Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 10
10 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, gagnrýnir vaxta-
ákvörðun Seðlabankans og telur
að bankinn sé ekki í takt við þróun
efnahagslífsins í landinu. Síðustu
tvær vaxtaákvarðanir Seðlabank-
ans geta orðið verðbólguhvetjandi
þegar frá líður, að mati Vilhjálms.
Ákvörðun Seðlabankans mætir
gagnrýni í þjóðfélaginu. Vilhjálm-
ur telur að öll teikn séu á lofti um
að samkomulag aðila vinnumark-
aðarins hafi haft tilætluð áhrif.
Hægt hafi á fasteignamarkaði og
verðbólgan hafi lækkað, fram-
kvæmdir séu að dragast saman og
draga fari úr eftirspurn eftir
vinnuafli.
Vilhjálmur telur að Seðlabank-
inn hafi mislesið vinnumarkaðinn
og fasteignamarkaðinn í sumar.
Bankinn hafi gert ráð fyrir aukn-
um íbúðaframkvæmdum á næsta
ári sem sé af og frá. Þá hafi hann
gert ráð fyrir launaskriði en fyrir-
tækin hafi passað sig. „Þetta þýðir
að Seðlabankinn hækkar vexti á
sama tíma og niðursveiflan er
komin í gang. Vandinn er sá að
bankinn magnar upp verðbólguna
ef hann er ekki búinn að lækka
vexti þegar hagkerfið fer upp á
við á næsta ári,“ segir Vilhjálmur.
„Við höfðum séð fyrir okkur að
það væri komið ágætis jafnvægi í
efnahagslífið um mitt næsta ár.
Við værum þá að gera kjarasamn-
inga til lengri tíma, byggja upp
kaupmátt og sækja fram á nýjan
leik,“ segir hann.
Hagkerfið hefur hins vegar
brugðist hraðar við. „Við reiknuð-
um með að verðhækkanir á þriðja
ársfjórðungi gætu verið 3,7 pró-
sent en hækkunin var svo lítil í
júlí að verðhækkanir mega fara
yfir þrjú prósent í haust til að
vera innan við markmiðið. Svo
virðist hægja fyrr á fasteigna-
markaði þannig að stöðugleiki
gæti komist fyrr á. Árangurinn er
því betri.“
Sigríður I. Ingadóttir, hagfræð-
ingur hjá Alþýðusambandinu,
telur að túlka megi vaxtahækkun-
ina þannig að Seðlabankinn treysti
því ekki að samkomulag ASÍ og
SA frá því í sumar hafi tilætluð
áhrif. „Það er í okkar augum mjög
alvarlegt. Þetta samkomulag sner-
ist um að allir legðust á sömu
sveif,“ segir hún.
„Þetta mun valda því að á næsta
ári verði lendingin í hagkerfinu
harðari en annars hefði verið. Það
mun leiða til minni hagvaxtar,
meira atvinnuleysis og rýrnunar
kaupmáttar.“ ghs@frettabladid.is
VILHJÁLMUR
EGILSSON, FRAM-
KVÆMDASTJÓRI SA
SIGRÍÐUR I. INGA-
DÓTTIR, HAGFRÆÐ-
INGUR HJÁ ASÍ
Vaxtahækkanir
valda verðbólgu
Niðursveiflan verður ekki langvarandi segir fram-
kvæmdastjóri SA. Þó getur baráttan við verðbólgu
orðið erfiðari vegna vaxtahækkana Seðlabankans.
LUNDÚNIR, AP Fjölmargir samþing-
menn John Prescotts, sem fer
með æðstu völd á Bretlandseyj-
um í fjarveru Tonys Blair, lýstu í
gær yfir stuðningi sínum við
meint ummæli hans um George
W. Bush. Prescott sjálfur, sem er
varaforsætisráðherra Bretlands,
virðist ekki sjá eftir ummælun-
um þrátt fyrir að hafa reynt fyrr
í vikunni að sverja þau af sér.
Í gær mun hann hafa látið þau
orð falla að áttatíu prósent þing-
mannanna væru honum hvort
sem er sammála um Bush og því
væri það „kjaftæði“ að hann ætti
að segja af sér.
Nú þrýsta samflokksmenn á
varaforsætisráðherrann að gang-
ast opinberlega við ummælunum
til að sýna að Verkamannaflokk-
urinn hafi enn sjálfstæða stefnu
í utanríkismálum.
Fyrr í vikunni hafði breska
blaðið Independent eftir Prescott,
að stefna Bandaríkjastjórnar í
Mið-Austurlöndum væri „algjört
rugl“.
