Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 18
19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri
Dagsbrúnar, stendur í ströngu
þessa dagana. Fyrirtækið sem
hann stýrir tapaði einum og hálf-
um milljarði á fyrri helmingi
þessa árs og danskir blaðaútgef-
endur hafa brugðist hart og snöggt
við áformum hans um að gefa út
fríblað í ætt við Fréttablaðið í
Danmörku.
Gunnari Smára er að mestu
eignaður heiðurinn að baki vel-
gegni Fréttablaðsins og ævintýra-
leg velgengni þess hefur gert hann
að milljónamæringi og komið
honum í yfirburðastöðu á íslensk-
um fjölmiðlamarkaði.
Ferill Gunnars Smára í fjöl-
miðlum er
langur og
skrautlegur.
Lengst af var
hann utan-
garðsmaður á
íslenskum
blaðamarkaði
og á heiðurinn
af ófáum götu-
blöðum sem öll
lognuðust út af
eða fóru á
hausinn. Þá
setti Gunnar
Smári Íslands-
met í meið-
yrðadómum
enda aðhylltist
hann harða
götublaða-
mennsku og
eirði engum í
skrifum
sínum.
Gunnar
Smári byrjaði í
blaðamennsku
á Tímanum 22
ára gamall og
hefur verið
með puttana í
blaðaútgáfu
allar götur
síðan. Hann
hefur á ferlin-
um ritstýrt,
auk Frétta-
blaðsins,
Pressunni,
Morgunpóstin-
um, Mánudags-
póstinum, Ein-
taki og síðast
Helgarpóstin-
um. Hann
hætti á Helg-
arpóstinum í
ágúst árið 1995
þegar hann
„slíðraði penn-
ann“ í kveðju-
grein sinni þar
sem hann sagði
skilið við
blaðamennsk-
una. Ári síðar
komst hann í fjárhagslegt þrot og
sat uppi atvinnulaus og útlægur.
Einbeittur vilji Gunnars Smára
til að halda úti ágengum vikublöð-
um og þau skakkaföll sem því
fylgdu lagði hann þó ekki endan-
lega að velli og hann sótti aftur
inn á blaðamarkaðinn árið 1997
með menningartímaritinu Fjölni
sem verður helst minnst fyrir það
að hafa birt lengstu greinar sem
hafa komið fyrir sjónir íslenskra
blaðalesenda.
Fjölnir fjaraði fljótt út en
Gunnar Smári skaut aftur upp
kollinum ári síðar þegar hann var
fenginn til að móta Fókus, viku-
legt fylgirit gamla DV. Þáverandi
eigendur DV, feðgarnir Sveinn
Eyjólfsson og Eyjólfur Sveinsson,
fengu hann síðar til þess að útfæra
hugmynd um ókeypis dagblað sem
yrði borið inn á öll heimili á höfð-
uðborgarsvæðinu og Fréttablaðið
varð að veruleika. Hugmyndin að
baki blaðinu þótti á sínum tíma í
besta falli óðs manns æði og hugn-
aðist Gunnari Smára því vel.
„Stærsti kostur Gunnars Smára er
að hann er fljótur að grípa góðar
hugmyndir á lofti og hann hefur
úthald til þess að láta þær verða
að veruleika,“ segir félagi Gunn-
ars Smára sem hefur sopið nokkr-
ar fjörurnar með honum í útgáfu-
málum.
Fréttablaðið kom fyrst út
árið 2001 og fyrsta útgáfuárið var
að sönnu brösótt en eftir gjaldþrot
og eigendaskipti, náði Fréttablað-
ið flugi og skilaði Gunnari Smára
á þann stað sem hann er á í dag.
Götustrákurinn og ólíkindatólið
sem sat 14 daga í skuldafangelsi
árið 1997 og hafði þá ekki efni á að
kaupa sér „litla kókflösku,“ eins
og hann hefur orðað það sjálfur,
stóð uppi með pálmann í höndun-
um.
Fáir efast um hæfileika Gunn-
ars Smára þegar það kemur að
blaðaútgáfu en þær raddir heyr-
ast hins vegar að hann hafi öðlast
völd umfram getu í viðskiptalífinu
og það muni koma honum í koll í
Danmörku.
„Gunnar Smári er ennþá bara
Gunnar Smári. Það hefur ekkert
breyst,“ segir viðmælandi Frétta-
blaðsins sem er flestum hnútum
kunnur í viðskiptalífinu og bætir
því við að Gunnar Smári hafi sýnt
litla kænsku í innrás sinni á
danskan blaðamarkað með því að
tala of fjálglega og of fljótt um
áform sín. Þannig hafi hann glutr-
að niður því forskoti sem hann
hafði á Íslandi. Hann hafi verið
brautryðjandi á fríblaðamarkaði
hér heima fyrir fimm árum en
muni koma síðastur inn á sama
markað í Danmörku þar sem hann
hann hafi gefið andstæðingum
sínum tíma til að hasla sér völl og
treysta varnirnar.
Sjálfur blæs Gunnar Smári á
allar hrakspár og sagði í Frétta-
blaðinu í vikunni að keppinautarn-
ir í Danaveldi væru: „...í raun ekki
alvöru leikmenn. Það má frekar
líkja þeim við þá sem hlaupa nakt-
ir inn á völlinn til að trufla leik-
inn.“
Þessi viðbrögð eru um margt
lýsandi fyrir Gunnar Smára sem
er gjarn á að gera lítið úr andstæð-
ingum sínum og leggja til fólks
með orðum þannig að undan svíði.
Þeir sem þekkja
Gunnar Smára og
hafa unnið með
honum lengi segja
hann geta verið
jafn leiðinlegan og
hann geti verið
skemmtilegur.
Hann þykir
ákaflega frjór og
skarpur í hugsun
og þegar hann er í
ham, sem gerist
helst þegar hann
verður heltekinn
af tilteknum verk-
efnum, þykir
félagsskapur hans
upplífgandi og eft-
irsóknarverður.
Samstarfsfólk
hans í gegnum tíð-
ina hefur þó einnig
flest fengið að
kynnast skugga-
hliðum hans en
hann getur verið
afundinn, ósveigj-
anlegur og ósann-
gjarn. Þegar þessi
gállinn er á honum
getur hann verið
baneitraður í til-
svörum og þeir
eru ófáir blaða-
mennirnir og við-
skiptafélagarnir
sem hafa í gegnum
tíðina gengið lask-
aðir af velli eftir
snerru við Smár-
ann.
Gunnar Smári
er í eðli sínu braut-
ryðjandi og það
leynir sér ekkert
að hann nýtur sín
best í uppbygg-
ingu, en þegar og
ef hugarfóstur
hans komast á
lygnan sjó er eins
og áhuginn fjari út
og hann snýr sér að
einhverju öðru.
Fréttablaðið er
besta dæmið um
þetta en hann lagði líf og sál í upp-
byggingu blaðsins en eftir sigur-
göngu þess er Ísland ekki lengur
nógu stórt og Gunnar Smári er nú
kominn á kaf í Danmerkurinnrás-
ina.
Þeir sem hafa unnið með Gunn-
ari Smára eru sumir hverjir mátu-
lega hrifnir af þessum þætti í fari
hans og þykjast ekki þekkja hann
fyrir sama manninn eftir að hann
varð viðskiptamógúll og eiga það
til að gantast með að hugsjóna-
maðurinn sé kominn hinum megin
við borðið, að „enfant terrible“
íslenskrar blaðamennsku sé orð-
inn „einn af hinum“.
Þó Gunnar Smári sé vissulega
orðinn uppteknari af afkomutöl-
um en dálksentimetrum er þó ekki
annað að sjá en hann sé enn samur
við sig; kunni illa við sig á lygnum
sjó og þegar hann hafi val um frið
eða ófrið velji hann atið og ræðst
enn jafnan á garðinn þar sem hann
er hæstur.
MAÐUR VIKUNNAR
Uppreisnargjarn blaðamaður
í ólgusjó viðskiptalífsins
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
FORSTJÓRI DAGSBRÚNAR
Hin árlega
menningargrillveisla
Í dag á milli kl. 12 og 15.
Fersk grillað íslenskt
grænmeti á hlaðborði.
Tónlistaratriði með
Greifunum, Spútnik,
Bjargræðiskvartettnum
og Halidrome.
�
��
��
���
��
�
��
ME‹
Í FRÍINU
ÁSKRIFT
LOTTAR‹U
NÚ
lotto.is
Me› LOTTÓ Í ÁSKRIFT
gætir flú líka unni› einn
af 30 stórglæsilegum
aukavinningum
í áskriftarleiknum.
LOTTÓ
ÁSKRIFTAR
LEIKUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
6
3
9
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI