Tíminn - 22.01.1978, Side 9
Sunnudagur 22. janúar 1978
9
Heimildarrit
um horfinn tíma
Einar Bragi Sigurösson:
ESKJA II. bindi.
Upphaf byggöar og frlhöndlun-
ar.
Hólmastaöur fram aö 1808.
Byg^iin i dalnum. Svinaskáli og
Svinastekkur. Breiöuvikur-
verzlun 1774-1788.
431 blaösiöa. Byggöasögunefnd
Eskifjaröar 1977.
Ekki man ég nú lengur
„hvern dag þaö I desember
var,” sem góökunningi minn
austfirzkur, mikill áhugamaöur
um sagnfræöi og varöveizlu
hvers kyns menningarverö-
mæta, kom til mln áritstjórnar-
skrifstofu Timans, tók upp úr
tösku sinni bók eina mikla og
sagði: Hér er komið annaö
bindiö af Eskju, þú mátt til meö
aö skrifa um hana. Já, þaö var
nú svo. Auðvitaö leizt mér vel á
bókina, hún var „traustvekj-
andi”, eins og stundum er sagt,
og virtist öll hin vandaöasta, —
en aö eiga aö lesa hana alla I
einuogsiöan aö skrifaum hana,
— þaðgæti orðið þrautin þyngri.
Sannleikurinn er nefnilega sá,
að hér er á ferðinni rit, sem
heita má nærri óþrjótandi fróð-
leiksbrunnur, og endist
mönnum til lestrar, — ekki I
nokkra daga, — heldur vikum,
mánuöum og árum saman.
Þetta er höfundinum auösjáan-
lega ljóst. Hann segir I eför-
mála:
,,Ég læt mér ekki detta I hug,
að menn lesi þessa bók I einni
lotu eins og spennandi skrök-
sögu, en væri þvi ánægðari
sem þeir opnuðu hana oftar tál
að smánarta i efniö.”
Þetta eru orö aö sönnu, og þvl
skynsamari sem menn eru,
þeim mun slöurmunþeim koma
til hugar aö nokkur lesi slika
bók i einni lotu, — hvorki þeir
sem skrifa um þær bækur sem
þeir lesa, né hinir, —enda lætur
höfundurinn ekki að þvi liggja,
að honum hafi hvarflað sllkt I
hug, hvað þá meira. (Þetta
finnst mér rétt aö komi fram,
vegna þess að i einu af dagblöö-
um Reykjavikur birtust nýlega
ummæii i þessa átt, sem hugs-
anlegt er aö veröi misskilin af
einhverjum).
Og vlkjum þá að Eskju. Eins
og titilblað hennar ber meö sér,
er hér ekki um neitt smáræöis
efni aö ræöa: Hólmastaöur
fram til 1808, byggðin I dalnum,
Svinaskáli og Svlnastekkur,
Breiðuvikurverzlun 1774-1788.
Af nógu er aö taka, og sá sem
vill gera almennum lesendum
einhverja hugmynd um bókina,
spyr sig fyrr en varir hinnar
áleitnu spurningar: „Hvar skal
byrja, hvar skal standa?”
Við byrjum á þvi að slást I för
meö kirkjufólki frá Eskifiröi,
sem er aö fara til tiða aö Hólm-
um „fyrir aldamót.” Feröalýs-
ingin er „eftir Guörúnu Sigurö-
ardóttur á Bakka á Eskifiröi,
sem lézt I hárri elli fyrir nokkr-
um árum.” Vafalaust er þaö
rétt metið hjá Einari Braga, aö
þessiferöhafi „I höfuðatriöum”
verið svo lik því sem þær
geröust öldum saman, aö óhætt
sé aö taka hana sem dæmi. Og
sannarlega er það vel viö hæfi
aö byrja slika bók á kirkjuferð,
svo mjög sem þær voru snar
þáttur i lífi alls almennings á Is-
landiöldfram af öld, allt frá þvi
að ómálga börn voru færð til
ski'rnar, þangaö til menn voru
aö lokum fluttirá sleða, báti eöa
kviktrjám slðustu feröina, þeg-
ar lifsstriöinu var lokiö, oftast
viö kröpp kjör og jafnvel alls-
leysi, sem nútimamönnum er
örðugt aö gera sér I hugarlund.
