Fréttablaðið - 19.08.2006, Page 2
2 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
LÍBANON, AP Ítölsk stjórnvöld
skuldbundu sig í gær til að leggja
til hermenn í alþjóðaherliðið sem
gæta á vopnahlésins milli Hiz-
bollah og Ísraels í Líbanon, en rétt
eins og flest þau ríki önnur sem
gefið hafa til kynna vilja til að
leggja sitt af mörkum var ekki
nefnt hversu margir ítölsku her-
mennirnir yrðu.
Frakkar, sem höfðu þrýst á um
að nýja alþjóðlega friðargæslulið-
ið yrði miklu fjölmennara en það
2.000 manna UNIFIL-lið sem SÞ
hefur þegar á vettvangi í Líbanon,
ollu sumum vonbrigðum með því
að lýsa því yfir á fimmtudag að
þeir vildu í bili ekki skuldbinda
sig til annars en að senda 200 her-
menn til viðbótar þeim 200 frönsku
UNIFIL-hermönnum sem fyrir
eru.
Ítalir hafa sagt að þeir gætu
sent með skömmum fyrirvara allt
að þrjú þúsund hermenn til að
styrkja raðir UNIFIL. En Romano
Prodi forsætisráðherra sagði í
gær að það yrði ekki ákveðið fyrr
en á næstu dögum hve margir þeir
yrðu.
Illa gengur að koma alþjóða-
herliðinu saman, að hluta til vegna
óljóss orðalags ályktunar SÞ. Í
hernum eiga að vera 15.000 her-
menn frá ýmsum löndum, en þjóð-
ir heims hafa eingöngu lofað um
4.000 hermönnum. Þó er enn gert
ráð fyrir að fyrsti alþjóðlegi liðs-
aukinn fari til Líbanons á næstu
dögum, enda er vopnahléið afar
viðkvæmt.
Fram til þessa hefur Bangladess
boðið fram flesta hermenn, eða
2.000. Malasía býður á bilinu 850
og 1.000. Þjóðverjar og Danir hafa
boðist til að senda herskip á vett-
vang.
Syed Hamid Albar, utanríkis-
ráðherra Malasíu, sem fer nú með
formennsku í stærstu samtökum
múslimaríkja, OIC, lét svo ummælt
í gær að Ísraelar ættu ekki að
gegna neinu hlutverki þegar
kemur að samsetningu alþjóða-
hersins.
„Við verðum á líbanskri grund
[...] Við verðum ekki á ísraelskri
grund,“ sagði Albar. Hann lét þessi
orð falla eftir að fastafulltrúi Ísra-
els hjá Sameinuðu þjóðunum, Dan
Gillerman, lýsti yfir áhyggjum
sínum af því að lönd svo sem Mal-
asía og Indónesía tækju þátt í
alþjóðahernum, því stjórnir þeirra
viðurkenna ekki tilverurétt
Ísraels.
Albar minnti á að Líbanons-
stjórn vill bæði hafa herinn sem
alþjóðlegastan og að múslimaríki
taki þátt í honum.
Samkvæmt vopnahlésályktun
SÞ mun UNIFIL, ásamt 15.000
hermönnum líbanska hersins,
sinna friðargæslu og afvopna
Hizbollah-liðsmenn sunnan Lit-
ani-árinnar. En líbanska ríkis-
stjórnin samþykkti á miðvikudag
að eingöngu bæri að gera vopn
Hizbollah-liða upptæk ef þeir
bæru þau meðal almennings.
Talsmenn Evrópusambands-
ins lýstu því yfir í gær að sam-
bandið myndi taka að sér lykil-
hlutverk í uppbyggingu Líbanons
á ný. - aa / smk@frettabladid.is
LÍBANAR TAKA VIÐ Líbanski herinn hefur tekið við friðargæslu á átakasvæðinu í Líbanon,
en talsmenn Ísraelshers segja herinn hafa dregið sig til baka af tveimur þriðju hlutum þess
landsvæðis sem Ísraelsmenn hernámu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Illa gengur að manna
alþjóðlega gæsluliðið
Erfiðlega gengur að manna alþjóðaher sem ætlað er að tryggja vopnahlé milli Hizbollah og
Ísraels í Líbanon. Ísraelar vilja ekki að í því verði hermenn ríkja sem ekki viðurkenna Ísrael.
Ráðamenn múslimalanda segja að Ísraelar ættu ekki að koma nálægt uppbyggingu hersins.
