Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 30
 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR30 Verslun með fólk er sú glæpastarfsemi sem fer hvað mest vaxandi í heiminum í dag. Ágóð- inn jafngildir ágóðan- um af fíkniefnasölu en viðskiptin eru öruggari því að fórnarlömbin losna ekki úr ánauð- inni fyrr en skuldin er greidd. Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkur- flugvelli, er einn helsti sérfræðingur Íslendinga á þessu sviði. Guðrún Helga Sigurðardóttir ræddi við hann. Vandamálið er tvískipt, ann-ars vegar er mansal þar sem fólk lendir í nauðungarvinnu og hins vegar er smygl á fólki þar sem þriðji aðili fær eingreiðslu fyrir aðstoð við vegabréf, skipu- lagningu ferðar og jafnvel að fylgja fólki til fyrirheitna landsins. Ein- greiðslan nemur 10-20 þúsund doll- urum eða hálfri til einni og hálfri milljón króna og er greidd á áfanga- stað. Þetta er há upphæð fyrir ein- stakling sem hefur kannski bara 100 dollara, eða innan við átta þús- und krónur, í tekjur á mánuði í heimalandinu. Mansalið felur í sér að fólk frá fátækari og fjölmennari ríkjum heimsins greiðir mönnum á mála hjá glæpasamtökum fyrir að kom- ast til vinnu í fyrirheitna landinu sem yfirleitt er vestrænt ríki, til dæmis Bandaríkin, þar sem fólks- fjöldinn er mikill og auðvelt að leynast. Fólkið veit að það ferðast ólöglega til landsins en telur sig hafa heiðarlega vinnu í vændum, til dæmis í verksmiðju, á hóteli, veitingahúsi eða við barnagæslu. Það gerir sér sjaldnast grein fyrir örlögum sínum. Drýpur smjör af hverju strái „Þau vita að þau eru ólögleg og vita að þau þurfa að greiða ákveðna fjárhæð en fyrirheitna landið er framundan og þar drýpur smjör af hverju strái,“ segir Jóhann. Hann rifjar upp að lögreglumennirnir hafi í upphafi reynt að útskýra fyrir fórnarlömbunum hvernig raunveruleikinn gæti litið út á lokastað, að stúlkurnar væru hugs- anlega á leið út í vændi, en það hafi ekki gengið. Tilhugsunin hafi verið þeim of fjarlæg. „Hvernig útskýrir maður fyrir manneskju að hún geti lent í vændi? Hvernig á hún að trúa því að menn- irnir, sem hafa verið að hjálpa henni á leiðinni til fyrirheitna landsins, sjálfrar paradísar, ætli í raun að vera vondir við hana?“ spyr hann. „Við höfum skoðað myndir úr myndavélum og sjáum að það er fjör hjá þessu fólki. Þetta er fólk sem hefur kannski aldrei farið út fyrir sveitina sína en á leiðinni hingað hafa þau komið til margra landa. Þetta er ævintýri, hlátur og gleði allan tímann. Og svo komum við lögreglumennirnir og stöðvum þau á leiðinni til fyrirheitna lands- ins,“ segir hann. Mansal felur í sér að einstakl- ingur greiðir skipulögðum glæpa- samtökum 50-60 þúsund dollara, eða sem nemur þremur og hálfri til fjórum og hálfri milljónum króna, fyrir að koma sér frá heimalandinu í vinnu í fyrirheitna landinu. Fórn- arlambið veit að það verður að greiða skuldina með nauðungar- vinnu í þrjú til sex ár. Fórnarlömbin háð glæpahringnum Jóhann segir að öðruvísi hugsunar- háttur sé ríkjandi í heimalöndum fólksins en hér á landi. Sú hugsun sé ríkjandi að fjölskyldumeðlimir hjálpist að. Þeir sem fari í nauð- ungarvinnu erlendis lofi foreldr- unum að senda peninga fyrir nýju húsi eða koma systkinunum til mennta. Lögreglan í viðkomandi landi sé kannski spillt og ekki treystandi og ungu stúlkurnar trúi ekki orðum um að þeim verði kannski raðnauðgað og þær lendi í vændi. „Þetta er jú mennirnir sem eru að hjálpa þeim,“ segir hann. Jóhann segir það sitt mat að ekki gangi upp að bjóða fórnar- lömbunum skjól hér á landi. Vil- yrði fyrir landvist hafi verið veitt en þrátt fyrir góðan vilja stjórn- valda þá vildu fórnarlömbin ekki landvist hér á landi. Svo fastar séu klær glæpasamtakanna í fórnar- lömbunum. Heiður og virðing fyrir fjölskyldunni skipti fórnarlömbin miklu máli og fjölskyldan viti ekki af því þegar ung stúlka lendir í vændi. Glæpasamtökin viti hins vegar hvar fjölskyldan býr. Ef stúlkan gerir ekki eins og henni er sagt þá verði pabbanum misþyrmt, mamman missi vinnuna eða litlu systurinni nauðgað. „Það er engin leið fyrir þetta fólk að komast út úr ánauðinni. Það er fast nema fjölskyldunni verði fórnað,“ segir hann. „Fjölskyldan er það eina sem heldur þeim gang- andi þegar þau liggja á dýnu ein- hvers staðar í nauðungarvinnu. Stærsti hluti launanna rennur til glæpasamtakanna og fólkið fær rétt fyrir mat og húsnæði.“ Jóhann segir að lögum hafi verið breytt til að lögregla og dómsvald geti sem best tekið á þessum málum og starfsmenn embættisins hafi sótt námskeið og fróðleik um þennan alþjóðlega vanda. Starfið hafi skilað góðum árangri og Íslendingar séu nú í fremstu röð. Vonandi hafi verið skrúfað fyrir umferðina um Ísland, svo vel hafi löggjafinn og lögregl- an staðið sig. Það sé því aðeins formsatriði að fullgilda samning Evrópuráðsins gegn mansali. Löngu komin til Bandaríkjanna Jóhann telur að öll fórnarlömbin, sem hafi verið stöðvuð á Íslandi, séu löngu komin til Bandaríkjanna. Þó að þau hafi verið send heim aftur og glæpamennirnir fengi dóma þá hafi það einungis orðið til þess að þau hafi verið send ein- hverja aðra leið auk þess sem skuldin þeirra við glæpahringinn hafi hækkað úr kannski fjórum milljónum króna í sex til sjö millj- ónir. Hann bætir við að ákveðnar reglur séu í gildi í mansalinu. Fólk losni líklega úr ánauðinni þegar skuldin er greidd og geti þá farið að senda meiri peninga heim. Jóhann rifjar upp rannsókn á máli Dennis Yee, Bandaríkjamanns af kínverskum uppruna, sem hafði ferðast um allan heim á stuttum tíma en gat ekki gert grein fyrir einni einustu ferð. Dennis Yee var atvinnulaus námsmaður með gull- og platínukort hjá öllum helstu flugfélögum í heimi. Hann var á leið með fjórar kínverskar stúlkur til Bandaríkjanna. Dennis Yee var dæmdur fyrir að aðstoða þessar fjórar og áður tvo karlmenn um Ísland. Stúlkurnar voru sendar heim til Kína í samstarfi við kín- verska sendiráðið. Smyglleiðirnar breytast sífellt og aðferðir glæpamannanna þró- ast stöðugt. Í tilfelli James Lyon voru öll skilríki fölsuð frá grunni og allt niður í stimpla í vegabréfi og merkingar á ferðatöskum. Lög- reglan þurfti að sanna að viðkom- andi stæði að skipulagðri glæpa- starfsemi í hagnaðarskyni. Í framhaldinu var lögunum breytt þannig að ekki þyrfti til dæmis að sanna hagnað brotamannanna, lög- reglunni gert kleift að hafa fólk til skoðunar til lengri tíma á landa- mærum en áður auk þess sem það var gert refsivert að ferðast með fölsuð skilríki án þess að framvísa þeim. Lögum var breytt þannig að hægt væri að ná glæpamönnunum og dómararnir og samfélagið sjálft fóru smám saman að hafa betri skilning á glæpnum. Stúlkurnar hljóti að vera frjálsar Jóhann segir að skilningsleysi hafi ríkt þegar fyrst hafi farið að bera á þessum nýja vanda sem fyrst hafi komið upp eftir fall Berlínarmúrs- ins 1989. Menn hafi ekki skilið nauð- ungina og hvernig hún verði til. Hann rifjar upp að þúsund ungar stúlkur hafi komið hingað til lands árið 2000 til að starfa á nektardans- stöðum. Karlmenn hugsi sem svo að svona fallegar stúlkur hljóti að njóta þess að vera í þessu hlutverki, falleg stúlka sem dansi vel hljóti að vera frjáls og margar og kannski flestar kvennanna sem hafi komið hingað árið 2000 hafi strangt til tekið verið frjálsar. „En ég fullyrði að þegar þessi starfsemi var sem mest hérna var að einhverju leyti um nauðung að ræða,“ segir hann og spyr: „Hver er ástæðan fyrir þessum stutta tíma sem þær dvöld- ust í landinu? Hvers vegna voru þær fluttar á milli landa? Þær voru vafalítið óöruggar og vissu ekki hvort lögreglan væri á mála hjá mafíunni eða ekki. Þessar stúlkur reyna að láta sér líða sem best í þessu hlutverki sem þær eru í þó að þær séu kannski í prinsippinu frjálsar. En í mörgum tilvikum eru þær ekki í þessu að eigin vali held- ur hefur mafían einhver tök á þeim, til dæmis vegna fjölskyldunnar.“ Tilvik hafa og geta komið upp hér á landi sem bera merki mansals en Jóhann telur að slík tilvik hljóti alltaf að vera mjög einangruð. „Vandinn getur ekki verið útbreidd- ur vegna smæðar samfélagsins. Það má þó alls ekki líta fram hjá því að þessi vandi getur birst hér í ein- hverri mynd. Lögreglan verður því að hafa mansalsákvæði hegningar- laga hugstæð ef alvarleg brot grein- ast á réttindum útlendinga hér á landi,“ segir Jóhann R. Benedikts- son sýslumaður. Ferðin til fyrirheitna landsins FERÐIR DENNIS YEE Bandaríkjamaðurinn Dennis Yee var atvinnulaus námsmaður með gull- og platínukort hjá öllum helstu flugfélögum í heimi. Hann var á leið með fjórar kínverskar stúlkur til Bandaríkjanna þegar hann var stöðvaður hér á landi. Jóhann R. Benediktsson sýslumaður sýnir hér ferðir hans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KÍNVERSKAR STÚLKUR Ástrali fylgdi stúlk- unum hingað til lands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SMYGL Á FÓLKI Reynt var að smygla albanskri fjölskyldu til Bandaríkjanna. GLÆPAMENN Yfirleitt eru einn til tveir fylgdarmenn með fólki. LOKAÐ FYRIR ÍSLAND Við millilendingu á Íslandi er stutt eftir til fyrirheitna landsins. REGLUR GILDA Fólk losnar líklega úr ánauðinni þegar skuldin er greidd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.