Eins og titilblaö þessa bindis
Eskju ber meö sér, er ósmár
hluti bókarinnar helgaður verzl-
un: „Upphaf byggðar og
frihöndlunar” .... „Breiðuvlkur-
verzlun”. Hér er vitanlega hiö
merkasta efni á feröinni, en
margt ogmikiðerbúið aö skrifa
um verzlunaráþján fyrrialda og
allt þaö böl, sem hún bakaði is-
lenzku þjóöinni. Vér, nútíma-
menn, sem höfum vanizt þvl aö
fá alla kaupstaöarvöru meö bíl-
um heim að bæjardyrum svo aö
segja hvenær sem henta þykir,
eigum trúlega erfitt með að
setja oss fyrir sjónir það mann-
llf, þegar alltsvæðiö noröan frá
Smjörfjöllum, — allt Fljótsdals-
hérað og Austfiröir meö, — varö
aö sækja allan búðarvarning
sinn I eina verzlunarholu viö
Reyöarfjörö, þar sem auk held-
ur gat brugöiö til beggja vona,
hvort nokkur úttekt fékkst eöa
engin. Arið 1787 semur llka
sýslumaöurinn i Eskifiröi, Jón
Sveinsson, álitsgerö ,,um hafnir
I Suðurmúlasýslu” og sendir
hana rentukammerinu. Eftir að
hafa lýst staðháttum, þar sem
„verzlunarstaðnum er svo að
segja sökkt niður milli tveggja
sandmela, sem i hláku og rign-
ingu ryðja leir og möl á húsin og
eyðileggja si og æ garöana, sem
hlaönir voru.... þeim til varn-
ar,” kvartar sýslumaður um
þaö, aö „verzlunarstaðurinn
liggur afar illa viö fyrir ibúa
Fljótsdalshéraös, sem er blómi
verzlunarumdæmisins...” Já,
þótti vist fáum mikið, og sizt
munu menn nú á dögum undrast
kvartanir sýslumanns, þótt
Héraösbúar nútlmans hafi
verzlað mikiö viö Reyðarfjörö.
Þaö er meöal annars þessi
saga, sem Einar Bragi segir i
þessu bindi Eskju. En hér fer
eins og oftar, að þegar skæru
ljósi er beint aö einum eöa fleiri
þáttum þjóöarsögunnar, þá
bregður þaö birtu á sviðið, langt
útfyrirþá þætti, sem raktir eru,
unz lesandanum finnst hann
staddur I miðri atburðarásinni
og sér kynslóðirnar stlga fram.
Hann verður vitni að þvl sem er
aö gerast, hvort sem um er aö
ræöa kvartanir embættismanna
yfir erfiöu árferöi, „málaferli út
af orörómi um fölsuð lýsismál”
eöa lýsingu á siglingu inn á
Breiðuvikurhöfn. „En svo
hlálegt sem þaökann að viröast,
er eina heimildfrá fyrstu hendi
um siglingu á Breiöuvikurhöfn,
sem ég þekki, runninfráeinni af
örfáum konum sem fóru þessa
leið sem farþegar: frú Gyðu
Thorlacius”. Þessar upplýsing-
ar á bls. 154 I Eskju, og lýsing
frúarinnar á siglingunni, mun
mörgum Austfiröingi þykja
næsta skemmtilegur lestur, —
og þarf reyndar ekki Austfirö-
inga til.
Eins og aö llkum lætur, þá
veröur slikt rit sem Eskja ekki
skrifaö nema meö mikilli heim-
ildasöfnun. Aö þvl verki hefur
Einar Bragi gengið með sllkum
dugnaöi, aö meö ólikindum er.
