Fréttablaðið - 12.08.2006, Page 12

Fréttablaðið - 12.08.2006, Page 12
 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR12 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.374 +0,44% Fjöldi viðskipta: 231 Velta: 9.040 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,00 +1,09% ... Alfesca 4,23 +0,48% ... Atlantic Petroleum 555,00 +0,00% ... Atorka 5,85 +0,00% ... Avion 32,00 -0,93% ... Bakkavör 51,00 4,08% ... Dagsbrún 5,44 +0,00% ... FL Group 15,40 -0,65% ... Glitnir 17,60 +1,15% ... KB banki 703,00 -0,43% ... Landsbankinn 21,00 +0,96% ... Marel 79,00 +1,28% ... Mosaic Fashions 17,00 +0,00% ... Straumur-Burðarás 15,90 +0,00% ... Össur 110,00 +0,00% MESTA HÆKKUN Bakkavör +4,08% Marel +1,28% Glitnir +1,15% MESTA LÆKKUN Flaga -1,86% Avion -0,93% FL Group -0,65% Norska fjármálafyrirtækið Aktiv Kapital tapaði þremur milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og margfaldast tap á milli ára. Lækkaði gengi félagsins um fimm prósent en FL Group á yfir tíu prósenta hlut í norska félaginu sem metinn er á 4,7 milljarða króna. Aktiv Kapital kaupir lánasöfn, sem komin eru í vanskil, sér um innheimta viðskiptakrafna og umsýslu reikninga. Tapið skýrist að meginhluta af niðurfærslu lánasafna félagsins í Finnlandi að upphæð 4,8 milljarðar króna. - eþa Aktiv Kapital tapar Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista hefur aukið við hlut sinn í Bakkavör Group um 4,1 prósent og fer nú með 30,8 prósenta hlut. Viðskiptin fóru fram á genginu 51 sem var nokkru hærra en þáverandi markaðsgengi og nemur heildarvirði kaupanna tæpum 4,5 milljörðum króna. Exista er eftir sem áður lang- stærsti hluthafinn í Bakkavör. Miðað við markaðsvirði Bakkavar- ar í gær þá er allur hlutur Exista metinn á 33,5 milljarða króna. Þá eiga dótturfélög Exista, þar á meðal VÍS, minni háttar eignar- hlut í Bakkavör. - eþa Exista eykur hlut sinn í Bakkavör Hagnaður Íbúðalánsjóðs nam rúmum 2,5 milljörðum króna á fyrri helmingi árs og jókst um tæpa tvo milljarða króna sé miðað við sama tímabil í fyrra. Útlán sjóðsins námu rúmum 387,5 millj- örðum króna á fyrstu sex mánuð- um árs. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að stærstur hluti hagnaðar helgist af verðbólguþróun og jákvæðum mun verðtryggðra eigna umfram skuldir. Þá segir að uppgreiðslur lána sjóðsins hafi lækkað umtals- vert á tímabilinu; þær námu rúmum 25 milljörðum króna en voru rúmir 128 milljarðar allt árið 2005. Útlán Íbúðalánasjóðs námu 5,1 milljarði króna í júlí og jukust um rúmlega átján prósent milli mánaða, samkvæmt nýbirtri mán- aðarskýrslu sjóðsins. Fram kemur í Morgunkornum Glitnis að aukningu í útlánum Íbúðalánasjóðs megi skýra með auknu aðhaldi í útlánastefnu bank- anna. Íbúðalán bankanna hafi dregist verulega saman undanfar- in misseri og lántakendur leiti aftur til Íbúðalánasjóðs. - jsk 2,5 milljarða hagn- aður Íbúðalánasjóðs Sjóðurinn græðir á verðbólguþróun. HÖFUÐSTÖÐVAR ÍBÚÐALÁNASJÓÐS For- svarsmenn Íbúðalánasjóðs þakka aukinn hagnað verðbólguþróun og jákvæðum mun verðtryggðra eigna umfram skuldir. Hækkun vísitölu neyslu- verðs í júlí var undir spám greiningaraðila. Sérfræð- ingar telja verðbólguna ná hámarki í níu prósentum. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,34 prósent í júlí. Verðbólga mælist nú 8,6 prósent á ársgrundvelli og jókst um 0,2 prósent frá fyrri mán- uði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um tvö prósent sem jafngildir 8,1 prósents verð- bólgu á ári. Aukningin var talsvert undir meðaltalsspá greiningaraðila; Glitn- ir taldi útlit fyrir 0,5 prósenta hækk- un vísitölu neysluverðs og spáði því 8,7 prósenta tólf mánaða verðbólgu. Landsbankinn var aðeins hóflegri, spáði 8,5 prósenta verðbólgu, með hækkun upp á 0,3 prósent milli mán- aða. KB banki var svo þar mitt á milli og spáði 0,4 prósenta hækkun verðbólguvísitölunnar. Dagvöruverð hækkaði um tæpt prósent í júlí og hefur hækkað um rúm tólf prósent síðastliðið ár. Þá hækkaði viðhald á eigin húsnæði um 3,5 prósent. Verð á eigin hús- næði lækkaði hins vegar um 0,1 pró- sent í mánuðinum. Segir í Morgun- kornum Glitnis að lækkunin stafi af um eins prósents verðlækkun ein- býlis á höfuðborgarsvæðinu auk 1,2 prósenta almennrar verðlækkunar á landsbyggðinni. Þá urðu sumarút- sölur til þess að verð á skóm og fatn- aði lækkaði um 3,4 prósent í júlí. Þóra Helgadóttir, sérfræðingur greiningardeildar KB banka, segist telja að verðbólga sé nálægt því að ná hámarki. Mesta athygli, að mati Þóru, vekur lækkun fasteignaverðs og talsverð hækkun þjónustuverðs. „Fasteignaliðurinn hefur verið nokkuð leiðandi í vísitölunni og gæti því orðið ákveðið akkeri. Það þarf einhverjar óvæntar hækkanir til að við sjáum verðbólguna fara mikið yfir níu prósent. Það er ýmislegt sem bendir til þess að hægja muni á hækkunum.“ Greiningardeild Glitnis vekur athygli á því í Morgunkornum að verðbólgan sé langt yfir markmið- um Seðlabankans, 2,5 prósentum, og spáir 0,5 til 0,75 prósenta hækk- un stýrivaxta á vaxtafundi bankans í næstu viku. jsk@frettabladid.is Verðbólgan mælist 8,6 prósent á ársgrundvelli ÚTSÖLURNAR ÞRÆDDAR Verðbólga mælist nú 8,6 prósent á ársgrundvelli. Heldur hefur hægst á verðbólgunni; fasteignaverð lækkaði í júlí auk þess sem talsverð lækkun varð á skóm og fatnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Eyrir Invest tilkynnti í gær að það hefði aukið hlut sinn í Marel og er þar með orðinn stærsti hluthafinn með ríflega þriðjungshlut. Lands- bankinn seldi hlut til Eyris og verður þar með næststærsti eig- andinn. Stjórn Marels leggur það til við hluthafafund í næstu viku að hún fái heimild til að hækka hlutafé félagsins en við það lækkar hlutur Eyris niður í 26 prósent og Landsbankans í 25 pró- sent. Samþykki hluthafar þrjár tillögur um hluta- fjáraukningu og nýti stjórn þær að fullu hækkar hluta- féð um 70 prósent. Í fyrsta lagi er óskað eftir að hlutaféð verði hækkað um rúmar 52 milljónir hluta að nafn- verði sem nýtt verður til greiðslu vegna kaupa á Scanvægt. Við- skiptagengið á þessum bréfum er 72 krónur á hlut en síðasta mark- aðsgengi var 79. Þá mun stjórn óska eftir heim- ild til að hækka hlutafé félagsins um sextíu milljónir hluta að nafnvirði sem verða seldir fjárfestum í útboði. Í þriðja lagi fer stjórn fram á heimild til að hækka hlutafé um aðrar sextíu milljónir króna að nafnverði til að fjármagna ytri vöxt eða nota sem greiðslu fyrir hluti í öðrum félögum. - eþa HÖRÐUR ARNARSON Hörður er forstjóri Marels. Eyrir er stærsti hluthafinn í Marel Farið að lengja eftir niðurstöðu Einhverja hluthafa í Actavis virðist farið að lengja eftir niðurstöðu í yfirtöku á króatíska lyfjafyrirtæk- inu Pliva. Skyldi engan undra þar sem ekki væri um lítinn bita að ræða sem vel gæti haft áhrif á gengi grúppunnar ef yfirtakan gengi í gegn. „Fyrirgefðu Róbert. Þegar við komum hérna saman eftir fyrsta ársfjórðung varstu nokkuð ánægður með stöðuna og taldir þetta eiginlega bara formsatriði að klára þetta. Ég veit þetta er viðkvæmt mál en hvernig meturðu stöðuna eiginlega?“ spurði áhyggjufullur hluthafi utan úr sal á kynningarfundi Actavis á glæsilegu ársfjórðungsuppgjöri í gær. Þessu svaraði Róbert með brosi á vör. Sagðist meta stöðuna svo að niðurstaðan réðist nú fyrst og fremst af því hvort stjórnendur Barr væru nógu óskynsamir að borga of mikið fyrir Pliva. Staða Actavis að mörgu leyti sterkari Þessa sýn útskýrði Róbert svo að Actavis væri að mörgu leyti í sterkari stöðu en Barr þótt vissulega væri um langt og kappsfullt ferli að ræða og ljóst að yfirtakan væri ekki í hendi. Bæði félög hefðu þegar fjármagnað kaupin en Actavis hefði hins vegar það tromp á hendi að það stýrði tuttugu prósentum í félaginu. Þar að auki ætti rekstur Actavis og Pliva betur saman en rekstur Barr og Pliva. Eðli málsins samkvæmt ætti því Actavis að geta borgað meira fyrir félagið en Barr þar sem verðið væri ekkert nema afleiðing af hagnaði og framtíðarsjóð- streymi. Eina spurningin sem eftir stæði væri þá hvort Barr- menn væru tilbúnir til að borga of mikið fyrir félagið, þar sem Actavis-menn myndu ekki greiða meira fyrir það en þeir teldu skynsamlegt. Peningaskápurinn... MARKAÐSPUNKTARHagvöxtur í Frakklandi reyndist mun meiri á öðrum ársfjórðungi en búist var við, 1,2 prósent í stað 0,7 prósenta sem spáð var. Greiningardeild Kaupþings banka segir hagvöxt þar ekki hafa verið meiri í fimm ár, en undir hann ýta útflutningur og einkaneysla sem rakin er heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í gær nam 5,5 milljörðum króna. Mest voru viðskipti með flokkinn HFF 14 fyrir 1,5 milljarða króna og lækkaði krafa flokks- ins um 6 prósentustig. Seðlabanki Japans ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum að sinni, í 0,25 prósentum. Þar hefur hagkerfið kólnað meira en menn væntu og vilja menn því aðeins bíða og sjá. Jóhanna Úlfarsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fy rir Kraft Indriði Jóhannsson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km f yrir MND félagið Indr ið i J óh an ns so n Sí m i: 44 0 40 00 Fa x: 4 40 4 60 40 ww w. gi ltn ir. is Ki rk ju sa nd i IS -1 55 R ey kj av ík Ég h ley p 1 0 km fy rir MN D fél ag ið Brynjólfur Gíslason Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is 528 Útibú StórhöfðiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyrirKrabbameinsfélag Íslands Anna Rósa Róbertsdóttir Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fyrir Blátt áfram

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.