Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 74
54 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Norska úrvalsdeildar- félagið Molde vill fá Marel Bald- vinsson, leikmann Breiðabliks, í sínar raðir. Marel hefur áður verið á mála hjá Stabæk í Noregi og Lokeren í Belgíu en kom heim í vetur og hugðist hætta atvinnu- mennsku í fótbolta og samdi við Breiðablik. Marel hefur gengið vel í sumar og er hann markahæstur í Lands- bankadeildinni með ellefu mörk. „Það hringdi í mig norskur umboðsmaður og athugaði stöð- una á mér. Ég sagði honum að ég væri samningsbundinn Breiða- bliki og því þyrfti Molde að ræða málin við forráðamenn félags- ins.“ Norska félagið gerði svo Blik- um tilboð í gær og munu forráða- menn liðsins líklega svara því eftir helgi. Þetta staðfesti Ólafur Björnsson, formaður meistara- flokksráðs karla, í samtali við Fréttablaðið í gær. Marel hefur átt við erfið meiðsli að stríða í gegnum feril sinn og hefur sagt áður að hann ætlaði sér ekki aftur í atvinnu- mennsku af þeim sökum. „Ég gerði þeim grein fyrir þeirri stöðu. Ég þekki vel til norskra liða og veit að þau æfa mikið. En þeir virðast gera sér grein fyrir stöðu minni og að ég geti aðeins æft knattspyrnu einu sinni á dag. Og er það hið besta mál. Ég er til- búinn að skoða þetta.“ - esá Marel Baldvinsson gæti verið á leið í norsku knattspyrnuna á nýjan leik: Molde gerði Breiðabliki tilboð í Marel búnaður í bílinn Úti að aka? Car kit CK-7W * Bluetooth búnaður í bílinn * Svarhnappur, hátalari og hljóðnemi * Lækkar sjálfkrafa í hljómtækjum * Sjálfvirk tenging við síma handfrjáls Þú færð handfrjálsan búnað í bílinn í Hátækni og hjá söluaðilum NOKIA. Jóhannes Valgeirsson hefur verið einn besti dómari Landsbankadeildarinnar í sumar en hann gat þó ekkert dæmt í þrettándu umferð. Hann tognaði á læri fyrir tæpum mánuði í leik Grindavíkur og Fylkis með þeim afleiðingum að það þurfti að skipta um dómara í hálf- leik. Í næstu umferð þar á eftir gat hann heldur ekki klárað leikinn sem hann dæmdi vegna meiðslana og þá tók Garðar Örn Hinriksson við flautunni. „Það hefur mikið verið gert grín að mér eftir þetta og það er bara gaman að fólk geti haft gaman að þessu,“ sagði Jóhannes í léttum tón en hann verður þó ekki frá út tímabilið. „Nei, sem betur fer er það ekki svo alvarlegt, ég hef bara verið slæmur í bakinu og var með klemmda taug sem orsakaði þetta. Ég vonast til að geta dæmt aftur eftir rúma viku. Ég er í fínu formi og því ætti það ekki að taka langan tíma fyrir mig að komast aftur af stað.“ Jóhannes æfði af krafti fyrir tímabilið og hefur staðið sig vel í þeim leikjum sem hann hefur dæmt í sumar. „Félagar mínir hafa verið að skjóta á mig að ég sé bara búinn að æfa of mikið. Maður ætti kannski að fækka æfing- unum niður í fimm sinnum í viku,“ sagði Jóhannes, sem hann átti að dæma landsleik Eistlands og Make- dóníu í undankeppni Evrópumótsins á miðvikudag en varð að gefa það verkefni frá sér vegna meiðsla og mun Kristinn Jakobsson dæma leikinn í staðinn. „Það er virkilega súrt að geta ekki dæmt á miðvikudaginn en ég ákvað þetta í samráði við Halldór B. Jónsson hjá KSÍ. Það er betra að gefa þetta frá sér en að mæta til leiks og vera kannski ekki tilbúinn í slaginn,“ sagði Jóhannes. DÓMARINN JÓHANNES VALGEIRSSON: VERÐUR EKKI LENGI FRÁ ÞRÁTT FYRIR MEIÐSLI Í BAKI Málið er