sjálfsstjórn sinni. Taki Actavis félagið hins vegar yfir hræðist ríkisstjórnin að það muni kosta meiri hræringar í innra skipulagi Pliva. Talsmaður Acta- vis vill þó meina að tilboðshug- myndir fyrirtækisins kunni að vera króatísku ríkisstjórninni um margt hugnanlegri en tilboð Barr. Í tilkynningu Barr í gær er áréttuð fyrirætlan fyrirtækisins um að fylgja yfirtökuferli króat- ískra samkeppnisyfirvalda, en fyrirtækið sótti líka um samþykki þýskra samkeppnisyfirvalda í gær. Hvort sem Actavis eða Barr hefur betur verður til við samrun- ann við PLIVA þriðja stærsta sam- heitalyfjafyrirtæki heims. - hhs /óká HÖFUÐSTÖÐVAR PLIVA Í ZAGREB Ríkisstjórn Króatíu er tilbúin að selja hluti sína Pliva svo fremi sem ákveðnum kröfum sé mætt. Króatíska stjórnin hug- leiðir sölu á hlut sínumIcelandic Group og Alfesca eru á lokastigi viðræðna um kaup Ice- landic á frystiverksmiðju dóttur- félags Alfesca, Delpierre. Innifal- ið í samningnum eru kaup á viðskiptasamböndum, verk- smiðjuhúsi og -tækjum auk veltu- fjármuna. Í frystisverksmiðjunni, sem er staðsett í Wimille í Frakk- landi, fer fram framleiðsla frystra sjáv- arafurða sem að mestu leyti hafa verið framleiddar fyrir Frakklandsmarkað og er framleiðslu- geta verksmiðj- unnar um 35 þús- und tonn. Í fréttatilkynningu frá Alfesca segir að velta frystisviðs- ins hafi á síðasta rekstrarári verið um 50 milljónir evra, sem jafn- gildir rúmlega 48 milljörðum íslenskra króna. Rekstur frystisviðs Delpierre hafði ekki nægileg tækifæri til samlegðar við aðra starfsemi Alfesca né skilaði hagnaði í sam- ræmi við markmið stjórnenda, segir í tilkynningunni. Icelandic Group, sem er leiðandi á mark- aði fyrir frystar sjávarafurðir, sér hins vegar mikla hagræðing- armöguleika í framleiðslu frystra afurða með kaupunum. Eftir þau er árleg framleiðsla Icelandic í Evrópu á frystum afurðum ríflega 100 þúsund tonn. Salan er háð samþykki þar til bærra yfirvalda en stefnt er á að ljúka samningsgerðinni á næstu vikum. - hhs JAKOB SIGURÐSSON, FORSTJÓRI ALFESCA Alfesca selur IG frystiverksmiðju Á aðalfundi Eddu útgáfu síðastlið- inn mánudag var tekin ákvörðun um að auka hlutafé um 555 millj- ónir króna. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að félagið hafi átt við erfiðan rekstur að etja þótt í rétta átt hafi miðað undanfarin ár. Til þess að treysta fjárhag félags- ins telji hluthafar rétt að endur- skipuleggja fjárhag félagsins með þessu móti. Páll Bragi Kristjónsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Eddu útgáfu síðustu þrjú ár og var þar á undan stjórnarformaður í eitt ár, hefur ákveðið að láta af störfum við þessi tímamót. Hann mun þó áfram vinna á vegum Ólafells ehf., félags í eigu Björgólfs Guðmunds- sonar og kjölfestufjárfestis í Eddu. Nýr forstjóri hefur ekki verið ráðinn og mun Páll sitja í forstjórastólnum þangað til svo verður. Edda, sem er stærsta bókaút- gáfa landsins, gefur út bækur undir merkjum Almenna bókafé- lagsins, Máls og menningar og Vöku-Helgafells. - hhs Edda eykur hlutafé LÆTUR AF STÖRFUM Edda útgáfa hefur ákveðið að endurskipuleggja fjárhag félagsins og auka hlutafé um 555 milljónir. Páll Bragi Kristjónsson forstjóri hættir sem forstjóri Eddu. Hluthafar í FL Group samþykktu í gær að hækka hlutafé félagsins um 1,8 milljarða króna að nafnverði. Eftir hækkunina nemur hlutafé FL Group rúmum 7,9 milljörðum að nafnverði sem eru 134 milljarðar að markaðsvirði miðað við að hlut- urinn standi í sautján krónum. Hlutafjáraukningin kemur til vegna kaupa FL Group á 24,2 pró- senta hlut í Straumi-Burðarási af Kristni Björnssyni og Magnúsi Kristinssyni. Stærstur hluti var greiddur með bréfum í FL Group á genginu 18,52. Einnig var kosin ný stjórn FL Group. Kristinn tók sæti í henni en aðrir sitja áfram nema Peter Moll- erup gengur úr aðalstjórn og tekur sæti í varastjórn ásamt Magnúsi. Virði FL Group 135 milljarðar króna Stjórnendur breska félags- ins Matalan, sem selur hátískufatnað á afsláttar- verði, segja að erfiðar mark- aðsaðstæður á fyrstu vikum rekstrarársins hafi valdið sölusamdrætti upp á 1,1 pró- sent frá fyrra ári. Framlegð í hlutfalli af sölu jókst um 0,4 prósent. Baugur ku eiga lítinn hlut í Matalan sem er undir nafni þriðja aðila. Heldur hefur birt til að undan- förnu sökum aukinnnar sölu í kring- um HM. Markaðshlutdeild Matalan á breskum fatamarkaði er þrjú pró- sent. Hluthafar í Matalan hafa heldur ekki átt sjö dagana sæla á öðrum vígstöðum; hlutabréf hafa fallið um helming frá því þau náðu hæstum hæðum fyrir fimm árum og félagið hefur átt erfitt með að fóta sig í nýju landslagi á breskum smásölumark- aði. Á dögunum greindi John Hargreaves, stjórnarfor- maður og stofnandi félags- ins, frá því að hann hefði í hyggju að taka félagið yfir og fara með það af markaði vegna gremju með arð- greiðslustefnu félagsins. Hargreaves og tengdir aðil- ar, sem ráða meirihluta hlutafjár, telja þá stefnu meirihluta stjórnar að greiða arð upp á 8,5 pens á hlut fráleita þegar hagnaður félagsins á síðasta ári nam 6,2 pensum á hlut. Samtök breskra fjárfesta hafa tekið illa í þessi áform stjórnarfor- mannsins og hvöttu þau alla hlut- hafa til að mæta á aðalfund félagsins sem haldinn var í fyrradag og styðja ákvörðun stjórnar. Samtökin telja að Hargeaves sé því fyrst og fremst að hugsa um eigin hag - lægri arður bitni á heildinni. - eþa Matalan glímir við erfiðar aðstæður Áform Nasdaq að taka yfir Kaup- höllina í Lundúnum (LSE) með fjandsamlegum hætti gætu heyrt sögunni til. Nasdaq, sem heldur utan um fjórðungshlut í LSE, lagði fram yfirtilboð í mars upp á 950 pens á hlut sem var hafnað. Hlutabréf í Nasdaq hafa lækk- að um 35 prósent frá því að þau komust í hæstu hæðir um miðjan mars og gerir verðfall bréfanna frekari tilraunir félagsins ólík- legri þar sem verulega hefur dreg- ið úr lánshæfi þess og getu til að skuldsetja það fyrir frekari vexti. Nasdaq borgaði hæst 1.248 pens fyrir hlutinn í LSE í maí til þess að eiga kost á því að bjóða það verð í hæsta lagi seinna. Gengi LSE stendur nú í 1.150 pensum. Nýtt tilboð má leggja fram í fyrsta lagi þann 30. september. - eþa Áform Nasdaq í uppnámi NÆSTSTÆRSTA KAUPHÖLL BANDARÍKJ- ANNA Ólíklegt að Nasdaq nái að taka LSE yfir. Svo getur farið að heimsmarkaðs- verð á olíu fari yfir 100 banda- ríkjadali á tunnu á næstu árum. Þessu spáir bandarískur auðkýf- ingur og fjárfestir sem telur fátt geta lækkað verðið nema stökk- breytingu fuglaflensuveirunnar með þeim afleiðingum að hún dreifist á milli manna. Fari svo mun hrun verða á flestum mörk- uðum. ¿Við munum sjá hátt verð á olíu í langan tíma og það eina sem mun vekja undrun okkar er hversu lengi verðið mun haldast hátt,¿ sagði auðkýfingurinn, sem heitir Jim Rogers og er fyrrverandi við- skiptafélagi bandaríska fjármála- mannsins George Soros, í samtali við fréttastofu Reuters. Hann telur verðið geta haldist hátt í allt að 15 ár. Þá er það mat Rogers að stökk- breytist fuglaflensuveiran með fyrrgreindum afleiðingum þá muni olíuverð fara niður í allt að 40 dali á tunnu. Aðrir vöruflokkar muni hins vegar lækka meira. Fátt bendir til að fuglaflensuveiran hafi stökkbreyst. Olíuverð fór í 75,40 dali á mörk- uðum í Bandaríkjunum í gær og hefur það aldrei verið hærra. - jab OLÍUVINNSLUSTÖÐ Bandarískur auðkýf- ingur og fjárfestir spáir því að olíuverð geti farið yfir 100 dali á tunnu og haldist hátt í mörg ár. Mynd/AFP Spáir mikilli hækk- un olíuverðs MARKAÐSPUNKTAR... Finnbogi Jónsson, fyrrum starfandi stjórnarformaður Samherja og fram- kvæmdastjóri SR-Mjöls hf., hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og mun taka til starfa 15. september næstkomandi. Hátt og hækkandi vaxtastig, aukið flökt og lækkun á gengi krónunnar og fyrirsjáan- leg stöðnun eða hægur vöxtur í íslenska hagkerfinu eru þeir þættir sem hafa hvað neikvæðust áhrif á hlutabréfaverð næstu sex mánuðina að mati Greiningar Glitnis. Traustur grunnrekstur flestra fyrirtækja mun hins vegar endurspeglast í komandi uppgjörum þeirra og auknum fréttum af útrás, að mati Greiningar, sem er á meðal þess sem mun hafa jákvæð áhrif á gengi hlutabréfa á komandi mánuðum. Peningar á útleið Svo gæti farið að eftir fjögur ár verði seðlar og ávís- anir úreltur greiðslumáti gangi eftir spá Stewarts MacKinnons, formanns írsku greiðslustofnunar- innar. MacKinnon segir markvisst unnið að því að minnka notkun ávísana og seðla og horft til þess að kort og rafrænn greiðslumáti taki við frá og með árinu 2010. Í Vegvísi Landsbankans er vitnað í viðtal við MacKinn- on í írska blaðinu Irish Examiner þar sem segir að verkefnið sem stuðli að breytingunni nefnist Single European Payments Area og nái það til 25 ESB-ríkja ásamt Sviss, Noregi, Lichtenstein og Íslandi. Allt að átta þúsund bankar munu taka þátt í átakinu og telur MacKinnon umskiptin jafnstórt skref og upptöku evrunnar á sínum tíma. Andar köldu í Köben Heldur er stirt á milli Almars Arnar Hilmarssonar forstjóra lággjaldaflugfélagsins Sterling og Niels Boserup flugvallarstjóra í Kaupmannahöfn eftir að sá síðarnefndi kenndi flugfélögunum um tafir sem plagað hafa flughöfnina ytra. „Algjörlega óásættanlegt er að forstjóri stórs einokunarfyrirtækis kenni sínum næststærsta viðskipta- vini um öll sín vand- ræði,” sagði Almar í viðtali við Ritzau-frétta- veituna í gær og vill meina að tafir á flugstöðinni megi rekja til seinagangs í kring um öryggisviðbúnað þótt í flugstöðinni vilji menn meina annað. „Hann reynir að beina athygli fólks frá staðreyndunum, en við getum sýnt fram á biðtími vegna öryggisskoðunar er mun meiri en flugstöðin vill meina,” segir Almar. Peningaskápurinn...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.