Fréttablaðið - 12.08.2006, Qupperneq 4
4 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
��������������
��������������
�������������
�����������������
�������������
�����������
�����������
�����������
�����������
������������
��������������
���������������
��������������
��������������
��������������
�� ���������
������������������ �
��������� ������������� ��
� ���� �����������
�� ������ ��������������
��������������������
���������������������
�����������������������
�����������������������
�������������������� ��
� �� ������������ �� ���
������������������� ��
����������� ������� ���
� �������������������
������������������ ���
�����������������
���������� �����
������������������
������������
�����������������
��������������� ���
������������������� � ��
� ���������������� ����
���� ��
�������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
��
��
�� ��
��
��
��
��
��
��
�
�
�
� �
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
��
� ��
��
��
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 11.8.2006
Bandaríkjadalur 70,77 71,11
Sterlingspund 134,22 134,88
Evra 90,40 90,90
Dönsk króna 12,115 12,185
Norsk króna 11,371 11,437
Sænsk króna 9,825 9,883
Japanskt jen 0,6099 0,6135
SDR 105,09 105,71
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
125,1323
Gengisvísitala krónunnar
LUNDÚNIR, AP Breska lögreglan
birti í gær nöfn nítján þeirra
tuttugu og fjögurra sem hún
handtók í tengslum við hryðju-
verk sem yfirvöld segjast hafa
afstýrt á fimmtudag. Fólkið er
allt á aldrinum 17 til 35 ára og eru
flestir breskir ríkisborgarar af
pakistönskum uppruna.
Sjö manns hafa jafnframt verið
handteknir í Pakistan í tengslum
við málið og af þeim eru tveir
breskir ríkisborgarar, að sögn
yfirvalda þar í landi.
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðu-
neyti Pakistans í gær kom fram að
Rashid Rauf, einn Bretanna
tveggja sem handteknir voru í
Pakistan, væri höfuðpaurinn í
glæpahringnum og sagði Aftab
Khan Sherpao innanríkisráðherra
Rauf hafa tengsl við al-Kaída
hryðjuverkanetið.
„Við deildum upplýsingum sem
hann gaf okkur með breskum yfir-
völdum, sem leiddi svo til frekari
handtaka í Bretlandi,“ sagði innan-
ríkisráðherrann.
Rannsókn málsins er afar víð-
tæk og tekur til þó nokkurra landa,
að sögn rannsóknaraðila.
Hinar meintu hryðjuverka-
árásir hefðu valdið „fjöldamorði á
óhugsandi mælikvarða,“ kom fram
í máli ráðamanna á fimmtudag.
Talið er að fólkið hafi ætlað sér
að smygla sprengiefni í fljótandi
formi um borð í flugvélar, setja
sprengjurnar saman í háloftunum
og kveikja í þeim með aðstoð raf-
eindatækja á borð við myndavél-
ar, að sögn tveggja hátt settra
bandarískra lögreglumanna, sem
ekki komu fram undir nafni vegna
þess hve málið er viðkvæmt.
Þeir sögðu jafnframt að ætlun-
in hefði verið að sprengja í loft
upp allt að tíu bandarískar vélar
frá flugfélögunum Continental,
United og American Airlines. Vél-
arnar hefðu væntanlega verið á
leið til stórra bandarískra borga á
borð við New York, Washington og
Los Angeles.
Fólkið á að hafa ætlað að prufu-
keyra smygl sprengiefnanna um
borð í vélarnar á fimmtudag, en
hin raunverulega árás átti síðan
að fara fram örfáum dögum síðar.
Flugumferð var enn ekki komin
í samt lag víða um heim í gær og
fóru eingöngu um sjötíu prósent
flugs meira eða minna eftir áætl-
un um fjölfarnasta völl Evrópu,
Heathrow-flugvöll í Bretlandi.
Allur handfarangur er enn
bannaður í millilandaflugi og á
Heathrow voru farþegum réttir
glærir plastpokar undir það sem
leyft er um borð - vegabréf, lífs-
nauðsynleg lyf, dömubindi og
bleyjur. smk@frettabladid.is
Höfuðpaur tengist al-Kaída
Breska lögreglan hefur birt nöfn 19 manna sem handteknir voru grunaðir um að hafa skipulagt stórfelld
hryðjuverk. Pakistönsk yfirvöld segja skýr tengsl vera við al-Kaída. Flugsamgöngur eru enn í lamasessi.
BARNAMATUR GERÐUR UPPTÆKUR Öryggisgæsla hefur verið hert til muna á öllum helstu flugvöllum hins vestræna heims. Þessir ungu
foreldrar í Denver í Bandaríkjunum virtust þó eiga erfitt með að trúa því að þeim væri bannað að taka barnamat með sér í flugið.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EFTIRLIT Á Keflavíkurflugvelli er
enn strangt eftirlit með farþegum
á leið til Bandaríkjanna. Leitað er í
handfarangri allra farþega, en
blátt bann við handfarangri er ekki
í gildi. Stranglega bannað er að
ferðast með vökva í handfarangri
á leið til Bandaríkjanna, en enn er
heimilt að ferðast með rafeinda-
búnað til dægrastyttingar.
Farþegum gefst kostur á að
koma vökva sem þeir kaupa í frí-
höfninni með í flugið, með því að
afhenda vökvann vopnaleitar-
mönnum sem koma honum fyrir
ásamt almennum farangri í lest
flugvélarinnar. Leitin fer fram á
sérstöku svæði í suðurhluta flug-
stöðvarinnar. „Þessar ráðstafanir
falla ekki inn í venjubundna vinnu-
ferla og því þurfum við að kalla út
átján manns aukalega til að koma í
veg fyrir tafir,“ segir Jóhann R.
Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli. Að sögn Jóhanns er
alls óvíst hversu lengi eftirlitið
verður með þessum hætti.
Fríhöfn á jarðhæð í suðurhluta
Leifsstöðvar hefur verið lokað
vegna þessa. „Þegar fólkið er
þangað komið er það búið að fara í
síðustu vopnaleitina og því var
ákveðið að loka versluninni,“ segir
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar.
Enn eru engar sérstakar öryggis-
ráðstafanir vegna flugs til Eng-
lands. Þó skal bent á að farþegar
sem millilenda í Bretlandi á leið frá
Íslandi geta átt von á því að vera
stöðvaðir með handfarangur. - æþe
Hert eftirlit með farþegum á leið til Bandaríkjanna á Keflavíkurflugvelli:
Engan vökva í handfarangri
Guðni Ma
gnús Ing
vason
Sími: 44
0 4000
Fax: 440
46040
www.gilt
nir.isKirkjusan
di
IS-155 R
eykjavík
Ég hley
p 3 km
fyrir
Geðhjá
lp
Svala Pálsdóttir
Sími: 440 4000
Fax: 440 46040
www.giltnir.is
552 Útibú Akranesi
IS-155 Reykjavík
Ég hleyp3 km fyrirGeðhjálp
Arnfríður A
rnardóttir
Sími: 440
4000
Fax: 440
46040
www.giltn
ir.isKirkjusand
i
IS-155 Re
ykjavík
Ég hleyp
3 km
fyrir Hr
inginn
40 handteknir Ítalska lögreglan
handtók fjörutíu manns eftir að lögregl-
an í Bretlandi kom í veg fyrir fyrirhuguð
hryðjuverk í flugvélum sem áttu að
fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna.
ÍTALÍA
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
lýsir eftir Hilmari Ragnarssyni,
43 ára gömlum
fanga af Litla-
Hrauni sem
strauk af
læknastofu í
Lágmúla á
þriðjudaginn.
Hilmar er
dökkhærður og
grannvaxinn
og var klædd-
ur í dökka úlpu, dökkar buxur og
ljósa skó. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um ferðir hans eru beðn-
ir að hafa upplýsingar við lögregl-
una í Reykjavík.
Á þriðjudaginn strauk einnig
annar fangi þar sem hann var á
leið til tannlæknis. Sá fannst þó
síðar um kvöldið á Akranesi. Lög-
regla segir það algjöra tilviljun að
báðir hafi strokið sama dag. - sh
Tveir struku sama daginn:
Strokufangi
gengur laus
HILMAR RAGNARSSON
JÓHANN R. BENEDIKTSSON Segir ekki ljóst
hversu lengi hert eftirlit með farþegum til
Bandaríkjanna verði í gildi.
LÖGREGLA Tveir voru fluttir á
slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi eftir umferðarslys á Vestur-
landsvegi, skammt frá Beitistöð-
um, um klukkan þrjú í gær.
Jeppi fór út af veginum og fór
nokkrar veltur. Ökumaðurinn,
sem var einn í bílnum, var fluttur
á spítala og að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi er hann líklega fót-
brotinn. Jeppinn skemmdist nokk-
uð.
Jeppi sem var í samfloti með
hinum hægði þá á sér og við það
ók fólksbíll aftan á hann. Ökumað-
ur fólksbílsins meiddist lítillega
og var fluttur á slysadeild, en bíll
hans er töluvert skemmdur. - sh
Þriggja bíla árekstur:
Velti, fótbrotn-
aði og olli slysi
RÚSSLAND Nýjar reglur um hand-
farangur í flugvélum neyða tón-
listarmenn eins frægasta balletts
Rússlands, Bolshoi-ballettsins, til
að ferðast með lest frá Rússlandi
til Bretlands vegna fyrirhugaðr-
ar sýningar á Svanavatninu í Kon-
unglega óperuhúsinu í London
næstkomandi laugardag.
Samkvæmt frétt Aftenposten
spila margir tónlistarmannanna á
ævaforn rússnesk hljóðfæri sem
þeim er bannað samkvæmt samn-
ingum að skilja við sig. Eftir að
yfirvöld komu í veg fyrir meint
hryðjuverk í flugvélum á fimmtu-
dag er hins vegar allur hand-
farangur bannaður í háloftunum
og því verða listamennirnir að
ferðast með lest til Bretlands. - smk
Hljóðfæraleikarar Bolshoi-ballettsins í klemmu:
Tónlistarmenn ferðast með lest
LÖGREGLA Erlend kona á fertugs-
aldri slasaðist á höfði þegar hún
velti bíl sínum á Landvegi norðan
við Búrfell um tvöleytið í gær.
Konan, sem var á ferð ásamt eigin-
manni sínum, ók bílaleigubíl og
missti stjórn á honum með fyrr-
greindum afleiðingum. Eigin-
maðurinn slasaðist minna.
Konan var flutt rakleiðis með
sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík
til skoðunar. Meiðsl hennar eru
ekki meiriháttar. Bíllinn endaði á
hvolfi og að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli er hann ónýtur. - sh
Erlend kona á bílaleigubíl:
Hlaut meiðsl á
höfði í bílveltu