Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.08.2006, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 12.08.2006, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 12. ágúst 2006 3 Ég var að telja það saman um daginn hversu marga bíla ég hef átt um ævina. Einn fyrir hvert bílprófsár. Það er svosem ágætt. Þannig séð. Ég hef samt aldrei átt mjög dýra bíla eða fína. Átján ára guttar á fimm milljón króna bílum í dag segjast vinna fyrir þeim í byggingarvinnu á sumrin. Ég tel að laun byggingarverka- manna hljóti að hafa hækkað meira síðan ég var átján en almennir kjarasamningar. Fyrir nokkrum árum átti ég roskinn Cherokee-jeppa, Grána gamla, sem ég og faðir minn höfðum nostrað mikið við og breytt eftir mínu höfði. Um sum- arið var landsmót skáta á Akur- eyri og leið mín lá á mótið. Félagi minn hafði beðið mig um að taka litla kerru fyrir sig norður, því að hann var ekki með krók. Ætl- unin var að keyra Kjalveg og leggja af stað um kvöldmat. Þegar á hólminn var komið reyndist litla kerran vera tvöföld sleðakerra í björgunarsveitar- stærð, fullhlaðin af borðum, stól- um, gastækjum, byggingarefni og ég veit ekki hverju. Stærðar- hlutföllin ein voru ógnvænleg en félagi minn sannfærði mig um að hún vigtaði ekki mikið meira en dúnkoddi. Svo við fórum af stað. Það kom strax í ljós að kerran var að minnsta kosti tveggja kodda maki því hún gerði meira af því að stýra bílnum en öfugt. Það lá þó mikið á að koma kerr- unni norður. Við myndum ekki lenda í mikilli traffík og ákváð- um því að keyra áfram inn í nótt- ina en fara mjög rólega. Svefn er hvort eð er bara veikleikamerki. Og svo byrjaði það. Á Kjal- vegi kom í ljós þrýstingsleki á kælivatnskerfinu og því sauð ítrekað á bílnum. Við urðum að komast norður og vorum með tómar vatnsflöskur, þetta hlyti að reddast. Þetta tafði okkur enn meira en stoppaði okkur þó ekki. Svona um það bil tveimur tímum seinna hélt ævintýrið áfram þegar kúlan bókstaflega slitnaði af bílnum undan þunga kerrunnar. Ojæja. Við gátum ekki meira. Björgunarsveitin yrði að redda henni áfram. Seinna frétti ég að okkar ferð hefði verið eins og sumarfrí í samanburði við þeirra. Áfram héldum við og þurftum nú ekki að stoppa jafn oft til að fylla á vatnið. Einhverntíma upp úr mið- nætti ætlaði framsætisfarþeginn að stökkva út, ekki langt frá Hveravöllum, en skyndileg vind- hviða reif hurðina úr höndunum á henni og feykti upp. Beyglan á brettinu var stærri en sú á hurð- inni, sem nú lokaðist ekki aftur nema með hamagangi. Þegar við loks komumst svo á skátamótið lánaði ég bílinn í einstaka sendi- ferðir og þegar ég keyrði heim aftur var hann kúlulaus, með hriplekt vatnskerfi, beyglaður og drulluskítugur að innan. En bílar eru bara bílar og svona hlutir gerast. Gamall bíll þolir smá fegrunaraðgerðir af þessu tagi án þess að verða verri fyrir vikið. Það hefði verið öllu verra ef hann hefði verið splunkunýr. Tala nú ekki um ef ég hefði unnið í byggingarvinnu á sumrin. In memoriam: Gráni gamli Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Sverari gluggapóstar bæta við nýjum blindum bletti. Rannsóknarsamtök breska bíla- iðnaðarins framkvæmdu nýlega könnun þar sem mældur var blind- ur blettur sem skapast af glugga- póstum í nýjum bílum. Glugga- póstar framrúðu eru oft kallaðir A-stólpar og því er sá blindi blett- ur sem þeir orsaka kallaður A- blettur. A-stólpar hafa farið stækkandi undanfarin ár til að auka öryggi farþega í veltu og við árekstur á hlið. Sá böggull fylgir skammrifi að þeir hindra sýn ökumanns og rannsókninni var ætlað að finna út nákvæmlega hversu mikið. Mælt var hversu breitt svæði í 23 metra fjarlægð var hulið öku- manni sem ók á 50 km hraða. Nið- urstöðurnar eru í meðfylgjandi lista. Velskar rannsóknir sýna að 21% umferðaróhappa við gatnamót verða vegna þess að ökumenn „horfa en sjá ekki“. Margir halda því fram að breiðir A-stólpar auki enn við þessa hættu en aðrir benda á að ökumenn hljóti að ráða við að hreyfa höfuðið aðeins af og til. A-bletturinn fundinn Land Rover Freelander er einn þeirra bíla sem kom heldur illa út úr A-bletts prófun Rann- sóknarsamtaka breska bílaiðnaðarins. Niðurstöður A-blettaprófsins (tölur segja til um breidd blinda blettsins í 23 metra fjarlægð á 50 km hraða.) Audi A4 (0.3m) BMW 320 (1.7m) Citroen Xsara Picasso (1.7m & 2.0m - (tvískiptur póstur, samtals 3,7 m a-blettur) Ford Fiesta, 1998 árgerð (1,2 m) Ford Fiesta, 2006 árgerð (2,4 m) Ford Focus (2,1 m) Ford Focus C-Max (3,4 m) Ford Mondeo (2,7 m) Jeep Cherokee (4,5 m) Land Rover Freelander (4,1 m) Mercedes CLK200 (1,8 m) Peugeot 307 (0,6 m) Porsche Boxster (2,7 m) Toyota Corolla Verso (1,2 m) Toyota Prius (2,2 m) Seat Leon (2,9 m) Opel Astra (2,9 m) Opel Vectra (2,7 m) VW Bjalla (2,5 m) VW Golf (2,7 m) 15 KM LÖNG VEGGÖNG SEM NÁ 300 METRA NIÐUR FYRIR SJÁVARMÁL. Það eru fleiri en Íslendingar sem vilja bora göng. Á vef FÍB má lesa um hugmyndir Grænlendinga um að bora 15 km löng veggöng undir þveran Góðr- arvonarflóa, en höfuðstaðurinn Nuuk stendur einmitt við flóann. Hugmyndin um þessi veggöng sem yrðu lengstu og dýpstu neðansjávargöng í veröldinni komu upp í tengslum við aðra stórbrotna hugmynd; þá að gera mikinn alþjóðaflugvöll hinum megin við Góðrarvonarflóann. Ef flugvöllurinn verður að veruleika eru göngin nauð- synleg tenging milli hans og höfuðstað- arins. Grænland er nánast allt hulið jökli og byggð er mjög strjál og einungis við strendurnar. Íbúar landsins eru aðeins um 55 þúsund. Vegakerfi milli strjálla byggða er nánast ekkert og bílar eru fáir. Lengstu neðansjávargöng sem nú fyrirfinnast í heiminum eru í Japan. Þau eru tæplega 10 km löng. Í Noregi er verið að grafa neðansjávargöng um þessar mundir sem tekin verða í notkun árið 2007. Þessi göng verða þau dýpstu hingað til, 287 metrum undir sjávarmáli. Grænlendingar vilja líka göng Frá Grænlandi. Þar í landi eru uppi hugmyndir um lengstu neðansjávargöng í heimi. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.