Eöa öllu heldur: Leikmaöur
stendur orölaus frammi fyrir
þeirriglfurlegu vinnu, sem þarf
hefur veriö innt af höndum. Til
þess aö gefa ofurlitla hugmynd
um þá hluti má geta þess, aö
heimildaskráin er hvorki meira
ne minna en átta blaöslður,
tveir dálkar á hverri slöu , þétt
prentaö og meö smáu letri. —
Auk þess er svo aö bókarlokum
skrá um skammstafanir, og
mynda- og nafnaskrá.
Um hitt, hversu með heimilcf-
irnar er farið, get ég auövitaö
ekki dæmt. Þaö er verkefni fyrir
sagnfræöinga. Ég er ekki sagn-
fræöingur en ég hef lengi verið
þeirrar skoöunar, aö haldgóð
vitneskja um liöinn tima sé eitt-
hvert bezta veganesti hvers
manns, sem vill átta sig á sam-
tlö sinni og taka skynsamlega
afstööu til vandamála llöandí
stundar. Þess vegna eru vönd-
uö sagnfræöirit ómetanleg
hverjum fróöleiksfúsum manni,
leikum sem lærðum, — og þaö
er skoöun þess leikmanns, sem
hér pikkar á ritvél, aö Eskja sé
eitt þeirra heimildarrita, sem
miklu betra er með sér aö hafa
en án aö vera. Víöast hvar gætir
höfundur hófs í ályktunum sín-
um, þótt út af þvl geti brugðið,
eins og þegar hann kallar ævi-
sögu sr. Jóns Steingrímssonar
„einhverja mögnuöustu bók
sem skrifuð hefur veriö I heim-
inum.” Vist er bók eldklerksins
ágætt verk, en hér kynni þó aö
vera fullmikiö sagt.
Þaö er ærinn vandi aö skrifa
bók eins og Eskju án þess að
efnið veröi þurr upptalning
staöreynda, — með öörum orð-
um: að komast hjá þvi að bókin
verði leiðinleg aflestrar. Þetta
tekst Einari Braga þó á báöum
bindum Eskju, og ekki slöur I
þessu seinna bindi. Mál bókar-
innar er gott, en þó kann ég
aldrei vel viö þegar menn nota
oröið „þaö” i merkingunni
„svo”.: „Aödýpi er það mikiö
viö Seley, aö leiöin mátti heita
hættulaus i björtu,” segir höf-
undur á bls. 151. — En annars er
naumast réttlætanlegt aö tlna
það til, þótt slik dæmi fyrirfinn-
ist i jafnstórri og orðmargri bók
og Eskju. Mjög er gaman aö
lesa bréf sér Jóns Högnasonar,
prófasts aö Hólmum, skrifaö 17.
júni 1796. Þar notar klerkur
orðatiltækiö aö „hlaupa I
höfuð,” I merkingunni aö
drepa: „margirhlupuóvægilega
Einar Bragi Sigurösson.
i höfuö á lömbum...” stendur
þar.Þetta oröatiltæki er trúlega
ævagamalt. Menn geta lesið þaö
á einni af fyrstu blaösiöum
Króka-Refs sögu, en hér kemur
þaö upp i fangiö á okkur eins og
gamall kunnungi.
Hér veröur nú lokiö lltilli
Framhald á bls. 35
oc ALFA-LAVAL
Bændur - Athugið!
Eigum fljótlega til afgreiðslu örfá
ALFA-LAVAL RÖRMJALTAKERFI
með öllum bezta fáanlegum útbúnaði
EF ÞU
hefur hug á rörmjaltakerfi á góðu
verði með hagstæðum greiðslukjörum
hafðu þá samband við okkur strax.
Viljum benda á að 50% stofnlán
bókmenntir
fæst út á mjaitakerfi
Samband islenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavik simi 38900
EIElElElBlElElElBlElElElElElElElGlElGlElElElEimKimRimrnmm