Fréttablaðið - 19.08.2006, Page 30
BG: Kristinn H. Gunnarsson hefur verið
umdeildur í flokknum eins og alkunna er
og ekki átt upp á pallborðið hjá forust-
unni. Ef Jón verður formaður er ekki lík-
legt að mikil breyting verði þar á því
sökum þess að sama fólkið mun að veru-
legu leyti vera áfram áhrifamikið í
flokknum, fólk sem ekki kann að meta
stíl Kristins.
JH: Kristinn er í erfiðri stöðu innan flokks-
ins en það er búið að
reyna einu sinni að
reka hann á dyr og
það tókst ekki og
það verður tæpast
reynt aftur. Sam-
band hans og Sivjar
hefur verið ágætt og
hvort sem Siv eða
Jón vinnur munu
þau hvorugt fara
gegn Kristni.
BG: Halldór Ásgrímsson. Sumir ganga svo
langt að segja að Jón sé beinlínis fulltrúi
Halldórs í formannskjöri. Þó það sé ef til vill
ofmælt sýnir það hvernig flokksmenn skynja
tengslin milli þessara manna. Halldór mun
því halda áfram að hafa mikil áhrif þótt hann
hætti ef hann á annað borð hefur áhuga á
því.
JH: Halldór getur haft áhrif á sjálfum lands-
fundinum en formleg völd hans verða engin
að honum loknum. Það er hins vegar líklegra
að Jón myndi leita meira til Halldórs eftir
ráðgjöf en Siv myndi gera, hún þarf minna á
fyrrverandi formanni að halda með alla þá
reynslu sem hún hefur að baki.
BG: Hjálmar Árnason
hefur nartað í hæla
Sivjar árum saman í
Reykjaneskjördæmi.
Hann myndi ekki
missa öll áhrif en fjar-
lægjast þau talsvert.
JH: Hjálmar hefur
klárlega verið Hall-
dórsmaður og er Jóns
maður þannig að það
er ekki víst að hann
eigi upp á pallborðið
ef Siv vinnur. Hann hefur auk
þess tekist á við Siv um forystu-
hlutverkið í gamla Reykjanes-
kjördæminu.
BG: Dagný Jónsdóttir hefur með afger-
andi hætti verið í herbúðum Halldórs
og Árna Magnússonar á sínum tíma og
vann sem slík gegn Siv. Það gæti orðið
til þess að Dagný hætti í pólitík fyrir
næstu kosningar.
JH: Dagný er vissu-
lega Jónsmegin en
hún kemur tæpast til
með að gjalda þess þó
Siv vinni. Siv hefur
engan hag af því að
leggja til atlögu við
þá Austfirðinga sem
styðja Dagnýju.
BG: Magnús Stefánsson félags-
málaráðherra hefur reyndar
verið í „Jónsliðinu“ en er líkleg-
ur til að vilja vinna með Siv.
JH: Magnús hefur haldið sig
nokkuð til hlés í átökum innan
flokksins en hefur átt gott sam-
starf við Siv og mun styðja hana
heilshugar.
19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR30
Nýr formaður Framsóknarflokksins verður kjörinn í dag. Valið stendur milli þeirra Sivjar Frið-
leifsdóttur heilbrigðis- og tryggingaráðherra og Jóns Sigurðssonar iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Þó svo að báðir frambjóðendur láti í veðri vaka að allt sé með friði og spekt innan flokksins og
litlu máli skipti hvort þeirra sigri, er ljóst að úrslitin munu ráða talsverðu um pólitíska framtíð
þeirra beggja og ekki síður margra stuðningsmanna þeirra. Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður
fékk tvo valinkunna fjölmiðlamenn, þá Birgi Guðmundsson, lektor við Háskólann á Akureyri,
og Jóhann Hauksson blaðamann, sem báðir þekkja vel til innviða Framsóknarflokksins, til að
velta vöngum yfir áhrifum úrslitanna á hvorn veginn sem fer.
FORMANNSKJÖR Í FRAMSÓKNARFLOKKNUM
Eins dauði er annars brauð
Magnús Stefánsson alþingismaður og formaður fjárlaganefndar
BG: Guðni Ágústsson mun vafalaust styrkja stöðu
sína að því gefnu að hann falli ekki í kosningunni
um varaformannsembættið. Guðni hefur verið
hálf vængstýfður í samstarfi sínu við Halldór og
viljað halda friðinn. Búast má við hann hafi meira
svigrúm ef Siv vinnur og hann komi inn sem
varaformaður sem stóð af sér áhlaup.
JH: Guðni mun styrkjast vegna vinsælda hans á
landsbyggðinni, hann stendur fyrir þessi gömlu
góðu gildi flokksins. Þannig að það kæmi sér best
fyrir hann ef Siv yrði formaður.
