Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 12
 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR12 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.661 +1,87% Fjöldi viðskipta: 445 Velta: 8.220 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,60 +1,41% ... Alfesca 4,35 +3,33% ... Atlantic Petroleum 549,00 +0,00% ... Atorka 6,00 +0,84% ... Avion 32,50 +0,00% ... Bakkavör 51,7 +0,98% ... Dagsbrún 4,98 +4,18% ... FL Group 17,00 +1,19% ... Glitnir 18,60 +2,76% ... KB banki 762,00 +2,56% ... Landsbankinn 23,10 +1,76% ... Marel 80,50 +0,63% ... Mosaic Fashions 17,10 +0,59% ... Straumur-Burðarás 15,80 +0,00% ... Össur 115,50 +0,87% MESTA HÆKKUN Dagsbrún +4,18% Alfesca + 3,331% Glitnir +2,76% MESTA LÆKKUN Flaga -1,25% Skypegróði í Nyhedsavisen Greint er frá því í viðskiptablaðinu Børsen að Morten Lund, einn stofnenda Skype sem í fyrra áskotnaðist um milljarður króna þegar hann seldi hlut sinn þar, sé meðal fjárfesta sem taka ætli þátt í að hleypa Nyhedsavis- en, dönsku útgáfu Fréttablaðsins, af stokkunum. „Ég hef mikla trú á þessu fyrirtæki og finnst spennandi að taka þátt í endurnýjun í umhverfi rótgróinna hefða í danskri blaðaútgáfu,“ sagði Morten við Bør- sen og kvað þar ekki síst spila inn í löngunin til að koma á fót blaði sem væri pólitískt óháð. Áður hefur komið fram að Morten og félagi hans úr Skype ævintýrinu, Søren Kenner, hafi tekið að sér að sjá um netútgáfu Nyhedsavisen. Valdamikill blaðamaður Enn af Nyhedsavisen. Danskir fjölmiðlar hafa túlkað þá yfirlýsingu Dagsbrúnar að til standi að stofna sérstakan sjóð um útgáfu fríblaðsins Nyhedsavisen sem vísbendingu um að blaðið sé andvana fætt. Berlingske Tidende birti frétt í gær sem dönum þótti endanlega færa sönnur á þá kenningu. Greint var frá vörubílstjóra nokkrum sem fékk það verkefni að flytja splunkuný skrifstofu- húsgögn í höfuðstöðvar Nyhedsavisen í miðborg Kaupmannahafnar. Þegar þangað kom mætti bílstjórinn einum blaða- manna Nyhedsavisen, sem ráðlagði honum að snúa við í snarhasti. „Farðu bara heim. Við þurfum engin húsgögn, blaðið á aldrei eftir að koma út,“ á blaðamaðurinn að hafa sagt. Ljóst er að viðkom- andi blaðamaður hlýtur að hafa óvenjulega mikil völd innan fyrirtækisins. Nema þetta hafi verið Gunnar Smári Egilsson sjálfur. Gamli blaðamaðurinn. Peningaskápurinn... MARKAÐSPUNKTAR Seðlabanki Kína hækkaði stýrivexti óvænt um 27 punkta í gær. Í rökstuðn- ingi bankans segir að markmiðið sé að draga úr lántökum og áhættusömum fjárfestingum sem geti raskað stöðug- leika efnahagslífsins í Kína. Avion Group hefur gert samning um kaup á fimm prósentum hlutafjár í ástr- alsk-asíska flugrekstrarfélaginu Advent Air. Kaupverð er tvö hundruð milljónir króna. Hagnaður bandarísku fatakeðjunnar GAP dróst saman á öðrum ársfjórðungi um 53 prósent á milli ára. Helsta ástæð- an er minni sala og harðari samkeppni frá fyrirtækjum sem selja svipaðar vörur. Sir Tom Hunter, ríkasti maður Skotlands, ætlar að taka þátt í yfirtökunni á House of Fraser (HoF) með því að leggja fram tíu pró- senta hlut að sögn skoska blaðsins The Herald. Hunt- er hefur oft unnið með Jóni Ásgeiri, forstjóra Baugs og reyndi meðal annars að taka HOF yfir árið 2002 með fulltingi Baugs. Aðrir í fjárfestahópnum verða Baugur, FL Group, Don McCarthy, Kevin Stanford og HBOS eins og áður hefur komið fram. Stanford, sem er hluthafi í Baugi, tekur svipaðan hlut og Hunter. Búist er við að tilboð upp á 47 milljarða króna verði lagt fram á allra næstu dögum en áreiðanleikakönnun vegna kaupanna hefur staðið í nokkrar vikur. - eþa Tom Hunter með í HoF SIR TOM HUNTER Hagnaður Opinna kerfa Group nam 46,1 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Er það tæplega helmings samdráttur frá sama tímabili í fyrra þegar hagn- aðurinn nam 86 milljónum króna. Félagið tapaði sextán milljónum króna á öðrum ársfjórðungi. Heildarvelta var 6,45 milljarð- ar króna og jókst um tæpar átta hundruð milljónir króna sé miðað við fyrri helming ársins 2005. Opin kerfi Group samanstend- ur af móðurfélaginu, tveimur eignarhaldsfélögum og þremur rekstrarfélögum; á Íslandi, í Sví- þjóð og í Danmörku. Hjá fyrirtæk- inu starfa 450 manns. - jsk Minni hagnaður OKG Hagnaður Icelandic Group nam 223 milljónum króna á fyrri helm- ingi árs en hagnaður annars árs- fjórðungs nam 125 milljónum króna. Björgólfur Jóhannsson, for- stjóri Icelandic Group, segir afkomuna undir markmiðum stjórnenda félagsins. Miklar verðhækkanir á hráefni hafi skil- að sér í slælegri afkomu hjá ein- ingum félagsins í Bretlandi, Frakklandi og í Bandaríkjunum. „Þetta var óásættanleg niður- staða,“ segir Björgólfur. Nokkrar breytingar eru fyrir- hugaðar í rekstri þeirra eininga Icelandic Group sem skiluðu óviðunandi afkomu. Meðal ann- ars verður frystisvið flutt frá Grimsby í Bretlandi til Wimille í Frakklandi í haust. Þá munu verð- hækkanir á afurðum Icelandic Group skila sér inn í afkomutölur félagsins síðar á árinu og er búist við að það skili sér í um fimm milljarða króna rekstrarhagnaði (EBITDA) á árinu. - jab Afkoma IG óásættanleg Stór fyrirtæki þrýsta á um sameiningu Kaup- hallar Íslands og OMX kauphallarinnar, en í gangi eru viðræður þeirra á milli. Krónan og smæð Kauphallarinnar eru sögð fyrirtækjum fjötur um fót og fæla frá erlenda fjárfesta. Forsvarsmenn nokkurra stórra fyrirtækja í Kauphöll Íslands hafa áhyggjur af hvert stefni í málefn- um Kauphallarinnar og telja nauð- synlegt að samstarf eða samruni náist við erlenda kauphöll auk þess sem skrá þurfi hlutabréf þessara félaga í erlendri mynt. Öðrum kosti er þessum félögum gert mun erfiðara fyrir að laða að sér erlent fjármagn og vangaveltur uppi um hvort þau séu ekki betur komin með skráningu annars staðar. Árni Oddur Þórðarson, stjórn- arformaður Marels, segir ríða á að fyrirtæki fái til sín erlenda fjár- festa. Hann ræddi stöðuna á hlut- hafafundi félagsins í gærmorgun. „Við fylgjumst mjög spennt með hugmyndum um samstarf Kaup- hallarinnar á Íslandi og OMX kauphallarinnar, sem í eru kaup- hallir Norðurlanda og Eystrasalts- ríkja. Við hér hjá Marel skorum á þessi félög að enda viðræður sínar með fullum samruna,“ segir hann. Eftir samruna segir Árni Oddur einu hindrunina sem eftir sé í vegi erlendra fjárfesta vera krónuna. „Verði af samrunanum þá mun stjórn Marels taka til alvarlegrar skoðunar að breyta hlutabréfum félagsins úr krónum í evrur,“ segir hann og bætir við að beinast liggi við fyrir félög sem séu með meiri- hluta tekna sinna í erlendri mynt að taka upp og breyta bréfum sínum í evrur, enda væri óhentugt að vera með mjög marga gjald- miðla í gangi í Kauphöllinni í stað krónu. Þarna eru félög á borð við Actavis, Bakkavör, Marel og Össur og sennilega bankarnir líka, sem eru með verulegan hluta tekna sinna í erlendum myntum.“ Jón Sigurðsson, forstjóri Öss- urar, segir fyrirtækið verða vart við mikinn áhuga fjárfesta á Öss- urarbréfum, enda sé tæplega helmingur bréfa félagsins í hönd- um erlendra fjárfesta. „Það sem er mjög neikvætt við Össur er að félagið er skráð í krónum, íslenska krónan er fjötur um fót þegar kemur að erlendum fjárfesting- um,“ segir hann og bendir á að allar tekjur Össurar séu í erlend- um gjaldeyri og öll lán líka. „Við notum krónuna í raun ekki í annað en skráningu bréfa fyrirtækisins og það er ekki gott.“ Hann segir ljóst að ef af sameiningu Kaup- hallarinnar og OMX verði ekki þá hlaupi þróunin frá íslenskum hlutabréfamarkaði. „Og fyrirtæki fara bara að fara til annarra landa,“ segir hann. „Við lítum á það sem rökrétt skref að taka upp skráningu í erlendri mynt.“ Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir tilkynn- ingu hafa verið gefna út um nán- ara samstarf við OMX, en þar sé innifalinn möguleiki á sameiningu. „Við höfum einnig ákveðið að vinna þetta hratt og fá niðurstöðu fljótt. Þessar viðræður ganga ein- faldlega eftir áætlun,“ segir hann, en bætir um leið við að sá mögu- leiki sé fyrir hendi að félög skrái bréf sín í erlendri mynt, óski þau þess. Hann segir fleiri hluti standa í vegi erlendra fjárfesta og unnið sé að því að sníða af agnúa sem fælt geti þá frá. olikr@frettabladid.is ÁRNI ODDUR ÞÓRÐARSON Árni Oddur, sem er stjórnarformaður Marels, hélt ræðu við upphaf hluthafafundar í gærmorgun. Þar hvatti hann til þess að Kauphöll Íslands og OMX kauphöllin sameinuðust sem allra fyrst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vilja sameiningu Kaup- hallar Íslands og OMX Úrvalsvísitalan hækkaði um 5,3 prósent í mikilli veltu í vikunni og stóð í 5.661 stigi við lok markaða á föstudaginn. Fjármálasérfræð- ingar segja að innkoma lífeyris- sjóða hafi haft mikil áhrif og hrif- ið aðra fjárfesta með sér. „Við höfum almennt á árinu verið að draga aðeins saman seglin í hluta- bréfunum en höfum verið að koma inn sem kaupendur á síð- ustu dögum,“ segir Árni Guð- mundsson, framkvæmdastjóri hjá Gildi lífeyrissjóði. Ýmislegt gefur til kynna að dregið hafi úr hraðanum í hag- kerfinu og fjárfestar geti komið rólegri inn á markaðinn að sögn sérfræðinga. Styrking krónunnar frá því í byrjun júlí gefi, vegna aukinnar krónubréfaútgáfu, væntingar um að verulega muni draga úr verðbólgu á næstu mán- uðum. Einnig töldu margir að kauptækifæri hefðu myndast í bréfum fjármálafyrirtækja eftir hálfs árs uppgjör þeirra. Þótt bjartsýni sé meiri meðal fjárfesta er óvissa um framhald- ið. Það velti mikið á því hvort útgefendur þeirra krónubréfa, sem koma til gjalddaga í sept- ember, framlengi bréfin eða krefjist greiðslu sem geti valdið gengislækkun krónu. Um 40 millj- arðar koma til greiðslu í septemb- er. Fjármálafyrirtækin leiddu hækkanir á hlutabréfamarkaði í vikunni. Hlutabréf í Landsbank- anum hækkuðu um tíu prósent, um 8,4 prósent í KB banka og 5,7 prósent í Glitni banka. - eþa Hlutabréf hækka Lífeyrissjóðir koma inn á markaðinn á nýjan leik. „Stofnanaskipan skattkerfisins og verkaskipting milli þess og aðila sem vinna að tengdum málum hefur verið að mestu óbreytt áratugum saman. Hún reyndist vel á sínum tíma en hæfir ekki núverandi aðstæðum,“ segir Indriði H. Þorláksson ríkis- skattstjóri í leiðara nýjasta hefti Tíundar, fréttabréfs RSK. Indriði, sem lætur af störfum í lok næsta mánaðar, segir að þótt ýmislegt hafi unnist á umliðnum árum sé margt enn ógert til að gera skattastjórnsýslu hér vel úr garði. „Styrkja þarf fram- kvæmdaþátt skattalöggjafarinn- ar þannig að skattastjórnsýslan hafi í höndum þau verkfæri sem nauðsynleg eru til að efni skatta- laga megi framkvæma með sam- ræmdum hætti og tryggja jafn- ræði.“ Þá segir hann að skapa þurfi skattinum „skipulagslegt sjálf- stæði og svigrúm til að laga sig að síbreytilegum verkefnum og við- horfum.“ Hann segir núverandi skattalöggjöf sniðna að samfélagi í nokkurri efnahagslegri einangr- un með takmörkuð og einföld samskipti við útlönd; alþjóðavæð- ing og breytt siðferðisleg viðhorf hafi skapað nýjar forsendur. - óká INDRIÐI H. ÞORLÁKSSON RÍKISSKATTSTJÓRI Í nýjasta hefti Tíundar, fréttablaðs RSK, fjall- ar ríkisskattstjóri um skattaumhverfið hér á landi og breytingar sem hann telur þörf. Breyta þarf í skattastjórnsýslu HELSTU BREYTINGAR Í VIKUNNI FL Group 10,4% Landsbankinn 10,0% KB banki 8,4% Glitnir 5,7% Össur 5,0% Dagsbrún -8,5% BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON Forstjóri Icelandic Group segir afkomu félagsins óásættanlega en býst við betri afkomu í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.