Fréttablaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������
���������������
60 02 .V .B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
Opið 10:00 - 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is
ÚTSALA
6. júlí - 30. júlí
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Yfir 1000 vörur á útsölu.
TRAUSTUR FERÐAFÉLAGIEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Á FERÐ
OG FLUGI
‒ með ferðatösku frá FAXE
Ég hef haft það á tilfinningunni um nokkurt skeið að hér uppi á
skerinu sé ansi margt orðið öfug-
snúið ef maður pælir í því. Mér
finnst jafnvel stundum, þegar
þessi tilfinning slær mig af hvað
mestu afli, að einhverjir aðilar
stundi það hreint og beint mark-
visst að gera alla hluti öfugsnúna
svo að sem flestir hætti á endan-
um að skilja nokkurn skapaðan
hlut í nokkru. Það er eins og ein-
hverjir fái hreinlega borgað fyrir
að snúa sem flestum málum á
hvolf. Hver launin eru í svoleiðis,
veit ég ekki, en það er örugglega
nokkuð þægileg innivinna. Hugs-
anlega á vegum hins opinbera.
DÆMIN blasa við. Endalaust er
manni sagt að hér á landi ríki efna-
hagslegur stöðugleiki, svokallað-
ur, og að fjárhagsstjórnin sé ofsa-
lega góð og hafi verið í tryggum
höndum. En svo berast fréttir af
því að verðbólgan stefni í 11% og
Seðlabankinn er kominn með
stýrivexti upp í hæstu hæðir. Ein-
hvern veginn ná þessar vísbend-
ingar um að hér á landi ríki ein-
mitt ekki stöðugleiki aldrei að
skekkja þessa mynd um farsæla
hagstjórn. Sem sagt: Þótt skipið
færi endanlega á hvolf yrði því
örugglega haldið fram að það væri
samt stöðugt.
HELDUR er það ekki til að ein-
falda málið fyrir venjulegum kjós-
endum að því skuli nú haldið fram
um þessar mundir að hér hafi ekki
ríkt nein stóriðjustefna síðan 2003.
Þeir sem muna eftir brosandi
fyrrverandi iðnaðarráðherra fyrir
nokkrum mánuðum á fundi með
Alcoa og fagnaðarlátum á Húsa-
vík í kjölfarið út af hugsanlegu
álveri, hljóta að klóra sér í kollin-
um og spyrja hvort þau læti öll
sömul hafi verið nokkuð annað en
hrein og klár stóriðjustefna. Allt í
einu er stóriðjustefna ekki lengur
stóriðjustefna. Við höfum verið
svipt hugtaki og stöndum eftir í
leikhúsi fáránleikans.
OG ÚR allt annarri átt trommar
núna fáránleikaherinn fram á sjón-
arsviðið og segir að til þess að
tryggja öryggi landsins þurfi að
setja á stofn 25 manna leyniþjón-
ustu hið allra fyrsta. Sami leikhóp-
ur lagði niður Rannsóknarlögreglu
ríkisins ef ég man rétt, hefur hald-
ið Landhelgisgæslunni í fjársvelti
um árabil, skeytir varla hætishót
um eflingu almennrar löggæslu,
tollgæslu og umferðarlöggu, var
stefnulaus þegar varnarliðið fór,
lætur sér fátt um finnast, virðist
vera, þótt ofbeldis- og nauðgunar-
mál fyrnist í réttarkerfinu og lagði
talsvert á sig í ofanálag við að
skrúfa fyrir fjárframlög til Mann-
réttindaskrifstofu Íslands á sínum
tíma, eins og hennar væri ekki ein-
mitt þörf af fullum krafti nú þegar
stefnan er sett á persónunjósnir og
hleranir á vegum hins opinbera.
OG HVAÐ er sagt ef maður er á
móti þessum áformum? Jú, þá er
maður á móti öryggi. Það að sára-
litlar líkur séu á hryðjuverkum á
Íslandi samkvæmt áhættumati, er
svo skyndilega orðið röksemd fyrir
því að sporna verði samt sérstak-
lega við hryðjuverkum. Og þannig
gengur umræðan, hring eftir hring.
Öfugsnúin eins og í draumi þar
sem allir tala afturábak.
Öfugsnúið