STJÓRNMÁL Kosning til embættis
formanns Framsóknarflokksins
hefst klukkan hálf tíu í dag og
stendur í klukkustund.
Nýr formaður mun ávarpa
flokksþingið klukkan ellefu. Eftir
það verður kosið til embætta
varaformanns og ritara flokks-
ins.
Áður en kosningarnar hefjast
er stefnt að því að leggja fram
stjórnmálaályktun þingsins til
samþykktar.
Flokksþinginu verður frestað
laust fyrir þrjú í dag og er stefnt
að því að framhaldsþing verði
haldið síðustu helgina í febrúar á
næsta ári. -bþs
Framsóknarflokkurinn:
Forystukjör
fyrir hádegi
LIÐSSÖFNUN SÞ FYRIR LÍBANON
■ Lönd sem boðið hafa áþreifanlega
aðstoð:
FRAKKLAND
forystu og 200 hermenn
BANGLADESS
tvær herdeildir, allt að 2.000 hermenn
MALASÍA
eina herdeild, allt að 1.000 hermenn
INDÓNESÍA
eina herdeild og verkfræðifyrirtæki
NEPAL
eina herdeild
DANMÖRK
minnst tvö skip
ÞÝSKALAND
herskip og landamæragæslu
FINNLAND
allt að 250 friðargæsluliða
Fleiri lönd, þar á meðal Ítalía, hafa lofað
aðstoð, án þess að tilgreina nánar hvernig
hún verður.
Bandaríkin og Bretland munu ekki senda
herlið, en heita aðstoð við skipulagningu.
HEIMILDIR: ERINDREKAR SÞ, BBC FRÉTTASTOFAN
LÖGREGLUMÁL Fimm manns; tvær
konur og þrír karlar, sitja nú í
gæsluvarðhaldi vegna rann-
sóknar lögreglu á tilraun til að
smygla til landsins tæplega
tveimur kílóum af kókaíni 9.
ágúst. Önnur konan er grunuð
um að hafa átt þátt í að skipu-
leggja innflutninginn á fíkniefn-
inu.
Upphaf málsins er það, að par
var handtekið 9. ágúst á Kefla-
víkurflugvelli, en það var að
koma frá Spáni, með viðkomu á
Bretlandi, þar sem það hafði
fengið efnin. Í farangri konunn-
ar fundust tæplega tvö kíló af
kókaíni. Karlinn fór í gegnum
hlið tollgæslunnar en var hand-
tekinn skömmu síðar í flugstöð-
inni. Karl og kona sem hugðust
taka á móti parinu þar voru einn-
ig yfirheyrð af lögreglu, en sleppt
að því loknu. Á næstu dögum
voru svo tveir karlmenn og ein
kona til viðbótar handtekin. Þau
sitja nú öll í gæsluvarðhaldi.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins er önnur stúlkan
rétt innan við tvítugt, en hin eru
öll rúmlega tvítug. Einn úr hópn-
um hefur áður komið við sögu
lögreglu vegna fíkniefnamisferl-
is.
Parið sem fyrst var handtekið
hefur verið úrskurðað í gæslu-
varðhald til 24. ágúst. Hinum
þremur hefur verið gert að sitja
inni fáeinum dögum lengur, þar
sem þau voru handtekin síðar.- jss
KÓKAÍN Rannsókn lögreglu á kókaínsmygli
hefur undið upp á sig og nú sitja fimm
manns í gæsluvarðhaldi.
Fimm manns í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils smygls á kókaíni:
Kona grunuð um að skipu-
leggja stórfellt dópsmygl
MEXÍKÓ, AP Hópur alþjóðlegra eft-
irlitsmanna með forsetakosning-
unum í Mexíkó fer nú fram á að
hvert og eitt greiddra atkvæða
verði endurtalið, en ekki einungis
níu prósent þeirra. Hópurinn
fylgdist með sextíu kjörstöðum af
130.000 og segir talsmaður hóps-
ins að á hverjum einasta þeirra
kjörstaða hafi hópurinn orðið vitni
að annaðhvort atkvæðakaupum
eða þvingunum og afskiptum
stjórnmálamanna og að fleiri hafi
kosið en voru á kjörskrá.