BG: Óskar Bergs-
son varaborgar-
fulltrúi hefur verið
stuðningsmaður
Sivjar um langt
árabil og tekið að
sér ýmis trúnaðar-
störf fyrir hana
svo sem að stýra
hálendisnefndinni.
Óskar hefur átt
erfitt uppdráttar í
flokknum vegna
beinskeyttrar
gagnrýni á forust-
una, meðal annars
þegar hann telur
vegið að Siv.
JH: Óskar hefur
stutt Siv opinberlega og mun vafalaust njóta þess
verði hún kjörin formaður. Samt er ekki víst að hann
tapi sérstaklega á því að Jón vinni vegna þess að hann
náði sáttum við Björn Inga í vor og þar með Halldórs-
arminn í flokknum.
BG: Valgerður Sverrsdóttir mun tapa verulegum áhrifum
þótt hún verði áfram áhrifamikill forustumaður. Hún og Siv
hafa eldað saman grátt silfur þó það hafi verið kurteisislegt
á yfirborðinu. Valgerður hefur staðið þétt með Halldóri alla
tíð, líka í að halda Siv niðri og frá áhrifum. Gæti þýtt að
Valgerður drægi sig í hlé fyrir þarnæstu kosningar.
JH: Valgerður mun að mestu halda sínum völdum og áhrif-
um þó svo að hún tilheyri Halldórsarminum og Siv mun
tæpast gera atlögu að henni þó hún verði formaður. Það
væri ekki skynsamlegt af henni og Valgerður nýtur reynsl-
unnar og mun eflaust gera kröfu um ráðherradóm eftir
kosningar verði flokkurinn þátttakandi í ríkisstjórnarsam-
starfi.
Ef Siv vinnur styrkist staða þeirra:
BG: Páll Magnússon, fyrrum
aðstoðarmaður Valgerðar,
mun missa einhver áhrif
þó það verði í minna mæli
en búast hefði mátt við
þar sem hann hefur skipt
um vettvang og virðist
ekki eins áhugasamur
um að hafa áhrif sjálfur.
JH: Páll studdi Siv á
sínum tíma en lenti svo
upp á kant við hana í
átökunum um kven-
félögin í Kópavogi og
hún kann honum
eflaust litlar þakkir
fyrir það.
Ef Jón vinnur styrkist staða þeirra:
BG: Valgerður Sverrisdóttir er einn af helstu stuðn-
ingsmönnum Jóns og hún hefur jafnframt verið
áhrifamikil enda hefur samstarf hennar og Halldórs
Ásgrímssonar verið gott. Verði Jón formaður er
ekki að búast við mikilli breytingu á þessu mynstri
og Valgerður mun áfram verða áhrifamikil.
JH: Valgerður hefur stutt Halldór og það mun
eflaust gagnast henni ef Jón vinnur. En almennt
séð verður hún áfram þungavigtarmanneskja í
flokknum hvernig sem formannskjörið fer.
BG: Björn Ingi Hrafnsson hefur verið áhrifamikill ráðgjafi hjá
Halldóri og margir úr gömlu forustusveitinni hafa trú á Birni
Inga. Þar sem þetta fólk mun áfram njóta skjóls frá Jóni mun
Björn halda áhrifum sínum.
JH: Það er engin spurning að það yrði til hagsbóta fyrir Björn
Inga ef Jón ynni. Hann er augljóslega í stuðningsmannaliði
Jóns enda handgenginn Halldóri Ásgrímssyni til margra ára.
... en staða þeirra veikist:
BG: Hjálmar
Árnason er
líklegur til
að halda
sínum áhrif-
um í flokkn-
um í skjóli
Jóns. Hjálm-
ar hefur
gengið mjög
langt í stuðn-
ingi sínum
við Halldór
og stjórnun-
arstíl hans og tekið að sér að verja
hann í óvinsælum málum, svo sem
Íraksmálinu. Þess mun hann njóta
verði Jón formaður og halda þannig
umtalsverðum áhrifum hvort sem
hann heldur áfram í pólitík eða ekki.
JH: Það væri Hjálmari tvímælalaust
ávinningur innan flokksins fari svo
að Jón verði formaður.
... en staða þeirra veikist:
BG: Guðni Ágústsson, sérstaklega ef
hann verður ekki kosinn varaformaður.
En þótt hann verði kosinn mun hann
áfram verða hálf utanveltu í flokknum.
JH: Ef Guðni verður ekki kosinn vara-
formaður þá er ljóst að þau sjónarmið
sem hann stendur fyrir innan flokksins
hafa orði undir og að sama skapi sjón-
armið Halldórsarmsins orðið ofan á og
þar með segir það sig sjálft að Guðni
mun einangrast í flokknum.
JÓHANN HAUKSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON