Fréttablaðið - 19.08.2006, Side 19
LAUGARDAGUR 19. ágúst 2006 19
AF NETINU
Hryðjuverkavarnir
Upp úr miðri tuttugustu öld var í tísku
meðal hryðjuverkamanna að ræna flug-
vélum og hóta að myrða bæði farþega og
áhöfn yrði kröfum þeirra ekki mætt. Það
var ekki fyrr en vestræn stjórnvöld tóku
upp þá einörðu stefnu að neita alfarið
að semja við hryðjuverkamenn að voða-
verkamönnum lærðist að þýðingarlaust
er að ræna flugvélum. Það sama á við
nú. Ef vesturlandabúar eru staðfastir í að
láta hryðjuverkamenn ekki breyta lifnað-
arháttum sínum, líka hvað flugsamgöng-
ur varðar, þá munu hryðjuverkamennirn-
ir sjá að gagnslaust er að sprengja upp
flugvélar. En láti menn hins vegar hryðju-
verkaógnina verða til að hefta ferðafrelsi
vesturlandabúa er það eins og að semja
við hryðjuverkamenn og verður aðeins til
að magna ógnina enn frekar.
Eiríkur Bergmann af eirikurbergmann.
hexia.net
Halldór
Ég fer ekkert leynt með það að ég tel t.d.
að Framsóknarflokkurinn með Halldór í
forsæti hafi gengið of langt með því að
krefjast forsætis í ríkisstjórninni að lokn-
um kosningunum 2003. Ég tel að Hall-
dór hafi aldrei náð tökum á forsætinu,
þar réðu mörg mál og einna mest inn-
anflokkserjur innan flokks hans undir lok
formannsferilsins. Innri átök á heima-
slóðum gerðu það að verkum að Fram-
sóknarflokkurinn höndlaði ekki forsætið.
Ég tel þó að fleiri þættir en Halldór einn
hafi ráðið úrslitum um hvernig fór fyrir
stjórnarforsæti flokksins.
Stefán Friðrik Stefánsson af stebbifr.
blogspot.com
Desiree Tullos
Þar er reyndar líka auðvelt að sjá að
Tullos öðlaðist verkfræðigráðu sína fyrir
6 árum en ekki fjórum eins og Viðar
Ólafsson hjá VST. Fyrir fjórum árum lauk
hún hins vegar meistaragráðu og reyndar
má þar líka sjá að hún lauk á síðasta ári
doktorsprófi sem er undarlegt að skildi
fara alveg fram hjá Viðari en að hans
sögn var forvitnast um bakgrunn hennar
vegna hinna „alvarlegu og harðskeyttu
árása“ prófessorsins. Viðar gerir reyndar
líka að umtalsefni að Tullos sé alls ekki
prófessor heldur lektor. Eins og Viðar
hlýtur að vita hafa aðstoðarprófessorar
í Bandaríkjunum jafnan rétt á að kalla
sig prófessor og þeir sem eru fastráðnir
prófessorar.
Dofri Hermannsson af dofri.is
Verðbólga og skattur
Fjármagnstekjuskatturinn er þeim eigin-
leikum gæddur að hann er ekki aðeins
greiddur af tekjum heldur einnig af
engum tekjum og jafnvel hreinu tapi ef
verðbólga er meiri en vaxtakjör á banka-
bókum. Í mikilli verðbólgu leggst skattur-
inn af miklum þunga á sparifjáreigendur.
Eins og dæmin hér að ofan sýna getur
skatturinn verið óendanlega hár og sýna
þau hve kröfunum að hækka skattinn
upp í sama hlutfall og tekjuskatt einstakl-
inga eru óraunhæfar. En á sama tíma
og sparifjáreigendur tapa mjög miklu á
samspili verðbólgu og fjármagnstekju-
skatts hagnast ríkissjóður verulega því
nafnvaxtatekjur hækka verulega og um
leið fjármagnstekjuskatturinn.
Vefþjóðviljinn af andriki.is
K
O
R
T
E
R
.
I
S
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
og Landssambands eldri borgara
er mikið talað um alls konar
umbætur einhvern tímann í fram-
tíðinni. Þetta á við afnám ýmissa
skerðinga og umbætur í vistunar-
málum aldraðra.
Er verið að blekkja eldri borgara?
Það glaðnaði yfir mörgum, þegar
þeir heyrðu að afnema ætti skerð-
ingu á lífeyri almannatrygginga
vegna tekna úr lífeyrissjóði. En
sú gleði stóð ekki lengi. Við athug-
un kom í ljós,að þessi breyting
átti ekki að taka gildi fyrr en
1.janúar 2010. En þetta var birt í
yfirlýsingunni eins og þetta væri
á næsta leiti. Hvers vegna var það
gert? Var vísvitandi verið að
blekkja lífeyrisþega? Það er engu
líkara en svo hafi verið. Og hið
sama er að segja um afnám ýmissa
annarra skerðinga og aðgerðir í
vistunarmálum aldraðra. Þetta á
fyrst og fremst að gerast í fram-
tíðinni og því er alger óvissa um
framkvæmdina. Hún er háð fjár-
veitingum alþingis og þeirra sem
stjórna í framtíðinni.
Engin skerðing á hinum Norður-
löndunum
Á hinum Norðurlöndunum er
ellilífeyrir ekki skertur vegna
tekna úr lífeyrissjóði. Eldri borg-
arar halda óskertum lífeyri frá
almannatryggingum þó þeir hafi
góðan lífeyrir frá lífeyrissjóði.
Enda er það eðlilegt. Lífeyris-
sjóðirnir eru eign þeirra,sem
greitt hafa í lífeyrissjóðina á
starfsævi sinni. Lífeyririnn er
nokkurns konar sparnaður, sem
menn taka síðan út þegar þeir
eldast. Það er fráleitt að hegna
mönnum fyrir þann sparnað með
því að skerða bætur Trygginga-
stofnunar vegna hans. Og það er
einnig fráleitt að skattleggja líf-
eyri úr lífeyrissjóði jafnhátt og
atvinnutekjur þ.e. með 37%
skatti. Það ætti í mesta lagi að
leggja 10% skatt á lífeyrinn en
helst ætti hann að vera skatt-
frjáls.
Skerðing ekki afnumin fyrr en 1. janúar 2010!
UMRÆÐAN
ELDRI BORGARAR
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Jón eða Jóna
Hér er því greinilega á ferðinni frábært
tækifæri fyrir íslenskar til að bera dýrðina
augum og skemmta sér ærlega í leiðinni.
Enda eiga fullorðnir einstaklingar að geta
farið á slíkar skemmtanir ef þeir kjósa
svo.
Það sem kemur á óvart er að ekkert hefur
heyrst frá andmælendum slíkra skemmt-
ana. Í gegnum tíðina hafa ýmsir einstakl-
ingar og félög, líkt og Femínistafélag
Íslands, gagnrýnt harðlega skemmtistaði
sem boðið hafa upp á erótískan dans
kvenna og talið það niðurlægjandi fyrir
konur. Það vekur því furðu að þegar einn
stærsti skemmtistaður landins býður
upp á erótísk dansatriði þar sem margir
ungir karlmenn munu fækka fötum fyrir
framan hundruði kvenna virðist það ekki
ámælisvert.
Ingunn Guðbrandsdóttir af deiglan.
com
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er
tekið á móti efni sem sent er frá Skoð-
anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort
efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.