Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 31
NÝR 720 FERMETRA SALUR
TEKINN Í NOTKUN Í DAG.
Í dag verður formlega
opnuð stækkun á húsnæði
Samgönguminjasafnsins á
Ystafelli. Unnið hefur verið að
stækkuninni síðustu mánuði og
klukkan 14.00 í dag, sex árum
eftir opnun safnsins, verður nýr
720 fm salur tekinn í notkun.
Á sama tíma verður opnuð
sýning á gömlum myndum sem
Jón Þorgrímsson á Húsavík hefur
safnað. Samgönguminjasafnið
er tilvalinn viðkomustaður
bílaáhugafólks í sumar.
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Jeppar gerast vart svakalegri en Hummer H1-jeppinn
sem Þórir Rúnarsson jeppadellukarl hefur verið að
breyta upp á síðkastið. Bíllinn er nú nærri því tilbúinn
og er Þórir þegar farinn á fjöll á honum.
„Það hafa allir sinn djöful að draga og það má alveg segja að
ólæknandi jeppadella sé minn djöfull,“ segir Þórir sem hefur
eytt frístundunum í að gera upp þetta mikla tryllitæki sem
Hummerinn er orðinn að. „Hann er kominn á 49 tommu dekk,
en ég á eftir að klára hann að innan, þetta er ennþá bíll í breyt-
ingum, þó svo að ég sé búinn að setja hann á númer og byrjað-
ur að fara á fjöll á honum.“
Bíllinn hans Einars er árgerð 2000 en er þó ekki ekinn
nema 20.000 kílómetra. „Þetta er eiginlega nýr bíll. Ég er
búinn að lyfta honum um fjórar tommur á boddíinu en svo
hefur þetta aðallega verið klippivinna, færa fótpetalana og í
rauninni færa flest allt innan í bílnum, það er svona aðalvinn-
an,“ útskýrir Einar. „Svo er það náttúrulega allt þetta sem
kemur utan á hann, ljóskastarar, siglingatæki, hljómtæki. Svo
á eftir að setja á hann spilið og það er alveg hellingur eftir.“
Þetta er ekki fyrsti bíllinn sem Einar kemur nálægt því að
breyta því hann segist hafa komið að smíðunum á nokkrum
öðrum bílum. „Ég vinn eins mikið og ég get í þessu en svo læt
ég bara vinna hitt fyrir mig. Ég lét boddí-lyfta honum fyrir
mig og sömuleiðis að smíða millikassann en ég setti hann
reyndar sjálfur í.“
Það þarf nokkuð stóra vél til þess að knýja áfram svona
tryllitæki og undir húddinu á bílnum malar stór 6.5 lítra vél.
„Hún er nú samt ekki nema 170 hestöfl en maður setur í hann
tölvuheila, intercooler og fleira dót til þess að auka kraftinn í
honum enn meira,“ segir Rúnar. valgeir@frettabladid.is
Stækkar stóran
Hummer-jeppa
Hummer H1 jeppi Einars er hrikalegur ásýndar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Frá Samgönguminjasafninu á
Ystafelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/NJÁLL GUNNLAUGSSON
Ystafell stækkar
Honda frumsýnir glænýjan Civic
Type-S á bílasýningu í London í
þessum mánuði. Á sama tíma
verður sýnd verðlaunaútgáfan af 5
dyra Civic og hugmyndaútgáfa af
Civic Type-R. Búist er við að sala
á bílnum hefjist í byrjun árs 2007.
Meðal aukahluta í grunngerð
Type-S bílsins verða 17 tommu
álfelgur, jafnvægiskerfi, loftkæling,
kælihólf, fjarstýring á hljómflutn-
ingstækjum og hliðaröryggis-
púðar.
Gisting.is er vefur
sem hefur að
geyma upplýs-
ingar um
fjölda
gisti-
staða
um land allt.
Þá eru á vefnum fjöldi götukorta
yfir þéttbýli og bæjarfélög með
ýmsum upplýsingum fyrir ferða-
fólk. Hægt er að finna gististaðina
og staðsetningu þeirra á auga-
bragði á auðveldan hátt.
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR TÍSKA ]
SVELLANDI
SUMARÚTSÖLUR
Þrjátíu til sjötíu prósenta
afsláttur er víðast veittur
á sumarútsölum sem
nú standa sem
hæst.
TÍSKA 7
Heimild: Almanak Háskólans
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
8. júlí, 189. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.20 13.33 23.43
Akureyri 2.26 13.17 24.06
RÚMGÓÐUR OG
LÉTTUR Í AKSTRI
Hyundai Starex er sjö
til níu manna bíll sem
kemur mikið á óvart.
BÍLAR 2
TAKTU NÆSTA SKREF
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
1
2
8 SUMARHÚSALÁN
Tala›u vi› okkur ef flú ætlar a› byggja, kaupa e›a breyta sumarhúsi og flú fær› hagstætt lán fyrir allt a› 60%
af ver›mæti e›a 75% af byggingarkostna›i
sumarhúss. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu
í 540 5000 e›a sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is.
Vi› viljum a› flér lí›i líka vel um helgar!
DÆMI UM MÁNA‹ARLEGA GREI‹SLUBYR‹I AF 1.000.000 kr.*
Lánstími 5 ár 10 ár 15 ár
5,35% vextir 19.030 kr. 10.780 kr. 8.090 kr.
*Lán me› jafngrei›slua›fer› án ver›bóta
60%
LÁNS
HLUTFALL
LÁNSTÍMI
ALLT A‹
15 ÁR VEXTIR
5,35%