Einnig á Prescott að hafa líkt
George W. Bush við „kúreka með
Stetson-hatt“ sem væri „of mikill
einfeldningur“ til að ná árangri.
Tony Snow, talsmaður Hvíta
hússins, gerði lítið úr ummælun-
um. „Bush hefur verið uppnefnd-
ur á verri máta, og verður það
líklega enn um sinn.“
- kóþ
Ummæli John Prescotts um stefnu George W. Bush:
Samþingmenn eru
sammála PrescottSERBÍA Serbneska lögreglan hefur brugðið á sérstætt ráð til auka tekjurnar.
Nú er hægt að leigja sér
serbneskan lögregluþjón, sem og
tæki og tól lögreglunnar. Þetta
kemur fram á fréttavef norska
blaðsins Aftenposten.
Verðlaginu er haldið í hófi, því
þjónusta serbnesks lögregluþjóns
kostar um 306 íslenskar krónur á
klukkustund, en ef maður vill bara
leigja sér einkennisbúning lög-
reglunnar þá kostar það rúmar
1.100 krónur á dag. Þyrla kostar á
milli 45.000 og 145.000 krónur á
tímann, eftir því hvaða þyrluteg-
und er valin.
Innanríkisráðuneytið ætlar sér
að fylgjast grannt með leigustarf-
seminni, til að koma í veg fyrir
misnotkun. - smk
Serbneska lögreglan:
Býðst til leigu
gegn gjaldi
SVEITARSTJÓRNARMÁL Meirihluti
bæjarstjórnar Ísafjarðar hafnaði
því að ræða mál sem minnihluti-
hluti bæjarstjórnar hafði lagt fyrir
bæjarstjórnarfund í vikunni. Engin
mál voru því á dagskrá fundarins, í
fyrsta skipti í sögu bæjarstjórnar
Ísafjarðar. Sigurður Pétursson,
bæjarfulltrúi minnihlutans, segir
málið skrípaleik.
Sigurður segir minnihlutann
hafa viljað ræða mál sem varða
starfshætti og samninga við verk-
taka og fór fram á að fá stefnumót-
andi umræðu um þessi málefni.
Ingi Þór Ágústsson, starfandi for-
seti bæjarstjórnar, tók við fyrir-
spurnunum en sagði að þær hefðu
borist of seint og því þyrfti aukinn
meirihluti bæjarfulltrúa að sam-
þykkja að þær yrðu teknar á dag-
skrá. Meirihluti bæjarstjórnar
veitti ekki það samþykki og úrskurð-
aði forseti þá að engin dagskrármál
lægju fyrir.
Sigurður segir þetta ekki gott
upphaf á nýju kjörtímabili og lofi
ekki góðu um samstarfið á kjör-
tímabilinu.
Ingi Þór Ágústston, starfandi
forseti bæjarstjórnar, telur þau mál
sem fyrir fundinum lágu ekki vera
ágreiningsmál og geti því beðið
fram að fyrsta formlega fundi bæj-
arstjórnar sem boðaður er 7. sept-
ember. - hs
Öllum málefnum Í-listans í bæjarstjórn Ísafjarðar vísað frá bæjarstjórnarfundi:
Engin mál á dagskrá
ÁGREININGUR Á ÍSAFIRÐI Minnihluti bæjar-
stjórnar gagnrýnir vinnbrögð meirihluta.
DREGUR ÚR ÞENSLU Vilhjálmur Egilsson bendir á að hægt hafi á byggingaframkvæmdum.
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað heitir fríblað dótturfélags Dagsbrúnar sem út mun koma í
Danmörku?
2 Hver er stjórnandi nýs skemmti-þáttar á Stöð 2 sem ber nafnið Í
sjöunda himni?
3 Frá hvaða landi er tvö hundruð manna sendinefnd sem komin er til
landsins?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66
BÍLVELTA Rúmlega sextug kona
missti stjórn á jeppabifreið sem
hún ók austur Uxahryggjarleið
um tíu leytið í gærmorgun, með
þeim afleiðingum að jeppinn valt.
Konan meiddist lítillega en
gerði sjálf lögreglu viðvart. Konan
var ein í bílnum og ók eftir malar-
vegi þegar hún missti stjórn á bif-
reiðinni.
Sjúkrabíll flutti konuna á
heilsugæsluna í Borgarnesi. Þar
var gert að sárum hennar og var
hún útskrifuð af slysadeildinni
upp úr hádeginu í gær.
Vegurinn sem hún ók liggur á
milli Lundarreykjardals og Þing-
vallasvæðisins. - æþe
Bílvelta á Uxahryggjarleið:
Slapp án telj-
andi meiðsla