Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 36

Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 36
[ ] Hyundai Starex er sjö til níu manna bíll sem kemur mikið á óvart hvað aksturseiginleika varðar. Það fyrsta sem maður hugsar þegar maður gengur að bílnum er „ja hérna, mikið er þetta stórt!“ Þegar inn er komið heldur tilfinn- ingin fyrir stærð áfram því hann er mjög rúmgóður og þægilega skipulagður. Til dæmis rúmast meðalstór ferðataska ágætlega á milli framsætanna og geymslu- hólf eru víða um bílinn. Það kom því verulega á óvart hversu léttur og meðfærilegur bíllinn er í akstri, hvort sem er á vegum úti eða á þröngu bílastæði. Bíllinn fæst í tveimur útgáfum; níu manna með sjálfskiptingu og sjö manna með fjórhjóladrifi og beinskiptingu. Í reynsluakstrinum var sjö manna bíllinn prófaður en báðir eru þeir með 2,5 lítra, 140 hestafla dísilvél sem togar 343 Nm og eyðir um 10 lítrum á hundraði í blönduðum akstri. Stórar hurðir, stigþrep og upp- hækkuð sæti gera bílinn mjög þægilegan í umgengni. Hvergi þrengir að og mann langar helst að fylla bílinn af fólki og farangri og halda í útilegu, bara af því að hann mundi henta svo vel í það. Þrátt fyrir að vera sjö manna er ágætis skott fyrir aftan öftustu sætaröð. Svosem ekki neinn geym- ur, en töluvert stærra en á meðal smábíl. Í fyrstu fannst mér mótorinn hálf máttlaus og latur. Þegar ég fór hins vegar að gefa bílnum inn kom í ljós að í kringum 3.000 snún- inga verður lífið töluvert skemmti- legra. Þetta fannst mér skrítið í fyrstu en þegar líða tók á reynslu- aksturinn fann ég að ég innanbæj- arakstur minn varð rólegri fyrir vikið og það hefur örugglega haft jákvæð áhrif á eyðsluna, og auð- vitað öryggisþáttinn. Á vegum úti er áreynslulaust að sigla bílnum upp í góðan hraða. Hann er þó auðvitað enginn sport- bíll, enda sjaldgæft að þeir rúmi sjö fullvaxna einstaklinga. Á tor- færum vegslóðum stóð hann sig líka nokkuð vel, þökk sé lágu drifi sem ræst er með rofa, þokkalegri veghæð og því hversu auðvelt er hreinlega að keyra hann. Mælaborðið er líka auðvelt í notkun. Það er einfalt og liggur mjög vel við ökumanni. Gírskipt- ing og stýri eru mjög létt og maður gleymir því iðulega að bíllinn sé rúm tvö tonn. Fjöðrunin er slaglöng og hæfilega mjúk, hentar ágætlega sem millistig fyrir bæði malar- og malbiksakstur. Fyrir bíl í sínum flokki er Hyundai Starex vel heppnaður. Í upphafi reynsluaksturs tók það mig nánast enga stund að fá til- finningu fyrir stærð bílsins og aksturseiginleikum. Þrátt fyrir að vélin geti skilað góðum krafti er hann eyðslugrannur, plássið er ríf- legt og ég hef sjaldan átt eins auð- velt með að bakka bíl í stæði. Bíll- inn hentar því breiðum hópi fólks, hvort sem leitað er að léttum fjöl- skyldubíl eða ferðabíl, jafnvel til að vera með fellihýsi í eftirdragi. einareli@frettabladid.is Rúmgóður og léttur í akstri Afturhlerinn er stór en léttur og bak við þriðju sætaröð er ágætis pláss. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Allt aðgengi um bílinn er gott og hvergi þrengir að. Bílstjórinn situr hátt og hefur gott útsýni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í annarri sætaröð eru tveir mjög þægilegir snúningsstólar. Gengið er milli þeirra aftur í bekk sem er með góðu baki og höfuðpúð- um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hliðarhurðin gefur gott aðgengi og læsist á haki í öftustu stöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hyundai Starex er sannkallaður fjölnotabíll, rúmgóður og einstaklega lipur í akstri. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR ELÍ MAGNÚSSON REYNSLUAKSTUR Hyundai Starex 2,5 lítra dísil, 140 hö/ 343 Nm Þyngd, 4x4 7 manna bsk.: 2.020 kg. Þyngd, ssk 9 manna: 2.130 kg. Meðaleyðsla: 10,1 lítri/100 km ABS, hæðarstillanlegt öryggisbelti, krumpusvæði, 7 þriggja punkta öryggisbelti, tvöfaldir styrktarbitar í hurðum, 2 líknabelgir, barnalæsing, ræsivörn o.fl. Verð 4x4 bsk.: 3.490.000 kr. Veð ssk.: 3.240.000 kr. Virðum hámarkshraða – keyrum varlega! Heppinn KIA-kaupandi til Berlínar. Dregið hefur verið í HM-leik KIA umboðsins. Vinningurinn kom í hlut Sigurgeirs Steindórssonar frá Akureyri og vann hann flug og gist- ingu til Berlínar og tvo miða á úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Á leið á úrslitaleik HM Kampakátir feðgar taka við miðunum á úrslitaleik HM í knattspyrnu úr hendi Sig- urðar P. Sigfússonar, sölustjóra KIA. NÝTT! Söluaðilar um land allt Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400 Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum bila vegna hitavandamála? Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni. Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.