Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 39
LAUGARDAGUR 19. ágúst 2006 5
Veiðisumarið
með Stefáni Jóni Hafstein
Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is.
Smáir smálaxar
Það er því miður ekkert óvenju-
legt á þessu sumri að setja í og
landa 3ja punda smálaxi, sumir
geta jafnvel sagt sögur af þeim
miklu minni! Fiskur sem geng-
ur eftir eitt ár í sjó ætti að vera
5-6 pund og helst 7-8 til að slaga
upp í forna frægð Norðurlands.
Upp úr norðlenskri á kom í vik-
unni einn sem mátti kannski
ljúga upp í 3 pund þegar ég var
nærstaddur og ég spurði gagn-
kunnuga hverju sætti. Auðvitað
er bara eitt svar: Harðræði í
hafinu. Þessir smáu smálaxar
sáust strax í vor.
Viðmælendur mínir fyrir
norðan bentu á að smálaxinn
virðist hafa farið smækkandi ár
frá ári að undanförnu. Þessu til
viðbótar virðist nú ljóst að fyrir
öllu Norðurlandi er smálaxa-
brestur, göngur eru mun fálið-
aðri í ár en í fyrra. ,,Auðvitað
var 2005 metár,“ segja menn og
telja líklegt að 2006 endi í með-
altali síðustu 25 ára. En veiðin
dreifist ekki jafnt. Allt frá
Húnaflóa að Skjálfanda vantar
mikið upp á smálaxinn. Til
dæmis má taka Fnjóská. Hún
var með sömu veiðitölu um
mánaðamótin júlí/ágúst og í
fyrra enda gekk talvert af stór-
laxi, sem er snemmgengari en
hinn. Síðan þá hefur sigið á
ógæfuhliðina og veiðin nú næst-
um 100 löxum minni en á sama
tíma í fyrra, vegna þess að smá-
laxinn kemur ekki. Og sá sem
kemur lítur ekki vel út. Ef hann
er ekki beinlínis lítill, þá er
hann mjósleginn. Er loðnan
komin of norðarlega fyrir
hann?
Hvað með bleikjuna?
Mér skilst að víða sé sömu sögu
að segja með sjóbleikjuna. Reynd-
ar ekki í Fnjóská þar sem við-
mælendur mínir segja talsvert af
henni, en á flestum öðrum stöð-
um virðist hún hörfa hratt. Bleikj-
an er kaldsækinn fiskur, sumir
telja hlýnandi veður á liðnum
árum sýni sig í þessu, sjórinn sé
orðinn of hlýr. Sama ástand er
talið vera í nokkrum vötnum
sunnanlands þar sem bleikjan er
sögð á hraðri niðurleið, vatnshiti
sé orðinn of mikill fyrir hana. Það
er sem sagt um nóg að ræða
meðal veiðimanna þegar þeir
setjast niður í veiðihúsum þessa
dagana.
Og fleiri hörfa
Þeir sem vel þekkja til í dýrustu
veiðhúsum landsins segja fleiri
hörfa þessi árin en bara fiskar.
Erlendir veiðimenn sem mest og
best borga verða færri og færri.
Fullyrt er að afföll séu umtals-
verð í ár, og væri ekki fyrir veiði-
gleði íslensku bankamannanna
væri ansi tómlegt í helstu veiði-
húsum landsins nú þegar aðal-
tíminn er að líða undir lok. Ein-
hver ætti að hnýta fluguna
,,Vaxtahækkun“ þessu ástandi til
heiðurs!
Una þreytir lax! Ungar stúlkur gera sig gildandi í veiði nú sem aldrei fyrr, hér er vel að
verki staðið í Selá í Álftafirði.
BJÖRGUNARSVEITIR Á HÁLENDINU
Sprengisandur: Ástand
vega gott og lítið að gera
Nýliðin vika var sú síðasta í verkefn-
inu Björgunarsveitir á hálendinu.
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð var
við hálendisgæslu á Sprengisandi.
„Svæðið nær upp úr Skagafirði,
Eyjafirði og Bárðardal og niður að
Hrauneyjum,“ segir Guðmundur
Rúnar Guðmundsson, formaður
sveitarinnar en hann var á vaktinni
við annan mann.