Sigurvegari forsetakosning-
anna sigraði með 0,6 prósenta mun
og krefjast margir í Mexíkó þess
að endurtalning allra atkvæða fari
fram. - kóþ
Alþjóðlegt kosningaeftirlit:
Brögð voru í
tafli í Mexíkó
MARAÞON Vegna álags í tölvukerfi
Reykjavíkurmaraþons Glitnis
þurfti að loka fyrir skráningu í
hlaupið á netinu í fyrrakvöld, en
mikill fjöldi skráninga í Latabæj-
armaraþonið skipti þar mestu. Um
eftirmiðdaginn í gær höfðu 2700
börn ellefu ára og yngri skráð sig
í Latabæjarmaraþonið og var
þröng á þingi í Laugardalshöll þar
sem hlauparar náðu í hlaupagögn.
Rúmlega fimm hundruð starfs-
menn Glitnis höfðu skráð sig í
hlaupið og hlaupa þeir í þágu fjöl-
margra góðgerðarsamtaka, en
samanlögð áheit á starfsmennina
eru komin í yfir tuttugu milljónir
króna. Þar af eru áheit Glitnis um
þrettán milljónir króna, en bank-
inn greiðir þrjú þúsund krónur
fyrir hvern kílómetra sem starfs-
mennirnir hlaupa.
Alls höfðu vel yfir sjö þúsund
manns skráð sig í Reykjavíkur-
maraþonið. Frímann Ari
Ferdinandsson, framkvæmda-
stjóri Reykjavíkurmaraþons
Glitnis, beinir þeim tilmælum til
fólks að leggja í góðri fjarlægð frá
rásmarkinu í Lækjargötu, til
dæmis við Háskóla Íslands. -rsg
Yfir sjö þúsund skráðu sig í Reykjavíkurmaraþon Glitnis sem þreytt verður í dag:
Tölvukerfið stóðst ekki álagið
MÁTAR VERÐLAUNAPALLINN Guðmundur
Andri, sem er sex ára, prófar verðlaunapall
Latabæjarmaraþonsins í Laugardalshöll, en
hann mun hlaupa maraþonið ásamt Ými
yngri bróður sínum.
MÓTMÆLI Alcoa hefur lagt fram
skaðabótakröfur á hendur fjórtán
mótmælendum sem fóru inn á bygg-
ingasvæði álvers fyrirtækisins í
Reyðarfirði síðastliðinn miðvikudag.
Stöðvaðist vinna í átta klukkustundir
vegna aðgerða mótmælenda og
hefur tjón af völdum stöðvunarinnar
verið metið 28,6 milljónir króna. Þá
hefur Alcoa einnig lagt fram 11,3
milljóna króna skaðabótakröfu á
hendur Guðmundi Beck, bónda á
Kollaleiru, en hann fór inn á bygg-
ingasvæði álversins á mánudag.
„Þetta er tilraun Alcoa til að
hefna sín á mér og öðrum andstæð-
ingum þessara athafna,“ segir Guð-
mundur. Hann segir skaðabótakröf-
una fáránlega og er nú að ráðfæra
sig við lögfræðing.
„Þótt vinnustöðvanir hafi þannig
valdið fyrirtækinu nokkru tjóni, er
mest um vert að enginn hefur slas-
ast í mótmælaaðgerðum gegn fyrir-
tækinu,“ segir Erna Indriðadóttir,
upplýsingafulltrúi Alcoa. - öhö
Alcoa höfðar skaðabótamál:
Tjónið nemur
40 milljónum
SPURNING DAGSINS
Steinunn, er kjarnakljúfur í
borgarráði?
„Það eru allavega einhverjir klofnir í
borgarráði.“
Meirihluti borgarráðs samþykkti í fyrradag að
kljúfa menntaráð og stofna nýtt leikskólaráð.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir er fulltrúi Sam-
fylkingarinnar í borgarráði.
ÖRYGGISMÁL Kínverskir verka-
menn sem gengu niður steyptan
stífluvegg á Kárahnjúkum í vik-
unni áttu að vera í öryggislínu á
meðan en voru það ekki. Þeir settu
línuna á sig þegar þeir voru komn-
ir niður.
Harald B. Alfreðsson, öryggis-
stjóri á Kárahnjúkum, segir að
mennirnir eigi að vera með línu en
það sé „eilíf barátta að halda
öryggismálum að mönnum. Þetta
er eitthvað sem við þurfum að
taka betur á núna.“ - ghs
Öryggismál á Kárahnjúkum:
Notuðu ekki
öryggislínu
ENGIN ÖRYGGISLÍNA Athygli vakti að þessir
menn nota ekki öryggislínu meðan þeir
flytja sig milli staða á stífluvegg Kára-
hnjúkavirkjunar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM