Fréttablaðið - 08.07.2006, Page 24

Fréttablaðið - 08.07.2006, Page 24
 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR24 ■ FÖSTUDAGUR, 30. JÚNÍ NÝ SJÁLFSPYNTINGAR- AÐFERÐ Ég fann upp nýja sjálfs- pyntingaraðferð í dag. Í ræktinni horfði ég á leik Þýskalands og Argentínu og tróð marvaðann á meðan á einhverri maskínu. Sam- tals í tvo tíma. Til að kóróna sjálfspynting- una horfði ég á sjónvarpið án þess að hafa heyrnartól og þögul knattspyrna er tölu- vert öðruvísi en knatt- spyrna með æpandi þuli og hundrað þúsund hása áhorfend- ur. ■ LAUGARDAGUR, 1. JÚLÍ ÁTTATÍU ÁRA AFMÆLI Landhelgisgæslan okkar heldur upp á áttræðisafmæli sitt í dag. Í tilefni dagsins sigldu tvö varðskip fánum prýdd inn í Reykjavíkur- höfn og áhafnir stóðu heiðursvörð á dekkinu. Skipslúðrar voru þeytt- ir í innsiglingunni og hleypt var af átta fallbyssuskotum. Oft hefur verið gert meira tilstand með ómerkari afmælisbörn en Land- helgisgæsluna. Það er leitt til þess að vita að afmælisbarnið lifir við kröpp kjör, en það tíðkast ekki nú um stundir í þessu landi að hlaða undir aldr- aða. Fór á Glaumbar að sjá England og Portúgal. Sem endaði á víta- spyrnukeppni. Stóri-Scolari er betri þjálfari en sænska viðundrið sem Englendingar hafa haft í vinnu undanfarin ár. Portúgal vann vítaspyrnukeppnina. Í kvöld bætti ég svo á mig leik Frakklands og Brasilíu og sá snill- inginn Zinedine Zidane rísa upp úr körinni og ganga eða öllu heldur hlaupa í endurnýjun líf- daganna. Hinir öldnu Frakkar slógu Brassana út. Fjögur evrópsk lið eru komin í undanúrslit: Portúgal, Frakkland, Ítalía og Þýskaland. ■ SUNNUDAGUR, 2. JÚLÍ LAXVEIÐIFERÐ Það hljóp heldur betur á snærið fyrir mér. Þorbjörn nágranni bauð mér í laxveiði norður í land. Við veiðum frá 16-23 í dag og 7-13 á morgun. Það tók mig tíu mínút- ur að pakka. ■ MÁNUDAGUR, 3. JÚLÍ FJÓRAR AFSAKANIR Við Þorbjörn ókum beint niður að ánni (Svartá í Húna- þingi) seinnipartinn í gær. Ég mölvaði toppinn á stönginni minni í fyrra, en Ólafur í Veiði- horninu lánaði mér frábæra Hardy Iceland-stöng. Á svoleiðis stangir veiða stórlaxar stórlaxa. Settum græjurnar saman og byrjuðum að veiða. Ég hef aldrei séð ána svona vatnsmikla og hugsaði með mér að við hefð- um góða afsökun ef við fengj- um engan fisk. Pott- þétt- ar afsakanir fyrir að koma fisklaus heim eru fjórar: 1) Áin var of heit. 2) Áin var of köld. 3) Það var of lítið vatn í ánni. 4) Áin var of vatnsmikil. Við þurfum þó ekki á afsökun að halda. Þorbjörn landaði fyrsta laxinum úr ánni á þessu laxveiði- tímabili klukkan hálfsjö í gær- kvöldi. Það var falleg, nýgengin 10 punda hrygna. Og klukkutíma síðar beit tvíburasystir hennar á hjá mér. Báðar höfðu systurnar sama smekk og létu fallerast af hálftommu snældu, fallega rauðri. Í morgun setti Þorbjörn í stór- lax sem hann telur að hafi verið rétt um 37 pund, varlega áætlað. En stórlaxinn reif sig lausan. Þegar við vorum að taka dótið okkar saman á árbakkanum og búast til heimferðar kom ferða- maður til okkar af þjóðveginum. Hann kvaðst vera líffræð- ingur frá Ungverja- landi og hann skildi hvað það er stórkost- legt að geta staðið við silfurtæra á og dregið úr henni stórfiska. Hann bað okkur um að taka mynd af sér með laxana okkar við ána til að geta sannað mál sitt við heimkom- una. Svo birtist konan hans og bað okkur afsök- unar á því hvað maður- inn sinn væri hrifnæmur og gaf okkur flösku af Tokaj-víni í þakkar- skyni fyrir að taka honum vel í stað þess að drekkja honum í ánni fyrir að trufla okkur. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 4. JÚLÍ STJÓRNMÁLAFRÆÐI Stjórnmálafræðingar eru með vangaveltur um afspyrnu lélegt gengi Samfylkingarinnar í for- mannstíð Ingibjargar Sólrúnar. Það sem þeir segja er eflaust satt og rétt allt saman, enda skildi ég aldrei þann búhnykk að skipta út Össuri Skarphéðinssyni fyrir Ingi- björgu. Mér finnst skrýtið hvað margir halda að aðrir trúi á „sterka leið- toga“. Ég hef því meiri ótrú á leið- togum sem þeir eru „sterkari“ sem þýðir yfirleitt hrokafyllri. Skýr og skiljanleg stefnumál skipta meira máli en ímyndarrugl leiðtoga og spunarokka. Íslendingar eru framtakssöm þjóð og vilja fremur framkvæma og koma hlutum í verk en stöðva, banna, takmarka, skilyrða og koma í veg fyrir. Við Sólveig fórum að heimsækja Sigrid vin- konu sem er þýskfæddur Íslend- ingur til að horfa á Þýskaland- Ítalíu. Mér þykir vænt um báðar þessar þjóðir. Ítalir unnu 2-0. ■ MIÐVIKUDAGUR, 5. JÚLÍ AÐ ROTA GAMALMENNI Það er í fréttum að maður á þrí- tugsaldri hefur verið handtekinn fyrir að ræna veskjum af tveimur gömlum konum. Án þess að ég viti það þori ég að veðja hverju sem er að þessi vesalings piltur er fíkniefna- sjúklingur. Sjúkling- ur, ekki glæpamaður. Það þarf því ekki að byggja yfir hann fokdýrt öryggisfang- elsi eða stofna leyniþjónustu til að njósna um hann. Það þarf að dæma hann í meðferð, lækna hann og kenna honum upp á nýtt að lifa í mann- legu samfé- lagi. Með- ferðarúrræði og opin fang- elsi eru ódýr- ari og skynsamlegri lausnir en öryggisfangelsi. Ég skil ekki þetta ofurkapp sem lagt er á að koma í veg fyrir versl- un með eiturlyf. Það er hægara sagt en gert að finna nokkur kíló af eiturlyfjum í þeim milljónum tonna af varningi sem flyst til landsins. Það er líka hægara sagt en gert að handsama dílera í skúmaskotum, standa þá að verki og sanna á þá verknaðinn. En það ætti að vera vinnandi vegur að stöðva neysluna. Það er ólöglegt að neyta eiturlyfja, rétt eins og það er ólöglegt að aka bíl undir áhrifum áfengis. Löggan er fljót að hirða svoleiðis ökumenn. Hins vegar þykir ekki tiltökumál þótt eiturlyfjamenn séu á hverju strái, þrælskakkir að staðaldri, rænandi, stelandi og hættulegir umhverfi sínu og sjálfum sér. Ekk- ert er einfaldara en að mæla hvaða eiturlyf fólk hefur innbyrt með því að láta það stinga upp í sig munnvatnsmæli. Þá væri snjallræði að dæma fíklana í meðferð áður en þeir valda tjóni, limlestingum eða dauða. Þá þyrftum við ekki að hafa áhyggjur af því að konur á níræð- isaldri séu slegnar í rot á götum úti um hábjartan daginn. Stöðvum neysluna og þá hverf- ur smygl og eiturlyfjaverslun af sjálfu sér. Það þarf að taka á sjúk- dómnum sjálfum. Hann er hægt að lækna. Orsakir hans, eiturlyfin er hins vegar ekki á okkar valdi að uppræta. Grillaði villtan lax; smá jóm- frúr-ólífuolía, pipar og salt. Feitur og fallegur, nýgenginn. Ferskt grænmetissalat með. Betri mat er ekki hægt að hugsa sér. Þorbjörn kom og snæddi með okkur. Hann segir að á eynni Palma sem er ein Kanaríeyja þekki hann mann sem hefur tamið minka og notar þá til héraveiða. Þetta finnst mér athygl- isvert, enda er ég sannfærður um að minkum er margt til lista lagt ef menn hafa lag á því að temja þá og skóla þá til. Úr því að það er hægt að temja villiminka hlýtur að vera hægt að venja manneskjur af eiturlyfjum. ■ FIMMTUDAGUR, 6. JÚLÍ SÓL OG MANNVONSKA Í REYKJAVÍK Loksins heiðskír himinn og sól- skin í Reykjavík! „Sjö Pólverjar sem bjuggu í 80 fermetra íbúð greiddu 35 þúsund krónur hver í leigu á mánuði eða 245 þúsund krónur samanlagt. Mennirnir leita nú réttar síns eftir að leigusali þeirra lét bera eigur þeirra út á meðan þeir voru í vinnu. Pólverjarnir gátu lítið leit- að sér aðstoðar vegna tungumála- örðugleika.“ Mannvonskan gerir mann alltaf jafn hlessa. Fjórar pottþéttar afsakanir! Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar Í Dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um sjálfspyntingaraðferð, áttræðisafmæli, laxveiðiferð, sterka leiðtoga og stjórnmálafræði. Óhjákvæmilega er einnig minnst á knattspyrnu, héraveiðar á Kanaríeyjum og námsgáfur loðdýra.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.