bara að æfa aðeins minna HANDBOLTI Nú eru tvær vikur í að keppni í þýsku deildarkeppninni í handknattleik fari af stað og er eftirvæntingin þar í landi að auk- ast jafnt og þétt. Þýskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Snorri Steinn Guðjónsson, sem leikur með Minden, hefði meiðst á æfingu liðs- ins og yrði frá í fjórar til sex vikur. Sjálfur sagðist Snorri í samtali við Fréttablaðið vonast til að komast á ról fyrr. „Þó að læknir liðsins kalli það bjartsýni vonast ég til þess að geta spilað eftir svona þrjár vikur. Ég má ekki fara mér of hratt, mótið er ekki byrjað enn og því er nóg sem á eftir að gerast. Ef maður lítur á ljósu punktana er kannski betra að þetta komi fyrir núna frekar en seinna. Svo hefði þetta líka getað farið miklu verr,“ sagði Snorri, sem varð fyrir meiðslum á hné á æfingu síðasta miðvikudag, „Ég lenti með löppina beina og þá kom samherji minn og fór beint á hnéð á mér. Þetta er eiginlega nokkurs konar tognun en sem betur fer er ekkert skemmt í löpp- inni. Það er allt í lagi með öll lið- bönd og liðþófann og svona. Í fyrstu var óttast að eitthvað hefði slitnað en ég slapp við það og verð vonandi klár eftir svona tvær til þrjár vikur.“ Minden hefur lent í miklum vandræðum vegna meiðsla nú rétt fyrir mót og mun liðið hefja tíma- bilið án þriggja byrjunarliðs- manna. „Okkur hefur alla vega gengið betur á þessu undirbúningstímabili en við gerðum í fyrra. Það eru mikil meiðsli að hrjá liðið og það eru því kannski nokkuð erfiðir tímar fram undan og verður nokkurt ströggl eins og í fyrra,“ sagði Snorri Steinn en hann segir markmið liðsins fyrir tímabilið vera að halda sér í deild- inni. „Maður verður að taka þessu þó það sé ekki það skemmtilegasta að vera í botnbaráttu.“ Snorri hefur leikið frábærlega fyrir Minden á undirbúningstíma- bilinu og lofað góðu fyrir komandi tímabil. „Ég er búinn að æfa virki- lega vel og hef verið í góðu formi svo þetta leit allt saman mjög vel út. Það er leiðinlegt að ég þurfi aðeins að staldra við núna og geti ekki komið mér í enn betra form og byrjað mótið,“ sagði Snorri en hann hlakkar þó mikið til að tímabilið byrji. „Eftirvæntingin hér í Þýska- landi er öll að magnast, það er handboltavænt tímabil að fara af stað því heimsmeistarakeppnin er náttúrlega haldin hér í janúar.“ Auk Snorra Steins er annar Íslendingur í herbúðum Minden en hornamaðurinn Einar Örn Jónsson gekk til liðs við félagið fyrir tíma- bilið. „Við vorum í vandræðum með þessa stöðu í fyrra og menn eru ánægðir með hann hérna í lið- inu. Hann á eftir að spila mikið, það er klárt mál,“ sagði Snorri Steinn. elvargeir@frettabladid.is Hefði getað farið mun verr Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson meiddist á hné á æfingu með Minden í vikunni. Hann mun missa af fyrstu leikjum liðsins í þýsku deildinni. Í FRÁBÆRU FORMI Snorri Steinn Guðjónsson hefur spilað mjög vel með Minden á undir- búningstímabilinu og raðað inn mörkum. Hér er hann í landsleik gegn Noregi fyrr á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Hvorki Ruud van Nistel- rooy né Mark van Bommel voru valdir í landsliðshóp Hollands fyrir vináttulandsleik gegn Írlandi. Landsliðsþjálfarinn Marco van Basten tilkynnti átján manna hóp í gær og kemur Klaas-Jan Huntelaar, leikmaður Ajax, inn í hópinn í stað Nistelrooys. Van Basten og van Nistelrooy áttu í deilum í kringum heimsmeist- arakeppnina og hefur það haft sitt að segja. „Ég vil meina að ég hafi valið bestu leikmennina,“ sagði van Basten þegar hópurinn var tilkynnt- ur en van Nistelrooy var nýlega keyptur til Real Madrid. - egm Landslið Hollands valið: Nistelrooy ekki nógu góður EKKI Í HÓPNUM Van Nistelrooy slapp ekki inn í hóp Hollands. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Luis Aragones, landsliðs- þjálfari Spánar, valdi í gær 22 manna leikmannahóp sem kemur til Íslands og leikur vináttulands- leik á Laugardalsvellinum næsta þriðjudag, Einn nýliði er í hópn- um, Borja Oubina sem leikur með Celta Vigo. Þetta er sterkasti landsliðshópur Spánverja og nán- ast sami hópur og var á heims- meistaramótinu í Þýskalandi. Miðasala á leikinn gengur mjög vel en sala fer fram á vefsíðunni midi.is og í verslunum Skífunnar og BT. - egm SPÆNSKI HÓPURINN: IKER CASILLAS REAL MADRID PEPE REINA LIVERPOOL ANTONIO LOPEZ ATLETICO MADRID PABLO IBANEZ ATLETICO MADRID CARLES PUYOL BARCELONA JUANITO REAL BETIS MARIANO PERNIA ATLETICO MADRID MICHEL SALGADO REAL MADRID SERGIO RAMOS REAL MADRID CARLOS MARCHENA VALENCIA CESC FABREGAS ARSENAL JOSE ANTONIO REYES ARSENAL ANDRES INIESTA BARCELONA XAVI BARCELONA JOAQUIN REAL BETIS LUIS GARCIA LIVERPOOL XABI ALONSO LIVERPOOL DAVID ALBELDA VALENCIA BORJA OUBINA CELTA VIGO FERNANDO TORRES ATLETICO MADRID RAUL REAL MADRID DAVID VILLA VALENCIA Landsleikurinn við Spán: Sterkasta lið Spánar mætir CARLES PUYOL Mun glíma við Eið Smára Guðjohnsen, samherja sinn hjá Barcelona, á Laugardalsvellinum. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Eftir 94 leiki með enska landsliðinu, þar af 54 sem fyrir- liði, er allt útlit fyrir að landsliðs- ferli David Beckham sé lokið. Beckham tilkynnti eftir HM í sumar að hann ætlaði að hætta sem fyrirliði liðsins en myndi enn gefa kost á sér. Nýr þjálfari, Steve McClaren, valdi svo sinn fyrsta landsliðshóp í gær og var Beck- ham ekki í hópnum. „Ég sagði David að ég hygðist breyta hlutunum og að hann væri ekki í þeim áætlunum sem ég hefði fyrir liðið,“ sagði McClaren. „Hann tók tíðindunum vel og sagð- ist ætla að berjast fyrir sæti sínu. Og það er frábært, ég mun aldrei útiloka að velja hann aftur í liðið.“ John Terry, varnarmaður Chel- sea, er nýr fyrirliði enska lands- liðsins sem mætir Grikkjum í næstu viku. - esá Beckham í kuldanum: Landsliðsferill- inn á enda? Naumt tap fyrir Austurríki Íslenska stúlknalandsliðið í körfubolta tapaði í gær fyrir Austurríki í B-deild Evrópumótsins sem fer fram þessa dagana í Finnlandi. Stúlkurnar töpuðu leiknum, 61-59, eftir að hafa lent átján stigum undir snemma leiks. Þeim tókst þó að rétta úr kútnum og voru nálægt því að vinna leikinn. Var þetta sjötta tap liðsins í jafnmörgum leikjum á mótinu. > Veigar í kappi við tímann Veigar Páll Gunnarsson er nú í kappi við tímann eftir að hafa meiðst á æfingu með liði sínu, Stabæk í Noregi, fyrr í vikunni. Stabæk mætir Lyn á sunnudag og er tvísýnt hvort Veigar, sem meiddist á hálsi, verði klár fyrir leikinn. Læknir liðsins sagði í gær að það væri mögu- legt, bati hans væri það hraður. Annar Íslendingur í Noregi, Kristján Örn Sigurðsson hjá Brann, verður með liðinu á sunnudag en hann meiddist í leik með liðinu ekki fyrir löngu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.