Helstu ferðamannastaðir á
svæðinu eru Nýidalur og Laugafell en
Guðmundur segir líka mikla örtröð
við Hrauneyjar. „Við erum búnir að
fara svona átta sinnum fram og til
baka á milli Nýjadals og Laugafells og
nokkrum sinnum niður í Hrauneyjar.
Svo reynum við að fara alla slóða
sem við sjáum á korti.“
Þónokkuð af ferðafólki var á
Sprengisandi fram að síðustu helgi
en Guðmundur segir hafa fækkað í
vikunni. „Meirihlutinn eru útlendingar
en það er þó nokkuð af Íslendingum
á mótorhjólum og bílum. Flestir eru
vel búnir þó að einn og einn mætti
vera betur búinn og á bíl sem hentar
þessum vegi. Hér eru nokkrar ár sem
þarf að fara yfir og maður veit aldrei
hvernig veðrið verður.
Fólk ætti ekki að vera á ferðinni
hér nema á sæmilega vel útbúnum
bílum. Svo þarf að skoða árnar áður
en farið er út í þær, sérstaklega ef
ekki er verið á mjög stórum bílum.
Helstu leiðir hér eru greiðfærar, það
er helst á Gæsavatnsleið niður í Öskju
sem fólk þarf að passa sig ef það
er vatn á flæðunum þar. Annars er
ástand vega nokkuð gott, mikið um
þvottabretti en annars gott,“ segir
Guðmundur.
Vikan hefur gengið stórtíðinda-
laust fyrir sig hjá þeim félögum. „Það
er búið að vera ótrúlega lítið að gera.
Við höfum tvisvar hjálpað bílum í
Hagakvíslinni og svo erum við að
leiðbeina mönnum um hvernig á að
keyra yfir vöðin og vísa veginn. Og
aðstoða skálaverði ef einhver þörf
er á því,“ segir Guðmundur sem fór
heim í gær, þegar verkefninu lauk
þetta árið. „Við höfum verið að tala
við skálaverði og ferðafólk og það
eru allir mjög ánægðir með að við
séum hérna uppi og vonast til að við
verðum aftur hérna næsta sumar.
Þetta er líka gott fyrir hinn almenna
björgunarsveitarmann, að komast
hingað til að kynnst hálendinu betur,“
segir Guðmundur að lokum.
- elí
Frá Sprengisandsleið. Ástand vega mun vera nokkuð gott, þrátt fyrir þvottabretti.
LJÓSMYND: KRISTBJÖRN GUNNARSSON
Nú fer hver að verða síðastur
að nýta sér sumaropnun Heim-
ilisiðnaðarsafnsins á Blöndósi.
„Það hefur verið mjög góð aðsókn
að safninu í sumar og aukningin er
greinileg frá ári til árs,“ segir Elín
S. Sigurðardóttir, forstöðumaður
Heimilisiðnaðarsafnsins, þegar
forvitnast er um fjölda heimsókna
að undanförnu. „Það er alveg ljóst
að ánægðir gestir auglýsa safnið,“
bætir hún við. Elín segir sýningu
Steinunnar Sigurðardóttur fata-
hönnuðar hafa vakið verðskuldaða
athygli. „Tenging Steinunnar við
þjóðbúningana sem hér eru hefur
komið mjög vel út og gestir róma
einnig aðrar sýningar safnsins
sem alltaf eru nokkuð breytilegar
á milli ára.“
Nú styttist í að safninu verði
lokað þetta sumarið að sögn Elín-
ar. Það er opið alla daga frá kl. 10
til 17 út ágústmánuð og eftir það
er opið fyrir hópa – lágmark tíu
manns eftir samkomulagi. -gg
Ánægðir gestir
auglýsa safnið
Elín S. Sigurðardóttir forstöðumaður og Ingibjörg Björnsdóttir safnvörður.
MYND/SIGURÐUR JÓHANNESSON
Kjóll úr íslenskri ull sem Hulda Á. Stefáns-
dóttir skólastýra Kvennaskólans á Blönduósi
óf efnið í og saumaði en Steinunn Frímanns-
dóttir spann í hann þráðinn. MYND/GUN
pi
pa
r
/
S
ÍA
Fyrst í fjallið
Þú ert í forgangi hjá Avis
Bílaleigubíll í Þýskalandi
Vika á flokk I Opel Vectra station eða sambærilegum bíl 333 Evrur.
Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur, kaskó og
þjófatrygging, flugvallargjald og skattar.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI