Fréttablaðið - 12.08.2006, Side 65

Fréttablaðið - 12.08.2006, Side 65
LAUGARDAGUR 12. ágúst 2006 45 Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi Sýningar í ágúst og september Laugardagur 19. ágúst kl. 20 uppselt Sunnudagur 20. ágúst kl. 15 örfá sæti laus Sunnudagru 20. ágúst kl. 20 örfá sæti laus Föstudagur 25. ágúst kl. 20 örfá sæti laus Laugardagur 26. ágúst kl. 15 uppselt Laugardagur 26. ágúst kl. 20 uppselt Laugardagur 2. sept kl. 20 Sunnudagur 3. sept kl. 15 Sunnudagur 3. sept kl. 20 KVÖLDVERÐARTILBOÐ Tvíréttaður matur og leikhúsmiði 4300 - 4800 Pantið miða tímanlega í síma 437 1600 Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag. 17. ágúst - kl.20:00 - Uppselt 18. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti 24. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti 25. ágúst - kl.20:00 - laus sæti 31. ágúst - kl.20:00 - laus sæti 01. sept - kl.20:00 - laus sæti Aðsóknarmesta sýning síðasta leikárs! Drepfyndinn gamanleikur í Reykjavík! Miðasala er þegar hafin! Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37 Laugardaginn 12. ágúst kl. 20:00 Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00 Laugardaginn 19. ágúst kl. 20:00 Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00 Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00 Á ÞAKINU Hvað má og hvað ekki í ís- lenskri leiklist? Hvaða vægi hefur hún í samfélaginu og er eitthvað til sem heitir góð eða vond leiklist? Þessar stóru spurningar eru á vörum tveggja leikhúsmanna sem vinna að rannsókn, tilraun og sýn- ingu sem verður frumsýnd á sviðs- listahátíðinni Art Fart í kvöld. Frið- geir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson eru forsprakkar lista- hópsins E.L.A og aðstandendur rannsóknarinnar, sem hefur þegar borið ríkulegan ávöxt. „Við höfum staðið fyrir vinnu- stofum í sumar þar sem listamenn og listnemar hafa tekið þátt og saman höfum við prófað okkur áfram með leiklistarformið,“ segir Friðgeir, „við höfum gert tilraunir með spuna, leiktækni og aðrar list- greinar og miðla.“ Afraksturinn er meðal annars fólginn í sýningunni „Lebanon is a good place for rebirth“ sem verður frumsýnd kl. 20 í kvöld. „Verkið er nokkurs konar tilraun en það fjallar um þrjá einstaklinga sem verða innlyksa á hótelbar þegar styrjöld brýst út í Beirút í Líbanon. Gestirnir fara að spyrja sig tilvist- arlegra spurninga og síðan leysist barinn upp og þau lenda í fleiri ævintýrum,“ segir Friðgeir en vill samt lítið láta uppi með framvindu verksins enda myndi það ef til vill spilla fyrir upplifun áhorfenda og eins er atburðarásin nokkuð flókin. „Verkið tekur óvænta stefnu og per- sónurnar reyna að fóta sig í síbreyti- legum veruleika þess,“ segir Frið- geir og þar við situr. Leikritið er tilraunakennt en aðstandendurnir útskýra að það sé þó „með léttu ívafi“ og þó það sé ill- flokkanlegt segir Friðgeir að verkið sé máski lengst frá því að vera stimplað hádramatískt. „Við erum bæði að reyna að fóta okkur á eigin braut í forminu og jafnframt að reyna að laga formið að þeim hug- myndum sem við viljum koma á framfæri. Við þátttakendurnir höfum lagt stund á ýmis mannvís- indi í háskólum og við höfum notað okkur það í vinnuferlinu og reynum að gera þau aðgengileg fyrir leik- húsgesti,“ segir hann. Rannsóknin, sem unnin er með stuðningi Nýsköpunarsjóðs, heldur áfram en sýningarnar eru fyrirhug- aðar nú um helgina og þá næstu. Á Menningarnótt, hinn 19. ágúst, verður opin sýning eða innsetning á vinnuferli verksins og rannsóknar- innar í húsi Ó. Jónssons & Kaaber þar sem gestir geta kynnt sér aðstæður og hugmyndafræði verk- efnisins. - khh SVIÐSLISTAHÓPURINN E.L.A FRUMSÝNIR Á ART FART Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þor- bergsson rannsaka vægi leiklistar á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Af útlokun og innilokun Myndlistarsýn- ingin „Sögur neðan jarðar“ verður opnuð í Nýlistasafninu kl. 16 í dag en þar sýna myndlistar- mennirnir Pétur Már Gunnars- son, Johann Maheut frá Frakklandi og Toshinaro Sato frá Japan verk sín sem vísa til hinna margræðu hugtaka „þröskuldur“ og „mæri“. Annar hluti sýningarinnar fer fram í Frakklandi 2007 og munu þá fleiri íslenskir listamenn slást með í förina. Sýningin er opin til 3. september. - khh Jaðrar og mæri PÉTUR MÁR GUNNARSSON Sýnir afskræmdan einfaldleika í Nýló. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.