Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 36
[ ]
Þriðja ríkið er yfirskrift ferðar
sem Expressferðir efna til
dagana 7.-12. september. Óttar
Guðmundsson læknir verður
leiðsögumaður enda kann
hann frá mörgu að segja.
„Berlín er mjög lifandi borg sem
geymir spennandi sögu þó ekki
sé hún öll fögur. Hún er líka
nýleg borg vegna þess að stærst-
ur hluti hennar var lagður í rúst í
seinni heimsstyrjöldinni. Þar er
þó margt að skoða frá dögum
þriðja ríkisins og einnig frá
dögum austurþýska alþýðulýð-
veldisins og kalda stríðinu. Þarna
mættust austrið og vestrið og
þarna var kalda stríðið háð. Fyrst
og fremst munum við skoða það
sem enn stendur frá þessum
dögum og rifja upp tímabil sem
er að gleymast. Leita að minjum
um „foringjann“ og helstu stjórn-
arbyggingarnar. Svo verður farið
í Sachsenhausen, fangabúðir sem
eru rétt fyrir utan borgina þar
sem Leifur Möller sat inni meðal
annarra.“ Þannig lýsir Óttar í
upphafi því sem hann mun leggja
áherslu á í fararstjórn sinni um
Berlín og nágrenni hennar í
Expressferðinni í byrjun sept-
ember.
Óttar er hagvanur í Berlín.
Hann bjó þar í kringum síðustu
aldamót og kveðst auk þess oft
hafa heimsótt borgina, meðal
annars farið þangað í kynnis-
ferðir með hópa. Hann segir
Þjóðverja sjálfa ekki mikið fyrir
að kynna ferðamönnum sögu-
slóðir þriðja ríkisins. Þeir vilji
sýna borgina eins og hún er í dag
en ekki halda sögunni á lofti.
Það sem eftir stendur af Berl-
ínarmúrnum er eitt af því sem
skoðað verður í fyrirhugaðri
ferð. Líka einskismannslandið
sem Austur-Þjóðverjar bjuggu
til meðfram múrnum og myndaði
50-100 metra breiða auðn í gegn-
um alla borgina þegar hann féll.
Þá verður komið við á frægri brú
á mótum Austur-og Vestur-Berl-
ínar þar sem skipst var á njósn-
urum í kalda stríðinu. „Þegar
einhver var handtekinn austan
megin þá var skipt á honum og
einhverjum sem hafði verið
handtekinn vestan megin,“
útskýrir Óttar sem veit um ótal
athyglisverða staði á þessum
slóðum. „Þarna er ólympíuleik-
vangurinn sem Hitler lét byggja
1936 og úrslitaleikurinn í HM
var háður á í sumar. Einnig mörg
minnismerki um sigur Rússa yfir
Þjóðverjum. Hluti þeirra var
gerður úr marmara sem kom úr
kanslarahöll Hitlers. Móðir Rúss-
lands heitir eitt. Mikið og stalín-
ískt listaverk.“ Óttar segir enn
talsverðan mun á vestri og eystri
borgarhlutunum þó búið sé að
byggja Austur-Berlín upp að
verulegu leyti eftir að múrinn
féll 1989. „Berlín er ótrúlega fal-
leg borg og þar er mikið um að
vera,“ segir hann. „Þar er enn
ódýrast að borða á veitingahús-
um og versla. Þar er margt að
skoða og eftir ýmsu að slægjast.“
Allar upplýsingar um ferðina
fást hjá Express ferðum www.
expressferdir.is og í síma 5 900
100. gun@frettabladid.is
Á söguslóðum Berlínarborgar
Potsdamer Platz er einn af merkilegum sögustöðum Berlínar.
Óttar veit um marga athyglisverða staði í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Borgarferðir eru mjög vinsælar núna. Til þess að gera ferðina enn
skemmtilegri er gaman að kaupa sér bók um borgina og kynna sér meðal
annars umhverfið, menninguna og matinn áður en lagt er í hann.
Hollvinafélagið Húni II og
Minjasafnið á Akureyri bjóða
upp á sögusiglingar um Eyja-
fjörð með eikarbátnum Húna II.
Fyrsta ferðin var farin síðastlið-
inn miðvikudag og næstu tvo mið-
vikudaga verða farnar sambæri-
legar ferðir þar sem farið er í smá
hring um fjörðinn.. Lagt er af stað
klukkan 19..30 og hver ferð tekur
um eina og hálfa klukkustund.
Hörður Geirsson frá minjasafn-
inu er með í för og fer yfir ýmsa
þætti úr sögunni. Húni II er 130
tonna eikarbátur sem smíðaður
var á skipasmíðastöð KEA á Akur-
eyri árið 1963. Hann er eini
óbreytti báturinn af þessari gerð
sem til er á landinu. Frá árinu
1997 hefur Húni II verið nýttur
sem skemmtibátur en rekstri
bátsins var hætt árið 2004. Í mars
síðastliðnum var hann síðan færð-
ur Iðnaðarsafninu á Akureyri að
gjöf.
Í sumar hefur báturinn verið
opinn gestum og hafa fjölmargir
skoðað bátinn og farið í stutta
siglingu um Pollinn. Hollvinafé-
laginu Húna II þótti því tilvalið að
bjóða upp á lengri ferðir fyrir
áhugasama sem vilja skoða fjörð-
inn frá nýju sjónarhorni og jafn-
vel renna fyrir fisk í leiðinni.
Siglt um fjörðinn
Eikarbáturinn Húni II er eini óbreytti báturinn af þessari gerð sem til er á landinu.
��������������������������������������������������������������
���������������������������������������
�������������������������������������������
�����������������������
��������������
����������������
������������������������
� � � � � � � � � � � � � � �
���������������������������������������������
�����������������������������
�������������������������
����������������������������������
���������� � ������
Í útileguna
Breytingar á
Kastrup
AFGREIÐSLUFYRIRTÆKI SAS Á
KASTRUP-FLUGVELLI ANNAST
ÞJÓNUSTU FYRIR ICELANDAIR.
Icelandair hefur samið við
afgreiðslufyrirtæki SAS á Kaup-
mannahafnarflugvelli um að ann-
ast farþega- og farangursþjónustu
fyrir Icelandair á Kastrup. Breyting-
in er gerð í hagræðingarskyni og
mun bæta þjónustu við farþega.
Við þessa breytingu flyst innritun í
afgreiðslubyggingu 3 á ný. Farþegar
á viðskiptafarrými munu áfram
getað notað betri stofu SAS á flug-
vellinum eins og verið hefur.
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