Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 22

Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 22
22 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR ■ LAUGARDAGUR, 12. ÁGÚST Útsala, útsala! Fórum á útsölulok í Kringlunni. Því miður fann ég engar glæsiflík- ur að spóka mig í en við keyptum föt á krakkana. Ég er alveg hættur að voga mér inn í eina af mínum uppáhaldsfata- verslunum. Þar starfar ofvirkur sölumaður sem ræðst að mér um leið og ég birtist í dyrunum og byrjar að djöflast í mér, tínir fram flíkur sem ég hef engan áhuga á og rausar um verð og gæði. Maðurinn fattar greinilega ekki að ég er þverhaus. Ef einhver held- ur því fram að ég verði að gera eitthvað er alveg pottþétt að ég geri það ekki, hversu mikið sem mig kann að langa til þess. Fórum út að borða í kvöld, Austur Indíafjelagið á Hverfis- götu 56. Frábær staður. ■ SUNNUDAGUR, 13. ÁGÚST Hressandi blóðtökur Fór niður á Ingólfstorg að heilsa upp á þrjá vaska drengi Guðjón, Dagbjart og Gísla sem tóku sig til og hjóluðu kringum landið í fjáröflunarskyni fyrir barnaþorpið sem Spes rekur í Tógó. Þar hitti ég líka gamla góða Villa sem nú er orðinn borgar- stjóri í Reykja- vík. Hann kom fær- andi hendi sem og Guðlaugur frá Orku- veitunni. Mikið vildi ég að einhver álpað- ist til að fela mér að stjórna ein- hverju risafyrirtæki, ég mundi svo sannarlega tappa rösklega af því til mannúðarmála. Það er fátt eins hressandi og blóðtökur fyrir fólk og fyrirtæki. Það vita allir góðir forstjórar og tappa þess vegna óspart af fyrirtækjunum – í eigin vasa. En alveg er það merkilegt að ungir strákar skuli taka það upp hjá sjálfum sér að hjóla hringinn í kringum landið í mótvindi og rign- ingu til styrktar fátækum börnum í landi sem þeir hafa aldrei komið til. Svona ungmenni eru dáldið spes. Greinilega mannsefni. ■ MÁNUDAGUR, 14. ÁGÚST Sjúkrasaga dýra Loksins komum við því í verk að fara til Dagfinns dýralæknis með kettina okkar. Aladín vegna eyrna- meiðsla sem hann varð fyrir í næt- urlífinu og Alíbaba vegna orma- hreinsunar og almenns eftirlits, þeir eru 12 og 14 ára feðgarnir, farnir að reskjast. Faðirinn Aladín er reyndar snöggt um hressari en sonurinn og ákaflega skemmtanasjúkur og reynir að laumast út á kvöldin. Fyrir nokkru kom hann heim alblóðugur með annað eyrað lafandi. Ég reyndi að sótthreinsa sárið og vonaði að það mundi gróa. En það hefst illa við. Alíbaba er hins vegar var- færinn og forðast meira að segja börn eins og pestina; þrátt fyrir varkárnina lenti hann þó í umferð- arslysi fyrir nokkrum árum og þar fuku nokkur líf af þessum níu. Hann fótbrotnaði og var settur í gifs sem hann nagaði síðan af sér um leið og hann kom heim af spítalanum. Hjá dýralækninum var þykkildi skorið úr eyranu á Aladín og sárið saumað saman. Hann bar sig nokk- uð vel en sendi mér ásakandi augna- ráð, hélt greini- lega að dýra- læknirinn væri böðull sem ég hefði leigt til að pína hann mér til skemmtunar. Alíbaba fékk ormahreinsun og gigtarmeðal því að okkur sýnist hann vera nokkuð hrumur í göngulagi, en mér sýndist hann ekki þurfa á gigtarlyfjum að halda þegar ég reyndi að handsama hann til að troða í hann pillunni við heimkom- una. Hjá dýralækninum sá ég að auglýstar voru líkkistur handa gæludýrum. Nú ætti einhver fram- sýnn aðili að setja upp útfarar- stofu og bjóða upp á alvöru jarðar- farir með tónlist, minningarræðu og góðri erfidrykkju. Ég er feginn að sjá það í frétt- um að löggan segir að drykkju- skapur tengist ekki frekar mið- borginni en öðrum hverfum. Það hefur stórlega dregið úr því að fólk flykkist í miðborgina til að drekka frá sér ráð og rænu enda er bæði fyrirhafnarminna og ódýr- ara að gera það heima hjá sér. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 15. ÁGÚST Kæfubelgur eða „smoothie“? Það er líf og fjör núna hjá Fram- sóknarflokknum, margir fram- bjóðendur í hvert embætti. Svona á þetta að vera. Í fyrstunni var ég hræddur um að þetta yrði eins og þegar gömlu Sovétríkin voru að liðast sundur, þá var stillt upp þeim forngripum sem lifað höfðu af flestar hreinsanir og þeir svo sjálfkjörnir með 101% atkvæða. Það var ekki lífvæn- legt fyrirkomulag. En núna er sem sagt fjör í Framsókn, margir góðir frambjóðendur og úr nógu að velja eins og á velheppnaðri búnaðar- sýningu. Nú er það spurning hvort Framsóknarflokk- urinn er kæfubelgur eða „smoothie“. ■ MIÐVIKUDAGUR, 16. ÁGÚST Biksvartur dagur Yfirleitt finnst mér tíminn undra- fljótur að líða. En stundum koma dagar sem mér finnast óyfirstíg- anlegir strax á morgnana, dagar sem aldrei ætla að taka enda. Slík- ur dagur var dagurinn í dag. Án nokkurrar sýnilegrar ástæðu. Á svona degi er það mikið lán fyrir þjóðina að ég skuli ekki vera í ábyrgðarhlutverki. Mér er sama um allt, finnst allt innantómt og fánýtt. Ef ég væri seðlabanka- stjóri myndi ég fella niður alla vexti næsta árið og panta bílfarm af fimmþúsund köllum handa hverjum landsmanna. Svo mundi ég taka símann úr sambandi. Ég hef heyrt fólk tala um að það sé blúsað, undirlagt af ein- hverri blámatilfinningu. Mín tilfinning er ekki blá, hún er kolbikasvört. Engin tónlist getur lýst þessari tilfinningu, allrasíst jazz; næst væri sennilega hægt að komast með því að spila Sögusinfóníu Jóns Leifs á gamlan grammifón við undirleik breima katta og blikk- smiðju. En svo hljóðnar skark- alinn í höfðinu á mér og biksvartur dagurinn breyt- ist í blúsað kvöld og mér finnst ég sjá grilla í nýjan og glaðan morgun gegnum kristalstært myrkur sumarnæturinnar. Nýr morgunn sem lofar nýjum og betri degi. ■ FIMMTUDAGUR, 17. ÁGÚST Skáldið frá Krít Það fór eins og mig grunaði. Dagurinn í dag var skárri en dagurinn í gær, enda gat varla annað verið. Svona svartnætti hvolfist yfir mig alltaf annað veif- ið og þá get ég lítið annað gert en halda áfram að bryðja lyfin mín og vona að upp birti um síðir. Mér til hugarhægðar er ég að lesa ævisögu Krítverjans mikla, Nikos Kazantzakis, þess sem fræg- astur er fyrir að hafa skrifað „Grikkinn Zorba“ og „Síðasta freisting Krists“. Kazantzakis segir þessa sögu: Ég sagði við möndlutréð: „Segðu mér frá Guði.“ Og möndlutréð blómstraði. Kazantzakis leitaði að Guði alla ævi sína og fann hann/hana/ það að lokum. Guð er alls staðar. Guð er alheimurinn. Guð er allt sem er. Í ævisögu hans stend- ur: „Nei, maður sem ann- aðhvort vonast eftir himnaríki eða óttast helju getur ekki verið frjáls.“ Áður en hann dó samdi Kazantzakis graf- skrift handa sjálfum sér. Gröf hans stendur uppi á hinu forna Martinengo- virki í Heraklion á eynni Krít. Grafskriftin er svona: Ég vænti einskis. Ég óttast ekkert. Ég er frjáls. Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá útsölum, blóðtökum, mannúðarmálum, heilsufari katta, nýstárlegri útfararþjónustu og hagsýnum drykkjuvenjum. Einnig er fjallað um grundvallarspurn- ingar eins og tilganginn í lífinu og hvort Framsóknarflokkurinn sé kæfubelgur eða „smoothie“. Kæfubelgur eða „smoothie“? Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar Sólarhliðarnar á Stígamótum Á menningarnótt 19. ágúst kl. 17-22 Menningardagskrá Stígamóta verður kærkomin tilbreyting frá hefðbundinni starfsemi í húsinu. Áherslan verður á sólarhliðarnar í samskiptum fólks og allt tal um ofbeldi og svik sem þrífast í skugga samfélagsins verður lagt til hliðar. Gestum og gangandi verður boðið að flytja í stuttu máli uppáhaldstextana sína, syngja eða segja frá eigin reynslu af hlýju, ást, samkennd, kynlífi, fyndni eða vináttu eða bara koma og njóta samverunnar. Dagskrá: Kl. 17.00 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Rósa Ólöf Svavarsdóttir skáldkona Karla Dögg Karlsdóttir frá Stígamótum Anandi Marke jógakennari syngur Kl. 17.30 Orðið er laust Kl. 18.00 Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra Halldóra Halldórsdóttir frá Stígamótum Guðrún Ásmundsdóttir leikkona Anna Scalk Sóleyjardóttir 6 ára Kl. 18.30 Orðið er laust Kl. 19.00 Kolbrún Halldórsdóttir alþingiskona Alma Ágústsdóttir 11 ára Thelma Ásdísardóttir frá Stígamótum Ásta S. Ólafsdóttir leikkona Kl. 19.30 Orðið er laust Kl. 20.00 Þórunn Valdimarsdóttir, Didda skáldkona og Lilja Valdimarsdóttir Erla Karlsdóttir Kolbrún Erna Pétursdóttir leikkona Kl. 20.30 Orðið er laust Kl. 21.00 Erna Ragnarsdóttir, Hrólfur Gestsson og Eva María Hrólfsdóttir Björg G. Gísladóttir frá Stígamótum Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona Kl. 21.30 Orðið er laust Boðið verður upp á svalandi drykki og ávexti. Verið öll hjartanlega velkomin Stígamót við Hlemmtorg, Laugarvegi 115
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.