Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 41

Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 41
LAUGARDAGUR 19. ágúst 2006 7 Í júlí verða fáanlegar sérstak- ar sumarvörur í Verbena línu L´Occitane sem framleiddar eru í takmörkuðu upplagi. Vörur þessar anga af hressleika sumarsins en þær eru úr lífræn- um verbena ekstrakt, sítrónum frá Sikiley og ítölskum greip- ávöxtum. Í línunni er hægt að fá hand- og líkamssápu sem er sér- lega falleg því hún er í laginu eins og sítrónulauf, ferðailmkerti sem fælir burt flugur, sturtugel og ilm- vatn. Gulur er litur allra þessara vara og minna þær því óneitan- lega á sól og sumar. Sítrusilmur er líka talinn hafa hressandi hughrif og því ilmar maður ekki bara vel af þessum vörum, heldur líður einnig vel með sítruslyktina í vit- unum. Með hausttískunni í ár er horfið til nokkuð lágstemmdari litbrigða en ríkt hafa í sumar. Eftir litríkt sumar, þar sem ólíkleg- ustu litum, mynstrum og fatasam- setningu hefur verið blandað saman, tekur við lágstemmt litaval í haust. Svart og hvítt er ávallt í tísku, þó miskmikið eftir árum og árstíma en verða ríkjandi seinni hluta ársins. Litadýrðin hverfur með haustinu eins og laufin af trjánum þannig að þeir sem eru komnir með nóg af fatnaði og fylgihlutum í æpandi appelsínugulu og skærgrænu ættu að geta tekið gleði sína. Eitthvað verður þó um liti, enda ekki hægt að skilja þá litaglöðu eftir á ystu nöf. Litirnir verða aðallega í dempaðri kantinum og má þar helst nefna kremaða liti sem fara ein- staklega vel með svörtu og hvítu. Fjólublár fær að fljóta með haust- tískunni enda myndar hann skemmtilegt mótvægi gegn ríkj- andi áhrifum og hressir upp á haustið. -rve Sagt skilið við liti Kremað með gylltu mynstri. Þessi fallegi kjóll var til sýnis á Valentino tískusýning- unni.MYND/GETTYIMAGES Hér sjást föt eftir hönnuðinn Stefano Pilati fyrir haust- og vetrarlínu Yves Saint Laurent. MYND/GETTYIMAGES Natalie Portman hefur getið sér gott orð fyrir leik og þykir smekkleg í fatavali. Hér klæðist hún svörtu sem verður áberandi í haust.MYND/GETTYIMAGES Nýtt Prada Men ilmvatn PRADA TÍSKUHÚSIÐ HEFUR SENT FRÁ SÉR NÝTT ILMVATN FYRIR KARLMENN SEM SKARTAR AFAR FLOTTRI HÖNNUN. Karlmenn eiga fyrir löngu að vera hættir að kalla ilm- vötn rakspíra þó að sumum finnist það karlmannlegt, enda mikill munur á After Shave (rak- spíri) og Eau de Toilette (ilmvatn). Flestir karlmenn eru líka farnir að spá mikið í þeim ilmvötnum sem þeir bera og eiga jafnvel margar gerðir. Einn áhugaverður kostur fyrir áhugasama karlmenn um ilmvörn er nýjasti ilmur Prada tískuhúsins. hann heitir því einfalda nafni Prada Men og mun innan tíðar koma á markaðinn. ILmurinn skartar líka flottri hönnun sem er einmitt nátengd þessari „hræðslu“ karl- manna við ilmvötn. Hugmyndin að pumpinni sem dælir út ilminum er fengin frá gamaldags kvenmanns- ilmum sem voru í flöskum sem höfðu stórar loftpumpur. Karlmenn þurfa þó ekki að hræðast, króm og hvassar línur gera ilmvatnsflöskuna nógu karlmennlega til þess að karlmenn fari ekki að finnast þeir of kvenlegir. - sha Sumarvörurnar anga af hressleika sumars- ins. Ilmur af gulu sumri 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.